Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1984, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1984, Qupperneq 15
DV. LAUGARDAGUR 21. JANUAR1984. 15 „Viö uröum alltaf aö taka miö af hvaöa fólk viö höföum: Er þessi góður í þetta?! Og auðvitað vorum viö alltaf djarfari fyrir þaö að viö höfðum styrka stjórn vísa, bæði í leikstjóm og senu- frágangi, þar sem var Steingrímur (Þorsteinsson, bróðir Marinós). Hann stjórnaöi alltaf af og til og lék. Auðvit- aö voru sumar sýningarnar slæmar, jafnvel á áhugamannasviöi. Svo komu góöar innan um, maður man jafnvel ýmsa kafla sem manni fannst aö heföu tekist sérlegavel.” — Hverjir voru helstu máttarstólp- amir á sviðinu á þéssum tíma? „Ja, þaö mátti heita aö hver Dal- víkingur væri leikari á heimsmæli- kvaröa. Þaö væri hægt að nefna marga, þama vom Friöjón Kristins- son, Hjálmar Júlíusson, Sigtýr Sig- urösson, Bergþóra Jónsdóttir. Þetta er endalaus runa, Vilhelm Þórarinsson, Jói leikari. Hann hefur líklega verið sá eini utan þéttbýlisins þá sem hafði leik- aranafnbót. Hana fékk hann af því aö þaö var alltaf leitað til hans frá því hann var ungur maöur til aö skemmta á sviði, til dæmis með gamanvísum. Svo var honum líka alltaf treyst til aö leika titilhlutverkin í þessum gaman- leikritum öllum. Já, þaö væri hægt aö nefna fleiri og fleiri og ekki má gleyma öllum þeim sem lögðu mikla vinnu á sig en sáust ekki í sýningunum. Siggi Jóns var til dæmis alveg ómissandi. Hann sá um alla maskana og liföi sig inn i þetta. Sminkiö og limið var alltaf áloftihjáhonum.” — Aöbúnaöurinn hefur varla verið merkilegur? „Hann var ósköp lélegur. Meðan kolakyndingin var til dæmis, var svo kalt aö við sátum oft dúöuð. Þaö voru ofnar meðfram senunni og við gátum stundum ekki annaö en legið á þeim til aöyljaokkur.” — Var aðsóknin á leikritin hjá ykkur viðunandi? „Já, það var hún. Oft reyndist hún meira en 100%. Þetta var á Hjalteyrar- árunum og þá kom oft dálítiö úr Arnar- neshreppnum. Alltaf var lika töluvert mikið frá Akureyri og Hrísey. Yfirleitt komu þetta 600—700 manns á sýningu. Þá voru á Dalvík um 700 svo þaö verður aö teljast gott.” — Viö stofnun Leikfélags Dalvíkur hlýtur fljótt aö hafa orðiö breyting á leikstarfseminni í bænum. Hættu hin félögin þá að sýna? „Nei, þau héldu lengi áfram og maöur var oft hjá þeim líka. Það kom fyrir mig að ég var meö upp í 5 ruilur yfirveturinn.” — Eitthvaö hefur þaö allt gefiö af sér án þess hugsað sé til peninga ? „Þetta var óhemjumikil vinna sem fólkiö lagði á sig. En það var mjög gaman, þegar allt kemur til alls.” Leiklistarferill Bjöms Björnssonar hófst meö þvi aö hann kom óf orvarand- is inn í „Gísl” eftir Brendan Behan og gerðist þar IRA maður. Þetta var áriö 1980, áöur hafði hann að visu komið nokkuð nálægt ýmsum skólaleikritum áDalvík. Eftir Gísl hefur Bjössi, eins og hann er best þekktur, verið í öllum stykkjum og starfsemi leikfélagsins. Hann lék í Landabruggi og ást, var ljósamaður í Danmerkurferð meö Saumastofu Kjartans Ragnarssonar, þá kom Kertalog Jökuls, Þaö þýtur í Sassa- frastrjánum og svo Illur f engur í fyrra. Þar við bætast kabarettar. Bjössi er nú varaformaður í stjórn Leikfélags Dalvíkur. Hann var spurð- ur hvort þessi leiklistaráhugi hefði lengi blundaö í honum. ,3vona í og meö. Eg hef farið og séð þau leikrit sem ég hef meö góðu móti komist á. En ég geri lítið aö því aö lesa leikrit nema þá til að velja verk sem á að flytja. Ég er ekkert sérstaklega fyrir bókmenntir og ekki mikill lestrarhestur.” „Hjá mér verður mest til á sviðinu. Eg undirbý þá ekkert frekar annars staðar.” — Hvemig likar þér við Charlie staurfætta? „Þetta er ákaflega skemmtilegur gæi. Hann er kall sem er gaman aö fást viö, mér finnst hann þó ekkert sérstak- lega erfiður.” — Hefur þig ekkert langað í að leggja leiklistina fyrir þig og fara í nám? „Nei, mig hefur ekkert dreymt um að læra. Það var búið að róa mikið í mér um það. Mér fannst ég ekkert vera á réttri hillu þar þó maður sé í þessu að gamni sínu. Að vísu er ég bú- inn að vera á námskeiðum hér fyrir norðan í sambandi við leiklist. Þar hefur verið boðið upp á leikræna tján- ingu og talæfingar, einnig leikmynda- gerö og grímugerð. Svo var ég í Reykjavík á tveggja daga námskeiði í lýsingu. Það eru alltaf á hverju ári námskeið sem Bandalag íslenskra leikfélaga hefur upp á að bjóða.” — Finnst þér mikið gagn af þannig námskeiðum? „ Já, mjög mikið gagn. Það hafa allir gottafþessu.” — Fer ekki mikill tími í að setja upp svona leikrit? „Jú, þetta er óhemjutímafrekt. Sér- staklega er það fyrir okkur sem gerum leikmyndina og slíkt líka. Þetta er geysilegvinna.” — Hvenær er hún skemmtilegust? „Ætli mestu sælustundirnar séu nú ekkieftirá.” — Er fólk hér á staðnum mikið gefið fyrir leikhús? Ég hef gaman af léttu spaugi, segir Bjöm Bjömsson, sem leikur staurfótirn Charlie Brown. „Það er ákaflega misjafnt. En Dal- víkingar vilja helst ekki leikrit sem þarf að hugsa mikið um á eftir. Þeir vilja baragríniðogbúið.” — Finnst þér það verra ? .Kjálfur sakna ég þess ekki, ég hef gaman af að leika í grínhlutverkum. Hitt er annað mál að þaö er gaman að fáannað innanum.” — Líturðu á þig sem gamanleikara fyrst og fremst? „Nei, ég hef bara gaman af léttu spaugi.” „Eg byrjaði að leika í skólaleikrit- um, líklega 12 ára gamall,” sagði Rafn Ambjömsson sem fer með hlutverk kapteins Jones í leikritinu. Hann og systkini hans, Klara, Inga og Omar, eiga öll sinn þátt í öflugri starfsemi Leikfélags Dalvíkur fyrr og nú. Omar túlkar sjálfan Jörund kóng í þetta skipti. Ekki mundi Rafn hvert fyrsta skóla- hlutverk hans var. „En fyrsta hlut- verkið fyrir Leikfélag Dalvíkur var í Fjalla-Eyvindi, ég held það hafi verið áriö 1967. Þetta var lítið bóndahlut- verk. Síðan lék ég í Þrem skálkum, Hart í bak og Gullna hliðinu.” — Hvernig persóna er kapteinn Jones? „Þetta á aö vera fulltrúi bresku krúnunnar á Islandi, hann fer eigin- lega með alræðisvald á landinu í nafni hennar. Síðan setur hann alls konar „gúvernóra” fyrir sig. Hann er í raun- inni maðurinn sem hefur valdið í þessu leikriti. Jones er hálfgerður hroka- gikkur og merkikerti. Það virðast ekki vera menn í hans augum nema aðals- menn.” — Ertu búinn að vera lengi félagi í Leikfélaginu? „Eg hef verið það síðan ég byrjaði að leika en nánast ekkert starfaö nema í þessum leikritum sem ég hef leikið í.” — Og ómenntaður í listinni? „Eg hef aldrei verið á neinu nám- skeiði eða slíku. Að vísu má segja að hvert leikrit hafi verið manni nám- skeið.” — Hvemig geðjast þér svo að leik- ritinu um hundadagakonunginn? „Mér finnst þetta skemmtilegt stykki. Það er létt yfir þessu og þetta er bæði grín og alvara. Eg held að hljóti að vera gaman að vera áhorfandi og þaö er líka gaman að æfa það.” — Hvenær byrjuðu æfingarnar? „Það var í nóvemberbyrjun. Síðan var æfingum hætt um 10. desember og ekki byrjaö aftur fyrr en í janúar, Það datt þarna út alveg mánuður í æfing- um.” Mér finnst þetta skemmtHegt stykki, segir Rafn Armbjörnsson, sem leikur hrokagikkinn Jones kaptein. Hér á myndinni er hann lengst tH vinstri, en hinir eru Amar Jónsson leikstjóri, sem leikur Stúdiósus og Úmar Arinbjörnsson, sem leikur sjálfan Jörund. — Marinó Þorstelnsson var fyrsti formaður „Leikfélagiö var stofnað 1944 upp úr leikhópi sem var að sýna Skugga-Svein sem jólaleikrit,” sagði Marinó Þor- steinsson, leikari hjá Leikfélagi Akur- eyrar, fyrsti formaður Leikfélags Dal- víkur. „Þaö var alltaf sýnt leikrit milli jóla og nýárs hjá ungmennafélaginu. Yfirleitt voru þetta svona 5 til 6 sýning- ar. Síðan voru líka kvenfélagið, slysa- vamafélagið og verkalýðsfélagið með leikrit. Það var fjáröflunarleiö fyrir þessi félög að sýna leikrit, þó þaö hljómi lygilega núna. En þannig voru kannski 4—5 leiksýningar settar upp á Dalvík á vetri. Jólaleikritiö var mest þeirra, eiginlega var það þáttur í jóla- hátíðinni að fara á jólasýninguna. ” — Hvers vegna var þá talin þörf á leikfélagi fyrst starfsemin var svona blómleg? „Það var aðallega til að sameina fólkið sem vann að þessu enda ekki allt í ungmennafélaginu. Svo vildu menn Textiog myiidir: Jón Baldvln Hallddrsson líka hafa hönd í bagga þegar leikrit voru valin. Okkur hjá ungmennafélag- inu fannst þetta besta leiðin en við mættum töluverðri andstöðu, stofnun félagsins gekk ekki brotsjóalaust fyrir sig. Sumir töldu að þetta væri dauða- dómur á leikstarfsemi í plássinu. Sá styr stóð fram eftir öllum árum.” — Var þetta stór hópur sem stóð að stofnunfélagsins? „Eg gæti trúað að á undirbúnings- fundinum, sem haldinn var í Ung- mennafélagshúsinu þann 16. janúar, hafi verið um 20 manns. Þá var búið að ákveða að stofna félagið og það var síð- an gert 19. janúar í Hótel Asbyrgi. Þar var kosin fyrsta stjórnin og með mér í henni voru Friðjón Kristinsson skifari, Páll Sigurðsson gjaldkeri, Sigtýr Sig- urðsson meöstjómandi og Friðsteinn Bergsson meðstjórnandi. Sumir af okkar fólki voru auðvitað í öðrum fé- lögum sem sýndu leikrit en ungmenna- félaginu, Friðsteinn var til dæmis meö fremstu mönnum hjá verkalýðsfélag- Staurfóturiim Charlie Brown Skugga Svoinn stofnaði Leikfélag Dalvíkur, segir Marinó Þorsteinsson, sem var fyrsti formaður leikfé- Jónsson frá Akureyri. Hjá leikfélaginu reyndum við stundum að fá leikstjóra en það vildi ganga upp og ofan, menn vorumisjafnir.” — Hvernig gekk svo starfið hjá nýju leikfélagi? „Þeir sem voru í stjórninni voru allt ágætismenn. Ég held aö enginn geri sér grein fyrir því hversu óhemju vinnu þeir lögðu í þetta. Mína vinnu treysti ég mér ekki til aö dæma en ég get vel metið þeirra hlut. Páll varð til dæmis að vera gjaldkeri í áraraðir og alltaf peningalaus, maður getur hugs- aðsérhvernig þaðhefur verið.” — Hvernig völduð þiö ykkur verk- efni? inu. En kjaminn í Leikfélagi Dalvíkur var úr ungmennafélaginu. Starfsemin þar var öflugust og farið að kosta meiru til en áður. Agóöinn var því far- inn að minnka en það var meira farið aö setja stolt sitt í leikritin. ” — Varfariðaðfáaðstoðutanaðkom- andi fólks við uppfærslur? „Eg minnist þess nú að á fyrstu sýningunni í Ungmennafélagshúsinu, þegar það var tekið í notkun, var tjald- málari fenginn að. Það var Vigfús Hrokagikkurínn kapteinn Jones Skngga*Sveiim stofinaði Lelk- félag Dalvíkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.