Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Síða 48
Fréttaskotið 68-78-58 SIMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendíngu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið í hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. LAUGARDAGUR 19. MAI 1984. Flugmenn á fæturí dag A þriðja þúsund manns varö fyrir röskun á feröum sínum í gær vegna veikindaforfalla flugmanna, að sögn Sveins Sæmundssonar, forstööu- manns kynningardeildar Flugleiða. Félagið reyndi aö bjarga málum með þremur leiguþotum til milli- — deiluaðilar á fund ríkissáttasemjara ímorgun landaflugs og 'fjórum litlum leigu- vélum til innanlandsflugs. Ekki varö þó hjá því komist að fjöldi fólks yröi fyrir óþægindum. Ottast var að þessar aðgeröir flug- manna myndu standa yfir í þrjá sólarhringa, sama tíma og verkfall- ið, sem Alþingi bannaöi, hafði verið ráðgert. Síðdegis í gær benti allt til þess aö flugmenn „færu á fætur” í dag. Félag íslenskra atvinnuflugmanna kannast ekki við að um skipulögð veikindaforföll hafi verið að ræöa. Talið var í gærkvöldi að flugmenn Flugleiða myndu ^„hressast” og mæta til vinnu í dag. Deiluaðilar voru boðaöir á fund ríkissáttasemj- ara klukkan níu í morgun en þeir hafa ekki ræðst við frá því á þriðju- dag. Talsmenn flugmanna vísa aðeins til reglna sem segja aö flugliði megi ekki hafa á hendi starfa í loftfari hamli sjúkdómur, þreyta eða aðrar orsakir honum að rækja starfann á tryggileganhátt. -KMU. Stjómarandstaðan grípur til málþófs — þar sem frumvarp um frjálsan innf lutning á kartöf lum var ekki tekið til umræðu „Ef þetta mál verður ekki tekið til umræöu lit ég svo á að það sé ekki lengur neitt samkomulag um hvernig afgreiða eigi mál þessa síðustu daga þingsins.” Þannig mæltist Eiði Guðnasyni, þingflokks- formanni Alþýðuflokksins, er hann gekk út af þingfundi eftir harðar umræður um þingsköp. Efri deild var nánast óstarfhæf í gær vegna mikils ágreinings miili stjómar og stjórnarandstöðu og einnlg innan stjórnarflokkanna um afgreiðslu frumvarps sem felur i sér að afnema einkarétt Grænmetis- verslunarinnar á innflutningi á kartöflum og nýju grænmeti. Málið hefur legið í landbúnaðamefnd og formaður nefndarinnar, Egill Jóns- son, hefur neitað að afgreiða nefiidai-- álit fram til þessa. I fyrrakvöld varð samkomulag um að nefndarálitið kæmi í gær, en svo varð ekki. Hvað eftir annað varö að fresta fundum efri deildar meðan stjómar- flokkamir ráðguöust um málið. Fundarhlé var gert í hálfa aðra klukkustund meðan svo stóð A. Þeg- ar fundur hófst aftur sagðist forseti deildarinnar fyrst ætla að afgreiða önnur mál. Þingmenn stjórnarand- stöðunnar komu þá hver á fætur öðmm í ræðustól og heimtuöu málið tii umræðu. Þegar forseti neitaði gripu þeir til málþófs til aö tefja fyrir framgangi annarra mála. Má búast við að þessir atburðir kunni aö tefja þingstörf. Stjórnarflokkarnir gerðu í gær með sér samkomulag uin að af- greiðslu þessa máls yrði frestað gegn því að endurskoðun færi fram á sölumálum landbúnaðarins. Sverrir Hermannsson, sem nú gegnir embætti viðskiptaráðherra, var til- búinn með yfirlýsingu um að hann myndi beita sér fyrir endurskoðun á sölumálum grænmetis og að einok- uninni yrði aflétt, en frekari á- kvarðanir yrðu ekki teknar að sinni. -OEF. LUKKUDAGAR 19. MAÍ 6900 DÚKKUKERRA FRÁ I.H.hf. AO VERÐMÆTI KR. 800,- D V-mynd: Loftur. Áveiturör úr Hvera- BRETAPRINS gerð/ se/d í öllum IREYKJA VIK Filippus Bretaprins yerði stuttan stans á Reykjavíkurflug- velli skömmu eftir hádegi í gœr. Hann kom frá London, Heathrow, á skrúfuþotu sinni og hélt héðan til Syðri- Straumsfjarðar í Grœnlandi á leið sinni til Bandaríkjanna. Filippus er í raun tíður gestur á Reykjavíkurflugvelli. / hvert skipti sem hann kemur fœr hann sér kaffi og íslenskar pönnukökur, en þœr segir hann vera hreinasta afbragð. Breski sendiherrann á íslandi, John Adams, tók á móti Pil- ippus í gœr ásamt mönnum frá Flugmálastjórn. JGH heimsálfum vekja gríðarlega athygli, framleidd fyrir luktum dyrum LOKI Einhver sagði að fiugmennirnir væru þessir rauðu hundar sem eru að ganga. Leikfang hindraði aðf lug Ungir strákar voru að leika sér með flugdreka í Hljómskálagarðin- um í Reykjavík um miðjan dag í gær. Drekinn var kominn vel á loft þegar lögreglan kom og skarst í leikinn. Kvörtun hafði nefnilega borist frá flugturninum. Flugvélar gátu ekki lent á Reykjavíkurflugvelli sökum þess að leikfang strákanna var kom- iö upp í aðflugslínu. -KMU. Fulltrúar Entek á lslandi hf. hafa undanfarið ferðast um allar heims- álfur og boðið til sölu áveiturör úr gúmmíi, en framleiðsla á þeim hófst fyrir mánuöi í Hveragerði. Rörin vekja gríðarlega athygli. Þau eru framleidd fyrir luktum dyrum til verndar frarnleiðsluaðferðinni. Þessi rör eru í rauninni gúmmí- slöngur með holum, ekki götum. Þær eru lagðar við rætur plantna og frá þeim saggar síðan. Með þessum hætti nýtist vatn, sem víða er af skornum skammti, með áöur óþekktum hætti. Það er aðeins hér í Hveragerði og í Dallas í Texas sem þessi rör eru framleidd. Framkvæmdastjóri Entek, Andrés Sigurösson, og Haukur Hjaltason stjórnarmaður voru nýlega í Kenýa á sýningunni African Water Techno- logy. Þar var Andrés tekinn í sjónvarpsviðtal. Þá eru þeir Andrés og Jón Zoega stjómarmaöur ný- komnir frá Astralíu þar sem unnið er að stofnun kynningar- og sölufyrir- tækis. Fulltrúar Entek hafa verið í fjölmörgum öðrum löndum síðustu vikur og eru nú á förum tU Þýska- lands á stærstu landbúnaðarsýningu heims þar sem þeir verða með 12 fer- metra sýningarbás. Að uppbyggingu framleiðslunnar er unnið í samráði við yfirvöld og tæknistofnanir iðnaðarmála hér og í samráði við sjóöi og bankastofnanir. Nú þegar vinna 12 manns að framleiðslu og eru fyrstu gámar til- búnir til útskipunar. -HERB.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.