Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Síða 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 8. JÚNl 1984.
Rúmlega 20 þúsund pakkar af hertum þorskhausum til Nígeríu:
Nígeríumenn skulda enn um
milljarð fyrír skreiðina
„Jú, viö erum aö skipa núna út
20.200 pökkum af hertum þorskhaus-
um til Nigeríu. Þeir fara út meö Lax-
ánni á morgun,” sagöi Bjarni V.
Magnússon framkvæmdastjóri Is-
lensku umboðssölunnarí gær.
Hann sagöi ennfremur að um frek-
ari sölu væri ekki aö ræða í augna-
blikinu en áöur heföu þeir selt 12
þúsund pakka af þorskhausum sem
fluttir hef öu veriö út nýlega.
— Hvernig gengur aö selja skreið-
ina?
„Þaö eru viöræöur í gangi þessa
dagana og ég held aö menn séu
frekar bjartsýnir.”
— Helduröuaöhúnseljistöll?
„Þaö veitégekki.”
Skreiðarbirgöir í landinu eru nú á
bilinu frá 200 til 250 þúsund pakkar.
Þetta er framleiðsla allt aftur til
ársins 1982. Um síðustu áramót voru
birgöir af skreið um 190 þúsund
pakkar, þannig aö um verulega
framleiöslu þessa árs er ekki aö
ræöa.
Bjarni sagöi aö greiöslur fyrir
skreiðarútflutning frá í fyrra væri nú
að berast til landsins.
„Viö erum búnir að fá um 6
milljónir dollara, um 180 milljónir ís-
lenskra króna, og erum að fá til viö-
bótar um 1 1/2 milljón dollara, um
45 milljónir íslenskra króna.
Ætli aörir útflytjendur séu ekki að
fá núna um 1 1/2 milljón dollara frá
Nígeríu.”
Um þaö hve skuldir Nígeríumanna
vegna skreiðarkaupa væru háar
sagöi Bjarni aö þær væru um 35
milljónir dollara (rúmur milljaröur
íslenskra króna). Þar af skulduöu
þeir Islensku umboössölunni um 10
milljónir dollara (300 milljónir ís-
lenskra króna).
Aöspuröur sagðist Bjami ekki vita
um hve miklar birgðir af hertum
þorskhausum væru til í landinu.
„Þaö veit enginn þessa stundina hve
birgöirnar eru miklar, vertíöinni er
aö ljúka og þetta liggur ekki alveg
fyrir.”
-JGH.
ÖRLAGA-
GÁTAN
— í nýrri útsetningu
I kvöld veröur söngdrápa Björgvins
Guömundssonar, Örlagagátan, við
texta eftir Stephan G. Stephansson,
flutt í heild í nýjum sinfónískum
búningi í Háskólabíói. Hljómsveitarút-
setningin er gerö af Roar Kvam en
upphafleg gerð tónverksins gerði
aöeins ráö fyrir píanóundirleik.
Passíukórinn á Akurey ri syngur ásamt
einsöngvurunum Olöfu K.
Harðardóttur, Þuríöi Baldursdóttur,
Jóhanni M. Jóhannssyni, Michael J.
Clarke og Kristni Sigmundssyni,
Sinfóníuhljómsveit Islands leikur meö
en stjómandi er Roar Kvam.
Verkið var flutt fyrir skömmu á Tón-
listardögum á Akureyri og var því vel
tekið.
TÆKJALEIGA
Fossháls 27 - sími 687160
Vibratorar
Gólfslípivélar
Jarðvegsþjöppur
Hæðarmælar
Háþrýstiþvottatæki
Vatnsdælur
Rafmagnsheflar
Handfræsarar
Stingsagir
Vmkilskífur
Pússibeltavélar
Pússijuðarar
Nagarar
Hjólsagir
Borðsagir
Bútsagir
Loftpressur
Naglabyssur
Heftibyssur
Fleigvélar
Höggborvélar
Vinnupallar
Stigar
Tröppur
Álbúkkar
Opiö virka daga
kl. 7.30-18.00,
laugardaga kl. 7.30-12.00.
VÉLA-
og
PALLALEIGAN.
TF-VLU, hinnýja flugvélArnarflugs.
DV-mynd: Bj.Bj.
Isafjardarmálid:
Stöðumar
auglýstar
— höfum ekkert
svarfengiðfrá
ráðherra, segir
Finnbogi
Hermannsson
„Nei, nei, viö höfum alveg fengið
friö fyrir menntamálaráöuneytinu,
þaö hefur ekkert borist þaöan,”
sagöi Finnbogi Hermannsson, einn
kennarana sjö sem sagt hafa upp
störfum við Menntaskólann á Isa-
firöi, þegar hann var spuröur hvort
sjömenningunum heföi borist svar
ráðherra við opnu bréfi til hennar.
„Margt er hins vegar bréfið sem
berst menntamálaráöherra og varla
viö því aö búast að blessuð konan
hafi tima til aö svara þeim öllum,”
sagði Finnbogi. „Þetta bréf okkar
rak inn á ráðherrakontórinn síðast-
liöinn föstudag, svo þaö er ekki nema
vika síðan þaö var sent.
Mönnum finnst þó gæta ansi
mikiliar léttúðar hjá Ragnhildi ef
rétt er eftir henni haft í DV á miö-
vikudag þar sem hún segist ekkert
ætlaaðgera.”
Finnbogi sagöi aö sem gamall
blaöamaöur tæki hann flest meö
fyrirvara, einkum ef þaö stæöi á
prenti. „En ef þessi orð eru rétt eftir
Ragnhildi höfö þá er hún að segja aö
hún láti sér þaö í léttu rúmi liggja þó
svo að einn menntaskólanna í land-
inu sé aö dragast upp og hann er ein-
mitt hér á Isafirði.”
Eftir uppsagnir kennarana sjö eru
8 kennslugreinar viö skólann lausar.
Þaö er íslenska, franska, danska,
þýska, stæröfræði, efnafræði, sam-
félagsgreinar og viöskiptagreinar.
Nokkrar þeirra hefur menntamála-
ráöuneytiö þegar auglýst lausar til
umsóknar.
,,Hvað varöar afstööu Ragnhildar
Helgadóttur til kennara eins og gerst
hefur í þessu máli vil ég ekki tjá mig
um hér,” sagöi Finnbogi Hermanns-
son.
Samkvæmt upplýsingum DV mun
menntamálaráöherra vera aö senda
svarbréf til kennaranna sjö.
-KÞ.
NÝVÉLÍ
FLOTANN
Arnarflug fékk á mánudag nýja flug-
vél í innanlandsflotann. Þaö er tveggja
hreyfla vél af gerðinni Cessna 402C
meö sæti fyrir níu farþega.
Flugvélin var smíöuö í Banda-
ríkjunum áriö 1981. Henni hefur h'tiö
veriö flogið, um 500 klukkustundir.
Hún hefur hlotiö einkennisstafina TF-
VLU.
Kaupveröið var um 6 milljónir
króna. Á móti seldi Arnarflug tveggja
hreyfla, sjö sæta vél af gerðinni Piper
Cheyenne fyrir um 7,5 milljónir króna,
aö sögn Arnar Helgasonar forstööu-
manns innanlandsflugs félagsins.
Arnarflug á nú tvær vélar af
gerðinni Cessna 402. Leiguflug Sverris
Þóroddssonar hefur einnig notast viö
þessa gerö flugvéla og á þrjár slíkar.
Þriðja vél Arnarflugs á innanlands-
leiðum er af geröinni Twin Otter. Hún
hefur reynst dýr í rekstri en erfitt er
fyrir félagiö aö vera án hennar til aö
fljúga á erfiða flugvelli eins og á
Suöureyri og Siglufiröi.
-KMU.
Ásaprestakall:
Lögmæt kosning
SiguröarÁrna
Talin hafa verið atkvæöi í prests-
kosningu í Ásaprestakalli í Skaftafells-
hreppi. Umsækjandi var einn, sr. Sig-
uröur Ámi Þóröarson settur prestur í
kallinu. 163 voru á kjörskrá og hlaut
Siguröur 90 atkvæði. 9 seðlar voru auö-
ir. Samkvæmt þessu telst sr. Siguröur
Árni réttkjörinn meö lögmætri kosn-
ingu.
Þess má geta hér til gamans aö sr.
Sigurður tekur nú við Ásaprestakalli af
eiginkonu sinni.
-óm.
Kostnaður við sólarlandaf erðir:
Um 150 prósent dýrara frá
Reykiavík en Stokkhólmi
I könnun sem Verðlagsstofnun
gerði í apríl sl. á veröi tveggja vikna
sólarferöa til Costa del Sol og dvöl
þar á meðal hóteli kom í ljós aö mik-
ill munur er á verðinu á Norðurlönd-
um.
Þessi ferö kostaði frá Reykjavík
25.000 krónur, frá Kaupmannahöfn
9.991 krónu, frá Stokkhólmi 9.282 og
f rá Osló kostaöi hún 17.428.
Hér á landi er hægt aö fá mismun-
andi flugmiðaverö frá Islandi til
þessara landa. Svokallaöur „rauður
apex” kostar t.d. 9.976 krónur. Meö
því að fara til Kaupmannahafnar á
slíkum miöa yröi fargjaldið í þessa
tveggja vikna ferö til Spánar 19.967
krónur, þ.e. munurinn er 5.033 kr. Þá
má einnig búast viö því aö sá sem
velji ódýrari kostinn veröi að gista
eina nótt í Kaupmannahöfn þannig
að þegar upp er staðið er þessi mun-
ur ekki svo ýkja mikill.
Annað mál er að í Kaupmannahöfn
eru stööug tilboö til sólarlanda á
niöui'settu verði. I dönsku blaði var
auglýsing frá Spies hinum fræga þar
sem boðið var upp á tveggja vikna
ferð til Mallorca á tæpar 3000 krónur.
Þetta var hótelíbúð meö baöi, svöl-
um og sundlaug á staönum. Það get-
ur því borgað sig fyrir þá sem vilja
tefla á tvísýnu aö fara fýrst með
áætlunarflugi til borga sem bjóöa
upp á mun lægri fargjöld en hér
heima. Apex miöar eru reyndar af
skomum skammti og háöir vissum
skilyrðum og veröur að panta þá
með ákveðnum fyrirvara.
I sjónvarpsfréttum á miövikudag-
inn var greint frá mismunandi verði
feröa til Mallorca miöaö viö aö fara
beint héöan eöa fljúga með áætlunar-
flugi til London og þaöan til Mall-
orca. Munurinn reyndist vera nokk-
uömikill.
Þessi frétt hefur vakiö athygli
ferðaskrifstofueigenda hér á landi og
er nú verið aö vinna að því aö kanna
þetta mál niður í kjölinn og búist er
við yfirlýsingu um þessi mál fljót-
lega.
Ingólfur Hjartarson lögfræðingur
Félags ferðaskrifstofa sagöi aö það
gætu hugsanlega veriö tilvik þar sem
hagstæöara væri aö kaupa miða er-
lendis og fara þangaö með áætlunar-
flugi héðan en það ætti yfirleitt við
um ferðir sem lækkaðar væru í verði
rétt fyrir brottför.
Hins vegar væri ljóst aö erlendar
ferðaskrifstofur gætu stundum boöið
upp á ódýrari ferðir. Þar væru mark-
aöslögmálin að verki, t.d. væri leigu-
flugsgjald mun lægra á meginland-
inu en hér. Þá gætu stærstu ferða-
skcifstofurnar erlendis oft gert mun
hagstæðari samninga viö hótel er-
lendis, m.a. vegna þess aö gjaman
leigðu þeir þessi hótel allt áriö um
kring.
APH
i*rrrr,
wBKdSKwáBKWktWmlBFmWM