Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Side 29
DV. LAUGARDAGUR19. MAl 1984.
29
ÍK—Breiðablik—UBK—Breiðablik—UBK—Breiðablik—UBK—Breiðablik
Lið Breiðabliks keppnistímabilið 1984 ásamt þjálfaranum Magnúsi Jónatanssyni.
DV-mynd Óskar örn Jónssen.
gVIÐ ÆTLUM AÐ LEIKfl
SÓKNARBOLTA í SUMAR”
— segir Magnús Jónatansson, þjálfari Breiðabliks
„Komum vel undirbúnir til leiks, andlega og líkamlega,” segir Magnús
„Það má segja að lið mitt sé óþekkt
stærð. Það hafa orðlð ákveðnar
breytingar á liðinu frá þvi sem var í
fyrra, leikmenn hafa yfirgefið okkur
og aðrir komið í þeirra stað,” sagði
Magnús Jónatansson, þjálfari Breiða-
bliks, í samtali við DV.
„Þessir nýju leikmenn hafa staðið
sig mjög vel og það hefur komið vel í
ljós að liðið þolir vel þessar breyting-
ar.
Lið mitt kemur mjög vel undirbúið
til leiks, bæði andlega og líkamlega.
Mun betur en í fyrra. Það sama sýnist
mér raunar vera hægt að segja um hin
liðin h'ka. Leikmenn mínir gera sér
mun betur nú en áður grein fyrir því
hvar þeir standa. Það skiptir ekki litlu
máli. Eg er sannfærður um að þetta á
allt eftir að koma hjá okkur, hvort sem
það verður í sumar, næsta sumar eða
eftir þrjú ár. Við gætum orðið meistar-
ar eins og raunar fimm eða sex önnur
iið í deiidinni. Skagamenn hafa
kannski svolítiö forskot, hafa sama
mannskap og í fyrra og í liðinu eru
leikmenn sem eru vanir að standa í
toppbaráttu. Varðandi þriggja stiga
regluna nýju vil ég segja að ég held að
hún sé mjög góð að mörgu leyti en ég
sé einn annmarka á henni. Tökum
England sem dæmi. Þar eru liðin mjög
mörg og þrátt fyrir að lið fái þrjú stig
fyrir unninn leik getur eitt lið varla
stungið hin af. Hér á landi eru leikirnir
fáir, liðin fá miðað við enska boltann
og eitt lið getur hreinlega veriö búið að
vinna Islandsmótiö rétt eftir að mótið
er hálfnaö. En ég hef ekki trú á því að
lið sem nær forystu leggist í vörn. Eg
get sagt að það er hættulegt fyrir
hvaða lið sem er aö leggjast í vöm
gegn okkur. Við verðum grimmir og
mitt lið er staöráöið í því að leika
sóknarknattspyrnu í sumar og ekkert
annað. Mér sýnist raunar að flest liðin
muni koma til með að leika opinn bolta
og ég fagna því ef „kýlingakerfin”
verða látin lönd og ieið. I stuttu máli:
Islandsmótið í sumar verður mun
betra og skemmtilegra en í fyrra.”
Nú eigið þið að leika gegn Þrótti um
helgina. Hvernig leggst sá bardagi í
þig og þina?
„Eg óttast Þrótt eins og öll önnur liö í
deildinni. Við náöum að merja eitt stig
gegn þeim í fyrra og erum minnugir
þess. Það er ljóst að við verðum að
■<------------------m.
Magnús Jónatansson, þjálfari Breiöa-
bliks: „Sannfærður um að íslandsmót-
ið í ár verður mun skemmtiiegra og
betraenífyrra.”
leggja okkur vel fram ef við eigum að
fá eitthvað sem kallast getur hagstæð
úrslit gegn Þrótti. Þeir hafa sama
þjálfara og í fyrra, sama mannskap
svo að segja og þeir geta hæglega
unnið mótiö eins og hverjir aðrir.”
Vilt þú spá um röð liða að mótinu
loknu?
„Eg einfaldlega treysti mér ekki til
að spá fyrir um röð liðanna en veðja þó
á Akranes og KR í tveimur efstu
sætunum, eins og í fyrra. önnur lið
koma skammt á eftir en ég er ekki
sammála því að Víkingur og KA falli í
2. deild. Þessi félög eiga eftir að koma
á óvart í sumar. Framliðinu hefur
verið spáð góðu gengi en ég held að
liðiö sé of ungt til að standa i fremstu
röð, þola pressuna. Að öðru leyti
treysti ég mér ekki til að spá frekar um
úrslit,” sagði Magnús. -SK.
Siggi Grétars...
I Sigurður Grétarsson hefur skorað
J flest mörk fyrir Brelðablik í 1. deild
| frá upphafi. Sigurður hefur skoraö 30
Imörk. Þór Hrelðarsson kemur
næstur með 23 mörk, Hinrlk Þór-
haUsson, sem leikur nú með KA, hefur
Iskorað 18 mörk, Óiafur Friðriksson
17 og Sigurjón Kristjánsson 14. Röð
næstu manna er þannig: Vignir
Baldursson 7, Ingólfur Ingóifsson 6,
Jón Einarsson 5, Ólafur Björnsson 3,
Omar Rafnsson 2, Trausti Omarsson
2, Benedikt Guðmundsson 2, Jó-
hann Grétarsson 1 og Jón Gunnar
Bergs 1.
-SK.
! ...efsturá blaði !
H
Eftirtaldir lcikmcnn Breiðabliks Trausti Ómarsson (2) |
hafa leikið með islenska landsllðinu. Einar Þórhallsson (D |
Fjöldi ieikjanna innan sviga: Guðmundur Þórðarson (1) |
Siguröur Grétarsson (9) ÞórHreiöarsson u>,
Ólafur Björnsson (6) Jón Einarsson <1)1
Omar Rafnsson (4) Jón Gunnar Bergs (1) 1
Sigurjón Krist jánsson (3) JónOddsson (1) 1
m - Breiðabiik - UBK - Breiðablik - UBK - Breiðablik - UBK - Breiðablik
—■ni i» ii' i .. iii.ii ni.i. '<riihn«iiitni*iiÉii»i iéiié ir- ■■ •v-i,r,ná&:l æ.rtoú ri.rWW-nr&jfclWii. ift AIAníi i. k ■ ■ i ■ i nr r..í.fc .i.^ n ^ m P 'i'-.-'. ■■ nni i&A