Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Side 13
wrr tRorTAM or cmr»ArrtT/s niTA DV. LAUGARDAGUR19. MAI1984. lauk skipstjórnarpróf i túrinn en siglingarnar voru hvíldar- tímarnir.” Voru ekki einhverjir sem biöu þess aldrei bætur? „Ja, ég man ekki eftir neinum sem ég get sagt þaö um. En viö vorum lengi aö ná okkur eftir suma túrana, til dæmis með Þórarni Valgeirssyni.” Jón sprettur upp og leikur til áhersluauka: „Þaö var oft orðið svoleiðis þegar maöur tók upp fiskinn og beygöi sig eftir honum, til að taka innan úr hon- um, þá datt hnífurinn og þegar maöur tók upp hnífinn þá datt fiskurinn. Þetta var enginn vinnuhraði hjá fólki þegar menn voru orönir svona. Við bætninguna hékk maður í möskvunum með nálina og ekkert gekk. ” Vökur Hvaö vöktu menn lengi? „Það var eiginlega reynt að vaka meðan var verið aö fiska í skipiö. Það er ómögulegt að segja, svona viku. Maður gat við og við fengið smásvefn- lúr. Mér fannst alveg nauðsynlegt að setja þessi vökulög en mér fannst farið óf langt aö setja lögin þannig að maður hefði tólf tíma svefn. Helminginn af sólarhringnum. Mér fannst alveg óþarfi að hafa tólf tíma skylduhvíld. Mér hefði fundist nóg ef maður hefði alltaf átt vísa sex tíma.” Hvernig var með skipstjórana, vöktu þeireins? „Já, þeir vöktú alveg eins. Þórarinn var alveg eins þreyttur og við og hann hvildi sig aldrei. Eg held að hann hafi verið alveg eins syfjaður og við.” Þessi grannvaxni öldungur á tíræðis- aldri er nú kominn með pipu á milli fingranna. Hefurðu reykt lengi? „Eg hef notað allt tóbak. Eg tuggði skro í mörg ár, tók í nefið í mörg ár og nú hef ég reykt í fjöldamörg ár. En ég tók aldrei neitt annað en pípuna.” Stundarðu hollt lífemi? • „Nei, nei. Blessaður vertu. Eg hef aldrei farið í neinar líkamsæfingar. Þegar ég var í sjómannaskólanum fengum við nokkum part af vetrinum til að fara í sund. Það var einn kennslu- tími á viku. Það eru einu líkams- æfingamar sem ég hef stundað.” Sérstaklega hollt mataræði? „Blessaður. Eg borða allan mat. Mér þykir allur matur góður.” Brennivín Enbrennivín? „Eg hef oft fengið mér glaöning í staupinu. Eg hef ekki getað talist drykkjumaður en mér þykir voða gott að fá snafs með góöum kunningja. Svo hafa liðið vikur og mánuðir svo að ég smakkaði það ekki. Mér hefur þótt gott aö fá mér smáskvett þangað til núorðið að ég hef enga lyst á því. Ef ég hef oröið kenndur þá hef ég þurft að fá mér afréttara daginn eftir. Það hefur komist svona hægt og hægt í lag. Þeir kalia það sumir svoleiðis að drekka sig niður.” Bara að leggja kapal Hvað finnst þér um nútímann. Hafa orðiðframfarir? „Það er ómögulegt að segja. Margt af þessu er vitleysa sem nú er orðið og ekki til bóta. Nú gera menn kröfur til að gera sem allra minnst og fá sem mest útúr því.” Hvemig verðu deginum? „Tíminn fer aöallega í að lesa og sofa. Mér líður langbest þegar ég sef. Svo fer ég út aö labba, heimsæki kunn- ingja mina en er orðinn latur við það. Eg get sagt eins og Emil Jónsson í Hafnarfirði þegar hann hætti að skipta sér af stjómmálum. Þegar hann dró sig út úr pólitflrinni var hann spurður hvað hann ætlaði aö gera. Hann sagöi: „Ætli ég verði ekki bara að leggja kapal.”” Hvað gerirðu helst í tómstundum þínum? „Eg hef mest gaman af að lesa. Eg les mest af ævisögum og ljóöabókum. Ég man vel eftir Þyrnum eftir Þor- stein Erlingsson. Eg sleppti henni ekki fyrr en ég hafði lesið hana alla og ég kann hana mikið. Davíð frá Fagra- skógi finnst mér ansi skemmtilegur.” Hvernig ævisögur finnst þér bestar? „Mér finnst ævisaga Jóns Stein- grímssonar best. Það er afar skemmti- legt að lesa hana. Maður finnur undir eins að hann segir alltaf satt. Þegar Jón Steingrímsson.er að segja til dæmis frá sínum kvennamálum þá finnur maöur aö hann segir satt.” Nú á Stýrimannaskólinn 70 ára afmæli á laugardag. Ætlarðu að fara? „Það getur verið ef ég nenni því að ég skreppi uppeftir. Við vorum tuttugu og sex í upphafi en ég held aö það séu einn eða tveir lifandi fyrir utan mig.” -SGv. sparasvo Beröu saman mismunandi sparnaðarleiöirsem bankarnir eru að bjóöa þessa dagana. Athugaöu að við bjóðum aðra leið: 6 mánaða BANKAREIKNING MEÐ BÓNUS. Oryggí: Þú mátt færa á milli verðtn/ggöra sem óverðtn/ggðra reikninga. Slíkt er nú aldeilis ön/ggisatriði ef verð- bólgan vex. Þægindi: Bankareikningurinn þarfnast ekki endurnýjunar. Engarferðir í bank- ann á 6 mánaða fresti. Iðnaðaitankinn Fer eigin leiðir - fyrir sparendur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.