Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1983, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1983, Side 8
8 DV. FÖSTUDAGUR16. DESEMBER1983.’ Utlönd Utlönd Utlönd Útlönd Landnám gyöinga 1 mí mun halda áfram Yitzhak Shamir, forsætisráöherra ísraels, hefur vísaö á bug kröfum gyð- ingalandnema um aö harðar veröi tekiö á mótmælaaögeröum araba á vesturbakka árinnar Jórdan. Shamir feröaðist um landnáms- byggöimar í þyrlu í gær og ræddi viö gyðinga sem kröföust þess aö viðurlög væru þyngd og jafnvel aö Palestínuar- abar sem staönir væru aö grjótkasti yrðu fluttir burt af þessum slóöum. Geröi forsætisráðherrann lítiö úr grjótkastinu og varaöi gyöinga mjög við aö taka lögin í eigin hendur. — I síöustu viku var 11 ára arabastúlka skotin til bana og segir lögreglan allt benda til þess aö landnemar gyöinga hafi veriö þar aö verki. Herinn hefur látið landnemum í té vélbyssur og fleirivopn. Shamir áréttaöi þó aö stjórn hans mundi fylgja áfram sömu stefnu um landnám á hernumdu svæðunum en hún hefur verið fordæmd af Sameinuöu þjóöunum og flestum vestrænum ríkjum. Uppþot og óeirðir hafa verið tið á hernumdu svæðunum á vesturbakka Jórdan og i Gaza en ísraolsk- ir gyðingar halda áfram iandnámi sinu á þessum svæðum. Danastjórn fallin Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar (26) í kosningunum, Þykir fullt eins ríkisstjóm eftir kosningar þótt þaö Pouls Schluters var fellt í danska þjóð- líklegt aö Schliiter muni mynda næstu verði kannski ekki meirihlutastjóm. þinginu í gær og hefur Schliiter boöað RANNSÓKN A SUÐURSKAUTI Allsherjarþing Sameinuöu Þjóöanna samþykkti í gær án atkvæðagreiðslu aö fela aöalframkvæmdastjóra SÞ, Javier Perez de Cuellar, aö undirbúa alhliða rannsókn á Suöurskautinu. Slík rannsókn skyldi taka meö í reikninginn aö samkvæmt samningi frá 1959 hafa sextán þjóöir umsjónar- rétt varðandi Suöurskautslandiö. Það var helsta stjórnmálanefnd alls- herjarþingsins sem setti fram sam- þykkt þessa þótt tveir aðilar þeirrar nefndar, þ.e. Sovétríkin og Bandaríkin sem bæöi hafa umsjónarrétt varöandi Suðurskautslandiö hafi ekki verið mjög hlynnt sh'kri rannsókn. Varað var viö sérhverri tilraun til aö afnema 1959 samninginn en þar kveöur á um aö framkvæmdir varðandi Suöur- skautslandiö skuli eingöngu vera í friðsamlegum tilgangi. til þingkosninga 10. janúar. — Veröa þaö sjöundu kosningamar á þrettán árum. Minnihlutastjórn Schliiters tókst ekki að afla fylgis meöal hinna þing- flokkanna meö spamaðarfjárlögum sínum. Var fmmvarpiö fellt meö 93 at- kvæðum gegn 77. Skoðanakannanir þykja benda til þess aö íhaldsflokkur Schliiters hafi aukiö vinsældir sínar og fylgi og muni jafnvel tvöfalda þingmannafjölda sinn Embættismenn í Sovét reknir Innanríkisráöherra Hvíta-Rúss- lands, eins hinna fimmtán sambands- lýövelda Sovétríkjanna, hefur veriö sviptur embætti sínu, vegna afglapa lögreglu viö rannsókn á morðmáli, aö því er segir í sovéskum blööum. Fleiri embættismenn sambandslýöveldisins hafa veriö reknir vegna þessa máls. I dagblaöinu Soviet Byelomssia, segir aö stjómmálanefnd flokksins í lýöveldinu hafi rekið Gennadt Zhabitsky vegna þess aö háttsettir embættismenn neituöu aö taka mark á ábendingu leynilögregluþjóns um að mistök lögreglu heföu leitt til þandtöku fimm saklausra borgara vegna morð- máls. Sakbomingamir fimm voru hand- teknir 1981 fyrir morð á veiðiverði og fengu þunga dóma. Tveim árum seinna var annar hópur fimm manna handtekinn vegna morðs á tveim lög- regluþjónum og játaöi þá einn þeirra að þeir væm veiðiþjófar og heföu myrt veiðiþjófinn. Samkvæmt frásögnum blaöa neitaöi saksóknari Hvíta-Rússlands Adam Mogilnitsky ásamt embættismönnum aö taka tillit til ábendinga lögregiuþjónsins. Kommúnistaflokkur Hvíta-Rússlands hefur farið fram á að saksóknari ríkisins í Moskvu reki Mogilnitsky úr embætti. Fjöldi ann- arra embættismanna hafa misst stööur sínar vegna þessa máls. Adidas New York gallar, stærðir 34—54, litir dökkblátt/hv. Ijósblátt/hv. Verð kr. 2992,- TIL JÚLAGJAFA Adidas: Æfingagallar, stærðir 116—176, kr. 1.108,- Körfuboltaskór, Hit Shot, stærðir 33 — 39, kr. 1.088,- Körfuboltaskór, Top Tin, stærðir 40 — 49, kr. 1.564,- Æfingaskór, Uni- versal, stærðir 36—46, kr. 1.219,- Flip skór, stærðir 32—37, kr. 782.- Tangó fótboltar, kr. 1.552,- Hummel Los Angeles, stærðir 34 — 48, litur dökkblátt/hv. Verð kr. 1.964,- Dynamic skíði, Kastinger skíðaskór, Salomon bindingar. Mikið úrval af húfum, lúffum skíðahönskum og skíðagöllum. Speedo sundfatnaður. Henson: Æfingagallar, stærðir 22 — 34. Verð frá kr. 1.074,- Velúrgallar, stærðir 34—38. Verð frá kr. 1.159,- Liverpool-sett, stærðir 28—32. Verð frá kr. 777,- Laugavegi 97. Drafnarfelli 12. Póstkröfusími 17015. 5% staðgreiðsluafsláttur til 21. des. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.