Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Síða 44
44
DV. LAUGARDAGUR19. MAl 1984.
Messur
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðþjónusta
kl. 14.00. Kristinn Agúst Friðfinnsson predik-
ar. Sr. Gunnþór Ingason.
KIRKJA OHAÐA SAFNAÐARINS:
Guðsþjónusta kl. 11. Baldur Kristjánsson.
KEFLAVIKURKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
ll.Sóknarprestur.
Guðsþjónustur í Reykjavikurprófastsdsemi
sunnudaginn 20. maí 1984.
ARBÆJARPRESTAKALL: Guðsþjónusta í
safnaöarheimili Arbæjarsóknar kl. 11.00 árd.
Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
ASKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Ath
breyttan messutíma. Sr. Arni Bergur Sigur-
biörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Messa i
Breiðholtsskóla kl. 14.00. Aðalfundur
safnaðarins. Sr. Lárus Halldórsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Síðasta bamasamkoma
vorsins kl. 11.00. Sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir. Guðsþjónusta kl. 2.00. Sr. Heimir
Steinsson Þingvallaprestur prédikar. Organ-
leikari Guðni Þ. Guðmundsson. Afmælis-
fundur Bræörafélags Bústaðakirkju mánu-
dagskvöld kl. 8.30. Félagsstarf aldraðra mið-
vikudagseftirmiðdag. Æí kulýðsfundur mið-
vikudagskvöld kl. 8.30. Sr. OlafurSkúlason.
DÖMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Dómkórinn
syngur, organleikari Marteinn H. Friðriks-
son. I tilefni dagsins, sem er sunnudagur
cantate (songsins), syngur kórinn í stundar-
fjóröung fyrir messuna. Sr. Þórir Stephensen.
Fimmtudag 24. maí ki. 20.30 verður
aðalfundur Dómkirkjusafnaðarins í Dóm-
kirkjunni.
ELLIHEIMILH) GRUND: Messa kl: 2.00.
Préstur sr. Jón Isfeld. Félag fyrrverandi
sóknarpresta.
FELLA- OG HOLAPRESTAKALL:
Guðsþjónusta i Menningarmiðstöðinni við
Gerðuberg kl. 2.00. Sr. Hreinn Hjartarson.
FRIKIRKJAN I REVKJAVIK: Bama- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Guðspjallið í
myndum. Barnasálmar og smábama-
söngvar. Afmælisbörn boðin sérstaklega vel-
komin. Sunnudagspóstur handa börnum.
Framhaldssaga. Við hljóðfærið Pavel Smid.
Sr. Gunnar Björnsson.
GRENSASKIRKJA: Guðsþjónusta með
altarisgöngu kl. 11.00. Almenn samkoma nk.
fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Haildór S.
Gröndal.
HALLGRIMSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson. Vortónleikar
Mótettukórsins i Kristskirkju kl. 17.00
sunnudag. Þriðjudagur: Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30, beðið fyrir sjúkum.
Matteusarkvöld kl. 20.30. Fimmtudagur 24.
maí: Opið hús "fyrir aldraða kl. 14.30.
Laugardagur 26. maí: Félagsvist í safnaöar-
heimilinukl. 15.00.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.00. Sr.
KarlSigurbjörnsson.
HATEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr. Am-
grímur Jónsson.
KÖPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00.
Sr. Arni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjóns-
son, organleikari Jón Stefánsson.
Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRK JA: I^ugardagur:
Guðsþjónusta Hátúni 10B, 9. hæð, kl. 11.00
árd. Sunnudagur: Messa og altarisganga kl.
14.00. Þriðjudagur: Bænaguðsþjónusta kl.
18.00 Sr. Ingólfur Guðmundsson.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr.
Frank M. Halldórsson. Miövikudagur: Fyrir-
bænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
SELJASOKN: Guösþjónusta í Oldusels-
skólanum kl. 11.00. Fyrirbænasamvera
Tindaseli 3 fimmtudagskvöld kl. 20.30.
Sóknarprestur.
NAMSKEIÐ I SAFNAÐARSTARFI: Fundur
verður með væntalegum starfsmönnum í
safnaðarstarfi þriðjudaginn 22. maí kl. 20.15 í
safnaðarheimili Bústaðakirkju.
Fundir
Bræðrafélag Bústaðakirkju
heldur afmælisfund nk. mánudagskvöld kl.
8.30 í safnaðarheimilinu.
SKIPPER
S113 SONAR 0G DÝPTARMÆLIR
Tvöfalt notkunargildi. Hag-
stætt verð og greiðsluskil-
málar.
A A A. jm. A. A. A
Friðrik A. Jónsson h.f.
Skipholti 7, Reykjavík,
Símar 14135 — 14340.
Samtök gegn
asma og ofnæmi
Sunnudaginn 20. maí kl. 14 halda Samtökin
gegn asma og ofnæmi 10 ára afmælishátíð
sína á Hótel Sögu, Súlnasal. Fjölbreytt
skemmtiatriöi, sniðin fyrir alla fjölskylduna.
Hátíðin er öllum opin. Félagsmenn og
velunnarar eru hvattir til að mæta og taka
með sér gesti.
Sýnlngar Þjóðleikhússins um helgina:
Amma þól í síðasta sinn og
uppselt á Gæja og píur
Nú um helgina verða allra síðustu sýningar á
barnaleikritinu Amma þói, eftir Olgu
Guðrúnu Arnadóttur í Þjóðleikhúsinu. Næst-
síðasta sýning verður laugardaginn 19. maí
kl. 15.00 og allra síðasta sýning verður
sunnudaginn 20. maí, einnig kl. 15.00, og er
það 25. sýningin á verkinu. Tónlist og söng-
textar eru einnig eftir Olgu Guðrúnu en Hróð-
mar Sigurbjörnsson útsetti lögin fyrir hljóm-
sveit. Leikstjóri er Þórhallur Sigurösson, leik-
mynd og búningar eru eftir Messíönu Tómas-
dóttur en Asmundur Karlsson hannaði
lýsinguna. Herdis Þorvaldsdóttir leikur
ömmuna úrræðagóðu, Jón S. Gunnarsson
ieikur heimilisföðurinn, sem aldrei fær bein
úr sjó, og þau Edda Björgvinsdóttir og GísU
Guðmundsson leika börnin á heimiUnu; auk
þeirra leika Páhni Gestsson, örn Amason,
Sigurður Skúlason, Erlingur Gíslason og
Helga E. Jónsdóttir í sýningunni og Ami
Tryggvason er í hlutverki hins dularfuUa
Salómons, ástfangna einsetukarlsins. Auka-
sýningar verða ekki á þessu leikriti og því
allra síðasta tækifærið til að sjá það um þessa
helgi.
Gæjar og píur, söngleikur Loessers,
Swerlings og Burroughs, nýturgífurlegra vin-
sælda og seldist upp á aUar sýnmgar á
nokkrum mínútum. Um síðustu helgi seldust
miðar á tvær sýningar upp á innan við klukku-
tíma og miðar á þær þrjár sýnmgar sem
verða á verkinu um þessa helgi seldust einnig
upp á örskömmum tíma. Sömu sögu er að
segja af sýningum í miðri viku, en þess eru
dæmi að menn hafi mætt í biðröð kl. 9.00 fyrir
hádegi þótt miðasalan sé ekki opnuð fyrr en
kl. 13.15. En sem sagt, söngleikurinn verður
sýndur þrisvar um þessa helgi, á föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld, og er löngu
uppselt á allar sýningarnar. Sýningin á
laugardagskvöld er 20. sýning verksins.
Næstu sýningar verða þriðjudaginn 22. maí og
fimmtudaginn 24.maí.
Síðustu sýningar á Undir
teppinu
Vorkonur Alþýðuleikhússins hafa sýnt að und-
anförnu á Hótel Loftleiðum Undir teppinu
hennar ömmu, nýtt íslenskt leikverk eftir
Nínu Björk Ámadóttur.
Atta leikkonur og tveir hljóðfæraleikarar
koma fram i sýningunni en aðalhlutverk eru
leikin af Sigurjónu Sverrisdóttur, Sóiveigu
Halldórsdóttur, Sigrúnu Eddu Björnsdóttur
og Kristínu Bjamadóttur.
Leikstjóri er Inga Bjamason, tónlist er eftir
Mist Þorkelsdóttur, en ieikmynd og búninga
hannaði Guðrún Svava Svavarsdóttir.
Verkíð er þrískipt og lýsir tilvist og nærvist
þriggja kvenkynslóða og áhrifum bælingar og
ótta á líf þeirra. Með kómísku ívafi.
Siðasta sýning á verkinu verður
sunnudaginn 20. maí kl. 21 J)0.
Um helgina:
Bros úr djúpinu, Gísl og
Fjöreggið
I kvöld (föstudagskvöld) er 10. sýning á leik-
ritinu Bros úr djúpinu hjá Leikfélagi Reykja-
víkur. Höfundurinn, Lars Norén, þykir nú
einn athyglisverðasti höfundur á
Norðurlöndum og leikritin hans eru mikið
leikin. Þetta verk fjallar um hjónin Helenu og
Eðvarð, ballerinu og rithöfund, móður
hennar, systur og vinkonu og er mjög nær-
göngult í lýsingu sinni á tilfinningalegum
samskiptum þessa fólks. Leikstjóri er Kjart-
an Ragnarsson en leikmynd gerir Pekka
Ojamaa frá Finnlandi. Leikararnir hafa allir
hlotið mikið lof fyrir leik sinn í þessu verki en
þeir eru Hanna María Karlsdóttir, Sigurður
Skúlason, Sígríður Hagalín, Guðrún S. Gísla-
dóttir og Valgerður Dan.
A laugardagskvöldið er hið vinsæla verk
Gísl eftir Brendan Behan á fjölunum.
Sýningar eru nú komnar á fimmta tuginn og
hefur verið uppselt á þær allar. Alls koma 15
leikarar fram í sýningunni og eru meira og
minna á sviðinu alla sýninguna. 1 stærstu
hlutverkum í Gísl eru Gísli Halldórsson, Mar-
grét Helga Jóhannesdóttir, Jóhann
Sigurðarson, Guðbjörg Thoroddsen, Hanna
María Karlsdóttir. Aörir leikarar eru
Steindór Hjörleifsson, Guðmundur Pálsson,
Þorsteinn Gunnarsson, Margrét Olafsdóttir,
Aðalsteinn Bergdal, Kjartan Ragnarsson,
Karl Guðmundssón, Guðrún S. Gísladóttir,
Harald G. Haraldsson og Sigurður Rúnar
Jónsson, sem jafnframt stjórnar allri tónlist í
verkinu, en leikaramir sjálfir annast undir-
leik. Leikstjóri er Stefán Baldursson.
A sunnudagskvöldið er 6. sýning á hinu
nýja leikriti Sveins Einarssonar, Fjöregginu,
sem hlotið hefur ágætar viðtökur gagnrýn-
enda og ieikhúsgesta. Með stærstu hlutverk
þar fara Guðrún Asmundsdóttir, Þorsteinn
Gunnarsson, Pálmi Gestsson, Lilja Þóris-
dóttir, Gísli Halldórsson og Guðrún S. Gísla-
dóttir, en alls koma 15 leikarar fram í sýn-
ingunni, sá yngsti aðeins sex ára. Leikstjóri
er Haukur J. Gunnarsson.
Tilkynningar
Ársþing B.S.Í.
Ársþing Badmintonsambands Islands verður
haidið laugardaginn 26. maí nk. í sal Skag-
firðingafélagsins, Síðumúla 35 Reykjavik, og
hefstkl. 10.00 f.h.
Tombóia í Völvukoti
Hin árlega tombóla, blóma- og kökubasar
verður sunnudaginn 20. maí á skóladag-
heimilinu Völvukoti við Völvufell og hefst kl.
13. Verð miða 20 kr., engin núll.
Landssamtökin
Þroskahjálp
Dregiö var í almanakshappdrætti samtak-
anna 15. þ.m. Upp kom númeriö 53846. Ösóttir
vinningar á árinu eru 756, 18590 , 31232 og
47949.
Kaffiboð Húnvetningafélags-
ins í Rpykjavík
Sunnudaginn 20. maí kl. 15 býður Hún-
vetningafélagið í Reykjavík eldri Hún-
vetningum til skemmtunar og kaffidrykkju í
Domus Medica, Egilsgötu 3.
A síöasta ári keypU félagið 180 ferm hús-
næði að Skeifunni 17, Rvk., fyrir félagsheimUi
og er nú unnið við að innrétta það.
Félagið efnir um þessar mundir til happ-
drættis til fjáröflunar. Aðalvinningar eru
veiðileyfi í laxveiðiám í Húnavatnssýslu.
Dregiðverðurl. júh'.
Upplýsingar gefa Jón, sími 21959, og
Aöalsteinn, sími 19863.
Seyðfirðingafélagið
í Reykjavík
verður með kaffisölu sunnudaginn 20. maí nk.
kl. 15.00 í félagsheimUi Bústaðakirkju.
Seyöfirðingar, 70 ára og eldri, fá frítt kaffi og
meðlæti. Seyðfirðingar í Reykjavík og ná-
grenni, fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Frá Kattavinafélaginu
Kattavinafélagiö hefur nú hafist handa um
byggingu Uknar- og geymslustöðvar fyrir
ketU við Stangarhyl 2 á Artúnsholti og eru
húsbyggjendur og aðrir sem eiga sökkla-
timbur og vilja leggja félaginu Uð beðnir að
hringjaís. 14594.
Tímaritið Gangleri
fyrra hefti 58. árgangs, er komlð út.
Blaðið er að venju 96 bls. með greinum um
andleg mál. Meðal efnis er grein um saman-
burð á skoðunum WUUams James og Sigurðar
Nordal. Þorsteinn Antonsson skrifar um
siðfræði Ufsins og athyglisverð grein er um
japanska bogfimi. Þýtt erindi er eftir Dalai
Lama og annað eftir KristhamurU. Grein er
GANGLERI
um myndun fósturs frá sjónarmiði skyggnrar
konu.
AUs eru 15 greinar nú í Ganglera auk smá-
efnis.
Askriftarverð er kr. 360. Nýir áskrifendur
fá tvö eldri blöð ókeypis. Askriftarsími er
39573 eftirkl. 17.00.
5 kvölda námskeið
Hugleiðsla — Hagnýt tækni tU sjálfsþekking-
ar.
Hugleiðsla — hagnýt tækni tU sjáUsþekk-
ingar nefnist 5 kvölda námskeið á vegum
Samtaka Prátista. Námskeiðið er miðað við
byrjendur en kennd verður einföld tækni við
djúpslökun og heimspekUeg undirstaða jóga-
vísindanna. Jógavísindin, sem byggja á and-
legri hefð, eiga ekkert skylt við trúarbrögð,
ný eða forn, heldur rekja uppruna sinn að
minnsta kosU 7000 ár aftur í tímann. A Vestur-
löndum hefur fólk víða tekið jóga með fyrir-
vara og tengt það við f járplógsstarfsemi og
flótta frá raunveruleikanum. Markmiðið með
námskeiöi þessu er einmitt að benda á
hvernig nýta má hugleiðslu til að vega upp á
móU streitu og fleiri sálrænum kvUlum sem
fylgja nútíma þjóðfélagi, auk þess að vera
hagnýt leið einstakUngsins tU að þekkja sitt
innsta eðli og auka einbeiUngu og aðrar
eigindir hugans. Þá hef ur hugleiðsluiðkun það
fram yfir róandi Iyf, vímugjafa og ýmsa
efnisiega hluti, sem fólki eru seldir tU að bæta
huglega vaniíðan, að vera ókeypis og gengur
seint tU þurrðar og því ákaflega „þjóðhags-
lega hagkvæm” eins og segir í leiðurum dag-
blaðanna.
Námskeiðiö verður á mánudagskvöldum,
fimm kvöld aUs, og hefst 21. maí. Námskeiðs-
gjald er kr. 100. Nánari upplýsingar og innrit-
un er í síma 46821 og 23588.
Ásmundarsalur við
Freyjugötu
Þar stendur yfir sýning Sigurðar Orlygssonar
á 15 acríimyndum. Sýningin verður opin í dag
kl. 16—21 og um helgina kl. 14—21. Henni lýk-
ur á sunnudagskvöld.
Ferðalög
Útivistarferðir
SUNNUDAGUR 20. maíkl. 13.
1. Hafnaberg—Reykjanes. Fuglaskoðunar-
ferð með Arna Waag, einufn mesta fuglasér-
fræðingi okkar. Hafið sjónauka og fuglabók
AB með.
2. Háleyjabunga—Reykjanes. Fjölbreytt
strönd, jarðhitasvæði og gígar. Brottför í ferð-
imar frá BSI, bensínsölu (í Hafnarfirði v.
Kirkjug.). Verð 350 kr., frítt f. börn m.
fullorðnum.
Hvítasunnuferðirnar: 1. Snæfellsnes-Snæ-
fellsjökull - Breiðafjarðareyjar. Gist að Lýsu-
hóli. 2. Öræfi-Skaftafcll og snjóbílaferð á
Vatnajökul.
3. Þórsmörk. Gist í Utivistaskálanum
Básum. 4. öræfajökull. Sjáumst.
Utivist.
Ferðafélag íslands
Dagsferð sunnudag 20. maí — SÖLVAFJARA
Kl. 10.30 — Stokkseyri — Knarrarósviti.
Gengið um fjöruna austur af Stokkseyri að
Knarrarósvita. I fjörunni verður hugað að
sölvum undir leiðsögn Önnu Guðmundsdóttur
húsmæðrakennara. Æskilegt að vera í stíg-
vélum og hafa með poka undir söl. Þetta er
kjörin ferð fyrir þá sem hafa áhuga á fjöru-
gróðri. Verðkr. 350,-
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bíl.
Ferðafélag Islands.
Frá Golfklúbbi
Reykjavíkur
Tvö mót hafa verið haldin í vor hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur. Einnar kylfu keppnin á
Korpúlfsstöðum þ. 1. mal I henni sigraöi Þor-
valdur Guðmundsson. Flaggakeppnin var
haldin í Grafarholti þ. 5. maí. I henni sigraði
Jón Sigurðsson. A iaugardag, þ. 19. maí, hefst
keppnin um hvítasunnubikarinn. Ræst verður
útfrákl. 9.00.
Á sunnudag. þ. 20. maí, verður „maímót 15
ára og yngri” kl. 13.00, og kL 14.00 verður
„opið öldungamót”. Mótið er haldið í
tengslum við stofnfund öldungasambands
GSI, sem haldinn verður kl. 12.00 i Golf-
skálanum í Grafarholti.
Stofnfundur
öldungasambands GSÍ
A sunnudag, þ. 20. maí, kl, 12.00 verður hald-
inn undirbúningsfundur að stofnun Oldunga-
sambands GSI í Golfskálanum í Grafarholti.
Eru öldungar (karlar 55 ára og eldri og konur
50 ára og eidri) hvattir til að fjölmenna á
fundinn og taka þátt í stefnumörkun á starf-
semi öldunga innan GSI Hádegismatur
verður á boðstólum fyrir þá sem vilja.
Skemmtistaðir
HOLLYWOOD: Diskótek föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
ÞÖRSKAFFI: Um helgina leikur Dansbandið
fyrir dansi, diskótek á fyrstu hæð. Lúdósex-
tettinn og Stefán skemmta á föstudagskvöld
og Stjúpsystumar syngjandi á laugardags-
kvöld.
HOTEL BORG: Gömlu dansamir undir
stjórn Jóns Sigurðssonar á sunnudag.
KLUBBURINN: A föstudags- og laugardags-
kvöld leikur hljómsveitin KIKK fyrir dansi,
dansflokkurinn „Dansneistinn" sýnir, i
kjallara verða tveir tónlistarmenn með
barmúsík.
BROADWAY: Á föstudagskvöldið verða
fegurðardrottning Islands og fegurðardrottn-
ing Reykjavíkur krýndar. Model '79 sýnir
tískufatnað frá Garbo og Bonaparte,
frumflutningur á nýjum dansi eftir Sóleyju
Jóhannsdóttur, Þuríður Sigurðardóttir og
Björgvin Halldórsson syngja. A laugardags-
kvöldið verður skemmtidagskrá með Omari
Ragnarssyni.
HÖTEL SAGA: „Grínarar hringsviösins
mæta á föstudags- og laugardagskvöld og eru
það þeir Laddi, Jörundur, öm Ama og Pálmi
Gests. Leikstjóri er Gísli Rúnar Jónsson og
hljómsveitarstjóri Vilhjálmur Guðjónsson.
ARTUN: Gömlu dansarnir föstudags- og
laugardagskvöld. Hljómsveitin Drekar
leikur.
GLÆSIBÆR: Föstudags- og laugardagskvöld
leikur hljómsveitin Glæsir ásamt dansdúett-
inum 006. Einnig verður diskótek á staðnum.
LEIKHUSK JALI.ARINN: Föstudags- og
laugardagskvöld. Diskótek ásamt matseðli.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför
FIIMNBOGA HELGA MAGNÚSSONAR
SKIPSTJÓRA,
PATREKSFIRÐI
Dómhildur Eiriksdóttir
Kristín Finnbogadóttir
Reynir Finnbogason Kristín Finnbogadóttir
Sigurey Finnbogadóttir Hafdís Finnb0gadóttir
Hafrún Finnbogadóttir Steinunn Finnbogadóttir
Þorvaldur Finnbogason
tengdabörn og barnabörn