Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1984, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1984, Blaðsíða 22
DV. LAUGARDAGUR 21. JANUAR1984. Nauðungaruppboð annaö og síöasta á eigninni Espilundi 10, Garðakaupstað, þingl. eign Oskars Mikaelssonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 23. janúar 1984 kl. 16.15. Bæjarfógetinn í Garðakaupstaö. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Kjarrmóum 30, Garðakaupstað, þingl. eign Byggung, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 24. janúar 1984 kl. 15.15. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Hraunprýði, n.h., Garðakaupstað, þingl. eign Kristjáns Hall, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 25. janúar 1984 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 85., 88. og 93. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Ásbúð 43, Garðakaupstað, þingl. eign Pálinu Sigurðardóttur, fer fram eftir kröfu Jóns Ingólfssonar hdl. á eigninni sjálfri mánu- daginn 23. janúar 1984 kl. 16.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 31., 34. og 44. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Hegranesi 23, Garðakaupstað, þingl. eign Eövarðs Árna- sonar, fer fram eftir kröfu Utvegsbanka íslands og Gests Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 24. janúar 1984 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 19., 24. og 27. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Ægisgrund 12, Garðakaupstað, þingl. eign Orlygs Arnar Oddgeirssonar o.fl., fer fram eftir kröfu Garðakaupstaðar og Lífeyris- sjóðs verslunarmanna á eigninni sjálfri þriðjudaginn 24. janúar 1984 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 77., 83. og 89. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Lyngási 2, Garðakaupstað, þingl. eign Ásgeirs Long, fer fram eftir kröfu Helga V. Jónssonar hrl. Garðakaupstaðar og Brynjólfs Eymundssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 24. janúar 1984 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 78., 83. og 89. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Hringbraut, húsi J.M., Hafnarfirði, þingl. eign Þorsteins Björnssonar, fer fram eftir kröfu Baldvins Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri mánudaginn 23. janúar 1984 kl. 13.30. Bæjarfógetinn íHafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 77., 83. og 89. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Suðurhvammi 2, Hafnarfirði, þingl. eign Sigurbjörns Jóns- sonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri mánudaginn 23. janúar 1984 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Haf narfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 77., 83. og 89. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Hjallabraut 13, 3. h., Hafnarfirði, þingl. eign Oktavíu Ágústs- dóttur og Karls Kristensen, fer fram eftir kröfu Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl., Jóhanns Steinasonar hrl., innheimtu ríkissjóðs og Verslunarbanka íslands hf. á eigninni sjálfri mánudaginn 23. janúar 1984 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Hafnari irði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 77., 83. og 89. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Eiðistorgi 3, íbúð 103, Seltjarnarnesi, þingl. eign Emmu Hólm, fer fram eftir kröfu Hafsteins Sigurðssonar hrl., Sparisjóðs Reykja- víkur og nágr. og Ólafs Gústafssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 24. janúar 1984 kl. 16.00. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. Menning Menning Menning Leiklist AlvöruUms #2úel ATHUGASEMD FRÁ RITSTJÖRN Enn hefur DV ekkl ráðið leiklistar- gagnrýnanda til fastra skrifa, eftlr fráfall Olafs Jónssonar. Jón Viðar Jónsson féllst góðfúslega á að fjalla um þessa sýningu LR á Gísl og kann DV honum bestu þakkir fyrir. Leikfélag Reykjavíkur hefur ekki sýnt mikið áræði í verkefnavali það sem af er þessum vetri. Það hefur einungis tekið til sýninga verk sem hafa áður reynst göngustykki: Hart í bak á sviöi Leikfélagsins sjálfs fyrir um tuttugu árum, Guð gaf mér eyra sem slegið hefur í gegn á leiksviðum heimsborganna og nú síðast Gísl sem margir muna úr vinsælli sýningu Þjóðleikhússins á sínum tíma. Um hin tvö fyrrnefndu verður að vísu hvorugt sagt að þau séu leikhúsi til skammar; þau erú vel boðleg leikrit, en tæpast miklu meira; a.m.k. sýna þeir leikfélagsmenn ekki sérstök til- þrif í flutningi þeirra. Leikfélagiö hefur í rauninni aöeins tekið eina verulega listræna áhættu á leik- árinu: að setja mállausa stúlku, sem aldrei hefur áður stigið á svið, í annað aðalhlutverkið í Guð gaf mér eyra, og bar sú tilraun miklu betri árangur en maður þorði að vona. Það verður einnig að segjast Leik- félaginu til málsbóta aö þau tvö verkefni sem það hefur boðað á seinni hluta leikársins eru mun for- vitnilegri en þau sem þegar eru komin og einkum virðast valin með hliðsjón af hinum sí-tóma kassa leik- hússins. Leikrit Brendan Behans, Gísl, er vandasamt verk í sviðsetningu. Það er allt í senn: farsi og harmleikur, hópverk og stjömuleikrit, og kviknar ekki til lífs nema óh'kir þættir þess n jóti sín allir jafnvel. Á sviðinu í Iðnó verður Gísl ærslafengiö hópverk sem Stefán Baldursson stjómar eins og um amatörsýningu væri að ræða: leggur ofuráherslu á hreyfingu og fjörlegheit sem ekki verður séð að spretti á neinn eðlilegan hátt upp úr því mannlífi sem leikurinn á að lýsa. Sýningin fær því fljótt á sig eitthvert eirðarlaust yfirbragð sem orkar svona heldur þreytandi á mann til lengdar. Þess sér hvergi merki að leikstjóri hafi gefið sér tíma til að móta persónur með leikurum: draga fram sérkennandi atriði og lyfta undir innri mótsagnir sem gætu gert þær hugtækar og spennandi; hann virðist aðallega hafa hugsað um að láta sjóið rúlla. Enginn leikari nær heldur að skapa minnisstæða persónu í þessari sýningu og er dálítið hart aö þurfa aö segja slíkt JÓN VIÐAR JÓNSSON samtal Meg og þjónustustúlkunnar Teresu — hafa hér engin áhrif. Leik- stjóri og leikendur ná einfaldlega engu sambandi við mannlegan kjama verksins og stundum flökrar að manni að þeir hafi ekki reynt að leita hans. Gísl fer fram í niöurníddum húskumbalda í Dublin, þar sem býr hið undariegasta samsafn fólks. Þetta er tjékhovskt leikrit í þeim skiiningi að persónur em flestar á einhvern hátt reköld, fólk sem hefur strandað í lífinu og ber í hjarta sínu beiskju yfir því hvemig komið er. Þetta fólk hefur alið með sér háleita drauma, en þegar leiknum lýkur stendur það frammi fyrir spurning- unni um verðleika þeirrar hugsjónar sem krefst þess að saklausu blóði sé úthellt. Gísl er grimmileg lýsing á pólitísku ofstæki; áhrif verksins ekki aö litlu leyti fólgin í þeirri ógn sem fólkiö í leiknum býr við — og á sinn þáttíaöviðhalda. Gísli Halldórsson fer með aðalhlut- verk leiksins, Pat. Hann var eitt sinn Úr sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Gísl eftir Brendan Behan. hermaður í lýðveldishernum, reynir enn að vera fomum hugsjónum trúr en veit þó innst inni að þær eru blekk- ing. Þetta er spennandi hlutverk en Gísli gerir ekkert í því sem hann hefur ekki sést gera áður; maður bíður og vonar aö þessi snjalli leikari breikki registur sitt, nái dýpra sem skapgerðarleikari, en sú bið er nú oröin nokkuð löng. Jóhann Sigurðar- son er í hlutverki unga hermannsins, sem fómað er í pólitískum hrá- skinnsleik ofbeldisaflanna; hann er glæsilegt leikaraefni, en þarf að aga sig betur og, umfram allt, gangast meir upp í hlutverkum sínum; hann er enn óþægilega meðvitaður um sjálfan sig. Af öörum leikendum í stórum hlutverkum er skylt að nefna Margréti Helgu Jóhannsdóttur sem er Meg, lagskona Pats, og Guðbjörgu Thoroddsen sem er Teresa. Margrét Helga má vara sig á því að verða ekki of gróf i fasi, en hún á bæði til hlýju og jafnvel fínleik sem hefði átt aö geta notið sín i þessu hlutverki. Teresa er ekki rismikið hlutverk og gefur Guðbjörgu ekki færi á að bæta miklu við sig, en hún kemur alveg jafnvel fyrir og efni standa til. Um frammistöðu annarra leikenda er vart ástæða til að ræða nema Þor- steins Gunnarssonar í hlutverki offíséra í írska lýðveldishemum. Þorsteini tekst ekki að gæða persón- una þeim óhugnanlega valdsmanns- leik sem á þarf að halda og er nauðsynlegur fyrir það andrúmsloft sem að réttu lagi ríkir í leiknum. Frumsýningargestir tóku leiknum vel og lá þó aldrei í loftinu sú hrifning sem góð sýning' á þessu verki á að geta skapað. Gísl er ekki hláturs- leikur með mórölsku ívafi, eins og raunin verður hér, heldur verk um mannlega eymd sem er svo mikil að henni verður ekki lýst nema með meðulum hlátursins. um leikverk sem nánast byggist á kostulegum karkaterum. Vmsar persónur — Monsjúr, Miss Gilchrist og hommamir eru glögg dæmi — verða þannig ekki annað en litlausar skrípamyndir sem engin leið er að finna til samúðar með. Sá ömurleiki sem ieikritið er þmngiö af og skín í gegnum groddalegan húmor þess fer allur forgörðum í hamagangi og undarlegum skorti á viðkvæmni; jafnvel atriði sem krefjast nærfærni og bh'ðu — ég nefni sem dæmi lítið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.