Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Blaðsíða 13
DV ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRUAR1984 13 Hernaðarstefna iaustri og vestri. Eins og i bók Orwells? Stóri bróðir í austri og vestri — Kvað eiga þeir sameiginlegt með Stóra bróður í „1984” • „Við getum sýnt öðrum þjóðum hvernig hægt er að halda reisn sinni án vopna- skaks og frumskógarleikja. Bók Orwells er okkur holl áminning um að halda vöku okkar.” Ariö 1949 skrifaði Georg Orwell bókina „1984”, framtíðarskáldsögu sem lýsir hvert spiUtir váldhafar geta leitt þjóðir sínar ef menn halda ekki vöku sinni. Mörgum fannst bók- in heldur nöturleg framtíðarspá — en þá þegar árið 1949 mátti sjá mikil líkindi meö heimi bókarinnar og veruleika ýmissa ríkja austan hafs og vestan. Nú árið 1984 hljótum við að staldra við og velta fyrir okkur hversu mikið veruleikinn í kringum okkur líkist sýktu samfélagi bókarinnar. Auðjöfrar græða Og það er óhuggulega margt sem kemur í hugann. I bókinni er lýst málamyndastyrjöld sem ríkin þrjú heyja hvert við annaö. Styrjöldin tryggir völd ráðandi flokka í ríkjun- um. Sífellt er alið á ótta við innrás frá hinum. Og við sjáum fyrir okkur brjálæðislegt vopnakapphlaup stór- veldanna, Sovétríkjanna og Banda- ríkjanna í dag. Hverjum ætli sé mest í hag að ala á tortryggni milli þess- ara risa — ætli það sé ekki sameigin- legt kappsmál ráðamanna þessara ríkja? Svo maður tali nú ekki um auðjöfrana á Vesturlöndum sem raka saman gróöa á hergagnafram- leiðsiunni. Þaö er þekkt staðreynd að vísindamenn fá ótakmarkaðan aðgang að fjármagni ef þeir helga sig rannsóknum sem hægt er aö tengja hemaöarbröltinu — og þessir menn sem selja sig þannig mamm- oni hugga sig svo við að flestar tækninýjungar í hernaði megi einnig nýta í friðsamlegum tilgangi síðar. Em þetta ekki sömu afsakanirnar sem þjónustulið Stóra bróður í bók Orwells notaöi tii að afsaka eigin ræfildóm? Þjónar Stóra bróður Bókin „1984” lýsir einnig hvemig Stóri bróöir, hinn alsjáandi og alvitri stjórnandi, gefur út tilskipanir um hegðun þegnanna og fylgist grannt með að menn fari aö fyrirmælunum. Og er þetta ekki svona í okkar veruleika? Austan jámtjalds horfa þýlyndir valdhafar, með slefuna úti, í átt til Moskvu og bíöa eftir skipunum frá stóra bróður. Sama er uppi á teningnum í Vesturheimi — menn h'ta með lotningu til Reagans og sjá helst hagnaðarvon í því að fara að fyrirmælum hans. Og það þarf ekki nema rétt hvísla óskum Stóra bróður í eyru sumra vald- hafanna og þeir mega ekki vatni halda fyrr en þeir eru sjálfir famir að óska formlega eftir því að Stóri bróðirinn í vestri geri nú svo vel að koma óskum sínum í framkvæmd. Nokkur dæmi um slíka þjónslund höfum við Islendingar reynt að und- anfömu. Má þar nefna þegar utan- ríkisráðherra okkar „óskaði” eftir því viö Bandaríkin aö „varnir” landsins yrðu auknar í formi öflugra ratsjárkerfis. Og ekki er síöra dæmið frá fyrrverandi utanríkisráðherra, Olafi Jóhannessyni, þegar hann óskaði eftir að Ameríkanar bægðu frá mengunarhættu sem Njarð- víkingar búa við vegna olíutanka hersins á Miðnesheiði. Og þetta áttu þeir náttúrlega að gera með því að byggja margfalt stærri olíutanka við Helguvík og svona í leiðinni að koma sér upp góðri flotaaðstöðu þar. Og af svipuðum toga er betlistefna núver- andi ríkisstjórnar þegar hún vill láta Kanana fjármagna þá allt of stóra flugstöð sem byggja á þama suður- frá. Bandaríski herinn fær svo af- notarétt af þessu mannvirki þegar honum þóknast að segja að hættuá- stand séskolliðyfir í heimsmálunum. Eymd og örbirgð „I „1984” er lýst ómanneskjuleg- um stórborgum þar sem fátækling- arnir búa í hroðalegum slömmum — og því miöur er þetta alþekkt Kjallarinn HALLGRÍMUR HRÓÐMARSSON KENNARI MH staðreynd í mörgum borgum dagsins í dag. I Kalkútta, Sao Paulo, Mexíkó- borg, og jafnvel í stórborgum Banda- ríkjanna, finnum við fólk sem lifir við algjörlega óviðunandi aðstæður. Og hér á Islandi era menn farnir að ræða opinskátt um að þeir sem verst era settir þurfi jafnvel að fara að borða skreiðartöflur sem ætlaðar era fyrir sveltandi fólk í löndum þriðja heimsins. Sagan endurskrifuð á öllum tímum í þágu valdhafanna Og svo var lýst „Ráöuneyti sann- leikans” í bók Orwells. Þar sátu menn og endurskrifuðu söguna til að gera hlut ráöandi afla sem fegurstan. Og þetta hefur verið gert á öllum tímum, jafnvel hér á Islandi. — Það ætti því ekki að koma neinum á óvart þegar ráöamenn þjóöarinnar hlaupa upp til handa og fóta þegar farið er að innleiða sjálf- stæöa hugsun nemenda í kennslu svokallaðra félagsgreina á Islandi. Það er eðlilegt að ráöamennirnir telji sér ógnað ef nemendum er kennt að treysta á eigin heimildaöflun um líf og kjör fólksins sem hefur byggt þetta land. Það er eölilegt að ráða- mennimir vilji heldur að nemendum sé drekkt í flóði ártala og upptalning- ar á valdsmönnum og fyrirmönnum fyrritíma. Afþreyingarefni sem treystir ríkjandi heimssýn Af sama toga er stööluð fjölda- framleiðsla á afþreyingarefni sem flæðir yfir Vesturálfu. Stærstur hluti þess treystir í sessi ríkjandi heims- mynd þar sem Vesturveldin era sýnd algóð, en austan járntjalds eru svo skúrkarnir. Stór hluti þessa efnis elur svo á trú fólks á ofurmannlega bjargvætti en jafnframt finnur fólk enn betur hversu vanmegnugt það er sjálft — og hverjum skyldi það nú vera til góða? Og svo kemur mynd- bandaflóöið og þá kemur manni fyrst í hug sá aragrúi ofbeldismynda sem á boðstólum eru. Eftir aö börn og unglingar hafa kynnst villtum heimi myndbandanna er auðvelt aö sann- færa þau um að helsta leiðin til að komast áfram sé einskonar frum- skógarleikur — þú skalt bara hugsa um sjálfan þig og reyna að pota þér áfram — og helst á kostnaö þeirra sem hugsanlega geta skyggt á þig. Mannréttindabrot I skýrslum Amnesty International kemur fram að á síðasta ári voru um hundrað og þrjátíu ríki sem gerðust sek um mannréttindabrot gagnvart þegnum sínum. Ur skýrslunum má lesa um algert virðingarleysi vald- hafanna gagnvart lífi og limum þegnanna svo ekki sé minnst á and- lega þjáningu sem þeir búa við. Þús- undum pólitískra fanga er haldiö án dóms og laga og neitað um réttar- höld eða lögfræöilega þjónustu. Meðal ríkjanna sem gerst hafa sek um þessi brot gegn sáttmál Sam- einuðu þjóöanna má jafnt finna ríki innan Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins. I Mannrétt- réttindasáttmála S.Þ. segir aö hver maður skuli frjáis skoðana sinna og að því að láta þær í ljósi. Og í fram- haldi af því spyrjum við okkur hvert þetta frelsi er í svokölluðum lýð- ræðisríkjum Vesturálfu — er þetta frelsi ekki háö því að þú hafir peninga og góðan aðgang að sterkustu fjölmiölunum? Hvar er nú andi Stóra bróður? Stóri bróðir sér allt! Og svo kemur tölvan — þetta undratæki. Inn á hana er hægt að safna hinum ýmsu upplýsingum. Til dæmis er hægt að safna upplýsingum um þá sem valdhafarnir á hverjum stað skilgreina sem „hættulega hagsmunum ríkisins”. Þetta notar leyniþjónusta Sovétríkjanna, KGB, sér gagnvart óþægum borguram sem ekki falla inn í mynstur Stóra bróður af fyrirmyndarþegninum. Og allra verstu tilfellin era lokuð inni á hælum, innan um geðsjúka. Og CIA, bandaríska leyniþjónustan, heldur einnig svona skrár um róttæklinga í Ameríku og öll persónuleg hneykslis- mál sem hún kemst að með stööugum njósnum sínum lætur hún svo leka til fjölmiöla til að klekkja á samtökum þeim sem þetta fólk starf- ar i. Jafnvel hér á Islandi er fullt af Is- lendingum sem lepja í Kanann upplýsing um pólitískar skoðanir fólks og allt er vandlega skráð. Og ekki þarf að spyrja að því að Rúss- arnir eru ekkert betri hér á landi frekar en annars staðar þar sem þeir telja sér ógnað af bandarísku her- valdi. Höldum vöku okkar Mér hefur orðið tíðrætt um svínarí sem viðgengst í Vesturálfu og margir sakna sjálfsagt þess að ég hef ekki dregið Sovétríkin sér- staklega út úr og bent á þau sem ljót- asta dæmiö um brot valdhafa gegn þegnum sínum eins og fréttaskýr- endur Morgunblaösins hefðu gert. Skýringin á þessari afstööu minni er sú að ég tel aö flest ríki í heiminum í dag byggi á poti einstaklinga — og hin svokölluðu lýðræðissamfélög Vesturlanda era ekkert betri en ríkin austan jámtjalds. — Svínaríið er af öðrum toga og kannski hættulegra af því að þaö er hulið frjálslyndisblæju. Já, það er full ástæða til aö við lítum í kringum okkum og stöldrum aðeins við. Viljum við halda áfram að treysta þessi potarasamfélög sem við lifum í? Þar sem allt er vegið og metiö til peninga. Og þeir stærstir sem lúta í duftið fyrir erlendu valdi. Þar sem pólitíkusamir níða skóinn hver niður af ööram og gæta þess að rægja þann mest sem líklegur er til að standa upp úr svínaríinu. — Eða eigum við að byggja nýtt samfélag þar sem grandvöllurinn er samvinna og gagnkvæmhjálp? Eg hef þá trú að við Islendingar þurfum ekki að vera þénarar nokk- urs erlends valds og að við getum sýnt öðram þjóðum hvernig hægt er að halda reisn sinni án vopnaskaks og frumskógarleikja. Bók Orwells er okkur holl áminning um að halda vöku okkar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.