Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR19. MAl 1984. Skipun lektors í heimspekideild: Pf HEFUR TVISVAR VER- ÍÐ DÆMDUR ÓHÆFUR” — segir Sveinbjöm Raf nsson, forseti heimspekideildar „Maöurinn hefur tvisvar sótt um þessa lektorsstööu en í bæöi skiptin verið dæmdur óhæfur,” sagði Svein- björn Rafnsson, deildarforseti heim- spekideildar Háskólans, í samtali viö DV. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráöherra hefur skipaö svila sinn, Þórö Om Sigurösson, lektor í rómönskum málum meö sér- stöku tilliti til spönsku án þess aö auglýsa stööuna né leita eftir vilja heimspekideildar, eins og mun venjan í slíkum málum. „Þórður Om var settur í þessa stööu til 2ja ára, þvert ofan í vilja deildarinnar,” sagöi Sveinbjöm. Setning hans rennur út 1. ágúst næst- komandi. Viö óskuöum eftir því aö staöa þessi yröi auglýst laus til um- sóknar. Þaö næsta sem geröist hins vegar var að okkur barst bréf frá ráöherra um aö Þóröur heföi verið skipaöur í stööuna frá 1. ágúst næst- komandi. Þóröur Orn hefur litla háskóla- gráðu og ég man ekki hvort þar er nokkurspænska.” — Er kurr i heimspekideild vegna þessa? „Þaö er auðvitaö engin hrifning þegar framkvæmt er þvert ofan í óskir deildarinnar,” sagöi Svein- björn Rafnsson. -KÞ Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra: Dómnefnd hefur talið hann hæf an „Þaö er alrangt aö maðurinn hafi' tvisvar veriö dæmdur óhæfur til að gegna þessari stööu. Þvert á móti hefur dómnefnd taliö hann hæfan. Fyrirrennarar mínir hafa og taliö sjálfsagt aö hann gegndi stöö- unni,enda óskaöi’ heimspekideild eftir því í bréfi til mín frá í vor að framtíðarstaða Þóröar væri tryggö viö deildina,” sagöi Ragnhildur Helgadóttir, aðspurð um skipun Þóröar Arnar Sigurðssonar, svila síns, í stööu lektors viö Háskóla Is- lands. „Sníffer lífs- hættulegurleikur”: JC Húnabyggð mun um helgina dreifa veggspjöldum í helstu stór- markaöi á Reykjavíkursvæöinu sem bera yfirskriftina „Sniff er lífshættu- „Þessi staöa hefur tvisvar veriö auglýst. I bæöi skiptin var hann eini umsækjandinn. I bæði skiptin var úr- skurður dómnefndar sá aö hann full- nægði skilyröum til þess aö annast spönskukennsluna. 1 fyrra skiptið var lagt til að hann yrði settur en í seinna skiptið lagöist nefndin gegn skipun en tók ekki afstööu til setningar en þá haföi dómnefndin talið aö hann heföi skilyröi til skipunar. — Hvers vegna var staöan ekki auglýst? „Þess þurfti ekki. Þaö var búið að auglýsa hana áöur. Auk þess er þaö ekki venjan í slíkum tilfellum. Þar fyrir utan mátti ekki draga þetta lengur þar sem þeir nemendur, sem eru viö spönskunám í skólanum, hefðu staðið uppi í óvissu meö fram- haldið.” — Hvaö um þær fullyrðingar aö maöurinn hafi ekki tilskilin próf til aö gegna stöðunni. „Það er alrangt. Þaö er sérstak- lega tekiö fram í nefndu dóm- nefndaráliti aö nefndin álíti hann hæfan til aö kenna nemendum til BA- prófs, auk þess stundaöi hann lengi nám viö háskólann í Madrid. Hann kom frá útlöndum til aö taka viö þessari stööu 78. Hann hefur byggt upp kennsluna í spönsku og sérstök áhersla hefur vériö á það lögö frá spönskum yfirvöldum að þessi kennsla viö háskólann sé tryggö, enda mikil samskipti milli land- anna,” sagði Ragnhildur Helga- dóttir. -KÞ Pállþjálfar KR-inga Viö KR-ingar erum alveg í skýjunum. Viö vonumst eftú- því aö Páíl veröi liöinu mikill styrkur næsta vetur," sagði Karl Rafnsson, stjómarmaöur í handknattleiks- deildKR.ísamtaliviöDVígær. KR-ingar réöu Pál Björgvinsson þjálfara og leikmann fyrir næsta keppnistímabil í gær en hann þjálf- aöi og lék meö Þrótturum í vetur. Páll er, og hefur lengi verið, einn af okkar snjöllustu handknattleiks- mönnum og lék áöur meö Víkingum , og landsliöinu. Samningur KR viö Pál er tii eins árs. -SK. Sakbending nauðsynleg Gæsluvarðhaldsúrskuröur Hæstaréttar yfir manninum sem játaö hefur að hafa nauðgaö konu á Hverfisgötu og tilraun til aö nauðga annarri er ekki grund- vallaður á þvi að maöurinn sé talinn hættulegur umhverfi sínu. Hæstiréttur taldi gæsluvaröhald nauösynlegt rannsóknarinnar vegna. „Þótt rannsókn málsins sé komin nokkuð áleiðis er ýmislegt ókannað eöa þarf frekari rannsóknar við, þar á meöal þarf til að koma sakbending sérstaklega vegna brotsins sem taliö er framið viö Hverfisgötu 102a og 104. Samprófa þarf vamaraðila viö vitni og kanna þarf feril hans næstu klukkustundir áður en hann framdi brot þau sem hann hefur játaö á sig,” segir Hæstiréttur. Maöurinn, Reynir Lúthersson, til heimilis í Mosfeilssveit, hefur verið úrskuröaður í gæsluvaröhaid til 15. júní. VEGGSPJÖLD í STÓRMARKAÐI legur leikur”. Hlutverk spjaldsins er aö vekja fólk gagnvart ofnotkun efnanna og hvernig Veggspjaldiö er prentað í tíu þúsund tii umhugsunar um skaðsemi lífrænna bregöast eigi viö ef krakkar þeirra eru eintökum og verður eftir helgi dreift leysiefna. Einnig eru ráö til aðstand- undir áhrifum sniffs. inn á öll heimili á Blönduósi. enda og foreldra um viöbrögð -Rannveig/Blönduósi. ER Á BÍLASÝNINGUNA HJÁ INGVARI HELGASYNI MEÐAL ANNARS VERÐA TIL SÝNIS Á ÞESSARI FJÖLBREYTTU BÍLASÝNINGU: SUBARU 1800 GLF STATION 4 WD, MEST SELDI BÍLLINN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 1983. NISSAN BLUEBIRD 2,0 GL STATION. BÍLL ÞEIRRA SEM GERA MIKLAR KRÖFUR UM GÆÐI, ENDINGU OG ÞÆGINDI. OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 14-17. TÖKUM ALLA ELDRI BÍLA UPP í NÝJA. TRABANT STATION SKYNSEMISBÍLLINN í 20 ÁR. NISSAN CHERRY 1,5 GL, 3JA DYRA. VIÐ GETUM NEFNT 30 ATRIÐI SEM SETJA CHERRY MIKLU FRAMAR BÍLUM í SAMA VERÐFLOKKI OG JAFNVEL FRAMAR MUN DÝRARI BÍLUM. ENGIN FURÐA ÞÓTT NISSAN SÉ MEST SELDI JAPANSKI BÍLLINN í EVRÓPU. Mingvar helgason hf. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.