Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 16
16 DV. LAUGARDAGUR19. MAI1984. ummeTRics i. VHF-talstöóvar fyrir skip og báta Verð aðeins kr. 6.600.- Týsgötu 1, símar 10450 og 20610. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 85., 88. og 93. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Tjarnarbraut 27, 1. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Ragnheiðar Gústafsdóttur, fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. maí 1984 kl. 13.0«. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 131., 137. og 140. tölublaöi Lögbritingablaðsins 1983 á eigninni Laufási 2, neðri hæð, Garðakaupstað, þingl. eign Magnúsar Matthíassonar fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar rikisins og Guðjóns Steingrímssonar hri. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. maí 1984 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 85., 88. og 93. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Brekkubyggð 55, Garðakaupstað, tal. eign Árna Sigurðssonar, fer fram eftir innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. maí 1984 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 19., 24. og 27. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Bröttukinn 33, 1. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Steinunnar Ölafsdóttur, fer fram eftir kröfu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna á eign- inni sjálfri miðvikudaginn 23. maí 1984 kl. 16.00. Bæjarfógetinn í Hafnarf irði. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Hverfisgötu 24, Hafnarfirðf, þingl. eign Einöru Sigurðardóttur, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. maí 1984 kl. 16.45. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 19., 22. og 24. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á verbúð á Breiðdalsvík, þingl. eign útgerðarfélagsins Drífu hf., fer fram skv. kröfu Sigríðar Thorlacius hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 24. maí 1984 kl. 14.00. Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu. . Nauðungaruppboð sem auglýst var í 19., 22. og 24. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á Búðavegi 18 Fáskrúðsfirði, þingl. eign Hafnarsjóðs Búðakauptúns, fer fram skv. kröfu Fiskveiðasjóðs Islands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 24. maí 1984 kl. 11.30. Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu. Breið- síðan Vasadiskó hættulegt Nú hafa sérfræðingar komist að þeirri niðurstöðu að svokallað vasa- diskó geti verið hættulegt fyrir heyrn- ina þegar músíkin er höfð of hátt stillt. Meö því að hlusta á of hátt stillta músík einn tima á dag geta menn átt á hættu að fá varanlegar heyrnar- skemmdir. Þær skemmdir sem hér um ræðir er ekki hægt að lækna. Það eru taugafrumur í innra eyra sem eyði- leggjast. Þeir sem verða fyrir þessu eiga i erfiöleikum meö að heyra orö og setningar rétt. „Að hlusta á vasadiskó er eins og að standa á bak við þotu sem er að hef ja sig til flugs,” segja sænskir sérfræö- ingar sem hafa kannað þessi mál. I könnun sem þeir gerðu meðal hóps unglinga, sem notar vasadiskó reglu- lega, kom í ljós að styrkleikinn á músíkinni var 92 til 102 desíbel. En al- gengt er að leyfilegur hljóðstyrkur í iðnaði sé 85 desíbel. Derrick fær konu sérviðhlið Við munum öll eftir honum Derrick. Hann er enn í fullu fjöri þó við fáum ekki aö njóta hans eins og sakir standa. En nú hafa gerst mikil tiðindi hjá hon- um. Fram að þessu hefur það verið skoðun margra að hann hafi vantað eitt sem talið er nauösynlegt mörgum leynilögreglumönnum, nefnilega konu. Nú hefur verið ákveðið að bæta úr þessu og Derrick er búinn að fá konu sér við hlið. Fyrirtækið sem framleiðir þennan sakamálaþátt hefur stööugt fengiö að heyra þaö að Derrick vanti konu. Höf- undur þáttanna hefur verið mótfallinn því og telur aö Derrick eigi að vera hinn dæmigerði rannsóknarlögreglu- maður sem er giftur starfinu. En hann hef ur orðiö að skipta um skoðun. Þessi nýja kona Derricks heitir í þáttunum Ariane og er rauöhærö og þokkalega útlítandi. „Þetta er bæði gaman og huggulegt fyrir mig. Loks einhverjar ástasenur fyrir mig og koss af og til. En þaö er á hreinu að þaö verða engar ástasenur af okkur nöktum uppi í rúmi,” segir Derrick sem reyndar heitir Horst Tappert þegar hann er ekki í þáttun- um. Hjólataminn haf inn Nú er hjólreiðatiminn að hefjast og er ekki úr vegi aö minna á það aö ekki er ráölegt aö taka þaö of geyst til aö byrja með. Þegar hjól komu fyrst á markaðinn sýndist sitt hverjum. Þessi mynd hér að neðan er frá árinu 1895. Hún átti aö vera varnaöarorð til þeirra sem voru sem æstastir aö breiða út hjólmennt- ina. AFMÆLISBARN VIKUNNAR Afmælisbam okkar þessa viku er Guðmundur Ingi Kristjánsson, fréttaþulur sjónvarpsins, sem lík- iega allir sjónvarpsáhorfendur kann- ast við sem nokkuð tíðan stofugest. Hann er fæddur 25. maí 1950 á Akureyri. Guðmundur á ekki langt að sækja þularstarfið því faöir hans, Kristján Róbertsson, fv. frikirkju- prestur, starfaöi einnig sem þulur hjá Ríkisútvarpinu. Guömundur er meö BA próf úr Háskóla Islands, í ensku og sagnfræði. Hann stundar kennarastörf á meðan hann er ekki á skjánum. En hvernig maður er Guðmundur Ingi aö sögn afmælisdagabókarinn- ar? — Þú ert mjög tilfinningaríkur, viökvæmur fyrir hrósi og þér gremj- ast fljótlega mistök og hindranir. Þroskaðu sjálfstjórn. Einbeittu þér að störfum þínum. Leitaðu lífsföru- nautar, sem líkist þér sjálfum. Kryddarinn Magnús Oskarsson borgarlögmað- ur, seinasti Kryddarahöfundur, skor- aði á Jónas Guðmundsson rithöfund. Hann varð að sjálfsögðu við áskorun- inni. Kryddari Jónasar heitir Meist- araskotið og er á þessa leið: — Sigurð- ur heitinn Þórðarson, bóndi og hrepp- stjóri á Laugabóli í Nauteyrarhreppi við Isafjörð, en hér er átt við þann Isa- fjörð er lengst skerst inn í Isafjarðar- djúp, en þetta er langur mjór fjörður, bjó á föðurleifð sinni um alllangt skeið eöatilársins 1962. Sigurður var bróðir Olafs heitins Þórðarsonar, forstjóra skipafélagsins Jöklahf. Það var eitt sinn að Olafur sendi Sigurði bróður sínum, sem var ágæt skytta, einn forláta riffil með sjón- auka. Mikið verkfæri og gott, en þarna voru stundaðar selveiöar. Vakti þessi mikla byssa talsverða athygli í sveit- inni, eins og nýjungar gjöra gjarnan. Það ber til sama haust og Sigurður fær riffilinn góöa aö gamall bóndi hin- um megin fjarðarins hringir og biður Sigurð aö skjóta fyrir sig hrút. Siguröur var heldur tregur til og spurði: — Getið þið nú ekki lengur skotið hrútaþarna? En bóndi lét sig ekki og minnti á riff- ilinn góða og það verður úr að Sigurður lætur undan og segir snúðugt við karl: — Komdu þá með hann út klukkan níuikvöld. Dagur líður að kvöldi og á tilsettum tíma kemur bóndi út meö hrútinn og setur í klof sér og Sigurður hreppstjóri gengur út á hlað hjá sér, hinum megin fjarðarins, með byssuna góðu. Og hann miðar vandlega yfir fjörð- inn þar sem karl heldur hrútnum í klof- inu á homunum. Og skotið ríöur af og hrúturinn steinliggur, í fyrsta skoti. Þótti þetta afrek nokkurt en Sigurður geröi lítið úr, en sagði þó. — Merkilegt að karlinn, kominn á þennan aldur, skyldi geta haldið hrútn- umkyrrum. Jónas rithöfundursagði: „Varðandi áskoranda. geri ég sérkröfur og skora á Guðmund J. Guðmundsson. ” Hver skyldi vera Kryddarinn hans? Viöbíðum spennt. Næst fáum við að heyra frá Guðmundi J. Guð- mundssyni, aiþingismanni og formanni Dagsbrúnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.