Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 10
DV. LAU G ARDAGUR19. MAI1984. 10 Jón Pétur Jónsson, handknattleiksmaður í Val, sýnir á sér hina hliðina Texti: Stefán Kristjánsson Jón Pétur Jónsson er þekktur maður í handboltaheiminum. Þekkt- astur er hann fyrir mikla skothörku, afburða kimnigáfu og orðheppni á- samt því að flytja inn HUMMEL í- þróttavörur ásamt bróður sínum Öiafi H. Jónssyni, fyrrum fyrirliða islenska landsliösins í handknattleik. ,,Viö stofnuðum innflutnings- verslun 20. september 1975 og hlaut hún nafnið O.H. Jónsson hf. Viö höfum síöan þá flutt inn alls kyns í- þróttavörur frá Hummel og eins riffla og ýmis skotfæri ásamt mörgu ööru. Þaö fer mikill hluti sólar- hringsins í vinnuna og hún er eitt aðaláhugamálið sem stendur alla- vega. Iþróttimar eru líka ofarlega. Eg les mikið í bókum, hef mikið meira lagi orðheppinn og skemmti- legur. Er eitthvað til i þessu? „Eg læt aðra dæma um það. Kimn- in hefur þróast í gegnum íþróttirnar. Það hafa verið margir „léttir” í Val í gegnum árin og ég er ekki sá eini. ” Nú flytur þú inn skotfæri. Skýtur þú s jálfur? „Eg hef farið nokkrum sinnum til rjúpna en meira er þaö ekki. Hins vegar hef ég gaman af aö renna fyrir lax og silung.” Kanntu skemmtilega veiðisögu? „Þaö gæti verið, já. Við Valsmenn héldum eitt sinn af stað austur fyrir fjall og ætluðum í sjóbirting rétt hjá Klaustri. Okkur var sagt að melda allt, maðk, flugu, svið og meira að segja appelsínubörk en ekkert gekk. Upp úr hádeginu komumst viö að því að áin góða var áveituskurður og að sjálfsögðu ekki bein að hafa þar. Við æddum að bænum en þar var engan að sjá. Veiðiferðin endaði síðan með því að við slógum upp glímumóti og Olafur Benediktsson markvörður vann það f rekar létt.” „Stjórna ríkinu í hádeginu" Fylgist þú með þjóðmálum al- sinn íslensk sendinefnd á ferð í Bandaríkjunum og kvöld eitt var boðið til kvöldveröar. Var ekki langt liðið á máltiðina þegar einn Banda- ríkjamaður vindur sér að einum íslenska nefndarmanninum og spyr hann hve velta ríkissjóðs sé mikil ár- lega. Islendingurinn, sem ég held örugglega að sé alþingismaður, svaraði um hæl og nefndi líklega tölu. Bandaríkjamanninum bregður við og svarar: „Þetta er aðeins hluti af veltu mins fyrirtækis. Eg gæti Reyndum n^k-^ «iðoga^'«*ori‘ dálæti á Halldóri Laxness, MacLean og Hammond Innes svo einhverjir séu nefndir. Annars er ég alæta á bækur.” „Margir Séttir í Val" Þú hefur fengið orð fyrir að vera í okkur á bæ einum og gefa bóndanum þar flösku af brennivíni. Hann myndi þá glaður vísa okkur á bestu veiði- staðina. Síöan færðum við honum flöskuna, skáluðum við hann og hann benti okkur á góöa staöi. Um morg- uninn örkuöum viö af staö, léttir í lund aö venju, og nú átti aldeilis að þurrka upp sprænuna. Við reyndum mennt og hvaða álit hefur þú á stjórnmálamönnum þessa lands? , ,Eg tel mig fylgjast vel með en álit mitt á íslenskum stjómmála- mönnum er því miður ekki mikið. Eg tel að þaö ætti að fækka þeim í 30 stykki og þá gengju málin hraðar fyrir sig. Núna er veriö aö velta ýms- um málum fyrir sér svo árum skiptir. I þessu sambandi dettur mér í hug skemmtileg saga. Þaö var eitt stjómað íslenska ríkinu í hádeginu.” Þetta finnst mér gefa ýmislegt til kynna varðandi störf okkar alþingis- manna og afkastagetu þeirra.” Að lokum, Jón: Ert þú að leggja skóna á hilluna? . „Eg byrjaði í handbolta í marki hjá Breiðabliki. Við Oli bróðir vorum alltaf aö leika okkur á ganginum heima í Kópavogi í þá daga. Knötturinn var einfaldlega búinn til úr sokkum og Oli reyndi allt sem hann gat til að skjóta í andlitið á mér. Svo reif hann í eyrun á mér og sagði svo: ,,Svona förum viö með Breiðabliksmenn.” Hann var þá byrjaður að leika með Val og á end- anum fór ég þangað líka. Ef ég verö ferskur og heill heilsu í júlí þá ætla ég að vera með eitt ár enn. Valur á mikið af ungum og efni- legum leikmönnum sem fara að taka við en ef not verða fyrir mig næsta vetur mun ég ekki láta mig vanta,” sagði Jón Pétur Jónsson og baö fyrir kveðjurtil Ola bróður. Jón Pétur Jónsson ásamt f jölskyldu sinni. „Kom ekki vel fyrir til að byrja með” segir eiginkona Jóns Péturs, Jóna Rútsdóttir „Þetta var frekar venjulegt hjá okkur Jóni. Við kynntumst á skemmtistað, nánar tiltekiö í Sig- túni,” sagöi Jóna Rútsdóttir, eigin- kona Jóns Péturs Jónssonar hand- knattleiksmanns, í stuttu samtali við DV. „Hann kom mér ekki vel fyrir sjónir í fyrstu, var frekur og ágengur en ég komst að því síðar að þetta var besta skinn. Frekjan og ágengnin var einungis á yfirborðinu. Hann var æstur í að dansa og vildi helst alltaf vera á dansgólfinu. Jón Pétur er mjög ákveöinn maöur og hann kemur sínu fram í flestum tilfellum. Hann er ekki hjálpsamur við húsverkin og þau lenda nær undantekningarlaust á mér. Hins vegar er hann mjög góöur faöir og sér ákaflega vel fyrir sér og sínum. Hann er ákveðinn og oftast nær finnst mér hann vera skemmti- legur,” sagði Jóna Rútsdóttir. -SK. \ Gísli Halldórsson leikari er í miklum inetum hjá Jóni Pétri. FULLT NAFN: Jón Pétur Jónsson. HÆÐ OG ÞYNGD: 1,91 og hálfur og 94 kg. BIFREIÐ; Daihatsu Charade. GÆLUNAFN: Ekkert. VERSTU MEIÐSLI: Sem betur fer engin. UPPAHALDSIÞROTTAMAÐUR, 1S- LENSKUR: ASGEIR SIGURVINS- SON. UPPAHALDSIÞROTTAMAÐUR, ER- LENDUR: CarlLewis. MINNISSTÆÐASTI LEIKUR: Valur-Dinamo Bukarest í Evrópu- keppninni 1977 í Rúmeníu. ÖNNUR UPPAHALDSÍÞRÖTT: Knattspyrna. UPPAHALDSMATUR: Sjávarfæða, sama hvað er. U PPAHALDSDRYKKUR: Tvöfald- ur viski í vatni og bjór. UPPÁHALDSSJONVARPSÞATTUR: Iþróttir og fréttir. UPPAHALDSLEIKARI, ERLEND- UR: Jack Nicholson. ÍSLENSKUR: Gísli Halldórsson. UPPAHALDSBLAÐ: Morgunblaðið. UPPAHALDSHLJOMS VEIT: RoU- ingStones. BESTI VINUR: Konan í Breiö- holtinu. ERFIÐASTI ANDSTÆÐINGUR: Steinar Birgisson. HELSTA METNAÐARMAL I LlFINU: Að hafa ofan í mig og á. HVAÐA PERSONU LANGAR ÞIG MEST TIL AÐ fflTTA? I myrkri eða björtu. Chemenko í glasi. Bæði í björtu og myrkri. EFTIR AÐ FERLI ÞlNUM LYK- UR: Sinna fjölskyldunni betur en hingað til. STÆRSTI VEIKLEIKI: Skapið í leik. STÆRSTI KOSTUR: Skapið fyrir utan leik. UPPAHALDSLH) IENSKU KNATT- SPYRNUNNI: Man. Utd. BESTIÞJALFARISEM ÞU HEFUR HAFT: HUmar Björasson. HVAÐ FER MEST I TAUGARNAR Á ÞER? Baktjaldamakk alls konar og óheiðarleiki. YRÐIR ÞÚ HELSTI RAÐAMAÐUR ÞJÖÐARINNAR A MORGUN, HVERT YRÐI ÞITT FYRSTA VERK? Leyfa bjórinn. ANNAÐ VERK: Hækka fjárframlög rikisins til iþróttamála almennt séð. Hilmar Björnsson er besti þjálfari sem Jón Pétur hefur haft á sínum ferli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.