Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1983, Side 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER1983.
„ÍSLENDINGURINN í
MÉR ER STERKARI”
— segirPercy
Stefánsson,
forstöðumaður
Byggingasjóðs
verkamanna
Percy Stefánsson heitir nýr for- manna. Hann tók viöstarfinu þann 19.
stööumaður Byggingasjóðs verka- október síöastliöinn.
Starf forstöðumanns Byggingasjóðs verkamanna er mikið starf, segir Percy
Stefánsson. DV-mynd EÓ.
„Forstööumaöurinn hefur yfir-
umsjón meö Byggingasjóðnum, áætl-
anagerð og fleiru. Þá hefur hann sam-
band viö sveitarstjórnir og stjóm
Verkamannabústaöa,” sagöi Perey
þegar hann var spuröur um hlutverk
forstööumannsins.
Hann sagöi aö þetta væri mikið starf
því aö ásókn í verkamannabústaöi
væri alltaf aö aukast og ætti eftir aö
aukast enn um allt land.
— Eru einhverjar nýjungar á
döfinni hjá Byggingasjóði verka-
manna?
„I nýja frumvarpinu um húsnæðis-
málalög er gert ráð fyrir aö bygginga-
samvinnufélög, eins og Búseti fái fyrir-
greiöslu úr sjóönum. Annaö er þaö
ekki.”
Percy kemur ekki um langan veg í
starf forstöðumannsins því aö áður
starfaði hann á tæknideild Húsnæöis-
stofnunar ríkisins en Byggingasjóöur
verkamanna heyrir undir þá stofnun.
Ekki sagðist hann vilja gera upp á
milli starfanna.
„Það er varla hægt. Ljósi
punkturinn er dagleg samskipti viö
fólk,”sagöihann.
Percy stundaði nám í tæknifræöi í
Stokkhólmi og lauk prófi 1978 eftir f jög-
urra ára skólavist. Hann hefur þó búiö
í Svíþjóö í alls 17 ár enda hálf sænskur.
Hann var sex ár í barnaskóla þar ytra,
kom hingað í gagnfræöaskóla en fór
svo aftur út til Svíþjóðar.
— Hvort kanntu betur viö þig á
Islandi eöa í Svíþjóö?
„Ég get ekki gert upp á milli land-
anna. Eg er mikill Svíi en um leiö er ég
mikill Islendingur. ”
— Þú ætlar ekki aö flytja aftur út til
Svíþjóðar?
„Ég hef aldrei hætt alveg viö þaö. Eg
gæti vel hugsað mér að búa þar nokkur
ár í viöbót. En Islendingurinn í mér er
kannski aðeins sterkari. Þaö er
auðveldara aö lifa hér,” sagöi Percy
Stefánsson.
-GB.
SKYNDIHAPPDRÆTTI UMFERDARRAÐS
Síöastliöinn laugardag stóö Um-
feröarráö fyrir skyndihappdrætti.
Dreift var um 3000 happdrættismiðum
til þeirra farþega í bílum sem nota bíl-
belti. Dregiö var samdægurs og fór
drátturinn fram í þættinum Jólagleöi á
Rás 2 sem Ragnheiöur Davíösdóttir og
Helgi Már Baröason sjá um. 10 vinn-
ingar voru í boði og sáu forráðamenn
Umferöarráös um aö draga, þeir Oli H.
Þórðarson og Tryggvi Jakobsson.
Vinningsnúmer voru þessi: 1. 45568,
2. 45580 , 3. 11127 , 4. 47637 , 5. 11123 , 6.
2367,7.6089,8.2370,9. 11198, 10.6945.
Þeir sem eiga einhverja þessara
miöa geta vitjaö vinninganna til
Umferðarráös aö Lindargötu 46. 1.
vinningur var veglegt jólatré, 2. vinn-
ingur eplakassi og mandarínukassi, 3.
var úttekt á höggdeyfum, 4., 5. og 6.
bílapakki til umferöaröryggis 7. ,8. og
9. slökkvitæki í bíl og skyndihjálpar-
púöi og 10. vinningur var rafgeymir.
Tilgangur þessa happdrættis var aö
sjálfsögöu að vekja athygli á notkun
öryggisbelta og um þessar mundir
stendur Umferðarráð fyrir víötækri
kynningu á þeim. -APH
Hér er veriö að draga vinningana. Á myndinni eru t.h. Helgi Már Barðason og Ragnheiður Davíðsdóttir, stjórn-
endur þáttarins Jólagleði, ásamt Óla H. Þórðarsyni og Tryggva Jakobssyni frá Umferðarráði. DV-mynd S.
Patreksfjörður:
Hátíð-
legað-
ventu-
kvöld
Frá Elínu Oddsdóttur, frétta-
ritara DV á Patreksfirði.
Þaö var hátíölegt kvöld í
Patrekskirkju þann 18. des-
ember. Kirkjugestum var boöið
upp á kórsöng, hornablástur og
helgileik.
Aöventukórinn söng sálma,
lúðrasveit Tónskólans lék og
börn úr 2. og 3. bekk grunn-
skólans léku helgileik.
Þaö var gaman að sjá kórinn.
Hann var skipaður fólki á öllum
aldri, frá 9—10 ára upp í fólk á
áttræðisaldri. „Þaö er ekki kyn-
slóðabil í þessum kór,” sagöi
séra Þórarinn Þór er hann hélt
ávarp.
Lúðrasveitin er skipuö börnum
frá 6—7 ára aldri og er gaman aö
sjá börn leika á hljóöfæri sem eru
jafnstór þeim sjálfum.
Stjórnandi er övind Solbakk,
skólastjóri Tónskólans. Hann
kom hingaö fyrir rúmu ári og það
er undur hvað honum hefur oröiö
ágengt. Viö höfum aldrei haft
lúðrasveit fyrr en nú. Einnig
hefur övind Solbakk æft bland-
aöan kór undanfariö. Uppistaöan
í þeim kór er kirkjukór Patreks-
kirkju.
Börnin léku fæöingu frelsarans
undir stjórn Valdísar Guðjóns-
dóttur kennara. Að lokum sungu
allir Heims um ból um leið og
þeir kveiktu friðarljós.
Þetta var mjög hátíðleg og góð
tilbreyting frá hinum veraldlega
undirbúningi jólanna. Hátíöin
var haldin bæði um miðjan dag
og um kvöldið og var kirkjan full
í bæöi skiptin. Allir þeir sem
undirbjuggu hátíðina eiga þakkir
skildar.
Jólasveinar heimsóttu Pat-
reksfjörð á sunnudag meö
ærslum og látum eins og þeirra
er von og vísa. Þeir sögöust koma
aftur í heimsókn á Þorláksmessu
meö eitthvað í pokahominu.
j dag mælir Dagfari________°_____I dag mælir Dagfari____________Í dag mælir Pagfari
Nektin sannar framsóknarmennskuna
Oft hafa menn velt því fyrir sér
hvers vegna konur fá sjaldan eða
aldrei aðgang að þingflokki fram-
sóknarmanna. Þar er að finna marg-
an valinkunnan gáfumanninn, stór-
menni og sauðabændur og afkom-
endur framsóknarleiðtoga í marga
ættliði. En enginn er þar konan, og
það jafnvel þótt þær hafi ekki síður
fengiö framsóknarmennsku í arf og
þótt litlir ættlerar.
Þá sjaldan það sést til kvenna í
röðum þessa eðalboraa stjórnmála-
flokks er það helst í tylliboðum og
þingveislum, vel klæddar og mein-
lausar frúr. Þar eru mættar eigin-|
konur þingflokksins og óhætt er að
segja að samþingsmenn þeirra
framsóknarmanna varpi öndinni
léttar við þau tækifæri því þar með
er ljóst, að framsóknarmenn vita
alténd hvernig konur líta út.
Nú hefur það gerst sem menn ótt-
uðust að framsóknarmenn hafa sin-.
ar skýringar á kvenmannsleysinu í
þingflokknum. Eitt gáfumenna
flokksins, Stefán Valgeirsson að
nafni, kunnur maður í landinu, fyrst
sem vörubílstjóri á Keflavíkurflug-
velli, síðar bóndi í Eyjafirði, og nú
síðustu árin sem snjall sláttumaður í
bönkum og bankaráðum, hefur
upplýst þjóðina um þá meginkröfu
sem gera verður til hvers þess sem
telst góður og gildur framsóknar-
maður.
Stefén segir í viðtali við Morgun-
blaðið nýlega, að „ekki sé nóg að
vera framsóknarmaður yst klæða”.
Þarna kom það, þarna er loks
leyndarmálið, dómurinn uppiýstur.
Klæðin segja ekki allt, flokks-
skirteinið er ekki nóg. Hver og einn
sem vill komast í úrvalssveit hjá
Framsókn og vill komast á þing eða
meiriháttar bitlinga, bankastjóra-
stöður eða þess konar gæðaflokk,
verður að gjöra svo vel að afklæðast
ystu klæðum og helst öllu. Þá fyrst
kemur í ljós hvers virði hann er
flokknum.
Nú er ekki að efa að alllr þeir sem
skipa þingsæti fyrir Framsókn hafa
uppfyllt þessa kröfu. Þeir hafa
berháttað fyrir framan formanninn
og sannað með nekt sinni, holdi og
blóði, að þeb- séu framsóknarmenn
af guðs náð og skaparans. Af þessu
óhjákvæmilega inntökupróíi er ljóst
að annað hvort hefur siðsemi for-
mannsins bannað honum að heimta
að konur afklæðist fyrlr framan sig,
þegar framboð eru ákveðin i flokkn-
um, eða þá hitt að vaxtarlag kvenna
hefur ekki samrýmst framsóknar-
kröfum um inngöngu. Þar sem vitað
er að konur eru ekki nándar nærri
eins í laginu og Stefán Valgeirsson,
og þar sem Stefán er í þingflokknum
en ekki konur, þá verður sú ein
ályktun dregin að vaxtarlag Stefáns
sé mest aðlaðandi í augum þess
skapara sem prógrammeraði Fram-
sóknarflokkinn.
Og karlmenn mættu líka vara sig.
Það er ekki nóg fyrir þá að ganga
með flokksskírteini upp á vasann
meðan þeir fækka ekki klæðum og
sanna hollustu sína og rétt vaxtar-
lag.
Yfirhafnir og kaupfélagsfatnaður
knnn að reynast haldgóður dulbún-
ingur gagnvart sauðsvörtum kjós-
endum en hefur harla fánýtt gildi
þegar kemur að úthlutun þingsæta
og bitlinga á vegum flokksins. Þá
fyrst reynir á umbúðarlausan sann-
leik hins nakta framsóknarlíkama í
stil við Stefán Valgeirsson.
Af þessum ástæðum öllum verður
að gera þá kröfu til formanns
Framsóknarflokksins að hann sitji
ekld einn í dómarasætl. Þjóðin á
heimtingu á að hver sá sem býður sig
fram til aö vera þingmaður eða
bankastjóri á vegum Framsóknar-
flokksins gangi nakinn fram á sviðiö.
Það er ekki nóg aö vera framsókn-
armaður yst klæða. Gæðin verða að
koma í ljós.
Dagfari