Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Side 31
DV ÞRIÐJUDÁGÚRM.'FÉfeRÚÁR 1984
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Harkalegar
aðferðir
Marglr þeirra íslensku
starfsraanna er vinna á
Keflavíkurflugvelli eru sóra-
óánægðir raeð framgöngu
lögreglu í nauðgunarmálinu
svukallaða. Beinist óánægjan
eúikum að herlögrcglunni.
Sem menn muna spratt
málið upp er eiginkona
varnarliðsmanns kærði
nauðgun til lögreglunnar.
Kvað konan Islending hafa
verið að verki. Víkurfréttir
segja íslenska starfsmenn
hafa mátt líða mjög fyrir
„ýmsar lúalegar aðferðir lög-
reglu og þá sérstaklega her-
lögrcglunnar”. Hafi lög-
reglumenn heimsótt tiltekna
menn á vinnustaði, í sumum
tilfellum oftar en einu sinni,
og hafi þeir ekkert farið í
felur með að viökomandi væri
grunaður. Hefðu hinir
grunuðu verið yfirheyrðir í
þaula og teknar af þeim
myndir, sem konan hefði
fengið tíl athugunar. Hafi
slíkar aðgerðir verið endur-
teknar varðandi suma ein-
staklinga.
Alvarlegast er þó, aö
nauðgunarfrásögn konunnar
reyndist upplogin með öllu.
Velta menn því nú fyrir sér,
hversu langt sé hægt að
ganga með saklausa ein-
staklinga, þegar svona vand-
ræðamál koma upp.
Vestfirsk
kjarabarátta
Margir hafa haft á orði að
vcrkalýðshreyfingin hafi
vcrið helst til lin í nýaf-
staðinni samningalotu.
Vestur á tsafirði taka
menn á málinu af fullrí
hörku, eins og fram kemur í
nýlegri f undarályktun verka-
lýösfélagsins Baldurs. Þar
segir meðal annars:
„ ... Fundurinn gerir kröfu
til þess að atvinnureksturinn,
bankakerfiö, stórkaupmenn
og erlend auðfélög ásamt
öörum sem ekkert hafa lagt
fram til sameiginlegra hags-
bóta, verði tafarlaust krafðir
um þeirra framlag, en verka-
fólki skilað til baka hluta af
því, sem það hefur gefið eftir
af umsömdum launum
sinum... ”
Svona hljóðar boðskapur
Vestfirðinga.
Vesen eða
ekki vesen
Við hádegisverð á
aðalfundí Félags íslenskra
stórkaupmanna nýverlð á-
varpaði Davíð Oddsson borg-
arstjóri fundarmenn og
svaraði fyrirspurnum.
Hunda bar þar að sjálf-
sögðu á góma og sagði borg-
arstjóri við það tækifæri:
„Eini munurinn á löglegu og
ólöglegu hundahaldi er sá aö
sé það löglegt þurfa hunda-
eigcndur að standa í því að
láta skrá hundana, tryggja
þá, greiða af þeim alls konar
gjöld og hreinsa þá árlega.
Davíð ræddi um hundahald.
Semsagt bölvað vesen. En sé
hundahaldið ólöglegt er það
ekkert vesen.”
í hlutar-
ins eðli
Hundamál Alberts fjár-
málaráðherra hefur þótt
miklum tíðindum sæta. Mun
það enn vcra til víðtækrar
umf jöllunar úti í hinum stóra
heimi.
Hundtíkin heimsfræga.
Ihugunarmaður einn hefur
í tilefni umræðunnar bent á
að faUi dómur í málinu
þannig að Albert verði að láta
hundtikina fara, þá hljóti hún
líklega nafnið Lúcífer.
Ræður
skynsemin?
Þegar nýir kjarasamning-
ar höfðu veriö undirritaðir
ræddi Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra
mikið um skynsemi í blaða-
viðtölum. Hann var m.a.
spurður hvort hann héldi að
Albert myndi segja af sér í
kjölfar samningagerðarinn-
ar. „Ég treysti því að skyn-
semin ráði,” svaraði Stcin-
grímur þá.
Nú vill svo til að hér á landi
er starfandi klúbbur einn sem
heitir einfaldlega: Skynsem-
in ræður. Eru það samtök
saUaánægðra Trabanteig-
enda.
Ur því að Steingrímur
hcfur tileinkað sér slagorð
samtakanna þykir ýmislegt
benda tU að! ráðherrahópur-
inn hyggist feta í fótspor
þeirra, selja jeppaflota sinn
og kaupa sér Trabant í stað-
inn. Þætti það gott f ramtak á
þessu „erfiðleikatímabUi í
sögu íslensku þjóðarinnar”.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
TELEFAX EMT 9165-9145
Fyrir þá sem þurfa að koma teikningum, skýrslu-
formum o.fl. heimshorna á milli. Hraði allt að 35
sek.
GÓÐ ÞJÓNUSTA.
Ármúla 1.
Sími 687222
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
CAR RENTAL SERVICE — @ 75
FAST VERÐ - EKKERT KÍLÚMETRAGJALD
SÖLUSKATTUR INNIFALINN í VERÐI
MITSUBISHI
COLT
MITSUBISHI
CALANT
MITSUBISHI
CALANT STATION
James Bond í kröppum dansi. Hér á hann í höggi við hinn illræmda bófa Goldf inger.
\r r■ ■■■■■
Bíóhöllin — Goldf inger:
EKKERTTILAD
SPAUGA MED
Goldfingor (Gullputti)
Leikstjóri: Guy Hamilton
Handrit: Richard Maibaum og Paul Dahn
Tónlist: John Barry
Framloiðandi: Harry Saitzman og Albert R.
Broccoli
Aðalhlutverk: Sean Connery, Gert Frobe,
Honor Blackman, Shirley Eaton, Tania Mallott,
HarokJ Sakata, Ernard Lee.
Sean Connery gekk aftur sem
James Bond í BíóhölUnni fyrir
skömmu. Kappinn virðist hafa notið
vinsælda, því nú hefur bíóhúsiö dust-
að rykið af einni gömlu perlunni með
sama manninum.
Að visu erum við óralangt frá
James Bond nútímans sem virðist
líta á sig sem einn allsherjar spaug-
ara. I gamla daga var leyniþjónusta
hennar hátingar ekki höfð í fUmting-
um. Efri vörin var þó ekki alveg stíf.
James Bond fær það hlutverk að
fylgjast með ríkisbubbanum Auric
Goldfinger, sem grunaður er um að
hafa smyglað öUum guUforöa Eng-
landsbanka úr landi. Ævintýrin eru á
næsta leiti, svo og ferðalög og fagrar
konur. Aö minnsta kosti á þeirra
tíma mæUkvarða. Og James Bond
sigrar. Og hverju er það að þakka?
Jú, ástinni, eða einhverju afbrigði
hennar.
James Bond hefur löngum verið
brautryðjandi í tækninni. I þessari
mynd var það m.a. vel vopnum búin
bifreiö og aö sama skapi rammger.
En það er annars merkilegt hve
þessi undratæki eyðUeggjast fljótt,
og þá verður hetjan að reiða sig á
hugvitið og hnefana. Réttur mál-
staður sigrar alltaf.
Goldfinger verður ekki talin tU
merkari mynda um núllnúllsjö. Sér-
staklega bliknar hún í samanburði
við nýjustu mynd arftakans. Engu
að síður er hún hin besta skemmtan.
Eg tala nú ekki um ef nostalgiugler-
augun eru sett upp. Það er þó alveg
ljóst að leikstjórinn Guy Hamilton
stenst engan veginn samanburö við
síðari tima leikstjóra í sviðsetningu
hasaratriða.
Sean Connery stendur aftur á
móti fyrir sínu, aUtaf jafnelegant og
flott. Guðlaugur Bergmundsson
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
M OTOROLA
Alternatorar
Haukur og Ólafur
Ármúla 32 — Sími 37700.
Leitið upplýsinga.
k)L»LE)L»»'V
SMIÐJUVECI 44 D - KÓPAVOGI - ICELAND
AÐALSÍMI: 75 400 & 78 660
KVÖLD OC HELCARSÍMI: 43 631 & 46 211
TELEX 2271 IÐN IS
cibríe^f
HOGG
DEYFAR
í EFTIRTALDA JEPPA: BRONCO
. SCOUTII
Einmg
stýrisdemparar
BLAZER
JEEP
OG FLEIRI
E
LUDOCAPU
PÓSTSENDUM
igiBi^gqa — HABERG HF.
SKeifunni Sa — Simi 8*47*88