Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1984, Qupperneq 36
36
DV ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRUAR1984
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
LEIÐARLJÓS
Voff og Voði
Það hlýtur að vera öllura hugs-
andi mönnum ihugunarefni
hvernig komið er fyrir reykvísk-
um hundum. Uppljóstranir
SVIÐSLJÖSS um nýjustu að-
gerðir Hundafélagsins í baráttu
þess við lögregluna sýna svo ekki
verður um villst að málin eru
komin í ógöngur. Innflutningur á
rándýrum keramikhundum frá
Fcneyjum, sem liður í réttinda-
baráttu íslenskra hunda, skal
látinn óátalinn hér, hugmyndin
er snjöU en vekur í raun fleiri
spumingar en hún svarar.
Hversu marga hunda þarf að
flytja inn áður en lögreglan ragl-
ast i ríminu og gengur af vitinu?
Er forsvaranlegt að sóa gjaldeyri i
á þennan hátt þegar hundar eru
annars vegar?
Svarið við fyrri spuruingunni
hlýtur að vera: ca 3000. Þá era
keramikhundar orðnir jafn-
margir reykvískum hundum og
erfiðara verður að greina á mUli.
Svarið við seinni spuraingunni,
hlýtur að verða jákvætt. Líf iif-
andi vera verður aldrei metið til
fjár og þó keramikhundur kosti
liðlega 12.000 krónur era það
smámunir samanborið við
viðskiptahallann við útlönd. Þjóð
scm ekki hefur ráð á hundahaldi
neyðist tU að hafa efni á kera-
mikhundum. Hundar eru órjúf-
anlegur hluti heimsmyndar
mannsins og þjóð án hunda er
eins og skór án reima — eða
næstumþvi.
t þessu sambandi má minna :•
að Margrét Thatcher forsætis-
ráðherra á lítinn kjölturakk:
sem gjaraan situr við hlið hennai
á Ijósmyndum. Thatcher tengist
okkur Islcndingum á afskaplega
skemmtilegan hátt eins og lesu
má um hér á síðunum til hUðar.
Hún á sama afmælisdag og Guð-
laugur forsetaframbjóðandi og
hefur tekist að þrauka í nær því
59 ár án þess að hundur hafi orðið
henni að fjörtjóni. Það sama
verður ekki sagt um hús-
móðurina á Háaleitisbraut sem
skar sig svo Uliiega á Bing &
Gröndal postulínshundi sem
fallið hafði á gólfið að taka varð
af henni handlegginn við öln-
boga. Þar sannaðist það sem
hundavinir hafa lcngi haldið
fram að VOFF er ekki það sama
ogVOÐI.
Það hefur verið sagt að ef ein-
hver þjóð náigist það að hafa
sömu óbeit á hundum og
tslendingar, þá séu það Svíar.
Hér á síðunum má lea um einn
íbúa þess rikis sem nú hefur hirt
föggur sínar, flust yfir Eyrar-
sund og sest að í Kristjaníu í
Kaupmannahöfn. „Allt er betra
en Svíþjóð”, er eftir honum haft
og í því sambandi er athyglis vert
að á fáum stöðum í veröldinni eru
jafnmargir hundar og í
Kristjaníu og margir þeirra
dauðadrukknir frá morgni til
kvölds. Trúbadorinn Corais
Vreeswljk iætur síg samt hafa
það því hann er ástfanginn og
hefur um annað að hugsa en'
hundaskít. Eða eins og hún Lucy
hans Alberts sagði í viðtali við
SVIÐSLJOSQ) fyrir skömmu:
„Fólk sem lifir á atómöid ætti að
láta hunda i friði.”
Hér skal ekki lagður á það
neinn dómur hvort hundar cigi aö
vera tii eða ekki, einungis bent á
þá staðreynd að hundar era tii og
munu halda þvi áfram jafnlengi
og við hin — jafnvel lengur en
keramikhundar.
HUNDABANNI
AFLÉTTÍ
REYKJAVÍK
—ef skepnumar eru ættaðar f rá
Feneyjum og kosta 12.000 krónur
Hundurinn er kænn og hundaeigand-
inn líka. Skiptir þá engu hvort hann
heitir Aibert eða Snati, erfitt hefur
reynst aö framfylgja hundabanni í
Reykjavík eins og alkunna er — og
reyndar heimsfrægt.
„Við höfum endanlega snúið á lög-
regluna,” sagði Snati snarfætti, ritari
Hundavinafélagsins, er Sviðsljósið sló
á þráðinn til hans þar sem hann er
staddur á Italíu.
„Eg hef komist í ágæt sambönd hér
við keramiksmiði og málara sem hafa
það að atvinnu að gera nákvæmar
eftirlikingar af hundum. Það er ætlan
okkar að fylla Island af þessum
keramikhundum og láta síðan reyna á
það hvort þeir fái að vera í friði eða
ekki. Viö höfum lengi haft grun um að
lögreglunni sé fyrst og síðast illa við
útlit okkar frekar en lunderni og inn-
ræti og ef þessir keramikhundar fá að
vera í friði teljum við að réttarstaða
okkar verði betri en áður,” sagði Snati,
ritari Hundafélagsins, á beinni línu frá
Feneyjum.
Um tugur keramikhunda er þegar
kominn tii landsins og eru þeir seldir í
ýmsum verslunum sem skraut.......ég
held að þetta dreifingarkerfi henti
okkur ágætlega”, segir Snati. Verðið
er langt yfir meðalverði lifandi hunds,
eða 12.000 krónur.
-EIR.
Einn af nýju hundunum sem eiga vafalaust eftir að gera lögreglunni iifið
leitt. Schafferhundur, háifur annar metri á hæð og kostar 12.000 krónur,
ferskur frá Feneyjum. DV-mynd E.Ó.
Thorvaldsson ogTatcher
Verður Guðlaugi boðið i Downingstræti nr. 10?
PUTTA-
PUMPA
Allt verður auöveldara meö
árunum. Allir kannast við þaö puö
sem fylgir því að pumpa lofti í
hjólhestadekk með gömlu hjól-
hestapumpunum. Nú er kominn á
markaöinn ný pumpugerð sem
hægt er að hafa á milli puttanna —
og pumpa í dekk.
Hentar vel í brjóstvasa.
—eiga af mæli sama dag
Þaö var líf og fjör í ákveönu húsi í
Englandi 13. október fyrir tæpum 59
árum. Lítil stúlkukind leit þá fyrst
dagsins ljós og þótti þegar hin
fóngulegasta. Sama dag, langt úti í hafs-
auga, nánar tiltekiö á Járngerðar-
stööum í Grindavík, var haldið upp á
eins árs afmæli stráklings sem ekki
þótti síöur efnilegur en stúlkan í
Englandi.
Thorvaldsson og Thatcher eru þau
nefnd í Englandi en Guðlaugur og
Magga í Grindavík. Guölaugur Þor-
vaidsson ríkissáttasemjari og
Margaret Thatcher forsætisráöherra
Breta eiga sama afmælisdag og eins og
kynin segja til um er strákurinn að
sjálfsögöu ári eldri.
Því er frá þessu sagt hér svo fólk
geti búiö sig undir hátíðahöldin um
miöjan októbermánuö nk. þegar fyrr-
verandi háskólarektor og forsetafram-
bjóðandi Guðlaugur Þorvaldsson
heldur upp á sextugsafmæli sitt og
Thatcher tekur á móti innlendum sem
erlendum gestum í Downingstræti nr.
10.
Ekki vitum viö hvort Guðlaugi
veröur boöiö utan né hvort Thatcher
veröur boðiö til Guðiaugs, enda skiptir
þaö ekki öllu. Þaö er bara svo
óseigjanlega gaman þegar afmæli
fólks ber upp á sama dag, við gátum
bara ekki á okkur setiö. . . -EHt.
MHiíswférs
'mm
mk
iili
'wm
Verður Thatcher boðið i Skaftahlið nr. 20 til Thorvaidsson's?
mmm