Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1984, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1984, Side 6
6 DV. LAUGARDAGUR17. MARS1984. Tímarnir breytast og mennirnir meö, stendur þar. Blaðaútgáfa og blaðamennska er eitt af því sem miklum breyting- um hefur tekið á undanförnum árum. Þar hangir margt á spýtunni, ekki síst menningarbragurinn. Dagblað veröur að laga sig að háttum og venjum fólksins. Það verður að fjalla um þau mál og á þann hátt sem fellur í kramið eða vekur áhuga og eftirtekt. Að öðrum kosti er eins gott að vera ekkert að gefa út blað. Ef skoöuö eru til dæmis fjörutíu ára gömul blöö, eins og við gerum á þessum síðum, kemur margt skrýtið og skemmtilegt í ljós. Fréttir til að mynda eru sumar hverjar skrifaðar eins og „ekki á að skrifa fréttir” samkvæmt viðhorfum sem ríkja í dag. Aftan við þær er svo gjarnan bætt eins konar siðferðispistli frá hjarta blaðamannsins. Stíllinn er því oft á tíðum persónulegri en nú enda skrifar blaöa- maðurinn oft beint til lesandans. Sumar þessara frétta gætu þó vel sómt sér á hvaða forsíöu sem væri í dag. En lítum á skondnar fréttir og alvarlegar í bland frá lýðveldisár- inu. Og ekki má gleyma auglýsingunum. Þær eru kapítuli út af fyrir sig. -KÞ tók saman Kvíkmyndahúsin: DÆMALAUS AÐSÓKN ÍGÆR Aðsókn að páskamyndum kvik- myndahúsanna varð með mesta móti í gær eins og endranær um páskana. Fyrstu gestirnir voru mættir við aðgöngumiðasöluna fyrir klukkan átta í gærmorgun, og þegar opnað var náðu raðirnar langt út á götur. Klukkan tæplega níu í morgun voru bömin farin að raða sér upp við Gamla Bíó til að fá miða aö barnasýningunni á „Bambi”. FJÖRUTÍU OG ÞRJÚ ÞJÓFNAÐAR MÁLÁHÁLFUM MÁNUÐI Iskyggilegur þjófnaðarfaraldur hefur geisað í Reykjavík síðan um nýár. Hefur rannsóknarlögregl- unni verið tilkynnt um 43 þjófnaðarmál á síðustu tveimur vikum. Eru sum þeirra allstór og umfangsmikil. Flest þessara mála eru nú að fullu upplýst. Langflestir hafa þjófnaðir þessir verið framdir af unglingum eða ungum mönnum innan tvitugs- aldurs. Tveir piltar, 17 og 18 ára, hafa á þessum skamma tíma framið 13 innbrot og stolið einum bíl. Þá hefur komist upp um „þjófafélag” sex unglinga á aldrinum 9—16 ára, og hafa þeir framið 11 þjófnaði, aðallega úr , verslunum og ólæstum íbúöum. Piltarnir tveir, sem flest inn- brotin frömdu, voru oftast nær undir áhrifum víns, er þeir fóru á vettvang. Leituðu þeir einkum eftir peningum og voru jafnvel svo vandlátir, að þeir vildu helst ekki smápeninga, skildu þá gjaman eftir. REIMLEIKAR í LÍKBÍL Blaðiö hefur frétt um einkennilegan atburð, sem gerðist hér í bænum fyrir stuttu. Maður nokkur ætlaði að kvöldlagi með bifreið sína á bílaverkstæði. Maður þessi hefur greiðan aðgang að verkstæði þessu. Er maðurinn kom að verkstæöinu, fór hann fyrst inn um dyr, sem eingöngu eru ætlaðar mönnum, til að opna dyrnar, er bifreiöum er ekið um. Tekur hann ljós, er hann ætlaöi að nota til að lýsa sér leið um verkstæðið, að ljósrofanum. Þegar maðurinn kemur inn á verkstæðið, verður hann þess var, aö vél einhverrar bifreiðarinnar er í gangi. Hélt maðurinn í fyrstu að þetta myndi stafa af athugunarleysi þeirra, er þarna gengu síöast um. Þar sem hann verður ekki var við að nokkur lifandi sála sé þar inni, lætur hann ljósið falla á bifreið þá, er var í gangi. En um leið og ljósið fellur á bifreiðina, sem var líkbíll, deyr ljós það, sem maöurinn hélt á í hendinni, og um leiö var eins og allt ætli um koll að keyra, þvílíkur var gauragangurinn. Maöurinn gat þó komist aö slökkvaranum, en um leiö og hann kveikti, datt allt aftur í dúnalogn. MINKURÁ HÓTEL BORG! - rotaður með brennivínsflösku Um 9-leytið í gærkveldi, um það leyti, sem dansinn var að hefjast á Hótel Borg, lenti allt í uppnámi í saln- um. Þangað var skyndilega kominn óboðinn gestur, dálítill minkur, sem piltar nokkrir höfðu verið aö eltast viö úti á Austurvelli, en flýði undan þeim og leitaði skjólsáBorginni. Þegar menn urðu varir við hinn nýstárlega gest í veit- ingasalnum, komst allt í uppnám. Kvenfólkið stökk upp á stóla og borð, en karlmennirnir komust margir í víga- hug og tóku að elta minkinn. Aðstoðuöu þjónamir við „handtökuna”, og ætlaði þó að veröa bið á því að minkurinn næðist. Sá litli var snar í snúningum, hljóp undir borð og stóla og skaust eins og örskot undan fjend- um sínum. Stóð eltingarleikur þessi á að giska í 15 mín- útur. Loks tókst að handsama hann, og komu þjónar með borðdúk til að vefja utan um minkinn. En þá tókst ekki betur til en svo, aö minkurinn smaug úr höndum þeirra og tók til fótanna, og var nú engu viðbragðsseinni enáður. Hófst nú eltingarleikurinn að nýju. Eftir alllanga mæðu, hlátur áhorfenda, sem margir skemmtu sér hið besta, og skræki kvenna, tókst að króa minkinn af úti í gluggakistu. Maður nokkur náði tökum á honum miðjum og hélt honum, en fleiri þustu þegar til aðstoðar. Greip einhver það vopnið, sem næst var hendi, flösku, og greiddi minkinum rothögg með henni. Lét minkurinn þar líf sitt eftir frækilega vörn. GEYMDI 450 KRONUR I TANNI í SKÓNUM SINUM 1 gær kvað sakadómari upp dóm yfir manni, sem hafði stolið 1500 krónum frá vinkonu sinni. Hlaut hann 3ja mánaða fangelsi skil- orðsbundið. Dómurinn var hann var tekinn fastur, hafði hann bundinn því skilyrði, að maðurinn eytt öllum peningunum, nema 450 endurgreiddi stúlkunni alla þá krónum, sem hann geymdi í tánni peninga, sem hann hafði tekið. Er á öðrum skónum sínum. r r TIK FELLURIGJA A ÞING- VÖLLUM OG ER ÞAR ÍFIMM VIKUR Fyrir nokkru skeði sá fáheyrði atburður á Þingvöllum, að tík, sem hermennirnir eiga, féll niður í djúpa gjá og var þar í fimm vikur án þess að verða meint af. Gjáin sem tíkin datt ofan í, er mjög djúp og ógerningur einn, hvort heldur er fyrir menn, eða skepnur að komast þaðan hjálpar- laust upp úr. Gátu hermennirnir með engu móti náð tíkarskömminni upp, því enginn þeirra treysti sér til þess að síga eftir henni. Köstuðu þeir því mat niður til hennar í fimm vikur, en að þeim tíma liðnum seig Jón í Svartagili eftir tíkinni og kom með hana upp og var hún þá með öllu ósködduð, að öðru leyti en því, að hún var orðin nokkuð horuð. Mun eitthvað af matnum hafa lent á syllum í gjánni, sem ekki er gott að varast, og tíkin því ekki fengið nóg að éta. Geta má nærri hversu tíkar- skömmin var frelsinu fegin, þegar hún var komin upp úr gjánni. Hlutavelta Kvénnadeildai: SlysavarnaléL hefst kl. 3 á œorflun e,h. < Ll*tamiuin*skál»nuin. Kvlðld *»kkl kulöanum )& U>t>n ai kolttRi W*fea«i8 » W Mir# tooatí, - ti heppnia vr ttusH. Fylfll#* meö tlMtottm. vm vðinr j?«Uór e3a tftte W Allt á elnum stad: Stílrerk, Ijó«&kr6wttr, kt'w*kájmr, áívwUfftl, kárlmannstrykfntkkaj-, Íer5 tU Igtttjttrðaf. kJW i itótf- am okr<Míma, bóaáhSM, tttöttmjSuvörur, npvrtvnrut' hveití «* alU tíl tmfcutMtr, re^afcBpur, h*f*r, tm***, ,r, tutmafut, Mkfánz, tyfj*afcHn, kvenrenfc», ^fciíCfinaCtir, „fcarl^ripír og úínt tnnrxi tk-íru. - Ljösleitar Það, sent «« vcvðs <j| j jr ev af P‘u*'sk;l*!' mu, ’TOFT lí afkHm Sí*< llá,. t’iUil 4 lAS Matiölur 101 (U'n'bicUviftnokkruiii iif utu J i Maitalnn Ik'i'gsstuííi- ,j. ,, , . í ;:t li . ‘____ i'i l NOlvKUttt »»•'>" 1:1 (31 í nýtt urval. — Stór uúmer. iaakastrieti 7.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.