Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1984, Blaðsíða 36
ÚRVALSEFNI
m ALLRA HÆFI
ÁSKRIFTARSÍMINN ffl
27022
TALSTÖÐVAR- BÍLAR AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
U^ALL/^B^R^jNA SMÁAUGLÝSINGAR AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLT111
ÞRÖSTUR SÍÐUMÚLA 10 QRC11 R,TSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12-14
Frjálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984.
HUNDAMAL ALBERTS ViNDUR UPP Á SIG:
„Allir hundar í
borginni skulu deyja”
—útbreiddasta blað Svíþjóðar birtir fréttir um „hundaslátrun" i Reykjavík
m
I
I m
- * 11 —naaaai
nmi mmj
TPIIIVV
\/9LmL M m
* w m. m
> m is <■
IHI HM.IA l»l N 20.1 VM VIII
ALLAHIMDAH
I STA\ SKAPO
MÞjurvmnnmr
öwmrhmlu
wurMm
pmtrmirrur
Mjureteit boía\
- me<l «**» «1*1*1*
smartfri moiod
m n« *k* »í»>
*,$*■*&*»6#*'
\H»n »« *l*>
m ttfcr iNnwr **■ N
i *'tt W
ldfcr> * «
«i«*t ssO'W t «)«»*'«
$M «*
Forsíða Expressen I gœr þar sem skýrt er frá hundmálum é íslandi. Eins og sjá má eru stór orð ekki spöruð.
Jarðskjálftarí Villmgaholti
— náðu ekki að hrísta leirtauið
Sverrír hættir þá kannski
að núlla við setuna.
„Klukkuna vantaði þrjár mínútur í
tvö þegar ég fann skjálftann. Ég sat
á rúminu í herberginu mínu, klukk-
an, sem er hér á veggnum, titraði,
svo og allt lauslegt sem á veggjunum
er,” sagði Gréta Jónsdóttir, hús-
freyja í Villingaholti í Flóa, en þar
fundust tveir vægir jarðskjálftakipp-
ir í gær. „Þetta er timburhús sem vif
búum í og sonur minn, sem var uppi
á lofti, fann greinilega þann fyrri en
ég aöeins þann síðari. Eg hef nú oft
fundið þá sterkari, t.d. hristist leir-
tauið frammi í eldhúsi ekkert í
kippnum en ég nota það oft sem
mælikvarða,” sagði Gréta hús-
freyja.
Skjálftarnir fundust einnig á Egils-
stööum, sem er næsti bær við
Villingaholt, og á jarðskjálftavakt-
inni á Veðurstofunni mældust fjórir
kippir, sá stærsti 3,7 á Richter. Þar
telja menn að skjálftinn eigi upptök
sín um 60 km frá Reykjavík, miðja
vegu á milli Selfoss og Villingaholts.
-EIR.
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit-
ara DVíSvíþjóð:
tslenska lögreglan varð í gær þess
vafasama heiðurs aðnjótandi að for-
síðan á Expressen, útbreiddasta dag-
blaöi Svíþjóðar, er helguð henni, auk
heillar síðu inni í blaðinu.
Expressen birti fjórar myndir af ís-
lenskum lögreglumönnum í áflogum
við hund sem þeir eru að aflífa. Fyrir-
sagnir blaðsins með fréttunum eru
þessar: „Þetta gerist á hverjum
degi”, „Hundaslátrun” og „Allirhund-
ar í borginni eiga að deyja”.
Sá atburður, sem Expressen er hér
að segja frá, er auðvitað Framnes-
vegarmálið svokallaða sem svo mjög
komst í fréttir heima á Islandi fyrir
nokkrum mánuðum. Myndirnar fjórar
birtust allar í DV á sínum tíma.
Frétt Expressen er um margt ákaf-
lega villandi og er greinilega til þess
fallin að vekja mikla andúð á reglum
þeim sem gilda um hundahald í
Reykjavík.
I fréttinni segir meðal annars að
dýravinir um allan heim mótmæli nú
hundaslátrun í Reykjavík. Bak-
grunnurinn er aö sjálfsögðu mál Al-
berts Guðmundssonar fjármálaráð-
herra sem mjög ítarlega hefur verið
sagt frá í sænskum fjölmiölum aö
undanförnu.
Svíar, sem rætt hafa við fréttaritara
DV í Svíþjóð, hafa skipst mjög í tvo
hópa í afstöðu sinni. Margir telja
hundabannið í Reykjavík til hreinnar
fyrirmyndar og kvarta undan því að í
Lundi verði ekki þverfótað fyrir hund-
um og hundaskít.
Aðrir telja hundareglugerðina í
Reykjavík bæði ómannúðlega og
óskiljanlega. Vafalaust á þeim eftir að
fjölga sem eru þeirrar skoöunar eftir
fréttaflutning Expressen af málinu í
gær.
Blaöið segir og að íslenska sendiráð-
inu í Stokkhólmi hafi borist fjölmörg
mótmæli vegna bannsins.
-JGH
Þjóðhagsstofnun spáir um afkomu útgerðarínnar:
Tapið 7-10%
utan vanskila
og með stór-
hagræðingu
,,Sé reiknaö með því, að fiskveiöi-
stefna haldi aftur af sóknartengdum
kostnaði, að minnsta kosti að þvi
marki sem ætlað er að dragi úr afla
1984, blasir við 10—16% rekstrarhalli á
togurum, en rekstur bátaflotans stæði í
járnum. Botnfiskveiðar í heild væru
því með 7—10% tapi. 1 þessum tölum er
fjármagnskostnaöur gerður upp með
nýjum hætti, sem enn er ekki útrætt
máL”
Þetta segir meöal annars í greinar-
gerð Jóns Sigurðssonar, forstjóra
Þjóöhagsstofnunar, um afkomuhorfur
sjávarútvegsins 1984. Hún liggur nú
fyrir samráösnefnd sjávarútvegsráö-
herra og eftir er að taka tillit til
hugsanlegra athugasemda sem
væntanlegar eru á f undum nefndarinn-
ar í dag eða upp úr helginni.
I samtali við talsmann útgerðarinn-
ar eftir að þessi greinargerð barst
kvað hann þaö stórfurðulegt að birta
nú útreikninga með allt öörum hætti
um f jármagnskostnaö en áöur, ,til þess
að gerbreyta niðurstöðunni í hag-
kvæmari átt”. Hann kvað það geta
munað um 10% eða þar um bil. Eins
væri búið að reikna inn verulega lækk-
un rekstrarkostnaðar í kjölfar kvóta-
skiptingar. „Ut úr dæminu má finna
alls konar tölur og þær réttu geta eins
verið hátt í 40% tap. Þetta dæmi er
engan veginn uppgert.
I greinargerðinni er sagt að stofn-
lánavanskil útgerðarinnar séu nú 1.100
milljónir og 500 milljóna vanskil séu á
henni vegna viðskiptaskulda.
Um fiskvinnsluna segir að áætlanir
um frystingu sýni 7—9% hagnað en um
saltfiskverkun 12—16% tap. ,,Af þessu
er ljóst að svigrúm til fiskveröshækk-
unar er takmarkað,” segir í greinar-
gerðinni, og einnig að markaðshorfur
sjávarvöru séu verulegri óvissu háðar.
HERB.
LUKKUDAGAR
21.janúar
49611
Bangsi frá I.H. að
verðmæti kr. 750.
Vinningshafar hringi í sima 20068