Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Blaðsíða 4
DV ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRUAR1984 SvanurJónsson: „Ekki tilbúinn íverkfall” „Eg er ekki tilbúinn til aö fara í verkfall,” segir Svanur Jónsson, starfsmaöur Reykjavíkurborgar. Svanur segist ekki hafa efni á því ,að fara í verkfall og þaö hafi enginn. „Viö erum allir svo blankir,” segir hann. Hann telur að þaö eina rétta heföi veriö aö samþykkja samninga ASI og VSI. „Vissulega eru þetta lélegir samningar en ég er hræddur um aö viö fáum ekkert betra,” segir Svanur Jónsson. -SþS Kristian Beck: „Ekkimeð verkfalli” „Nei, ég er ekki fylgjandi verkfalli,” segir Kristian Beck, starfsmaöur Reykjavíkurborgar. Kristian er þeirrar skoöunar að verkamenn fái ekkert meira út úr því aöfaraíverkfall. „Eg held aö þaö hefði veriö best aö samþykkja samning VSI og ASI,” segirKristianBeck. -SþS Vilja þeir verkfall? rætt við nokkra Dagsbrúnarfélaga Eftir að Verkamannafélagið Dagsbrún felldi ný- gerða kjarasamninga ASÍ og VSÍ, bíða menn eftir því hvað komi út úr samningaviðræð- um Dagsbrúnar og VSÍ. Spurningin er, tekst Dags- brúnarmönnum að fá betri samning en ASÍ og ef ekki, ætla þeir þá í verkfall? Á meðan beðið er eftir svörum við þessum spurningum leitaði DV álits óbreyttra Dags- brúnarfélaga á verkfallsaðgerðum. -SþS Páll Gunnarsson: „Fylgjandi verkfalli” „Eg fer í verkfall ef farið veröur fram á þaö,” segir Páll Gunnarsson, starfsmaöur viö Reykjavíkurhöfn. „Eg vil fá aö lifa á launummínum og ég tel að viö getum fengiö eitthvaö meira meö verkfalli,” segir hann. Páll heföi ekki viljaö samþykkja samning ASI og VSI og telur aö fáist ekkert út úr komandi samningum Dagsbrúnar og VSl veröi að reyna verkfall. „Þaö er eina vopniö sem viö höfum. Viö höfum ekki efni á að láta stela af okkur,” segir Páll Gunnarsson. -sþS Sigurður Magnússon: „ Verkfall er eina leiðin” „Eg er tilbúinn til aö fara í verk- fall,” segir Siguröur Magnússon, starfsmaður viö Reykjavíkurhöfn. „Það hafa aldrei fengist neinar úr- bætur fyrir verkafólk nema meö verk- falli,”segirhann. Siguröur á ekki von á aö mikiö komi út úr samningaviðræðum Dagsbrúnar ogVSI. „Þaö eru ekki verkamenn sem eru aö semja fyrir okkur heldur einhverjir hálaunaðir háskólaborgarar sem hafa ekki hugmynd um hvaö þeir eru aö tala um. Þess vegna er verkfall eina leiðin,” segir Siguröur Magnússon. -SþS Sigurður Helgi Gunnarsson: „Fáum betra án verkfalls” „Nei, ég er ekki tilbúinn til aö fara í verkfall,” segir Siguröur Helgi Gunnarsson, starfsmaöur viö Reykja- víkurhöfn. „Eg hef hreinlega ekki efni á verk- falli,”segirhann. Siguröur Helgi álítur aö þaö hafi verið rétt aö hafna samkomulagi ASI ogVSI. „Eg held aö viö getum fengið betri samninga án þess aö fara í verkfall,” segirSiguröurHelgiGunnarsson. -SþS Einar Már Gunnarsson: „Tilbúinn íverkfall” „Eg er tilbúinn í verkfall ef þess þarf meö,” segir Einar Már Gunnarsson, starfsmaöur viö Reykjavíkurhöfn. „Vissulega hef ég ekki efni á því en ég hef heldur ekki efni á því að vinna á þeim launum sem ég hef núna,” segir hann. Einar Már segist ekki trúa ööru en aö verkfall bæti stööuna hjá Dags- brúnarmönnum. „Eg býst ekki viö aö þaö fáist neitt meira í samningum en auövitað vonast ég til aö þaö fáist einhver meiri prósentuhækkun en ASI og VSI sömdu um. En ég býst fastlega viö aö þetta fari út í hörku,” segir Einar Már Gunnarsson. -SþS Ragnar Bergsson: „Vilekki verkfall” „Verkfall vil ég ekki. Viö höfum ekkert efni á að fara í verkfall eins og útlitið í þjóöfélaginu er í dag,” sagöi Ragnar Bergsson, starfsmaöur Reykjavíkurborgar. Ragnar telur aö Dagsbrún heföi átt aö samþykkja þann kjarasamning sem ASI og V SI geröu með sér. „Viö fáum ekkert meira út úr þessu en aðrir,” segir Ragnar. -gþg Guðbrandur Valdimarsson: „Ekkertefni á verkfalli” „Eg segi afdráttarlaust nei viö verk- falli,” segir Guöbrandur Valdimars- son, starfsmaöur Reykjavíkurborgar. „Eg hef ekkert efni á að fara í verk- fall og veit ekki um neinn sem hefur efni á því,” segir hann. Guðbrandur telur aö samþykkja heföi átt samning VSI og ASI. „Þaö getur vel verið aö við fáum eitt- hvað meira út úr þeim samningum sem framundan eru en ég held aö menn hafi tekið of mikla áhættu meö því aö hafna samkomulagi ASI og VSI,” segir Guðbrandur Valdimars- son. -SþS í dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Sjónvarpsprédikarínn f rá Dagsbrún Þær eru orönar ansi fáar, skraut- fjaðrir Alþýðubandalagsins. Þar stendur raunar ekkert eftir nema Guðmundur jaki og Jón Kjartansson í Eyjum. Verkalýðsfélög hafa eitt af ööru virt bann Alþýðubandalagsins viö samþykkt kjarasamninga ASI og VSÍ að vettugi. Eftir stendur Svavar flokksformaður eins og berstripaöur hani sem .er hættur að geta vakið nokkurn með gali sinu. Það er á allra vitorði að forysta Alþýðubandalagsins gaf út dag- skipun þess efnis aö kjara- samningarnir skyldu felldir á félags- fundum. Jafnframt var barist með oddi og egg gegn samkomulagi í Straumsvík og Þjóðviljinn birti „viðtöl” við starfsmenn í álverinu lon og don. Að vísu voru viðmæl- endur blaðsins sjaldnast nafngreind- ir og því gætu þessi „viðtöl” allt eins hafa verið unnin á kontór blaðsins án afskipta verkamanna í álverinu. En þegar samningar tókust í Straums- víkinni reyndi blaðið að nota þá samninga í baráttu sinni gegn ASI samningunum, meö því að hamra á því að betri samningar hafi náðst í álverinu. Gífurlegur áróður var rekinn meðal félaga í Verkakvennafélaginu Framsókn gegn kjarasamningunum. Meðal annars var boðað til almenns kvennafundar áður en félagsfundur Framsóknar var haldinn þar sem varað var við samþykkt á samkomu- lagi ASÍ og VSÍ. En allt kom fyrir ekki og þá var gripið til þess ráðs að kæra fundarstjórn á Framsóknar- fundinum. Það sýður og kraumar í forystuliði Alþýöubandalagsins þessa dagana þegar draumar um verkföll og skæruhernað hafa runnið út í sandinn. Guðmundur Joð spriklar í netinu. Hann er annars vegar laminn áfram af Svavari sem nú setur allt sitt traust á Dagsbrún en á hinn bóginn eru Pétur Tyrfingsson og félagar innan Dagsbrúnar, sem hóta formanninum að setja allt í bál og brand ef ekki verður haldið fast á ítr- ustu kröfum Dagsbrúnar. Guð- mundur spriklar eins og leikbrúða og slær úr og í milli þess sem hann hvessir augun á landslýð og dregur seiminn djúpri röddu þegar hann lýsir hinum ódrepandi baráttuhug Dagsbrúnarmanna. Ef svo færi að Guðmundur yrði rúinn öllum tignar- stöðum hér heima, er engin hætta á öðru en hans bíði frægð og frami er- lendis. Hann þyrfti ekki annað en skella sér á enskunámskeið og flytja svo til Bandaríkjanna. Þar kæmist hann í fremstu röð sjónvarpsprédik- ara á nokkrum sunnudögum en til- þrif þeirra frægustu þar sla alla Hollywoodframleiðslu út. Jafnvel Einar í Filadelfíu kemst ekki með tærnar þar sem Guömundur Joö hefur hælana þegar sjónvarps- messur eru annars vegar. Sérstak- lega er það áhrifaríkt þegar Dags- brúnarformaðurinn er kominn með vísifingurinn á loft oe sko^— ’ , . .. _____ nann offnvpv’'*' „—..janai í átt að áhorfendum úr hópi atvinnurekenda um leið og djúp röddin boðar þeim eld og brennistein nema því aðeins að þeir snúi frá villu síns vegar. Á meðan æðsti prestur Dags- brúnar og hans nótar hamra á þeirri gífurlegu kjaraskerðingu sem hefur átt sér stað og flest alþýðuheimili komin á vonarvöl, dunda kommamir í bæjarstjóm Neskaupstaðar sér við að koma saman f járhagsáætlun fyrir 1984. 1 Austfjarða-Þjóðvilja er haft eftir Loga bæjarstjóra, að rekstrar- afgangur er áætlaður 14 milljónir króna eða 33%. Ástæðan er einkum sú að í fyrra hafði fólk í Neskaupstaö miklar tekjur. Meðal annars hækk- uðu tekjur sjómanna á staðnum um 95% milli áranna ’82 og ’83. Sömuleiðis hefur bæjarsjóður beitt miklu aðhaldi síðustu tvö ár sem leitt . hefur til aukinnar hagkvæmni hjá stofnunum bæjarins. Þá segir Logi ennfremur að lækkun verðbólgu hafi mikil áhrif til góðs. Ríkisstió—' , , iilii ælti ao vpr« *- J .-.o auægð með árangurinn a Neskaupstað. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.