Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1983, Blaðsíða 26
26
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER1983.
Saga.
SAGA — HEADS OR TALES:
BETURMAEF
DUGA SKAL
Kanadískar rokkhljómsveitir hafa á-
vallt skotiö upp kollinum meö jöfnu
millibili innan rokkheimsins. Hver
man ekki eftir hljómsveitum eins og
Guess Who og þungarokkurunum í
Bachman, Tumer Overdrive.
I dag eru þaö fyrst og fremst tvær
rokkhljómsveitir af þyngra taginu sem
halda merki kanadískrar rokktónlistar
á lofti í heiminum. Þetta eru hljóm-
sveitirnar Loverboy og Saga.
Saga hefur veriö frá fyrstu tíö þekkt
fyrir vandaöa rokktónlist og hámarki
vinsælda sinna náöi hún í fyrra meö
hljómleikaalbúminu In Transit, sem
hlaut gífurlega góöar viötökur víöa um
heim.
Margir biðu því spenntir eftir næstu
stúdíóplötu frá hljómsveitinni, en'
hræddur er ég um aö einhverjum hafi
ekkiþótt biöinþessvirði.
Platan, sem nýlega er komin út,
heitir Heads or Tales og þó svo aö hún
sé langt frá því aö vera léleg veldur
hún mér engu að síöur nokkrum von-
brigðum. Þar er þó ekki viö hljóðfæra-
leikinn að sakast, þar er allt pottþétt.
Hins vegar finnast mér lögin frekar
slök og lítt grípandi.
Hér er því um þokkalega rokkplötu
aö ræöa en hún er langt frá því aö vera
í fremstu röö og víst er aö þeir
Sögumenn geta betur.
-SþS.
Hall & Oates.
HALL& OATES - ROCK'N SOUL PART1:
URVALSPLATA
Þaö er engum vafa bundiö hvaöa
dúett er vinsælastur í poppheiminum.
Það eru þeir Daryl og John Oates eða
Hall & Oates eins og þeir kalla sig. Þeir
hafa á rúmum tveimur árum átt hvert
lagiö af ööru á vinsældalistum og
virðist ekkert lát á vinsældunum.
Þaö hefur ekki alltaf gengiö eins vel
hjá þeim félögum eins og gerir í dag.
Þeir eiga aö baki tíu ára feril. Þeir
voru nokkur árin aö finna réttu tón-
listina sem hæfði þeim og þrátt fyrir
nokkur lög er náöu vinsældum, er þaö
ekki fyrr en eftir 1980 sem þeir fundu
réttatóninn.
Nú hafa þeir látið fara frá sér safn-
plötu, Rock’n Soul Part 1, er inniheldur
tólf lög. Tíu þeirra eru lög sem hafa
orðiö vinsæl meö þeim og tvö ný lög
fylgja með. Annað þeirra er Say It
Isn’t So, lag sem nýtur töluveröra vin-
sælda þessa dagana.
Þaö er hægt aö skipta tímabili Hall
og Oates í tvennt. Frá fyrra tímabilinu
eru þrjú lög á plötunni, She’s Gone,
Sara Smile og Rich Girl. Þetta eru
frekar róleg lög og ágæt, þótt þau séu
ekki í sama gæðaflokki og nýrri lögin.
Seinna tímabilið byrjar 1980 meö
endurkomu þeirra, en þeir höföu reynt
fyrir sér þá áöur hvor í sínu lagi með
litlum árangri. Þar er hvert lagið öðru
betra létt rokk af bestu gerö, og þótt á
plötunni séu ekki öll lögin sem vinsæl
hafa verið meö þeim eftir 1980 þá gef ur
Rock’n Soul Part 1 góöa mynd af
tónlistarferli þeirra og mæli ég með
plötunni fyrir alla þá sem hafa gaman
af tónlist þeirra Daryl Hall og John
Oates. Þetta er pottþétt rokktónlist
meö soul ívafi eins og nafn plötunnar
gefur til kynna.
-HK.
MEZZOFORTE — YFIRSÝN:
„KLASSASTYKKI”
Þá er hún komin nýja platan frá
Mezzoforte og hér heima ber hún hiö
virðulega nafn Yfirsýn. Svo ég hespi
fyrst af staðreyndum um plötuna þá
eru á henni níu lög, fimm eftir Friörik,
þrjú eftir Eyþór og eitt eftir Kristin.
Sjö laganna eru ný af nálinni, en tvö,
Rockall og Sviö, hafa komiö út áöur
(hiö fyrra á smáskífu en hið síðara á
liveplötunni Sprelllifandi, undir
nafninu The Venue). Platan var tekin
upp í Lundúnum (aö sjálfsögöu) og
upptökunni stjórnaöi Geoff Calver. Aö
svo búnu er ekki annað að gera en aö
venda sér í hóliö.
Eg held ég byrji á aö lýsa því yfir aö
Yfirsýn er aö líkindum besta plata
Mezzoforte. Aldrei áöur hefur
heyrst eins pottþétt sánd frá nokkurri
íslenskri hljómsveit, leyfi ég mér að
fullyröa. Þaö er sannkallaöur klassa-
svipur yfir þessari plötu. Aö mínum
dómi hafa þeir fimmmenningarnir (og
nú er sá sjötti kominn í hópinn, Niður-
lendingur er mér sagt) nú hrist af sér
öll bönd, leitinni er í sjálfu sér lokiö en
heldur þó vonandi áfram, framundan
liggur beinn og breiður vegur og
spurningin er einungis sú; hafa þeir
heppnina meö sér eöa ekki? Þegar ég
segi aö leitinni sé lokiö á ég viö aö þeir
hafa búiö sér sinn sérstaka stakk, þeir
hafa náö upp „Mezzosándi” sem þekk-
ist úr fjöldanum. Þeir hafa haldiö inn á
hliöarstíg sem enginn annar er fær um
aö feta. En hafa samt ekki gengið
stíginn á enda. Því heldur feröin á-
fram, í þaö minnsta er óskandi aö þeir
stoppi ekki á miðri leið, hvað þá snúi til
baka (nema leiðin sýni sig aö vera
blindgata). Nóg um heimspekilegar
. vangaveltur í bili. En svona lyftir Yfir-
sýnmanniupp.
Áöur en ég hlustaði á Yfirsýn haföi
ég satt aö segja mínar efasemdir um
innihaldiö (það er kannski þess vegna
sem hún hljómar svo vel sem raun ber
vitni). Mér fannst siðustu framlög
Mezzoforte.
drengjanna ekki gefa ástæðu til óhóf-
legrar bjartsýni. Rockall fannst mér
missa marks sem „hit”-fluga og nýja
lagiö á Sprelllifandi, The Venue (sem
nú heitir Sviö), fannst mér ekki virka
sterkt. Og í framhaldi af því kem ég aö
tveimur kjömum málsins aö ég held:
annar er sá aö platan sem heild er mun
betri heldur en einstök lög gefa tilefni
til. Af þeim sökum kann ég mun betur
viö Sviö og Rockall á þessari skífu en
viö fyrri kynni. Utsetningarnar hafa
einnig sitt aö segja við aö lyfta
lögunum upp. Hinn kjarninn er sá að
tónlist Mezzoforte nýtur sín betur á
stúdíóplötum en á hljómleikum eöa
liveplötum. Því miður hef ég ekki nóg
fyrir mér til aö geta stutt þaö síðar-
nefnda gildum rökum og þó tel ég mig
'hafa oröið varan viö þetta (t.d. á
Sprelllifandi). Þegar þetta er skrifaö
eru enn tveir dagar í hljómleikana í
Háskólabíói (sem voru í gærkvöldi)
þannig aö má vera aö undirritaöur sé í
dag, mánudag, kominn á aöra skoðun.
Og svo er náttúrlega framkoma þeirra
á hljómleikum allt annar (og brothætt-
ari) handleggur sem ég læt liggja á
millihluta.
Ég sé ekki ástæöu til aö nefna
frammistööu kappanna hvers og eins
því allir standa þeir sig í samræmi viö
þaö sem á undan er sagt. Þó langar
mig til aö geta um saxófónleik Kristins
Svavarssonar; Kristinn hefur aldrei
blásið jafnvel og nú sem sýnir vel aö
tónlistarmenn geta lengi tekiö fram-
förum. Eg lét víst þau orö eitt sinn
falla aö mér þætti hann einhæfur
saxisti. Þaö er tímabært að taka þau til
baka. Auk þess gleöur þaö eyraö að
heyra þverflautunni bregöa fyrir þótt í
litlum mæli sé.
Þaðan af síöur er ástæða til aö
tíunda ákveöin lög öörum fremur enda
heildin jöfn og góö. Ef eitthvað er
stendur Miönætursólin örlítið upp yfir
önnur, ekki sístfyrir feiknagott brass.
Semsagt; klassaplata.
-TT.
MILLITVEGGJA ELDA - ÝMSIR FLYTJENDUR:
FURÐULEGT LAGAVAL
Þegar best lætur geta safnplötur
veriö mjög eigulegir gripir og dregiö
upp skýra mynd af þeirri tónlist sem
mest er látiö meö hverju sinni. Lögin
þurfa helst aö vera öll sæmilega þekkt
og misbrúkun aö minni hyggju aö nota
safnplötuformið til þess aö kynna,
óþekkta flytjendur meö óþekkt lög.
A þessu flaska Fálkamenn á þessari
nýju safnplötu sinni. Innan um af-;
bragöslög og vinsæl eru gersamlega
óþekktir flytjendur meö hallærislega
diskótónlist eins og hún gerðist verst
fyrir fimm árum eöa svo, Lisa Boray,
Zu Zu Shark og Cruella de Ville —
hvaðan koma þessi ósköp? Ætla heföi
mátt aö Fálkinn meö öll sín stóru
umboð gæti önglað saman lögum á
bitastæöari plötu en þessa. Hvaö meö
Elton John, Siouxsie & the Banshess,
Club House, Level 42, Cliff Richard,
Genesis og Malcolm McLaren,
flytjendur á merkjum Fálkans sem
allir hafa gefiö út vinsæl lög á síðustu
mánuðum? Stóöust þeir ekki Zu Zu
Shark snúning?
Kostur plötunnar eru fimm gæðalög
í röö á síöari plötuhliðinni. Þar er
byrjaö á Union Of the Snake, lagi
Duran Duran, þá Promises Promises
með annarri breskri hljómsveit,
Naked Eyes. Þriðja lagið er Big Apple
með KajaGooGoo, fjóröa lagi og besta
lag plötunnar, In A Big Country með
Big Country og fimmta lagið Forever
And A Day meö Classix Nouveaux.
Önnur lög plötunnar eru í lakari gæöa-
flokkum, þar á meðal nýtt lag Gunn-
ars Þórðarsonar, titillag plötunnar,
Milli tveggja elda, sem hljómsveit
Gunnars flytur. Þá eru lögin meö John
Miles, Kim Carnes og David Essex
skólabókardæmi um flytjendur sem
eru á hraðri niöurleið og óskiljanlegt
að reisa þeim bautasteina af því
tilefni.
Safnplötur veröa alltaf misjafnar.
Hér hefur lagavalið mistekist og bita-
stæðu lögin eru of fá til þess aö heildar-
útkoman geti talist viöunandi.
-Gsal.
EDDA ERLENDSDÓTTIR:
Frönsk — íslensk píanóplata
Hljómplata með píanóleik Edrju Erlendsdóttur.
Píanóverk eftir: Franz Schubert, Alban Berg og
Arnold Schönberg.
Upptaka: Stúdíó Stemma í Háskóiabíói.
Skurður og pressun unnin í Frakklandi.
Útgefandi: Classicorama/Folkorama FLK
547009.
Plötur meö píanóeinleik eru allt
annað en algengar hér á landi. Reynd-
ar er þaö svo aö jafnvel heims-
markaöurinn í slikum plötum er í
föstum farvegi og vissum, heldur
föstum skoröum. Engrar roksölu er aö
vænta nema til komi mikið umtal og
jafnvel deilur um listamanninn, þá’
helst ef píanistinn kollvarpar hefð í
túlkun og meöferð viöfangsefna sinna. ,
Langsótt tengsl
Edda Erlendsdóttir virðist eiga hauk
í homi hjá Classicorama, sem gefið
hefur út plötu meö leik hennar, þar
sem hún leikur Drei Klavierstúcke D.
946, eftir Schubert, Sonate op. 1 eftir
Alban Berg og Drei Klavierstúcke op.
11 eftir Arnold Scönberg. En þaö þarf
heldur ekki lengi aö hlusta til að kom-
ast aö því, sem raunar mátti vita fyrir,
aö leikur Eddu á fuílt erindi á hljóm-
plötu. Hún hefur leikinn meö rondóum
Schuberts, sem gefin voru út löngu
eftir dauöa hans. Á sinn hátt er þaö dá-
lítið langsótt aö sækjast eftir tengslum
á milli Schuberts annars vegar og
Bergs og Schönbergs hins vegar.
Nema allir tengjast þeir Wáhring,
hverfinu sem ber númeriö níu í Vínar-
borg, þar í hverfi unnu líka svo ólíkir
brauöryðjendur sem Semmelweis og
Freud, svo endalaust má finna sam-
tengingar snillinganna í því ágæta
hverfi.
Schubert finnst mér Edda ofgera
dáh’tið í leik sínum — á köflum fer hann
aö minna á Chopin. Áberandi er þaö.
mest í fyrsta þættinum en kemur
einnig glöggt fram í þeim þriöja. En
hér er þaö fyrst og fremst spuming um
smekk, ekki hæfni. En í sónötu Albans
Berg nær leikur Eddu virkilega aö
glansa, og þar kemur listamanns-
þroski hennar og hæfni hvaö gleggst
fram. Meöferð hennar á píanóþáttum
Schönbergs er af svipuðum toga þótt
leikur hennar í Berg sónötumii hafi
höföaö steÆast til mín. Otkoma þess-
arar f ransk-íslensku samvinnuplötu er
gleðiefni og ekki veröur heyrt aö sá
hluti vinnunnar sem hér á landi er
unninn gefi öörum þáttum í neinu eftir.
-EM.
^ndsdóttír.
I