Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Síða 22
22
DV ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRUAR1984
Reykvikingafelagið
með skemmtifund
Reykvíkingafélagið heldur
skemmtifund að Hótel Borg í
kvöld, þriðjudag, klukkan 20.30.
Á fundinum mun Kristinn Halls-
son taka lagið, sýnd verður
gömul kvikmynd frá Reykjavík
og leynigestur kemur í heim-
sókn.
Fundurinn er öllum opinn,
félagsmönnum sem öðrum og er
aðgangur ókeypis. Stjórnin.
STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTTUR
AF SMAAUGLÝSINGUM
Við veitum 10% AFSLÁTT
af þeim smáaug/ýsingum í D V sem
eru staðgreiddar.
Það telst staðgreiðsla ef auglýsing
er greidd daginn fyrir birtingardag.
Verð á einni smáauglýsingu
af venjulegri stærð, sem er kr. 290,
lækkar þannig í kr. 261
ef um staðgreiðslu er að ræða.
SMAAUGLYSINGADEILD
Þverholti 11, simi27022.
' NÝTTFRÁ '
liliGACTOfliC
Bifreiðasmiðir og aðrir áhugamenn um
rafsuðu, sýnum nýju 185X Automig-Mig-
Mag suðuvélina.
miGAC^OniC
185X r«’sýður frá 0,5—6 mm
185X punktsýður frá 2 x 1,5 mm
185X þrykkir frá 1—2 mm efni
Sýður fasta pinna fyrir tog.
Og verðið er frábært, aðeins kr. 28.078,00 með sölu-
skatti ISELCO sf
Skeifan 11D, 108 Reykjavik, simi 86466.
Menning Menning Menning
Þorvaldur -*“rar
sma-
Skulason myndir
Undanfarið hefur staðið yfir í List-
munahúsinu við Lækjargötu sýning á
smámyndum eftir Þorvald Skúla-
son. Myndirnar eru gerðar með
blandaðri tækni: þekjulitum, tússi og
krít.
Létt efni
Þegar rætt er um upphaf
íslenskrar abstraktlistar er gjarnan
talað um tvo einstaklinga, þá
Þorvald Skúlason og Svavar Guðna-
son. Hinn fyrrnefndi er sagðui
standa fyrir abstrakt-expression-
isma, en sá síðamefndi er orðaður
við geometriska abstraktion.
Þorvaldur Skúlason er fæddur áriö
1906. Hann á að baki langan listferil,
bæði sem fígúratífur og
abstraktmálari.
Sýningin, sem nú stendur í List-
munahúsinu, sýnir nokkuð athyglis-
verða hlið á Þorvaldi. Hér kynnumst
við abstraktmyndum í „léttu efni”
frá síðastliðnum tveimur áratug-
um. Formin og myndhugsunin er sú
sama og við höfum fengið notiö í olíu-
verkunum, en útfærslan og niður-
staðan er oft töluvert önnur. Kemur
þetta sérlega vel fram í þeim mynd-
um listamannsins, þar sem hann
leggur áherslu á að leysa upp kyrr-
stæða flatarbyggingu og skapa
rýmisverkun og dýnamískt flug yfir
myndflötinn. Eins og fyrr segir eiga
Myndlist
Gunnar B. Kvaran
þessar myndir samsvörun í fjöl-
mörgum olíumálverkum Þorvalds
frá 8. áratugnum, þar sem upplýstur
liturinn skapar oft rými fyrir þessi
flug/fugls- form, sem svífa yfir flöt-
inn. I þessum olíuverkum má oft
finna sterk skyntengsl við náttúrleg
fyrirbæri: ljós, dýr og landslag. En
aftur á móti í þessum smámyndum
hér á sýningunni er baksviðið oft
aðeins hvít örkin, sem gerir það aö
verkum að þessar myndir virka oft
meira abstrakt en samsvarandi
myndir gerðar meö olíulitum. Þess-
ar myndir hér virðast unnar hratt,
jafnvel ósjálfrátt, og virka þær því
óvenju frísklegar fyrir vikið. I þess-
um verkum er líkt og listamaðurinn
sleppi sér, losi um jarðbundna rök-
fræði og leyfi málverkinu að mála sig
sjálft síðasta spölinn. En slík vinnu-
brögð eru sjaldséð í olíuverkum Þor-
valds.
Víst er að hin léttu efni ráða miklu
um útkomuna í þessum verkum og
stundum virðist sem listamaöurinn
þurfi að takast á við sjálft efnið,
binda þaö niður, og þá koma á
pappírinn fullkomnar landslags-
myndir, sem sýna okkur samtímis
hversu sterk hin fígúratífa hugsun er
í abstrakmyndum listamannsins.
Lærifaðir
Þó svo að myndimar séu nokkuð
misjafnar aö gæöum er þetta mikið
ánægjuefni fyrir listunnendur að fá
tækifæri til að njóta og skoða þessi
verk. Því víst er að Þorvaldur Skúla-
son er einn stórfenglegasti listamað-
ur íslenskur á þessari öld. Fáir era
þeir listamenn íslenskir, sem hafa
haft jafnmikil og djúpstæð áhrif. Við
getum jafnvel sagt að Þorvaldur hafi
séð um listrænt uppeldi heillar kyn-
slóðar!
GBK
2) Komposition.
Ljósm. GBK.
1) Komposition.