Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Side 9
DV. FÖSTUDAGUR 8. JUNI1984.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Rauði krossinn fordæmir írak harðlega:
LOFTÁRÁSIR GERÐAR
Á ÓBREYTTA BORGARA
Obreyttir borgarar í Irak og Iran
eiga yfir höföi sér áframhaldandi
loftárásir þar sem báöir stríðsaöilar
hyggja á hefndaraðgerðir í formi
loftárása á byggö ból.
Stjórnarerindrekar í Bagdad
segja að Irakar hafi tekið í notkun
tvær nýjar geröir af sovéskum eld-
flaugum sem gætu gefiö hótunum
þeirra um aö eyöa olíuútflutnings-
stöð Irans á Kharg-eyju nýjan kraft.
Alþjóða Rauöi krossinn fordæmdi
í gær harðlega loftárásir Iraks á
borgina Baneh í Iran fyrir þremur
dögum. Sagöi í hinni harðorðu yfir-
lýsingu Rauöa krossins frá Genf aö
.þar hefði verið um moröárás aö
ræöa.
Hundruð óbreyttra borgara létu
lífiö eða særöust í loftárásinni á.
Baneh og sagöi í yfirlýsingu Rauöa
krossins aö búast mætti viö sífelldum
hefndaraögeröum á báöa bóga á
hendur varnarlausum óbreyttum
borgurum.
Iran kallaöi fulltrúa Rauöa kross-
ms tvívegis til utanríkisráðuneytis
síns vegna árásanna á Baneh þar
sem sagt var aö nítján óbreyttir
borgarar hefðu látið lífið og 200
særst. Fulltrúanum var tjáð að árás-
irnar væru gróft brot á Genfar-sátt-
málanum.
Ali Akbar Velayati, utanríkisráð-
herra Irans, sendi og bréf til Perez
de Cuellar, framkvæmdastjóra Sam-
einuöu þjóöanna, þar sem hann
hvatti framkvæmdastjóra Samein-
uöu þjóðanna til aö grípa þegar i staö
til aðgeröa til aö stööva Irak í svo
„ómannúölegum glæpum.” I bréfinu
kom fram aö borgirnar Baneh og
Nahavand heföu oröið fyrir loftárás-
um þrjá daga í röö og hefðu um 900
manns látið lífið eöa særst í þeim
árásum.
Irak skýröi á hinn bóginn frá því
aö þar í landi heföu 35 óbreyttir borg-
arar látiö lífið og 123 særst eftir stór-
skotaliðsárás Irans á hafnarborgina
Basra og loftárásir á Jalaula og
Kifri.
Enrico Berlinguer, leiötogi ítalska
kommúnistaflokksins.
Leiðtogar
sjö
ríkja
funda
í London
Fundur leiötoga sjö iönríkja hefst í
London í dag. Á fundinn mæta leið-
togar Bretlands, Bandaríkjanna,
Vestur-Þýskalands, Frakklands,
Italíu, Japans og Kanada.
Samkvæmt heimildum frá aöstand-
endum ráðstefnunnar munu leiötog-
amir meöal annars ræöa afvopnunar-
mál. Taliö er líklegt aö leiötogarnir sjö
séu sammála um aö ekkert veröi gefið
eftir í varnarmálum vesturveldanna
fyrr en ljóst sé að Sovétmenn fáist til
aö setjast að samningaboröi um
afvopnunarmál.
Auk þess veröur rætt um ástandiö
viðPersaflóa.
Thatcher bauð leiötogunum til kvöld-
verðar í gær að Downingsstræti 10.
Kváöust þeir vongóöir um góöan Trudeau, forsætisráðherra Kanada, Reagan Bandarikjaforseti og Mitterrand,
árangur af fundinum. forseti Frakklands, ræöast við. Þeir eru allir á fundinum í London.
Margret Thatcher á leiðtogaf undinum:
Vill herða baráttuna
gegn hryðjuverkum
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, ræddi við Pieteer W. Botha,
forsætisráðherra Suður-Afriku, á dögunum. Botha hefur fengið misjafnar
móttökur í Evrópuferö sinni og víöa hefur komið til mótmæla þar scm hann
hefur komið.
Margaret Thatcher, forsætisráö-
herra Bretlands, mun leggja til, á
fundi leiðtoga sjö iönríkja sem hefst í
London í dag, aö baráttan gegn
hryöjuverkamönnum veröi hert.
Ríkin sjö sem þátt taka í fundin-
um eru auk Bretlands: Bandaríkin,
Kanada, Frakkland, Vestur-Þýska-
land, Italía og Japan.
Samkvæmt breskum heimildum
mun Thatcher leggja fram ýmsar til-
lögur í þessum efnum. Til dæmis aö
ríkin sjö miöli upplýsingum um
hryðjuverkamenn sín á milli og til-
kynni meöal annars um þá sendi-
ráðsstarfsmenn sem tengjast slíkri
starfsemi. Leggur Thatcher mikla
áherslu á aö veröi sendiráðsstarfs-
manni vísaö úr einu ríkjanna vegna
tengsla viö hryöjuverkamenn þá
veröi sá hinn sami útilokaöur frá hin-
um löndunum.
Fréttaskýrendum ber saman um
að sennilega muni Thatcher ekki ná
fram öllum sínum óskum í þessum
efnum á fundum leiötoga ríkjanna
sjö.
Leiðtogarnir ræddu þessi mál
stuttlega í kvöldveröi í gær og bar
þeim öllum saman um aö heröa þurfi
baráttuna gegn hryðjuverkamönn-
um.
Ríkisstjórn Thatchers lýsti yfir
stríöi á hendur hryðjuverkamönnum
eftir aö skotið var á mótmælendur
fyrir utan líbýska sendiráöið í
London fyrir skömmu. Þar lét lífið
bresk lögreglukona og 12 líbýskir
mótmælendur særöust.
BERLINGUER FÆR
HEILABLÓDFALL
Enrico Berlinguer, formaður
ítalska kommúnistaflokksins, fékk
heilablóöfall í gær. Gekkst hann und-
ir aögerð á sjúkrahúsinu i borginni
Padua. Var Berlinguer fiuttur á gjör-
gæsludeild og herma heimildir að
ástand hans hafi verið alvarlegt.
Berlinguer var staddur á flokks-
þingi kommúnista í Padua sem er
skammt frá Feneyjum. Átti hann
mjög erfitt meö mál og var því flutt-
ur í skyndi á sjúkrahús.
Berlinguer er 62 ára og er formað-
ur stærsta kommúnistaflokks á Vest-
urlöndum.
Heimsókn Botha
sætir mótmælum
Pieter Botha, forsætisráöherra
Suður-Afríku, sem veriö hefur á ferð
um Vestur-Evrópu, er nú staddur í
Austurriki.
Um 1200 manns mótmæltu komu
hans til Austurríkis í Vin í gær.
Kröfðust mótmælendumir þess að
,'Fred Stnowatz, kanslari Austurríkis,
aflýsti fundi sinum meö Botha vegna
aðskilnaðarstefnu stjórnar Suður-Af-
ríku. Ennfremur var þess krafist aö-
Austurriki sliti öllum stjórnmála-
tengslum viö Suður-Afríku.
Sinowatz sagði fyrr í vikunni aö
hann heföi andúö á stefnu Suður-Af-
ríku i kynþáttamálum. „Á fundi mín-
um meö Botha mun ég skýra frá
þeirri afstööu minni og ennfremur
fara þess á leit viö hann að öllum
pólitískum föngum veröi sleppt úr
haldi,” sagði Sinowatz ennfremur.
Indíánar í Nicara-
gua sæta pyntingum
Hundruö miskito-indíána i
Nicaragua hafa verið fangelsaöir á
ólöglegan hátt og pyntaðir, aö því er
CIDH-mannréttindahreyfingin
skýröi frá í gær.
I yfirlýsingu CIDH segir aö
miskito-indíánarnir sem handteknir
voru af yfirvöldum hafi verið „settir
í einangrun í langan tíma og í
sumum tilfellum sannreyndi nefndin
aö þeir heföu veriö pyntaöir.”
Þá sagöi í skýrslu CIDH aö sann-
anir væru fyrir því aö hermenn
sandinista hefðu drepiö miskito-
indíána í nokkrum tilfellum i
hefndarskyni fyrir dauöa stjómar-
hermanna eftir átök þeirra viö
skæruliöa.
Skæruliðar í Chile
tóku útvarpsstðð
Þrír vopnaðir karlmenn og tvær
konur réöust inn í útvarpsstöð í
Santiago, höfuöborg Chile, í gær-
kvöldi og tóku stöðina á sitt vald og
útvörpuöu þaðan í fimmtán mínútur
boðskap vinstrisinnaörar skæruliöa-
hreyfingar.
I yfirlýsingu skæruliöanna sagöi
aö Ættjaröarfylking Manuel
Rodriguez, eins og hreyfingin nefnir
sig, heföi ekki borið ábyrgð á
sprengjutilræði á neöanjaröar-
brautarstöð í Santiagó í aprílmánuöi
síðastliðnum þar sem sautján manns
særðust.
Skæruliðamir lokuöu sex starfs-
menn útvarpsins inni á einni skrif-
stofu þess og hótuöu aö sprengja þá í
loft upp ef þeir heföu ekki hægt um
sig.
Þetta var þriöja árás skæruliða á
útvarpsstöö á þessu ári. Sjóm
Augusto Pinochets hefur sakað
skæmliöa um aö bera ábyrgö á
flestum þeim sprengjum sem
sprungiö hafa i borgum Chile á
liönum mánuöum.
Umsjón:
Gunnlaugur A. Jónsson og
Gunnlaugur S. Gunnlaugsson