Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1984, Qupperneq 20
20
DV. LAÚGARDAGUR 21. jÁnÚaR ÍmÁ
Skelfing er ég feginn aö það
sku.li ekki vera ég sem þarf
að sklpta einum þorski á milli
hundraö og flmmtíu togara. S
Atf svarthvftnm fíflum
og belniim útsendmgiim
Nú hefur sjónvarpið tekið upp
þann ágæta sið að endursýna þá
þætti sem voru hvað vinsælastir á
timum verðbólgunnar og auövitað
taka vídíóeigendur þá í óða önn upp á
spólur því að þeir hljóta að vera
merkileg heimild um eitthvað eins og
klyfberamir sem finnast núorðiö hér
um bil eingöngu í borgum og kaup-
stöðum en hins vegar er kannski
vafasamt að nota þessa þætti i
náttúrufræðikennslu i skólum þvi að
ég sá ekki betur en fíflamir væru hér
um bil eins á litinn og öll önnur blóm
og þótt það séu aö vísu allar kýr dýr
eru ekki öll dýr kýr eins og ágætur
bóndi sagði mér foröum daga af sér-
stökum ástæöum.
Svarthvítir þættir þykja ekki góðir
i dag og raunar fátt annaö heldur.
Það er svona rétt að maðui sam-
þykki að landiö sé það þegar 'ða tek-
ur aö þorrablótum og ár?h;ítíc un og
senda á treflana í milljónatali til
Sovétrikjanna vegna þess að
Benedikt Axelsson
Andropov er búinn að vera meö kvef
frá því í október og hefur því þurft að
biðja aðra að standa fyrir sig á svöl-
um Kremlar og horfa á kjamorku-
vopn og byssustingi. Ekki veit ég
hvort honum skánar viö að fá þessa
milljón trefla en varia ættu þeir að
saka hann, svo framarlega sem hann
bindur þá ekki of fast um hálsinn á
sér.
Aðrir þættir sem ég hef fagnaö
mjög endursýningum á eru kenndir
við Dave Allen sem er írskur háðfugl
að sögn þeirra sem eru vel að sér í
dýrafræðinni og hann er svo bráð-
fyndinn, samkvæmt þvi sem blöðin
Háaloftið
Hoi insnieÍKta ranum
brást bogalistln
— og tfiles fór med slgur af hólml í BBC-keppninni
Skákkeppni BBC-sjónvarps-
stöðvarinnar ensku nýtur mikilla
vinsælda og hefur gert svo allt frá
því hún komst fyrst á laggirnar fyrir
9 áram. Þá leiddu einungis heima-
menn saman hesta sína, efnilegir
skákmenn sem síöar hafa komist í
tölu virðingarverðra stórmeistara.
Þótt þeim hafi farið fram í skák-
listinni síðan þykja þeir ekki lengur
boðlegir í keppnina, svo mjög hefur
henni vaxið fiskur um hrygg. Nú
dugir ekki annað en aö vera heims-
meistari til þess að tryggja sér fast
sæti.
Einn af „gömlu jöxlunum” fékk þó
aö fljóta meö að þessu sinni en þaö
var Tony Miles sem Islendingum er
að góðu kunnur frá þátttöku sinni i
Reykjavík urskákmótunum. Hann
tók einmitt þátt i BBC-keppninni árið
1975, í fyrsta sinn er hún var haldin,
þá aiþjóölegur meistari. Svo dýrmæt
var sú reynsla sem hann fékk þar að
nokkram mánuðum síöar náöi hann
stórmeistaratitli og er nú sterkastur
enskra skákmanna samkvæmt Eló-
stigakerfinu, með 2610 stig (John
Nunn hefur 2600 stig).
Miles gerði sér lítið fyrir og sigraöi í
keppninni eftir æsispennandi úrslita-
skák við heimsmeistarann Karpov.
Þeir tveir urðu efstir í sínum riðli í
undanrásum. Miles hafði svart og
tefldi Caro-Kann vöm, afbrigði sem
hann hafði undirbúiö sérstaklega, og
tókst Karpov ekki aö leysa vanda-
málin sem upp komu yfir borðinu.
Ekki í fyrsta sinn sem Miles leggur
heimsmeistarann að velli — vann
einnig er þeir tefldu í Evrópukeppni
landsliða í Skara í Sviþjóð 1980. Sú
skák varð reyndar einkum fræg fyrir
byrjunina sem Miles beitti: Svaraði
kóngspeðsbjrjun Karpovs (1. e4)
meðl. —a6. ..
Lokastaðan í riðlunum varð þessi:
\-riðill: 1. Karpov (Sovétríkin) 5 v.
af 6 mögulegum. 2. Browne (Banda-
ríkin) 3 v. 3. Chandler (Englandi) 2
1/2 v. 4. Rogers (Ástralíu) 1 l/2v.
B-riðiil: 1. Miles (Englandi) 4 v. 2.
Kindermann (V.-Þýskalandi) 3. v.
3.-4. Hort (Tékkóslóvakíu) og
Garcia (Kúbu) 21/2 v.
Urslitin: Karpov—Miles 0:1.
Umhugsunartími er öllu styttri en
gerist á alvarlegum kappmótum,
eða 2 klst. á fyrstu 40 leikina og síöan
n.iitkiighind til þess aö ljúka skák-
inni. Skákirnar eru teknar upp á
myndband og siöan lesa skák-
mennimir sjálfir inn skýringar
sínar. A meðan sjónvarpsáhorfendur
fylgjast með skákunum fá þeir því
að „heyra” hugsanir skákmannanna
og má ljóst vera aö það fyrirkomulag
er bæði fræðandi og skemmtilegt. Nú
er þeirri athugasemd komið fram við
íslenska sjónvarpið hvort ekki væri
tilvalið að gera eitthvað þessu líkt í
næsta mánuði því að þá veröa stadd-
Skák
JónLÁmason
ir hér á landi margir skákgarpar í
tilefni af skákmóti Búnaðarbankans
og Reykjavíkurskákmótinu.
Á móti sem þessu eru náttúrlega
tefldar fjölmargar spennandi skákir
enda allar tefldar „fyrir áhorf-
endur”. Við skulum fylgjast með
fáguðu handbragöi heimsmeistarans
sem hér á í höggi viö stórmeistarann
Murray Chandler sem einmitt er
væntanlegur á Reykjavikurskák-
móiið í febrúar.
Hvítt: Murray Chandler
Svart: Anatoly Karpov
Italski leikurinn.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. 0-0
Rf65.d3d66. c3
Þetta er fremur hægfara byrjun,
en traust, og hún nýtur mikilla vin-
sælda nú á dögum. Svona tefldi
Karpov m.a. sjálfur í einviginu síð-
asta viðKortsnoj.
6. — 0-0 7. Bg5 a6 8. Bbíh6 9. Bh4 g5
10. Bg3 Ba711. Rbd2Bg4!
Hér endurbætir Karpov tafl-
mennsku Kortsnojs, sem lék 11. —
Kh8 gegn Nunn á skákmótinu í Wijk
aan Zee í Hollandi í fyrra. Biskupinn
er á leið til g6, þar sem hann hefur
vakandi auga með hvíta e-peðinu ef
honum skyldi detta í hug aö leika
d3—d4. Karpov undirbýr sjálfur að
sprengja upp á miðborðinu og nær
smám saman undirtökunum.
12. Khl Bh5 13. Del Kg7 14. Bdl Bg6
15. Rc4 He816. Bc2 Dd717. Dd2 Had8
18. a4 Rh519. b4 d5! 20. exd5 Dxd5 21.
b5
Ný brídgebók efftir Ouðmimd Sv. Hermannsson
Nýlega gaf Skákprent út bridgebók
eftir Guðmund Sv. Hermannsson,
blaöamann og bridgemeistara. Bókin
nefnist „Hringsviningar og hrærings-
þvinganir” og er tæplega 100 blaðsíð-
ur.
Er þetta önnur bridgebókin sem
Skákprent hefur gefið út, hin var, JSpil-
aðu bridge viö mig” eftir Terence
Reese í þýöingu Stefáns Guðjohnsen.
Bók Guömundar er nýmæli hvað það
snertir að hingað til hafa flestöll rit-
verk um bridge verið þýdd úr eriend-
umtungumálum.
Segja má að Guðmundur eigi við
ramman reip að draga að keppa við
hina fjölmörgu atvinnumenn sem
skrifa bridgebækur og gefnar era út í
tugþúsundum eintaka og veröiö þar
meö undir þvi sem íslenskt út-
gáfufyrirtæki getur boðið. Hins vegar
hygg ég, að þessi bók sé hin fyrsta sem
fjallar um bridge vítt og breitt frá
sjónarhóli islensks höfundar og hlýtur
það að teljast til tíðinda.
Guðmundur er ungur aö árum og því
ekki óeðlilegt að hann fjalli um bridge-
spilið á siöustu árum þegar áhrifa
yngri spilaranna gætir meira og
meira.
Guðmundur hefir skrifað bridgedálk
í Tímann i nokkur ár og er því þaulvan-
ur aö skrifa um bridge á máli sem
bridgespilarar skilja. Þvi kemur eng-
um á óvart aö bókin er skemmtileg af-
lestrar og ekki spilla myndir sem
Arnór Ragnarsson hefur teldð.
Eg ráðlegg öllu bridgefólki að kaupa
bók Guðmundar, hún er fróöleg og
skemmtileg og það gæti ef til vill gert
honum kleift að skrifa fleiri.
Hér er aö lokum skemmtilegt spil úr
bókinni i kafla sem kallast „Við sitt-
hvorn enda IMP skalans”. Eg gef höf-
undi oröið:
„IMP stigin, eða imparnir eins og
þeir eru yfirleitt kallaðir, er það sem
allt snýst um í sveitakeppnL Þeir era
notaðir til aö jafna niöur sveiflur og há-
marksimpafjöldi sem hægt er að fá
fýrir 1 spil er 24. Til þess þurfa tölum-
ar frá báöum borðum að vera 4000
samtals en á meðan þarf aðeins 600—
750 tQ aö fá 12 impa.
Áöur en impamir komu til sögunnar
giltu heildarstigin ein og það segir sig
sjálft að sveit sem tapaði 4000 á einu
spili þurfti ekki að hugsa meira um
þann leik. Nú er þetta aðeins jafnvirði
XQ Bridge
Sleffán Gudjóhnsen
tveggja geimsveiflna og svoleiðis er
vel hægt að vinna upp.
En er yfirleitt mögulegt að tapa svo
miklu á einu spili? Ojú. Mér er til
dæmis kunnugt um 2 spil frá síðustu
árum þar sem sveit fékk yfir 4000 fyrir
eitt spil og í bæði skiptin átti Jón
Baldursson hlut að máli. Það fyrra er
frá leik í Reyk javíkurmótinu 1980.
Austur gefur/allir á hættu.
Norour
AKDG6
V D854
O KD42
«8
Vestur Au-tur
* Á753 * 10
't? A1062 ^ 973
05 O 109763
* G765 * D963
Suuur
4> 9842
KG
O AG8
* ÁK102
Viö annað borðiö sátu n-s Jón og
Jakob R. Möller og þeir voru fljótir aö
afgreiða spilið:
Austur Suður Vestur Norður
pass 1L pass 3S
pass 3G pass pass
pass
Laufið var sterkt og þrír spaðar
lýstu einspili í laufi, 4-litum í hinum
litunum og 8+ punktum. Jón fékk síð-
an 11 slagi og líklega hafa menn ekki
hugsað meira um spilið við þetta borð.
Við hitt borðið var hins vegar öllu
meira um að vera. Þar sátu Stefán
Guöjohnsen og Þórarinn Sigþórsson í
a-v:
Austur Suður Vestur Noröur
pass 1L pass 1T
pass 1G pass 3 L
pass 3G pass 4L
pass 5 L dobl redobl
pass pass pass
Hér var laufið líka sterkt og 1 tígull
var í flestum tilfellum afmelding. En
þegar þrjú lauf fylgdu var norður að
lýsa hendinni á sama hátt og Jakob
áður. Norður taldi sig svo eiga eitthvað
ósagt yfir þremur gröndum og þá fór
efinn að gera vart við sig. Suður komst
að því aö norður hefur Hklegast gleymt
kerfinu og ætti dágóðan slatta af laufi
en ekkert annaö. Þar sem hann átti
ágætisstuöning hækkaði hann í geimið.
En nú hafði Þórarinn fengiö nóg.
Norður redoblaði svo til vonar og vara
til að suður tæki nú öragglega út, en þá
var suður ekki i vafa lengur: norður
hlaut að vera að lýsa ánægju sinni með
samninginn.
Það er óþarfi að segja frá úrspilinu.
Sagnhafi fór 6 niður eða 3400 sem gerði
þá samtals 4060 og 24 impar.
Beykjavíkiirmótlð:
Fer ðaskrifstofusveitirnar enn efstar
F eröaskrifstofusveitimar fengu báð-
ar fullt hús þegar Reykjavíkur-
meistaramótinu var fram haldiö sl.
miövikudagskvöld og hefur nú dregið í
sundur með þeim og keppinautum
þeirra um úrslitasætin.
Röð og stig efstu sveitanna aö sex
umferðum loknum er nú þessi:
1. Orval 102
2. Samvinnuieriir 100
3. Þorfinnur Karlsson 86
4. Stefán Pálsson 85
5. ÓlafurLárusson 82
6. Runólfur Pálsson 80
7. Guðbrandur Sigurbergsson 76
8. JónHjaltason 75
9. Þórarinn Slgþórsson 72
10. Gestur Jónsson 53
Næstu þrjár umferðir verða spilaðar
í Hreyfilshúsinu á sunnudaginn og
hefst spilamennska kL 12.30.
Bridgedeild Barðstrend-
ingafélagsins
Áðalsveitakeppni félagsins hófst 9.
janúar. 14 sveitir mættu til leiks. (16
spilaleikir).