Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Blaðsíða 5
DV ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÍJÁR1984
Landnám ríkisins
veröur lagt niöur
Fyrirhugað er að leggja niður Land-
nám ríkisins og fela verkefni þess öör-
um ríkisstofnunum. Þetta er megin-
efni stjórnarfrumvarps um breytingu
á jarðalögum sem lagt var fram á Al-
þingi í gær.
Á fjárlögum fyrir þetta ár er
kostnaður við Landnám ríkisins talinn
nema tæpum 2,5 milljónum króna.
Helsta hlutverk stofnunarinnar er að
halda jarðaskrá yfir allar jarðir, sjá
um framkvæmdir í byggðahverfum,
annast eða fylgjast meö ábúö, sölu og
leigu lögbýlisjarða, stofnun nýbýla og
stofnun grænfóðurverksmiðja.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að verkefni
þessi verði færð til landbúnaðarráðu-
neytisins, Búnaðarfélags Islands og
Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Gert
er ráð f yrir að sett veröi sérstök lög um
stofnun og rekstur grænfóðurverk-
smiöja og segir í greinargerð með
frumvarpi þessu að frumvarp þess
efnis verði lagt fram á yfirstandandi
þingi.
OEF
Háskólarektor um niðurstöðu
lögskýringarnefndar:
ÚRSKURÐURINN
STAÐFESTUR
,,Ég afgreiddi þetta mál utan
funda og úrskurður lögskýringar-
nefndar hefur veriö staðfestur,”
sagði Guðmundur Magnússon,
rektor Háskóla Islands, aðspurður
um afstöðu háskólaráðs til niður-
stöðu nefndarinnar varðandi próf í
líffærafræði.
Málið kom upp í janúar er lækna-
nemar gengust undir próf í líffæra-
fræði. Fóru þeir fram á aö fá að sjá
úrlausnir prófa, ásamt útskýringum
kennara. Læknadeild hafnaði,
nemar vísuðu málinu þá til háskóla-
ráðs sem vísaði því til lögskýringa-
nefndar. Hún túlkaði reglugerð Hl
þannig að verða ætti við slíkum
óskum nemenda hvort sem þeir
hefðu fallið á viðkomandi prófi eða
náð því.
Rektor kvaðst vonast til að mál af
þessum toga væru hér með úr sög-
unni. Víst gæti verið að menn héldu
áfram að velta fyrir sér túlkunum á
reglugerðinni en úrskurður lög-
skýringarnefndar réði. -JSS
Hólma víkurtogarinn Hólmadrangur ST 70 er nú að fara á rækjuveiðar eins og aðr-
ir bátar á staðnum.
Hólmavík:
Holmadrangur í rækjuna
Frá Kristjáni Jóhannssyni, fréttarit-
ara DV á Hólmavík.
Verið er aö leggja síðustu hönd á að
koma fyrir rækjuvinnslutækjum um
borð í togaranum Hólmadrangi.
Togarinn mun að öllum líkindum halda
til veiða í dag, þriðjudag, og veröur
rækjan soðin og fryst um borð. Hólma-
drangur hefur ekki áöur stundað
rækjuveiðar. Veiðarnar mun hann
stunda fram í maí en þá fer hann aftur
á þorskveiðar.
Hólmavíkurbátar hafa allir stundað
rækjuveiðar í vetur í Húnaflóa og hefur
afli verið góður. Búist er við að bátarn-
ir fylli kvóta sinn eftir u.þ.b. mánuð og
munu þeir þá fara á úthafsrækju-
veiðar.
Rauði kross íslands:
SKYNDIHJÁLP
Reykjavíkurdeild RKI heldur nám- hjálp við ýmiskonar slys. Auk þessa
skeið í almennri skyndihjálp sem hefst verður kennd blástursaðferöin og
fimmtudaginn 1. mars. Námskeiöið sýndarmyndirumskyndihjálp.
verður haldið í húsnæði RKI að Nóa- Nú er gott tækifæri til að afla sér
túni 21. Þeir sem vilja taka þátt í nám- undirstöðumenntunar eða rifja upp
skeiðinu geta látið skrá sig að Oldu- fyrri þekkingu í þessum efnum og læra
götu 4, sími 28222. til hlítar meginatriði skyndihjálpar.
Á námskeiöinu verður kennd skyndi- -JGH
Leiðrétting:
Brotist inn f verslun
I gær var greint frá því hér í blaðinu
að innbrot hefði verið framið í verslun-
ina Amarhraun í Hafnarfirði. I frétt-
inni var látið i það skina aö gleymst
hefði aö læsa versluninni eftir lokun
fyrir helgina. Samkvæmt upplýsingum
f rá verslunareigandanum er þetta ekki
rétt. Það rétta er að brotist var inn í
læsta verslun. Innbrotsþjófurinn braut
sér leið inn í verslunina og olli talsverð-
um skemmdum. Ekki var enn vitað
hvað hann hafði upp úr krafsinu en lík-
lega haföi einungis verið tekin skipti-
myntverslunarinnar. APH
Jökull samþykkti
samningana
Fundur í verkalýðsfélaginu Jökli í
Olafsvík samþykkti kjarasamninga
ASI og VSI mótatkvæðalaust í síðustu
viku. Um 20 manns sátu fundinn.
-KMU.
KANGOL —hattar
Alpahúfur —
angóruhúfur —
IMÝ SENDING
filthattar
túrbanar —
angóruhattar —
regnhattar. _
Pepe — derhúfur
MB-HÚFAN
FJÓRIR LITIR
Verö aðeins kr. 360,00
PÓSTSENDUM.
HATTABUÐIN
Frakkastig 13, sími 29560. PÓSTSENDUM
Urval
ÁSKRIFTARSÍMINN ER
Z7022
VERSLANIR!
HIN SÍVINSÆLA OG
MYNDARLEGA
FERMINGAR-
GJAFAHANDBÓK
kemur út 15. mars nk.
ÞEIR
auglýsendur sem áhuga hafa á að auglýsa í
FERMINGARGJAFAHANDBÓKINNI
vinsamlegast hafi samhand við auglýsingadeild
Síðumúla 33, eða í síma 82260 milli kl. 9 og 17.30
virka daga fyrir 2. mars nk.