Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Qupperneq 11
• DV. FÖSTUDAGUR 8. JÚNl 1984. 11 Stúdentarnir sem útskrifuðust frá Menntaskólanum að Laugarvatni um helgina. Tungnastúlkur væru hæstar. Ljósm.:E.J. Menntaskólanum að Laugarvatni slittó: Tungnastúlkur voru hæstar Menntaskólanum að Laugarvatni var slitið um helgina í 31. sinn. Alls út- skrifuðust 32 stúdentar, 13 úr mála- deild, 7 úr eðlisfræðideild og 12 úr náttúrufræðideild. Hæstu einkunn hlaut Sigríður Jónsdóttir, Gýgjarhóls- koti Biskupstungum og fékk hún 8,60 á stúdentsprófi. Tvær stúlkur sigldu í kjölfarið, einnig úr Biskupstungum, Kristín Þóra Harðardóttir með 8,53 og Ingunn Sighvatsdóttirmeð8,30. Nemendur við skólann í vetur voru 157 talsins. Aðsókn var góð og skólalíf meö blómlegra móti. Nemendum af höfuðborgarsvæðinu fjölgar stöðugt, en þeir voru um 20 í vetur. Kennsla við Menntaskólann hefst að nýju 23. september næstkomandi. EA Finnur Eydal stjórnar yngri börnunum frá Akureyri. DV-mynd Ingibjörg Magnúsdóttir, Húsavík. Fjórar lúðrasveitir skemmtu Húsvíkingum Frá Ingibjörgu Magnúsdóttur, fréttaritara DV á Húsavík: Um helgina var mót skólalúðra- sveita á Norðurlandi haldið í Hafra- lækjarskóla í Aðaldal. Þar voru samankomnar 4 lúðrasveitir með sam- tals um hundraö hljóðfæraleikurum. Finnur Eydal o.fl. frá Akureyri mættu með tvær lúörasveitir frá tón- listarskólanum þar, voru það eldri og yngri börn. Benedikt Helgason kom frá Húsavik með lúðrasveit tónlistarskólans og Guðmundur Norðdahl stjórnaði lúðra- sveit tónlistarskólans í Hafralækjar- skóla. Á sunnudag, að loknu mótinu, komu allar lúðrasveitimar til Húsavíkur ásamt stjórnendum sinum og léku fyrir framan félagsheimilið áheyrend- um til hinnar mestu ánægju. Fyrst léku sveitimar hver fyrir sig nokkur lög og síðan allar sameiginlega. Börnunum var mjög hælt fyrir prúð- mannlega framkomu á mótinu. NÝTT TÍMARIT UM VEIÐISKAP ,,Á veiðum” nefnist nýtt tímarit um veiðiskap sem nú er að hefja göngu sína. Það er gefið út af útgáfufyrirtæk- inu Frjálsu framtaki hf. í samvinnu við tvö áhugamannafélög um veiðiskap, Ármenn og Skotveiðifélag Reykjavík- ur. Ritstjóri tímaritsins er Olafur Jóhannsson, sem m.a. ritaði um stangaveiði í Morgunblaðið um nokk- urra ára skeið. Fyrsta tölublað tímaritsins mun væntanlega koma út um miðjan mán- uðinn og verður þá einkum fjallað um nú að hef jast. I framtíðinni er ætlunin að fjalla jöfnum höhdum um skotveiði og stangaveiði og verður lögð áhersla á fjölbreytt efni í blaöinu, bæði til fróð- leiks og skemmtunar. Þá mun tímarit- ið verða mjög myndskreytt, m.a. með litmyndum. Tímaritið „Á veiðum” verður um 100 bls. að stærö og verður fyrsta tölublað- inu dreift til flestallra veiðimanna sem félagsbundnir eru í einhverjum félög- um stanga- eða skotveiðimanna, en talið er að fjöldi þeirra sé nú um 5000. Tímaritið verður einnig selt í lausa- . sulu. n X', X' I m. *■ ÍXXXxxJ' FLUGFÉLAG í mVyatnssvqt Ungur Mývetningur stofnaði nýlega flugfélag og hyggst bjóöa fólki í skoð- unarferöir um nágrenni Mývatnssveit- ar. Félagiö heitir Mýflug, en eigand- inn er Leifur Hallgrímsson,. Hann festi kaup á gömlu „Frúnni” hans Ömars Ragnarssonar, sem er af geröinni Cessna 172. Leifur sagði í samtali við DV að hann færi út í þetta vegna þess að hann teldi mögulegt að bjóöa erlendum ferða- mönnum upp á útsýnisflug í Mývatns- sveit. Hann væri líka mikiU flugáhuga- maður og hefði verið að læra f lug. Mýflug hefur ráðið flugmann í sum- ar. Sá hefur atvinnuflugmannspróf og kennararéttindi og mun jafnframt því að sjá um útsýnisflugið kenna flug á vegum Mýflugs. Boðið er upp á fjóra möguleika í út- sýnisfluginu. I fyrsta lagi flug innan Mývatnssveitar, í öðru lagi flug tU Öskju, Herðubreiðar og Kverkfjalla og í fjórða lagi flug yfir Ásbyrgi, Dettifoss og Kröflu. Ekki er áformað aö lenda á þessum stöðum. Flugfélagið Mýflug hefur fengið flugrekstrarleyfi sem miðast við þjón- ustuflug. Leifur sagði aö meðan verið væri að kanna markaðinn fyrir svona útsýnisflug yrði aðeins notuö ein vél. JBH/Akureyri BLÓMLEGT STARF HJÁ LEIKFÉLÖGUM Aðalfundur Bandalags íslenskra annarsstaðará Noröurlöndum. leUcfélaga og ráðstefna í tengslum Sú breyting var gerð á lögum við hann var haldinn að Flúðum í bandalagsins að nú geta leikfélög Hrunamannahreppi fyrir skömmu. aldraðra og leikfélög öryrkja fengið Fundinn sátu 50 fulltrúar frá 25 leik- inngöngu í það, en áöur haföi það félögum, en aðildarfélögin eru nú 82 ekki veriö möguleikt fyrir leikfélög og hafa aldrei verið fleiri. Þrjú ný tengd stofnunum. leikfélög fengu aðild að bandalaginu, Þá sýndi Leikfélag Sólheima leik- Leikdeild Ungmennafélags Möðru- ritið Lífmyndir að Flúðum fyrir vallaskóknar, Leikfélag Hellissands fundarmenn og gesti, en leikfélagiö ogLeikfélagSólheima. er nú að leggja upp í leikferö um Efni ráðstefnunnar var leiklistar- Norðurlönd. Var leiknum vel tekið, starf meðal aldraðra og meðal en þess má geta að Leikfélag Sól- öryrkja og var í inngangserindum heima er yngsta félagið í Bandalagi fjallað um þá starfsemi hérlendis og íslenskra leikfélaga. -sa JÚNI ÚTBOÐ RÍKISVÍXLA Skilafresturtilboöa ertil kl. 14:00 miövikudaginn 13. júní 1984. Tilboöum sé skilað til lánadeildar Seölabanka íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík, fyrir þanntíma. Útboðsskilmálar, sem eru hliðstæðir þeim sem giltu í maíútboðinu, liggja frammi ásamttilboðseyðublaði í afgreiðslu Seðlabankans, en þeir eru helstir: IGert sé tilboö í lágmark 5 víxla hvern aö ■ fjárhæö kr. 50.000.- þ.e. nafnverð kr. 250.000.-, eöa heilt margfeldi af því. 2 Tilboðstrygging er kr. 10.000.- O Útgáfudagur víxlanna er 15. þ.m. og gjalddagi 14. september n.k. A Ríkisvíxlarnir eru stimpilfrjálsir og án þóknunar. Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu reglurog hverju sinni um innstæður í bönkum og sparisjóðum. Reykjavík, 7. júní 1984 RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS t,w»t> r- fxfr &**■*■*"*-***•*■*■*->**+■** ■* -< W

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.