Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1984, Síða 32
ÚRVALSEFNI
m ALLRA HÆFI
ASKRIFTARSfMINN ER
27022
TALSTÖÐVAR- BÍLAR UM ALLA BORGINA SÍMI8-50-60. , 27Ö?AUGLÝSHV,GAR < ' &.í£SjDUM|jLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLT111
ÞRÖSTUR SÍÐUMÚLA10 OCC1! ; RiTSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984.
Tómasá
nýjan Benz
„Þetta er ekkert leynimáL Þaö er
búiö að segja frá þessu áður í blööum.
Eg held að Morgunblaðið hafi sagt frá
því í haust aö ég sé einn af sex ráðherr-
um fyrrverandi stjómar sem nýtt hafi
sér þessa heimild til niðurfellingar að-
flutningsgjalda,” sagði Tómas Áma-
son, fyrrverandi ráðherra, um bíla-
kaupsín.
Tómas staðfesti þá frétt Þjóðviljans
í morgun að hann hefði fyrir nokkm
keypt sér nýjan bíl af gerðinni Merce-
des Benz 280 SE. Verð bílsins er um 1,1
milljón króna. Tómas fékk hann á 500
þúsund krónur því aöflutningsgjöld
vom felld niður. Reglurkveðaáumað
fyrrverandi ráðherrar megi nýta sér
þessa heimild í allt að eitt ár eftir að
ráöherradómi lýkur.
Tómas sagðist ekki vera búinn að
taka nýja bílinn i notkun. „Eghefekki
séð ástæðu til þess. Ég er ekki búinn
að selja gamla bilinn minn,” sagði al-
þingismaðurinn. Tók hann fram að
hann hefði i þessu máli farið að réttum
reglum.
-KMU.
Húsnæðis-
stjórn
„gúmmar”
grimmt
„Það er ekki rétt að viö höfum ekki
getað greitt út lán í dag,” sagði
Sigurður E. Guðmundsson, forstjóri
Húsnæðisstofnunar ríkisins, er DV
spurði hvort stofnunin gæti ekki greitt
út lán, en sögusagnir gengu um það i
gærdag.
„Við höfum þurft að standa við
margar skuldbindingar aö undan-
fömu, sérstaklega gagnvart lífeyris-
sjóðum. Þetta hefur þýtt að yfir-
dráttarlán okkar hjá Seðlabankanum
hafa orðið hærri en gert var ráð fyrir
og heimilaö hafði verið.
Seðlabankinn er ókátur yfir þessu.
Og í morgun kvöddu bankastjórar
Seölabankans okkur á sinn fund til að
ræða þessi mál. Niðurstaðan úr þeim
umræðum varð sú að starfsemi okkar
verður áfram með sama hætti en yfir-
drættinum verði komið í eðlilegt horf á
næstunni.” -JGH
LOKI
Allir fá sór Benz meðan ,
þeir hafa sjens.
FALSAÐIVEÐ-
BÓKARVOTTORD
fékk veðbókarvottorð á annað númer en breytti því í sitt!
Seldi
bíl
semá
hvfldu
400
þúsund
krónur:
Lögreglan í Reykjavík hefur nú til
rannsóknar alvarlega fölsun á veð-
bókarvottoröi, sem upp komst um í
sambandi viö bílakaup sem gerð
vom fyrir nokkrum dögum.
Maður sem ætlaði aö selja bíl sinn
fékk tilboð í hann og hljóðaði það
upp á skipti á sléttu. Var honum boð-
in lítil Subaro sendiferðabifreið í
staöinn og vom verðmæti hennar
talin 200 þúsund krónur.
Gengiö var frá samningum og
fylgdí sendiferðabílnum veðbókar-
vottorð sem sýndi að á honum hvíldu
engar skuldir. Þegar maðurinn kom
á skrifstofu tollstjóra síöar um dag-
inn til að skipta um númer og annað
upplýstist aö búið var að taka veð í
bílnum fyrir yfir 400 þúsund krónur
— þrátt fyrir að veðbókarvottorðið
værihreint.
Þegar farið var að kanna máliö
nánar kom í ljós aö eigandinn fyrr-
verandi hafði falsað vottorðið. Hafði
hann farið til Borgarfógeta og beðiö
um veðbókarvottorð á bíl sem var
með fjögra stafa númeri — fjórum
fyrstu stöfunum á númeri hans. Eftir
að hafa fengið það í hendurnar bætti
hann fimmta stafnum við á vottorðið
og var þá þar með kominn með
númerið á sínum bíl á þaö.
Lögreglan komst þegar í málið en
þá var maðurinn kominn á góða leið
með aö selja bílinn sem hann haföi
fengiö í skiptum. Ef það hefði gengiö
hefði hann fengiö 200 þúsund krónur í
peningum i hendurnar en hinn setið
uppi með sendiferðabílinn sem búið
var að taka veð í fyrir yfir 400
þúsundkrónur.
DV VALDIMAGNÚS BJARN-
FREDSSON „PENNA ÁRSINS”
Ellert B. Schram, ritstjóri DV, efhendir Megnúsi Bjemfreðssyni virðingervott blaðsins, „penna ársins".
Penninn ergefinn af ritfangaversluninni Pennanum.
DV-mynd Einar Úlason.
Magnús Bjarnfreðsson var í gær
útnefndur af DV kjallarahöfundur
ársins. I hófi sem Magnúsi var haldið
í gær afhenti Ellert B. Schram, rit-
stjóri DV, Magnúsi „penna ársins”.
Magnús skrifar reglulega kjallara-
greinar i DV og gat Ellert þess aö
greinar hans væru ávallt málefna-
legar og vektu mikla athygli lesenda.
Magnús skrifar um þau mál sem eru
efst á baugi hverju sinni og gerir þaö
af skarpskyggni.
Penninn sem Magnús Bjamfreðs-
son hlaut er af Lamy-gerð, gefinn af
ritfangaversluninni Pennanum.
Penninn er glæsilegur sjálfblekung-
ur úr silfri. Pennaoddurinn er úr
gulli með handfægðri platinuhúö.
Stallur pennans er úr islensku grá-
grýti. Silfurplata er á stallinum með
áletrun og stálkúla, sem penninn
hvílirá.
Magnús Bjarnfreðsson fæddist 9.
febrúar 1934 á Efri Steinsmýri í
Meðallandi. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR1954 og stundaði nám i tvö ár
viö tækniháskóla i Þýskalandi. Hann
gegndi starfi þular hjá rikisútvarp-
inu og var blaðamaöur um árabil.
Dagskrárgerðarmaður var hann viö
s jón varpið í tíu ár en síðustu ár hefur
Magnús unnið sjálfstætt við ýmis
konar fjölmiðlun. Kona Magnúsar er
Guörún Ingibjörg Amadóttir.
-JH
ÓLGA Á TÍMANUM
„Þessi ákvörðun kom mér mjög á
óvart. Vinnubrögðin i þessu máli hafa
veriö meö þeim hætti, aö ég bjóst alls
ekki við þessu eför það sem á undan er
gengið,” sagði Elías Snæland Jónsson,
ritstjóri Tímans, við DV í morgun. En
Elíasi var í gær tilkynnt aö hann hlyti
ekki endurráöningu hjá hinu nýja út-
gáfufyrirtæki blaösins, Nútimanum. 1
hans staö hefur verið ráöinn Magnús
Olafsson hagf ræðingur.
Eins og DV greindi frá var þessi á-
kvöröun . tekin á fundi stjórnar
Nútímans í fyrradag. Þá var Gisla
Sigurðssyni framkvæmdastjóra til-
kynnt í gær að hann yrði ekki endur-
ráöinn en i stað hans hefur Sigurður
Skagfjörð Sigurðsson rekstrarhag-
fræöingur verið ráðinn í starf fram-
kvæmdastjóra blaösins. Enn hefur
ekki verið tilkynnt um endurráðningar
annarra starfsmanna.
Samkvæmt heimildum DV munu
talsveröar breytingar fyrirhugaðar á
stjómun Tímans þegar hinir nýráðnu
taka við. Mun fyrirhugaö að fram-
kvæmdastjórinn verði valdameiri en
áður. Sitji hann m.a. ritstjómarfundi
blaðsins sem eins konar yfirritst jóri.
Mikil ólga er nú meðal starfsmanna
á ritstjóm Tímans vegna uppsagnar
Eliasar og lögðu a.m.k. tveir blaða-
menn niður vinnu i gær í mót-
mælaskyni við ákvöröun blaðstjórnar.
Þá hafa starfsmennimir sent fré sér
yfirlýsingu þar sem þessí ákvörðun
stjómarinnar er hörmuð og talin með
ölluóskiljanleg.
-JSS.
BUR-togar-
ar leggja
í’ann
Togarar Bæjarútgerðarinnar
eru nú að leggja í hann. Aætlaö er
að Hjörleif ur sigU á miðin þann 20.
og Jón Baldvin fylgi í kjölfariö
tveim dögum síðar. Þá hefur viö-
gerð á togaranum Ottó N. Þorláks-
syni gengið það vel eftir brots jóinn
sem hann fékk á sig 5. janúar að
Ifklegt eraðhann sigli þann 26.
EIR.