Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 22
22 DV. LAUGARDAGUR19. MAl 1984. KONG ASLAGU R í ALÞÝÐUBANDALAGINU Ymslr helstu forystumenn Alþýðubanda- lagsins í verkalýðshreyfingunni hafa verið í stríði við forystu flokksins og málgagnsins, Þjóðviljans, í vetur og hefur það stríð magnast stig af stigi. Síðustu dagana hefur greinarhöfundur rætt við marga í Alþýðubandaiaginu um þennan ágreining. Ymslr áhrifamenn í flokknum, bæði í Asmundararminum og flokksarminum eins og fylkingarnar eru nefndar hér til hag- ræðis, hafa rætt málln opinskátt í skjóii nafn- leyndar og gefið að sumu leyti svipaðar en að öðru leyti óiikar skýringar á átökunum og orsökum þeirra. Þó er augljóst að þar kemur til bæði ágreiningur um stefnu í kjarabarátt- unni og persónulegir árekstrar, aiveg sérstak- lega á milli kónganna tveggja í Alþýðubanda- laglnu, sem sumir nefna svo — Ásmundar Stefánssonar, forseta ASÍ, og Svavars Gests- sonar, formanns flokksins. Það er rik tilhneiging til þess að túlka allan þennan ágreining sem deilur milli einstak- linga, en það er bara hluti málsins,” segir einn af áhrifamönnunum í flokksarminum. Hann og fleiri benda á að Alþýöubandalagið sem stjómarandstööuflokkur þurfi að halda uppi eins öflugri andstöðu viö núverandi rikis- stjórn og hún geti. Alþýðusambandið þurfi hins vegar fyrst og fremst að hugsa um að ná fram sem bestum kjörum fyrir sína félags- menn. Þetta geti auðvitað farið saman, en þurfi hins vegar ekki að gera það. Þaö er augljóst að ágreiningur um taktík í verkalýðsbaráttunni hefur veriö til staðar ailt frá því að núverandi ríkisstjóm var mynduö, samningsrétturinn afiiuminn og verötrygging launa bönnuð fyrir ári. Dagskipun Svavars um verkfall strax Einn heimildarmannanna í Asmundararm- inum segir að þessi ágreiningur hafi sagt til sín mjög alvarlega þegar eftir að ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks var mynduð. ,,Svavar gaf strax út dagskipun um allsherjarverkfall gegn afnámi samningsrétt- arins,” segir hann. ,,Við vorum alveg gáttað- ir. Við vissum að það var algjört brjálæði aö gera það og stóðum því hart gegn slíkum hug- myndum. Við höfum mátt þola það alla tíö síðan að vera sakaðir um þaö innan flokksins aö vera aumingjar. Það er forystan í verka- lýðshreyfingunni sem liggur á fólkinu segir flokksforystan, þótt við vitum að fólk var alls ekki reiðubúið til átaka — og síst til átaka sem auðveldiega heföi mátt túlka sem flokkspóli- tísk verkföll.” Annar forystumaöur í verkalýðshreyfing- unni tekur í svipaðan streng: „Viö stóöum í þessari svakalegu stöðu í fyrra að við urðum að gera eitthvað, en vissum að fólk var ekki reiðubúið til átaka. Þá var ákveðið að fara af stað með undirskriftasöfnunina og meö gífur- legri vinnu náöum við aðeins rúmlega 30 þúsund undirskriftum. Þetta var mjög erfitt og sýndi afstöðu fólks. Berðu þetta saman viö kartöfluundirskriftimar núna þegar meira en 20 þúsund manns skrifa undir á fáeinum dög- um og það af sjálfsdáðum. Enn í dag heyrum við engu að síður á fundum í flokknum að skipulagsleysi og dugleysi okkar hafi ráðið mestu um aö fleirí undirskriftir náðust ekki.” Deilt um hlutverk verkalýðsforystu „Það er alveg rétt að það hefur verið ágrein- ingur við ýmsa forystumenn í verkaiýðshreyf- ingunni um þaö hvaö fólk væri reiðubúið aö gera og eins um hvert væri hlutverk foryst- unnar í verkalýðsfélögunum,” segir áhrifa- maður á flokksvængnum. „Við teljum að forystan sé kjörin til þess að finna leiöir til að búa fólk undir baráttu, efla stemmningu stig af stigi, en i stað þess að gera þaö lögöu þeir á ASI-kontómum máliö alltaf þannig fyrir: Vilj- iö þið þetta, sem við ætlum að gera, eða viljiði átök? Þegar málin em lögð þannig fyrir er ekki von að svörin verði nema á einn veg. ” Innan flokksforystunnar er sú skoðun sögð ríkjandi að þróunin aö undanförnu hafi sýnt að þeir hafi haft á réttuaöstanda: fólkiðséað rísa upp — það sýni þróun mála í Dagsbrún, Sókn, kennarasamtökunum og fleiri félögum. Jafnframt hafi þeir forystumenn, sem harðast börðust í sínum félögum fyrir samningunum, sett sig í verulega hættu. I verkalýðsforystunni er máliö alls ekki talið standa þannig, þótt viðurkennt sé að and- staöan gegn ASI-VSI-samkomulaginu hafi verið meiri en reiknaö var með. „Olafur og Svavar hafa veriö duglegir við að fara á vinnustaði og eftir slíka fundi heyra þeir oft í harðlínumönnunum, sem hringja í þá og vilja átök, og síðan segja þeir: þama sjáiö þið, fólk- ið vill átök en þið ekki,” sagði einn áhrifamað- ur í verkalýðssamtökunum. „Þeir saka okkur um að vera ekki í tengslum viö almenning, en við segjum þetta vera alveg öfugt: þeir eru bara í tengslum viö þá sem vilja hávaða en ekki við hinn breiöa f jölda.” Deilurnar um skrif Þjóðviljans Sú stefna, sem birst hefur á síðum Þjóðviljans í umf jöllun um samningamálin og Svavar Gestsson, formaður Alþýðubanda - lagsins:,, Það er oft mjög auðvelt fyrir Ásmund að sýna fram á að tillögur frá Svavari sóu tóm vitleysa, og það gerir hann oft á fundum." kom m.a. fram í harðri andstöðu blaðsins við ASI-samkomulagið, olli því að framkvæmda- nefnd stjórnar verkalýðsmálaráðs flokksins samþykkti með átta atkvæðum, en einn — Þröstur Olafsson, formaður nefndarinnar — sat hjá, að mótmæia harðlega ritstjórnar- stefnu blaðsins, sem væri að gera „heildar- samtökin og einstaka forystumenn verkalýðs-1 hreyfingarinnar tortryggilega með rang- færslum og óbilgjörnum árásum”. Þjóðviljinn | svaraði fullum hálsi í leiðara: „Krafan um aö fámennur foringjahópur eigi að ráða frétta- flutningi er draumur um vald sem heyrir for-j tíðinni til.” Og sl. þriðjudag var samþykktin harðlega gagnrýnd á fundi í stjóm verkalýðs- málaráðsins. „Þaðvaröi þá bara einn maöur á fundinum,” segir einn fundarmanna. „Þeir á Þjóðviljanum veifa mikið stalínista-1 grýlunni þegar verið er að gagnrýna skrif j blaðsins. En deilan snýst ekkert um þaö hvort Þjóðviljinn megi sjálfur ráða því sem hann skrifar,” segir einn af stuðningsmönnum Asmundar. „Málið er einfaldlega að Þjóövilj- inn hefur lagst á mjög óeðlilegan hátt á forystumenn flokksins í verkalýðshreyfing-1 unni og þá alveg sérstaklega Asmund. Blaðið hefur réynt að gera hann að eins konar tákni fyrir undanlátssemi verkalýösforystunnar. Og þetta á Asmundur ekki skilið nema síöur sé því hann fór í þessa samninga eftir að hafa boöiö félögunum að semja sjálfum. Hann gerði það á f ormannaráðstefnunni í desember, en þá fóru allir' á handahlaupum í burtu — Dagsbrún líka. Asmundur tók þvi að sér að vinna verk sem hinir treystu sér ekki til að vinna og svo er hann tættur niður á eftir — og það með aðstoð sumra þeirra sem hann var að vinnaverkinfyrir.” ,,Algför hystería" „Þetta er aigjör hystería og byggist á þeirri ríku tilhneigingu, sem sumir hafa, til þess að sjá alltaf sjálfan sig í miðdepii atburðarás- arinnar,” segir heimildarmaður á Þjóðvilj- anum þegar þessi fullyrðing er borin undir hann. „Asmundur kaus að binda sig persónu- lega alltof mikiö viö þessa kjarasamninga. Hann fór aö túlka sérhverja gagnrýni á samningana sem eins konar persónulegt vantraust á sig. Þaö er auövitaö alger mis- skilningur. Við á Þjóöviljanum höfum þvert á móti reynt eftir bestu getu að hafa gott samband viö Asmund og höfum ekki á neinn hátt haft tilhneigingu til þess að setja hann.á þennan útskúfunarbekk eins og menn vilja vera láta. En þegar hann persónugerir samningana í sjálfum sér, sem var algjör óþarfi hjá honum, þá er kannski ósköp eðli- legt að í hvert sinn, sem hann sér gagnrýni á samningana í Þjóðviljanum, þá sjái hann um leið gagnrýni á sig.” Þessi heimildarmaður taldi að hér kæmi til það gamla vandamál í Alþýðubandalaginu að öll gagnrýni á viðhorf eða verk manna í flokknum væri tekin sem gagnrýni á mennina sjálfa. Þetta yrði að breytast og sú breytta stefna, sem Þjóðviljinn hefði tekið upp, væri liður í slíkum breytingum sem menn yrðu að sætta sig við. „Auðvitaö var þaö þannig áöur aö Þjóðvilj- inn sagöi aldrei neitt annað um kjaramálin og verkalýðsmálin en það sem toppamir í verka- lýðshreyfingunni sögðu. Asmundur og ýmsir aörir hafa viljað fá þessa valdatíma á nýjan leik. Þetta er hreyfingin-það-er-ég-kompiex,” segir þessi heimildarmaður. Og hann heldur áfram: ,,Staðreyndin er sú að búið er að breyta Þjóðviljanum úr geltu lögbirtingablaði fyrir toppa í hreyfingunni í blaö. þar sem opinská umræða um innri mál verkalýöshreyfingar og vinstrimanna fer fram.” „Lrtil og léleg tengsl við forystuna" I verkalýðsarminum er kvartaö mikið und- an því að sambandsleysi sé á milli flokksfor- y stunnar og verkalýðsforystunnar. „Það eru og hafa verið lítil og léleg tengsl innan flokksins milli forystunnar og verka- lýðsforystunnar,” segir einn þeirra. „Þetta er alvarlegt vandamál flokksins. Sumir gera of mikið úr því að þetta sé persónulegt vanda- mál Ásmundar og Svavars. Það er auövitað ekkert leyndarmál að grunnt er á því góða milli þeirra og hefur lengi verið en málið er ekki svo einfalt að hægt sé að afgreiða það með þessu einu. Samband forystunnar við aðra forystumenn — flesta að minnsta kosti — er lítið skárra. Þeir virðast einfaldlega vera of stórir til þess að hafa samband við okkur, þótt oft nægði eitt símtal. ” Heimildarmenn á flokksvængnum eru heldur ekkert að fela erfiðleikana á sambandi Svavars og Asmundar — sem nánar verður fjallað um hér á eftir. En þeir telja að of mikiö sé gert úr sambandsleysinu. „Mikið hlustað á þá" „Forystan hefur mikið til verkalýösfor- ingjanna leitað og á þá hlustaö og því er hér um miklar ýkjur að ræða,” segir einn þeirra. Hann nefndi sem dæmi að í byrjun janúar hefðu ýmsir í forystu flokksins viljað að Alþýðu- bandalagiö færi í ítarlega fundaherferð á vinnustöðum. Þetta var rætt á fundi í fram- kvæmdastjóm flokksins og þar var Asmund- ur mættur. Svavar lagði þessa tillögu fram og fékk stuðning Olafs Ragnars og fleiri fram- kvæmdastjórnarmanna, en Ásmundur lagðist alveg eindregið gegn þessu og kvað það myndu skemma fyrir fundaherferö sem hann ætlaöi að standa aö í janúarmánuði. Niðurstaöan var svo sú að það var orðið við hans óskum og flokkurinn f ór ekki í þessa fundaherferð. „Þetta er aöeins nýlegt dæmi um hvaða tillit er tekið til óska Asmundar. Það eru einnig oft haldnir sameiginlegir fundir þingflokks, stjómar verkalýðsmálaráðs og framkvæmda- stjórnar flokksins og forystumenn ræðast viö þar fyrir utan. Þetta um sambandsleysiö eru því undarlegar ýkjur.” Góð fréttamennska eða samsœri? „Hitt er svo annað mál,” hélt þessi heim- ildarmaðut af flokksvængnum áfram, „að ýmsir í flokksforystunni telja að nokkuð hafi skort á það að sumir í verkalýðsforystunni létu þá fylgjast nægilega vel með þeim kjara- samningum sem verið var að gera. Og ég held að meginreiði Asmundar stafi einfaldlega af því aö duglegir blaðamenn á Þjóðviljanum komust að þvi sem átti að vera leyndarmál gagnvart flokksforystunni. og túlka það svo sem eitthvert samsæri.” Asmundarmenn, sem talaö var við, eru í engum vafa um að fréttin umdeilda í Þjóðvilj- anum 24. janúar um viðræður ASI og VSI hafi verið birt til þess að skemma fyrir þeim við- ræðum. „Fréttin um að samningar væru í gangi kom fyrst í Þjóöviljanum einmitt þegar mikilvægt var aö reyna aö halda því sem var að gerast innan forystuhópsins í verkalýðshreyfing- unni,” segir einn þeirra. „Eg get ekki ímynd- að mér annan tilgang en þann aö reyna að eyöileggja fyrir því að samningar tækjust. Og það var altalað í okkar hópi að Svavar hefði sjálfur hringt í menn á ríkisfjölmiðlunum til þess að láta þá vita hvað væri að gerast. ” „Ásmundur og Svavar hafa aldrei getað starfað saman" Heimildarmönnum ber almennt saman um að formaður flókksins og forseti Alþýðusam- bandsins séu litt hrifnir hvor af öðrum. „Þeir eru mjög ólíkir menn og eiga einfald- lega ekki skap saman,” segir einn úr stuðningsmannahópi Asmundar. „Og það hefur orðið margt til þess að gera sambúö þeirraerfiða.” „Þeir hafa aldrei getað starfað saman, svo einfalt er það,” segir heimildarmaður á flokksvængnum. „Þeir eru mjög ólíkir og velja sér líka mjög ólíka samstarfsmenn,” segir einn Asmundar- manna. „Asmundur hefur mun meiri þekk- ingu á grundvallarþáttum þjóðmálanna: efna- hagsmálunum, atvinnumálunum, kjaramál- iunum. Hann íhugar málin mjög vel og sér allar hliðar þeirra, en Svavar er djarfur — hendir fram hlutum sem síðan standast ekki. Það er því oft mjög auövelt fyrir Asmund að sýna fram á að tillögur frá Svavari séu tóm vitleysa, og það gerir hann oft á f undum. Þá er Asmundur í reynd mun valdameiri í þjóðfélaginu sem forseti ASI og það virðist Svavar stundum eiga erfitt með að þola.” „Fara alltaf að rifast" A flokksvængnum er þessu lýst nokkuð á annan veg: „Svavar er sjóaður í stjómmálun- um og gerir sér grein fyrir því sem formaöur að hann verður að taka ýmsu. Hann er búinn að standa í áróðri, deilum og pólitískum slag. Asmundur er hins vegar miklu meiri embættismannatýpa; kontóristinn. Hann er kosinn af forystusveit verkalýðshreyfingar- innar til þess að vera i forystu þar og hefur því aldrei farið í gegnum þá skólun sem fé- lagsleg átök og glíma mánuð eftir mánuð á berangri hef ur í för með sér. Oneitanlega eru gáfur hans og lærdómur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.