Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Síða 6
6
DV. LAUGARDAGUR19. MAl 1984.
Ferðamál
Ferðamál
Ferðamál
lægð frá Frakklandi. Þarna eru
margar baöstrendur eftir 46 mílna
langri strandlengjunni og meöal
þeirra eru nokkrar af bestu
baðströndum í Evrópu. Þaö er
nokkurn veginn jafnlangt frá Jersey
hvort heldur er til London eöa
Parísar, eöa um 300 kílómetrar. En
ég var aö tala um baðstrendumar.
Þær eru margar og ölíkar.
Því geta allir fundiö strönd viö
sitt hæfi. Þama eru ekki túrista-
hótel alveg fram í fjöruborð eins og
gerist svo víöa í Suöur-Evrópu.
Þvert á móti. A mörgum stööum
getur fólk buslað í ró og næöi án þess
aö sjá nokkum ókunnugan tímunum
saman. Þarna er nóg pláss fyrir alla.
Hlýr Golfstraumurinn umlykur
eyjuna og sólarstundir til dæmis í
júní eru aö meðaltali 255. En svo ég
komi aftur aö ströndunum, þá er
bæöi langar sandstrendur og klettótt-
ar strendur aö finna viö eyna,
sannkallaöur ævintýraheimur fyrir
böm sem fulloröna.”
Hagstætt verðlag
A meðan Roger lýkur við aö
dásama baðstrendurnar í Jersey
skýtur næstu spumingu upp í hug-
ann: Er dýrt aðdvelja þarna?
„Nei, þvert á móti. Þaö er mun
ódýrara en víðast hvar annars
staöar á nálægum slóöum. Til dæmis
er hægt að fá bílaleigubíl fyrir sem
svarar tvö þúsund krónum á viku og
bensínið er um helmingi ódýrara en
á Englandi. Sama er aö segja um vín
og tóbak, enda er ekki lagður skattur
á vöru og þjónustu eins og á
Englandi (VAT) þótteyjanséaövísu
undir breskum yfirráðum. Raunar
er flest meira franskt en enskt á
Jersey, til dæmis matur og fleira.
Hótel og gististaðir em af öllum
geröum og veröflokkum. En mér
skilst aö Islendingar sækist eftir aö
líta inn í búðir þegar þeir em
erlendis og það ættu þeir að gera á
Jersey. Sérstaklega er hægt aö gera
góö kaup í ilmvötnum, snyrtivörum,
skartgripum, myndavélum, china og
rafmagnsvörum. Og svo kostar
bjórinn helmingi minna en á
pöbbunum á Englandi og hér em
barir opnir frá kiukkan níu aö morgni
án þess aö ég sé aö hvetja til
drykkju, enda erum viö hófsamir í
þeim efnum,” sagöi Roger Le
Monnier ennfremur.
Þaö kom fram í máli hans að íbúar
Jersey em aðeins 76 þúsund.
Höfuöborgin heitir St. Helier og þar
eru íbúar liölega 25 þúsund.
Meöalfjöldi sólarstunda á dag yfir
sumarið er átta stundir, meöalloft-
hiti um 20 stig og meðalhiti sjávar 17
stig yfir sumarið. Þarna er gnægö
hótela og gististaða, sem og veitinga-
og skemmtistaða. Gestir stunda oft
golf, tennis, siglingar og útreiðar
meðfram sjóböðunum. Margir fara í
skipulagöar dagsferðir til Frakk-
lands.
Samgöngur em greiðar til og frá
eynni, en Roger Le Monnier taldi
liklegt aö Islendingar kysu helst aö
ferðast um London til aö geta staldr-
að við í heimsborginni. Látum viö
þar meö lokiö að segja frá Jersey, en
þeir sem vilja f rá nánari upplýsingar
snúa sér tU ferðaskrifstofanna.
Ferðamál
Sæmundur
Guðvinsson
STUTTAR FRÉTTIR
Hátíðahöld á D-degi
Senn eru liöin 40 ár frá D-deginum
svonefnda, þegar bandamenn gerðu
innrás á meginlandið tU aö binda
enda á heímsstyrjöldina síöari. I
Portsmouth á Englandi, en þaöan
sigldi stór hluti innrásarflotans, er
búið aö verja einni mUljón sterlings-
punda til aö byggja safn er hefur aö
geyma ótal margt er tengist þessum
degi. Má þar nefna 1 jósmyndir, skjöl,
landakort ásamt ýmsum tækjum'
sem herinn notaöi. Safniö verður
opnaö í næsta mánuöi og á D-daginn
sjálfan, 6. júni næstkomandi, verður
mikiö um dýrðir í Portsmouth.
Meðal annars munu gamlar hervélar
frá heimsstyrjöldinni síöari
skrönglastþaryfir.
Allt á sama stað
Ferðamenn sem koma til Arlanda-
flugvaUar við Stokkhólm og ætla að
fljúga áfram innanlands þurfa ekki
lengur að skipta um flugvöll. Gamli
flugvöUurinn Bromma er nú
eingöngu notaöur fyrir einkaflug-
vélar, en Svíar byggðu innanlands-
flugstöö á Arlanda og kostaði
bygging hennar sem svarar 75
núlljónum BandaríkjadoUara — og
reikniði nú.
Myndað í Póllandi
Yfirvöldum í Póllandi er mikiö í
mun aö sýna þaö og sanna fyrir vest-
rænum þjóðum aö þar í landi sé nú
allt í sómanum. Fyrir skömmu var
níu erlendum feröablaöamönnum
boöiö I heimsókn til PóUands. Þegar
þangað kom sögöust yfirvöld ekkert
hafa að fela. Hver blaöamaöur fengi
bU og bílstjóra og gæti látið aka sér
hvert sem væri og menn gætu skoðað
hvað sem þeú vildu. Tveir
blaðamenn fóru saman í einum bíl og
stöðvuðu á torgi lítils þorps skammt
frá Varsjá. Þeir fóru út úr bílnum og
byrjuðu að mynda þama á torginu.
Dreif þá aö óeinkennisklædda lög-
reglumenn sem tóku blaðamennina
með sér á stööina og yfirheyrðu í tvo ’
klukkutíma áður en ferðalangamir
fengu aö fara fr jálsir ferða sinna.
Selfridges á afmæli
Margir hafa heyrt um stór-
verslunina Selfridges í London og
ýmsir létt á veski sínu þar. A þessu
ári eru liöin 75 ár frá því
Ameríkumaðurinn Gordon Sdfridge
og sonur hann drógu fána aö hún á
stórhýsi því er þeir reistu viö Oxford-
stræti. Nánar tiltekið geröist þetta
15. mars 1909.
Alec sem Shylock
Ixákarinn víðfrægi Sir Alec
Guinness mun leika Shylock í
Kaupmanninum frá Feneyjum eftir
Shakespeare, en þetta verk er meöal
leikrita sem sýnd verða á leiklistar-
hátíö Chichester á Englandi í sumar.
$1 HttHtít Harbawr
Vaxandi áhugi á ferdum til Jersey:
Góðar baðstrendur
og hagstætt verðlag
Séö yfir höfnina i St. Helier.
B
H •
mw
m
Baðstrendur eru margar á Jersey.
Þeir landar sem hafa ferðast til
eyjarinnar Jersey og legiö þar í leti
hafa gjaman á oröi aö þetta sé
staður sem Islendingar ættu aö hafa
áhuga á. Feröaskrifstofur hér hafa
ekki haldið nafni Jersey sérlega hátt
á lofti til þessa en nú hefur oröið vart
aukinnar eftirspurnar eftir ferðum
þangaö. Og ferðamálayfirvöld
eyjarinnar hafa oröiö þessa vör og
vilja endilega fá fleiri Islendinga í
heimsókn. En hvers vegna aö fara til
Jersey? Hvað hefur þessi eyja aö
bjóöa sem gerir hana að eftirsóknar-
veröum feröamannastaö? Roger Le
Monnier, frá feröamálaráði
eyjunnar, var hér á ferð fyrir
skömmu og viö lögöum fyrir hann
þessarspumingar.
Sannkölluð sælueyja
„Astæðan fyrir því aö viö hvetjum
fólk til að koma í heimsókn er
einfaldlega sú aö þetta er sannkölluö
sælueyja. Mér er sama þótt þú
glottir, þetta er satt engu aö síður.
Jú, auövitaö höfum viö tekjur af
feröamönnum og þaö ekki litlar, ent
við fengjum enga feröamenn nema
af því þeir em ánægöir og vilja koma
aftur og aftur,” sagði Roger Le
Monnier í upphafi samtalsins. Og viö
báöum hann aö nefna þaö helsta sem
drægi ferðamenn til Jersey eins og
mý aö mykjuskán (þokkaleg samlíking
þetta).
„Ætli það séu ekki baöstrendurnar
sem heilla flesta. Jersey liggur suöur
af Englandi og í aöeins 14 mílna f jar-