Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1984, Side 8
Á VECUM
OC VECLEYSUM
*?*
vid leigjum hina frábæru
PORTARO 4 hjóladrifs-jeppa
á verði sem enginn getur
keppt viö.
—Sfer b)l»li)£»»V
NliVt'lf.Tr/í/' SmiOluvegi 44 d • Kúpavogi
^^*^1**^ Simar 75400 og 78660
FULLKOMIÐ
ÖRYGGI
í VETRARAKSTRI
ÁGOODYEAR
VETRARDEKKJUM
COODYEAR vetrardekk eru
gerö úr sérstakri gúmmí-
blöndu og meö mynstri sem
gefur dekkinu mjög gott veg-
grip.
GOODYEAR vetrardekk eru
hljóðlát og endingargóö.
Fullkomin hjólbaröaþjónusta
Tölvustýrð jafnvægísstilling
GEFUR éy'fíÉTTA GRIPID
IHEKIAHF
Í170-172 Sími 21240
dv. í’öSTbDa(!úr ío'^iXrtóXtí'öfe vn
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neyten
Og þá er það þorramaturinn
Hvað kostar að blóta?
Margar tegundir
Á þessum ofangreindu stööum er
um aö ræöa flestar tegundir þorra-
matar. Þegar um stærri þorrablót er
að ræöa er hægt aö fá heitt saltkjöt
og pottrétti. Þá á síld stööugt meiri
vinsældum að fagna og er yfirleitt
hægt aö fá hana meö í þorramatnum.
I Naustinu er boöiö upp á selshreifa
og magál sem viröist vera nokkuö
fágættnúoröiö.
I dag hefst þorrinn. Hann er fjóröi
mánuður vetrar aö forníslensku
tímatali og hefst í 13. viku vetrar og
ávallt á föstudegi. Þaö er víst æva-
gömul venja aö hafa einhvern mann-
fagnað á heimilum í byrjun þorra og
heilsa honum meö virktum. Þessir
mannfagnaöir nefndust þorrablót.
En eftir aö kristni var lögtekin hér á
landi var öllum bannað að blóta aö
heiönum siö. Þó munu nokkrir hafa
blótað allt fram á okkar daga á laun.
Líklegt er aö þaö hafi verið
Hafnarstúdentar sem fyrstir
byrjuöu aö halda þorrablót opinber-
lega og mun þaö hafa veriö í Kaup-
mannahöfn 24. janúar 1873.
Þá eru Akureyringar taldir hafa
byrjaö aö halda reglulega þorrablót
frá 1874.1 Reykjavík eru fyrst heim-
ildir um þorrablót frá árinu 1880.
Þessi siður geröist æ algengari eftir
því sem árin liöu, en þaö er þó ekki
fyrr en um 1960 aö þorrablót er orðiö
sjálfsögö athöfn í hverri sveit og
kaupstað. Og oröiö þorramatur sést
ekki á prenti fyrr en 1958.
En sumir guöhræddir menn höföu
lengi horn í síöu þessa siðar og töldu
hann vera siö heiðingja.
Nú er hins vegar árið 1984 og ekki
til sá maöur sem ekki hefur komist í
kynni viö þorrablót og þorramat. Nú
er varla til þaö félag sem ekki efnir
til þorrablóts fyrir félagsmenn sína.
Hér áöur fyrr, er menn fögnuöu
þorra, var farið í búrið og tínt saman
þaö sem þar var til. En nú er öldin
önnur og enginn slikur matur
geymdur í búrinu. Viö verðum aö
fara í búöina og kaupa þennan vin-
sæla mat. Flestar kjötverslanir
bjóða upp á fjölbreytt val af þorra-
mat. Einnig eru margir matreiöslu-
staðir sem bjóöa upp á þorramat og
sjá um aö útbúa matinn fyrir þorra-
blót, lítil og stór.
Við höföum því samband viö
nokkra þá aðila sem selja þorramat
og fengum upplýsingar um
verölagið.
Veitingamaðurinn
Veitingamaðurinn v/Vagnhöfða
sér um aö útbúa þorramat fyrir
þorrablót. Veröiö er frá 300—350 kr.
fyrir manninn. Veröiö fer stiglækk-
andi eftir því hversu stór þorrablótin
eru. Ef um er að ræöa 20 manns eöa
mrnna kostar skammturinn 350 krón-
ur, 20—50 manns 340 krónur, 50—80
manns 320 krónur og yfir 80 manns
300 krónur.
Ef um mjög stórar veislur er aö
ræöa kemur til greina að semja um
verðiö. I 20 manna þorrablót og þar
yfir kemur matreiöslumaöur með
matinn og sér um borðhaldið. Og í
minni veislur er hægt að fá matinn
tilbúinn, niðurskorinn í trog. Lögö er
áhersla á aö þeir sem hyggja á
þorrablót geri pantanir sem fyrst en
annars er maturinn afgreiddur á
meðan nóg er til. Um 18 tegundir eru
í þorramatnum.
Múlakaffi
1 Múlakaffi eru seldir tilbúnir
Hressiribragði sýna kokkarnir i Veitingamanninum okkur þorramatinn gómsæta.
Verslunin
Hólagarður
I Hólagarði er boöiö upp á tilbúinn
þorramat, niöurskorinn á bakka.
Hór má sjá hiuta afþeim þorramat sem boðið er upp á i versluninni Hólagarði i
Breiðholti. DV-myndBj. Bj.
kassar með þorramat í og kosta þeir
295 krónur. Kassamir vega um 1200
g. I kössunum er sitt lítiö af hverju
og þá er einnig hægt aö kaupa auka-
lega allar tegundir ef þess er óskaö.
Þá eru einnig seld trog fyrir 5 eöa
fleiri og kostar skammturinn þá 250
krónur.
Múlakaffi sér einnig um aö útbúa
mat fyrir þorrablót. I blótum sem í
em y fir 100 manns kostar skammtur-
inn 300 krónur og fyrir 20—100 manns
kostar hann 350 krónur. Þá fylgir
með í kaupunum aö matreiðslu-
maöur sér um borðhaldið. Þegar um
stærri blót er að ræða er ráðlegt aö
panta í tíma meö ca 5—6 daga fyrir-
vara. Þorramatur er afgreiddur í
Múlakaffi frá kl. 11 fyrir hádegi fram
til kl. 23 á kvöldin.
Naustið
Þaö má segja aö vagga þorra-
matarins sé í Naustinu. Þar hefur
þorramatur verið afgreiddur i lang-
an aldur. Naustið sér um aö útbúa
þorramat fyrir þorrablót. A færri en
50 manna þorrablót kostar skammt-
urinn 350 krónur og yfir 50 manna 300
krónur. Matreiðslumaður sér um
borðhald. 1 Naustinu sjálfu er hægt
aö fá þorramat og kostar hann þar
650 kr. og geta gestir stappað í sig
ómældumagni.
Offitaunglinga:
EKKIER RÁÐ NEMA í TÍMA SÉ TEKID
Þegar þú lítur í kringum þig meðal
skólafélaganna, vina og vinkvenna
muntu örugglega taka eftir því
hversu mismunandi holdafar þeirra
er. Sumir eru þvengmjóir aðrir of
feitir, en flestir passlegir í holdum.
Algengt er að öll fjölskyldan, bæði
foreldrar og böm, séu vel í holdum.
Þaö getur veriö vegna erfðafræöi-
legra þátta. En í flestum tilvikum
stafar þaö af matarvenjum.
Borðaður er of sætur og feitur matur
og ennfremur of mikið af mat.
Oftast fá þeir sem eiga við offitu aö
stríða of litla hreyfingu. Þeir taka
sjaldan þátt í íþróttum vegna þess aö
þeir telja sig ekki vera liötæka. Og
þar með er vítahringurinn kominn í
gang þar sem þeir hreyfa sig of lítiö
og bæta stööugt viö sig aukakílóum. I
næstum því hver jum bekk í skóla eru
einn eöa tveir nemendur sem eiga
viðoffituaöstríöa.
Hvernig á að megra sig?
Sem barn eykur þú viö vigt þína í
samræmi við vöxtinn. Borðir þú
meira en líkaminn hefur þörf fyrir
eykur þú viö þyngd þína. Og þegar
þú boröar of lítið léttist þú. Meö hlið-
sjón af þroska þínum er ekki ráðlegt
aö léttast um meira en 200—300 g á
viku ef þú ert of þungur.
Ef þú ert einn af þeim sem þurfa
aö megra sig ættiröu að ræöa þaö viö
foreldra þína. Þaö er hugsanlegt aö
nægilegt sé fyrir fjölskylduna aö
breyta um mataræöi.
Ekki er heldur fráleitt aö nokkrir
vinir taki sig saman og fari í
megrunarkúr.
Megrunarráð
Þaö er þýöingarmikiö aö þú borðir
eitthvaö á matmálstímum en hættir
öllu smánarti á milli þeirra þó svo aö
hungriösegitilsín.
Reyndu aö boröa hollan mat, t.d.
gróft brauö, kartöflur, grænmeti,
ávexti, magran ost og magurt kjöt.
Þú veröur aö forðast öll sætindi, s.s.
sælgæti, kökur og gosdrykki. Einnig
áttu aö halda þig frá feitum mat, s.s.
frönskum kartöflum, pulsum og
kartöfluflögum.
Drekktu mikið af vatni, súrmjólk,
eitt glas af ávaxtasafa á dag og jafn-
vel sykurlausan gosdrykk.
Reyndu aö forðast drykki sem inni-
halda sykur.
Og mundu svo aö hreyfing skiptir
miklu máli ef þú ætlar aö ná árangri.
Megrunaruppskrift
Gulrótarbrauð
50 g ger
21/2 dl volgt vatn
21/2 dl súrmjólk
1/2 dl matarolía
1/2 tsk. salt
21/2 rifin gulrót
350 g rúgmjöl
ca 400ghveiti
Gerið er leyst upp í vatninu. Súr-
mjólkinni, olíunni, saltinu, gulrótinni
og rúgmjölinu er bætt út í.
Síðan er þetta hrært saman og
hveitinu bætt jafnóðum út í þar til
deigið er orðiö hæfiiega seigt. Deigiö
er látið lyfta sér í 45 mínútur. Eftir
þaö eru 25 lítil brauö búin til og látin
lyfta sér í 30 mínútur. Brauðin eru
síðan bökuð við 200°C hita og í ca 25
mín.
En það er vert að taka fram að það
þurfa ekki allir að líta eins út. En
staðreyndin er sú að fullorðnu fólki,
sem á við offfitu aö stríða, hættir
frekar til að fjá sjúkdóma en þeim
grönnu.
(Rád ogresultater)