Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 11
DV. LAUGARDAGUR19. MAI1984. 11 E? f! Bezt er að hafa sem flestar kokkahúfur og fæstar krónur Hvorki te né prjónar íslenzkt og vietnamskt Drekinn er enn minna kínverskur en Zorba er grískur. Sem dæmi um vestrænu þessa litla veitingahúss á homi Laugavegar og Klapparstígs má nefna, aö maðseöillinn býöur upp á kaffi, en ekki te. Hef ég aldrei fyrr heyrt um kínverskt veitingahús án tes. Annaö dæmi er, aö' Drekinn býöur upp á súpu dagsins og viöamikinn aöalrétt í einu verði, svo sem algengt er á Vesturlöndum, en fátítt í kín- verskum veitingahúsum, sem flest leggja áherzlu á syrpur af smáum réttum. Þar á ofan reyndist dag eftir dag súpa dagsins vera þykk, en ekki tær, eins og kínverskar súpur eru yfirleitt. Elkta þjóöemisstöðum í öömm löndum er haldið viö efnið af hópum útlaga, sem boröa í þessum veitinga- húsum og vilja fá sama mat og þeir fengu heima í gamla daga. Hér er ekkert um slika viöskiptavini. Því er ‘skiljanlegt, áö Drekinn hefur eins og Zorba lagaö sig aö neyzluvenjum Vestur-Evrópu. Sætsúrir réttir og ostrusósa benda til, aö Drekinn sé af þeim meiöi kín- verskrar matargeröar, sem kennd- ur er viö borgina Kanton. Sú skil- greining stenzt þó ekki alveg, því aö ekki er boðið upp á neina gufusoöna dim-sum smárétti, sem einkenna flesta kantonska veitingastaöi. Þeim mun meira er djúpsteikt, sem ekki er kantonskt. Karríréttir Drekans rugla síöan skilgreininguna enn frekar. Karrí er indversk kryddblanda, en ekki kín- versk. Skýringin er sennilega sú, aö milii Kína og Indlands er skaginn Indókína, þar sem meðal annars er ríkið Vietnam. Matreiðslan er sem sagt f rekar vietnömsk en kantonsk. Hin kínverska hefö leynir sér samt ekki í hinni nærfæmu eldamennsku, sem vel kemur fram í fiskréttum Drekans. Hún lýsir viröingu fyrir viökvæmu hráefni, sem íslenzkir matreiöslumenn mættu sumir hverj- ir læra. Jafnvel við djúpsteikingu er skorpan yfirleitt þunn og létt í maga. Fyrsta flokks fiskisúpa Hápunktur prófunarinnar í Drekanum var fiskisúpan, heil máltíð út af fyrir sig. Það var sætsúr súpa, tær, meö léttsoönum smálúðu- Smálúöan djúpsteikta var líka góö, borin fram meö skemmtilegri, hnetublandaöri ostrusósu. Djúp- steikti karfinn í hádeginu daginn eft- ir hafði hins vegar of mikinn og fit- ugan steikarhjúp, enda kokkurinn ‘sennilega annar. Karfinn var samt góöur, þegar búiö var aö taka hjúp- inn frá. Nautakjöts-vorrúlla meö sætsúrri sósu var stór og matarmikil meö bitum, stinnri papriku, grænni og rauðri, blaölauk og spírum. Þetta var fyrsta flokks máltíö á aðeins 125 krónur. Súpa dagsins var sæmileg hveiti- súpa meö grænmeti. Hún var líka í boði daginn eftir og virtist þá einnig fvera nýlöguö. Staðlað meölæti var boriö fram meö öllum aöalréttunum. Þaö fólst í góöum, hvítum hrísgrjónum, venju- legu hrásalati, smátt söxuöu, banda- rískri sósu, salatblaði, sítrónu og tómati. Allir aðalréttirnir voru bomir fram snarpheitir og allir með hníf og gaffli, en ekki prjónum. Allar sósur voru mildar á bragðiö. Djúpsteiktur skötuselur meö blað- lauk og grænmetisostrusósu, svo og stinnri papriku, var hinn ljúfasti matur, bezti aöalréttur prófunarinn- ar. þunnri og stökkri skorpu. Sama var aö seg ja um þá rúlluna, sem var meö karrísósu. Kjúklingur chow mein fólst í þunn- um kjötræmum á spaghettibeði með sætsúrri sósu. Þetta var frambæri- legur matur, ekki of mikiö eldaöur. Lambakjöt chow mein var svo þunn- ar kjötflögur á karríhrísgrjónum. Það kjöt var of mikið eldað, oröiö grátt og þurrt. Oröin chow mein vom hiö eina, sem ekki var á íslenzku á matseölin- um. A Drekanum virtust þau ýmist þýöa spaghetti eöa hrísgrjón, þaö er aö segja, hvaö sem vera skal. Allt í Ijósum og bláum lit Drekinn er lítil og notaleg, 42 sæta veitingastofa, innréttuö í ljósu og bláu. Sléttpússaö trégólf er ljóst, panilveggir ljósir, strigaloft ljóst, plastborö ljós og klappstólar á efra palli ljósir. Bekkir á neöra palli eru meö ljósblárúöóttu áklæði eins og gluggatjöldin. Bláir listar ramma glugga, skilrúm og veggsúlur. Uti- huröin er blá. I gluggum eru illa málaöar eftirlík- ingar af glersteindum dreka, sem hangir yfir afgreiðsluboröi. Kínversk- ur glottkarl situr á skilrúmi yfir litlu bamahorni viö innganginn. I lofti eru kínverskar sólhlífar og blævængir, óróar og leikbrúöur. I heild er þetta hiö þægilegasta umhverfi, því að kín- verskan í skreytingunni er ekki of- hlaöin. Þótt Drekinn sé í lægsta verðflokki veitingahúsa, er þar veitt full þjón- usta til borös, svo aö gestir þurfa ekki að hanga viö afgreiðsludiskinn eins og á flestum stööum í sama verðflokki. Þjónustan var afar góö og raunar betri en á sumum stöðum, sem hafa læröa þjóna. Sem dæmi má nefna, að stúlkan vissi upp á hár, hver hafði pantað hvaö viö sex manna borö, þótt engir tveir heföu pantað hiö sama. Þarna var enginn „hver pantaöi þetta” vandræöagangur, sem setur niður sum íslenzk veitingahús. A matseðli dagsins var súpa og sjö aðalréttir. Miöjuverð súpu og aðal- réttar var 210 krónur. A fastaseðli eru fimm súpur á miöjuveröinu 125 krónur og 22 aöalréttir á miðjuverð- inu 187 krónur. Af aðalréttunum eru sex konar vorrúllur, fjórir sætsúrir réttir, tveir chow-mein réttir, fjórir karríréttir, fjórir ostrusósuréttir og tveir aörir réttir. Enginn eftirréttur er á seðlinum, enda eru Kínverjar lítiö fyrir slíkt. Kaffi kostar 30 krónur. Drekinn er góö tilbreytni í veitingamennsku landsins. Þar er boðiö upp á góöan og ódýran mat viö góöa þjónustu í þægilegu umhverfi. Hann er aö vísu ekki eins kínverskur og hann segist vera. En ég gleymdi aö spyrja, hvort hægt væri aö fá prjóna til borös. Jónas Kristjánsson. Cheerios er alveg ofsalega, æðislega, - mjög gott!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.