Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Side 11
DV. LAUGARDAGUR19. MAI1984.
11
E?
f!
Bezt er að hafa sem flestar kokkahúfur og fæstar krónur
Hvorki te
né prjónar
íslenzkt og
vietnamskt
Drekinn er enn minna kínverskur en
Zorba er grískur. Sem dæmi um
vestrænu þessa litla veitingahúss á
homi Laugavegar og Klapparstígs
má nefna, aö maðseöillinn býöur upp
á kaffi, en ekki te. Hef ég aldrei fyrr
heyrt um kínverskt veitingahús án
tes.
Annaö dæmi er, aö' Drekinn býöur
upp á súpu dagsins og viöamikinn
aöalrétt í einu verði, svo sem algengt
er á Vesturlöndum, en fátítt í kín-
verskum veitingahúsum, sem flest
leggja áherzlu á syrpur af smáum
réttum. Þar á ofan reyndist dag
eftir dag súpa dagsins vera þykk, en
ekki tær, eins og kínverskar súpur
eru yfirleitt.
Elkta þjóöemisstöðum í öömm
löndum er haldið viö efnið af hópum
útlaga, sem boröa í þessum veitinga-
húsum og vilja fá sama mat og þeir
fengu heima í gamla daga. Hér er
ekkert um slika viöskiptavini. Því er
‘skiljanlegt, áö Drekinn hefur eins og
Zorba lagaö sig aö neyzluvenjum
Vestur-Evrópu.
Sætsúrir réttir og ostrusósa benda
til, aö Drekinn sé af þeim meiöi kín-
verskrar matargeröar, sem kennd-
ur er viö borgina Kanton. Sú skil-
greining stenzt þó ekki alveg, því aö
ekki er boðið upp á neina gufusoöna
dim-sum smárétti, sem einkenna
flesta kantonska veitingastaöi. Þeim
mun meira er djúpsteikt, sem ekki er
kantonskt.
Karríréttir Drekans rugla síöan
skilgreininguna enn frekar. Karrí er
indversk kryddblanda, en ekki kín-
versk. Skýringin er sennilega sú, aö
milii Kína og Indlands er skaginn
Indókína, þar sem meðal annars er
ríkið Vietnam. Matreiðslan er sem
sagt f rekar vietnömsk en kantonsk.
Hin kínverska hefö leynir sér samt
ekki í hinni nærfæmu eldamennsku,
sem vel kemur fram í fiskréttum
Drekans. Hún lýsir viröingu fyrir
viökvæmu hráefni, sem íslenzkir
matreiöslumenn mættu sumir hverj-
ir læra. Jafnvel við djúpsteikingu er
skorpan yfirleitt þunn og létt í maga.
Fyrsta flokks
fiskisúpa
Hápunktur prófunarinnar í
Drekanum var fiskisúpan, heil
máltíð út af fyrir sig. Það var sætsúr
súpa, tær, meö léttsoönum smálúðu-
Smálúöan djúpsteikta var líka góö,
borin fram meö skemmtilegri,
hnetublandaöri ostrusósu. Djúp-
steikti karfinn í hádeginu daginn eft-
ir hafði hins vegar of mikinn og fit-
ugan steikarhjúp, enda kokkurinn
‘sennilega annar. Karfinn var samt
góöur, þegar búiö var aö taka hjúp-
inn frá.
Nautakjöts-vorrúlla meö sætsúrri
sósu var stór og matarmikil meö
bitum, stinnri papriku, grænni og
rauðri, blaölauk og spírum. Þetta
var fyrsta flokks máltíö á aðeins 125
krónur.
Súpa dagsins var sæmileg hveiti-
súpa meö grænmeti. Hún var líka í
boði daginn eftir og virtist þá einnig
fvera nýlöguö.
Staðlað meölæti var boriö fram
meö öllum aöalréttunum. Þaö fólst í
góöum, hvítum hrísgrjónum, venju-
legu hrásalati, smátt söxuöu, banda-
rískri sósu, salatblaði, sítrónu og
tómati.
Allir aðalréttirnir voru bomir
fram snarpheitir og allir með hníf og
gaffli, en ekki prjónum. Allar sósur voru
mildar á bragðiö.
Djúpsteiktur skötuselur meö blað-
lauk og grænmetisostrusósu, svo og
stinnri papriku, var hinn ljúfasti
matur, bezti aöalréttur prófunarinn-
ar.
þunnri og stökkri skorpu. Sama var
aö seg ja um þá rúlluna, sem var meö
karrísósu.
Kjúklingur chow mein fólst í þunn-
um kjötræmum á spaghettibeði með
sætsúrri sósu. Þetta var frambæri-
legur matur, ekki of mikiö eldaöur.
Lambakjöt chow mein var svo þunn-
ar kjötflögur á karríhrísgrjónum.
Það kjöt var of mikið eldað, oröiö
grátt og þurrt.
Oröin chow mein vom hiö eina,
sem ekki var á íslenzku á matseölin-
um. A Drekanum virtust þau ýmist
þýöa spaghetti eöa hrísgrjón, þaö er
aö segja, hvaö sem vera skal.
Allt í Ijósum
og bláum lit
Drekinn er lítil og notaleg, 42 sæta
veitingastofa, innréttuö í ljósu og
bláu. Sléttpússaö trégólf er ljóst,
panilveggir ljósir, strigaloft ljóst,
plastborö ljós og klappstólar á efra
palli ljósir. Bekkir á neöra palli eru
meö ljósblárúöóttu áklæði eins og
gluggatjöldin. Bláir listar ramma
glugga, skilrúm og veggsúlur. Uti-
huröin er blá.
I gluggum eru illa málaöar eftirlík-
ingar af glersteindum dreka, sem
hangir yfir afgreiðsluboröi. Kínversk-
ur glottkarl situr á skilrúmi yfir litlu
bamahorni viö innganginn. I lofti eru
kínverskar sólhlífar og blævængir,
óróar og leikbrúöur. I heild er þetta
hiö þægilegasta umhverfi, því að kín-
verskan í skreytingunni er ekki of-
hlaöin.
Þótt Drekinn sé í lægsta verðflokki
veitingahúsa, er þar veitt full þjón-
usta til borös, svo aö gestir þurfa
ekki að hanga viö afgreiðsludiskinn
eins og á flestum stööum í sama
verðflokki.
Þjónustan var afar góö og raunar
betri en á sumum stöðum, sem hafa
læröa þjóna. Sem dæmi má nefna, að
stúlkan vissi upp á hár, hver hafði
pantað hvaö viö sex manna borö,
þótt engir tveir heföu pantað hiö
sama. Þarna var enginn „hver
pantaöi þetta” vandræöagangur,
sem setur niður sum íslenzk
veitingahús.
A matseðli dagsins var súpa og sjö
aðalréttir. Miöjuverð súpu og aðal-
réttar var 210 krónur. A fastaseðli
eru fimm súpur á miöjuveröinu 125
krónur og 22 aöalréttir á miðjuverð-
inu 187 krónur. Af aðalréttunum eru
sex konar vorrúllur, fjórir sætsúrir
réttir, tveir chow-mein réttir, fjórir
karríréttir, fjórir ostrusósuréttir og
tveir aörir réttir. Enginn eftirréttur
er á seðlinum, enda eru Kínverjar
lítiö fyrir slíkt. Kaffi kostar 30
krónur.
Drekinn er góö tilbreytni í
veitingamennsku landsins. Þar er
boðiö upp á góöan og ódýran mat viö
góöa þjónustu í þægilegu umhverfi.
Hann er aö vísu ekki eins kínverskur
og hann segist vera. En ég gleymdi
aö spyrja, hvort hægt væri aö fá
prjóna til borös.
Jónas Kristjánsson.
Cheerios er alveg ofsalega, æðislega,
- mjög gott!