Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1984, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1984, Blaðsíða 6
6 DV. LAUGARDAGUR21. JANUAR1984.. Ferðamál Ferðamál Ferðamál Samstarfsnefnd um ferðamál í Reykjavík er um þessar mundir aö hrinda í framkvæmd skemmtilegu máli sem hefur verið í undirbúningi síðustu mánuði. Hér er um að ræða kynningu á Reykjavík úti um land. Ákveðiö hefur verið aö efna til Reykjavíkurkvölda á Vestfjöröum, Norðurlandi og Austurlandi á næst- unni og mun Davíð Oddsson borgar- stjóri verða í fararbroddi þess hóps sem annast kynninguna. Formaður Samstarfsnefndar um ferðamál í Reykjavík er Markús örn Antons- son, forseti borgarstjómar, en Omar Einarsson, framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkur, stjórnar framkvæmd Reykjavíkurkvöldanna. Ferðasíðan innti þá félaga nánar eftir hvað hér væri á seyði. „Hlutverk nefndarinnar er meðal annars að stuðla að kynningu á Reykjavík sem ferðamannastað og er þegar hafin útgáfa á ýmsum upplýsingagögnum þar aö lútandi,” sagði Markús örn Antonsson. „Við viljum leggja ríka áherslu á að það beri að sinna íslenskum ferða- mönnum í Reykjavík sem best ekki síður en þeim erlendu. Þegar rætt er um ferðamenn í borginni hefur gætt ákveðinnar tilhneigingar aö líta bara til útlendinga sem hér eru á ferð. Þessum viljum við breyta. Þaö er gífurlegur fjöldi fólks utan af landi sem leggur leið sína til Reykjavíkur í margs konar erindagjörðum, þar á meðal sem feröamenn,” sagði Markús örn ennfremur. Efla tengslin Markús örn sagði að fram til þessa hefðu borgaryfirvöld lítið gert til að efla tengsl höfuöborgarinnar og landsbyggðarinnar. Þessu þyrfti aö breyta og það væri eðlilegt aö höfuð- borgin hefði forystu um að koma á nánara sambandi. „Með því að koma á þessum Reykjavíkurkvöldum úti um land viljum viö kynna hvað borgin hefur upp á að bjóða í skemmtun, menn- ingu og ýmiss konar afþreyingu, sem af eölilegum orsökum er mun fjöl- breyttara en úti um land. Með þessu móti erum við að vinna jafnt í þágu landsmanna sem Reykvíkinga og viljum aö viö gerum okkur grein fyrir mikilvægi þessara mála um leið og lögð er áhersla á að við bjóðum fólk utan af landi velkomiö til borgarinnar, enda er Reykjavík höfuðborg allra landsmanna,” sagði Markús. Reykjavíkurkvöldin Omar Einarsson sagði að fyrsta Reykjavíkurkvöldið yrði í félags- heimilinu i Hnífsdal laugardaginn 28. janúar. Síðan í Sjallanum á Akureyri 5. febrúar og í Valaskjálf á Egils- stööumll. febrúar. Dagskráin er í stórum dráttum á þá leið að í upphafi ávarpar Davíð Oddsson borgarstjóri gesti kvöldsins, síðan er borinn fram matur, og að því búnu hefjast skemmtiatriði. Þar koma fram leikarar frá Leikfélagi Reykjavíkur og söngvarar frá Islensku óperunni. Ennfremur veröur tískusýning þar sem sýnt verður það nýjasta sem tískuverslanir í Reykjavík hafa á boðstólum. Þá fer fram danssýning og bingó þar sem vinningar eru helgarferðir til Reykjavíkur. Loks veröur stiginn dans. Veislustjóri og kynnir verður Hermann Ragnar Stefánsson. Verði aögöngumiða verður stillt í hóf og stefnt að ánægjulegri kvöld- stund þar sem dagskráratriði höfða til sem flestra. Það eru 15—20 manns, sem þarna leggja hönd á plóginn, og sögðu þeir Omar og Markús að þátttaka leikara LR og Markús Örn Antonsson og Ómar tinarsson ætla að kynna Reykjavík úti um land með friðu föruneytiþar sem borgarstjóri verður i fararbroddi. DV-mynd Bj.Bj. Samstarfsnefnd um ferðamál í Reykjavík með athyglfsverða nýjung: sögöu verður einnig haldiö áfram að gefa út bæklinga á ensku, en það verður ekki síður lögð áhersla á að koma upplýsingum á framfæri á íslensku,” sagði Markús öm. Hann sagði ennfremur um Reykja- víkurkvöldin að þar með fengi borgarstjóri og aðrir fulltrúar borgarinnar tækifæri til að hitta menn að máli á viðkomandi stöðum og afla sér meiri þekkingar á mál- efnumstaðanna. Þarft framtak Þetta framtak Samstarfsnefndar um ferðamál í Reykjavík er til hreinnar fyrirmyndar. Fram til þessa hefur lítið veriö unniö aö al- mennum kynningum hér innanlands á Reykjavík eða öðrum stöðum með þeim hætti sem Samstarfsnefndin ætlar að gera. Vonandi veröur þetta aðeins upphafið aö frekara kynningarstarfi og þá ekki aðeins af hálfu Reykjavíkur, heldur fylgi aðrir staðir í kjölfarið. Þaö væri ekki frá- leitt að hugsa sér að til daanis lands- hlutasamtök skipulegöu kynningar í Reykjavík þar sem greint yrði frá því helsta sem í boði væri fyrir ferða- menn í viðkomandi landshlutum. Segja má aö Reykjavík hafi algjöra sérstöðu á þessu sviði þar sem svo margir eiga erindi til höfuö- borgarinnar og því beinist kynningarstarf af hálfu borgarinnar fremur í þá átt að fá innlenda ferða- menn til að staldra lengur við. En úti um land virðist sá hugsunarháttur ríkjandi í alltof miklum mæli að þeir sem á annaö borð séu að ferðast um landiö, einkum á sumrum, hljóti að vita um allt sem í boði er á viökom- andi stöðum. Þetta er hins vegar mesti misskilningur. Við skulum vona að Islendingar auki ferðalög um sitt eigið land, en það er ekki þar með sagt að allir kjósi að fara hringinn. Miöað við al- mennt efnahagsástand má miklu frekar búast við að fólk fari til ákveö- inna staða í stað þess aö fara í alls- herjaryfirreið. Staðarvalið hlýtur þá í mjög mörgum tilfellum að ráðast af þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, og komiö hefur verið á framfæri með einum eða öðrum hætti svo að ferða- maðurinn geti áttað sig á hvaða þjón- usta er fyrir hendi og fleira sem skiptir máli. -SG. söngvara óperunnar væri mjög mikilsverö sem og annarra er þarna kæmu fram eða veittu aðstoð, svo semFlugleiðir. Framkvæmdastjóri kynningar- kvöldanna er Omar Einarsson og þeir Skúli Björnsson og Olafur Jóns- son, starfsmenn Æskulýðsráðs, hafa unnið með honum að þessu verkefni. Framhaldið ræðst af undirtektum Enn sem komið er hafa ekki fleiri Reykjavíkurkvöld verið ákveðin en þessi þrjú sem áður hafa verið nefnd. Hins vegar sögðu þeir Markús og Omar að yrðu undirtektir góöar á þessum stööum væri iíklegt aö efnt yröi til Reykjavíkurkvölda víðar um land. „Við munum gefa út upplýsinga- bækling á næstunni um Reykja- víkurborg á íslensku og í þann bækl- ing verður síðan hægt að bæta upplýsingum á lausum blöðum um allt það helsta sem er að gerast í borginni á hverjum tíma. Að sjálf- Á Akureyri fer Reykjavíkurkynningin fram iSjallanum. í STUTTU JflÁLI Kanaríeyjaferðir viröast ætla aö njóta sömu vinsælda í vetur og áður. Beint leiguflug er þangaö frá Keflavík 25. janúar og er uppselt í þá ferð og allmargir á biölista. Sömuleiðis fara margir í áætlunar- flugi gegnum London eða Amster- dam. Þá munu leiguflugin í febrúar orðin vel bókuð og sama er að segja um skíðaferöir. Færeyingar nota nú þyrlu til innanlandsflugs. Landsstjórnin hefur samið við Maersk Air um aö reka þyrlu af gerðinni Bell 212 næstu 12 mánuði í eyjunum, en það er stjórnin sem hefur keypt þyrluna. Sumarið 1981 leigði lands- stjórnin þyrlu áf þessari gerð til að annast flutninga milli eyjanna i tilraunaskyni og þótti gefast vel. Hins vegar var töf á framhaldinu meðan fjármálin voru leyst, en nú hef ur veriö höggvið á þann hnút. Portúgalir afnámu um síðustu áramót illræmdan brottfararskatt sem komiö var á þar í landi ekki alls fyrir löngu. Skatturinn var aö upphæð sem samsvarar um 250 krónum íslenskum. Hver sem dvaliö hafði lengur en tvo sólar- hringa í landinu var skyldugur að borga þessa upphæð til að komast burt. Skatturinn var upphaflega settur á til að afla ríkissjóði tekna en linnulausum mótmælum rigndi yfir stjómvöld vegna þess arna svo að þau sáu sig tilneydd að fella skattinn niður. Ferðasíðan biður að heilsa Albert og bendir á að ýmis- legt getum við lært af Portúgölum. -SG. Fifwir til Ileykjavíkur - kvölda úti um land

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.