Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Síða 12
12 óf. fös¥uÍ)AGúr i itiMftsk Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 684611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuði 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helgarblaö28 kr. Fre/s/ð kostar fómir I þessari viku var þess minnst að fjörutíu ár eru liðin frá innrás bandamanna á meginland Evrópu í Normandí, en sú stórsókn var upphafið að endalokum síðari heims- styrjaldarinnar. D-dagur markaði tímamót í stríðinu gegn ógnum og yfirráöum nasista og tíðindin af atburðin- um fóru sem fagnaðarbylgja meöal stríöshrjáðra þjóöa Evrópu. Árásin kostaði þúsundir mannslífa, miklar fórnir voru færðar og hetjudáðir drýgðar. Á D-degi voru örlög ráðin, sigur unninn, sem hafði áhrif á sögu líðandi stundar og alla framtíö. Hermennirnir, sem féllu í bardögunum fyrir réttum fjörutíu árum, fórnuðu lífi sínu í þágu frelsisins, í þágu þeirrar baráttu sem háð er milli einræðis og lýð- ræðis, milli ógnar og friðar, milli f jötra og frelsis. Sú kynslóö sem nú lifir og er komin á miðjan aldur og þaöan af yngri man ekki þessa miklu atburði. Þorri mannfólks hér á landi og í Evrópu hefur ekki þurft að upplifa heimsstyrjöld og þá kúgun, sem því fylgir, að er- lendir hermenn gangi um götur, gráir fyrir járnum, og skipi almenningi til með byssustingjum. I augum lang- flestra nútímamanna er grimmd nasismans og eyðilegg- ing styrjaldar aðeins mannkynssaga liöinna tíma, fjar- lægir atburðir á spjöldum sögunnar. Samt eru fjörutíu ár ekki langur tími og saga Evrópu er raunar samfelld stríðssaga. Það heyrir til undantekn- inga, að jafnlangur tími líöi á milli stríðsátaka og nú. Enn eru ófriðarblikur á lofti og verða áfram, meðan austur og vestur standa vígbúin hvort frammi fyrir öðru og helftin af Evrópu býr við ógnarstjórn einræðis. Friður hangir á bláþræði og enginn veit hvenær næst verður blásið í herlúðra og Evrópa verður vígvöllur blóöbaða og átaka upp á líf og dauða. Mannkynið vill frið. Evrópubúar vilja ekki þurfa aö ganga í gegnum þær þjáningar og hörmungar, sem heimsstyrjaldirnar tvær höfðu í för með sér. En hvers- konar frið viljum við? Nasisminn boðaði einnig frið. Hann átti að vera undir verndarvæng Hitlers, þúsund ára ríki þjóðskipulags, sem, að mati nasistanna, var betra og fall- egra en annað sem mannkynið hafði áður reynt. Samt var það svo, að þjóðir bandamanna háðu vonlitla en heilaga baráttu, börðust til síðasta manns, fórnuðu lífi sínu og limum, hlupu í opinn dauðann á ströndum Normandí, þegar kallið kom. Ekki var það í þágu friðar- ins á þeirri stundu, heldur frelsisins og framtíðarinnar. Hermennirnir á D-degi gengu fram fyrir skjöldu í þágu barna sinna, sögunnar og þeirra mannréttinda, sem eru öllum friði, öllum sæluríkjum dýrmætari. Þeir sættu sig ekki við og viðurkenndu ekki, að friður í skjóli kúgunar og einræðis, borinn fram á spjótsoddum, væri það líf, sem þeir óskuðu sér og sínum til handa. Aðalritari Atlantshafsbandalagsins, JosepLuns, var í heimsókn á íslandi á fjörutíu ára afmæli D-dags. Hann var hér sem fulltrúi bandalags frjálsra þjóða, sem þrá frið, en vita að friðurinn kostar sitt því hann er friður um frelsi. Atlantshafsbandalagið er vissulega hernaðar- bandalag, en sá vígbúnaður og það bandalag er til varnar fyrir frelsið, sem hermennirnir á Frakklandsströndum drýgðu sínar hetjudáðir fyrir. Vörn gegn einræði kommúnismans og þeim ógnum, sem við blasa úr austri dag og nótt. Núverandi kynslóöir eiga að sjá til þess, aö fórnirnar fyrir fjörutíu árum hafi ekki verið unnar fyrir gýg. Við eigum að standa vörð um friðinn, um frið frelsisins. ej3S „Sambandið þarf ekki að leggja fram veð. Það er i sjáifu sér ekki óeðlilegt — vitanlega eiga bankar að meta það hvort nauðsynlegt sé að leggja fram veð og mér vitanlega hefur enginn banki tapað fé á að lána Sambandinu. . . " EYJÓLFUR ANGRAR BANKANA Eyjólfur Konráö Jónsson, hrl. og alþingismaöur, hefur gefiö heldur stóroröar yfirlýsingar um ofurvald Sambandsins og yfirgang gagnvart bönkum. Hann hefur einnig skamm- aö bankana fyrir aö hlíta ekki fyrir- mælum yfirmanns síns, viðskipta- ráöherrans, og þrjóskast við aö taka upp þaö sem Eyjólfur kallar eölilega og heiðarlega viðskiptahætti. Nú efast enginn um þaö aö Eyjólf- ur fer ekki meö fleipur í þessum efn- um og veröur gaman aö fylgjast meö þessari glímu hans. Og þaö eru vissulega teikn á lofti um aö sam- trygging banka sé aö hverfa, a.m.k. eru bankarnir famir aö bjóða í spari- fé landsmanna. Stefán Gunnarsson, bankastjóri Alþýðubankans, segir í blaöaviötali aö þaö sé ódýrara og eölilegra aö kaupa nauösynlegt fé af almenningi á hærra veröi heldur en fá þaö lánað á refsivöxtum frá Seðla- banka Islands. Sambandið þarf ekki aö leggja framveö. Þaö er í sjálfu sér ekki óeðlilegt, — vitanlega eiga bankar að meta þaö hvort nauösynlegt sé að leggja fram veð og mér vitanlega hefur enginn banki tapaö fé á að lána Sambandinu þótt vitanlega hafi bankar og aörir farið flatt á aö lána einstaka kaupfé- lögum eöa hlutafélögum í eigu kaup- félaga eöa Sambandsins. Þaö er eöli- leg áhætta og getur alltaf komiö fyr- ir. Gagnrýni Gagnrýni Eyjólfs beinist aö ríkis- bönkunum. Hann er ekki að gagn- rýna einkabankana. Og af hverju skyldi það nú vera? Það er vegna þess aö einkabank- amir halda aðalfund á hverju ári. Þar geta hlutahafar mætt og gagn- rýnt störf bankastjómarinnar og lagt fram tillögur sínar. Þannig lagði t.d. Loftur Jónsson til á aðalfundi Iönaöarbankans að bankinn yröi lagðurniður. En þaö eru engir aöalfundir hjá ríkisbönkunum. Bankastjómin þarf aldrei aö gera eigendum sínum grein fyrir árangri starfa sinna. Eyjólfur Konráö getur ekki mætt þar á fundi og spurt: Af hverju er Sambandið eini stóri viðskiptavinurinn sem aldrei þarf aö leggja fram trygging- ar? Hann getur ekki lagt þar fram tillögur til þess aö koma störfum bankans í betra horf. Og þó er Eyjólf ur í hópi þeirra manna sem kjósa bankaráöin í ríkisbönkunum. Svavar heitinn Pálsson, forstjóri Sementsverksmiðjunnar, sagöi mér einu sinni aö því fylgdu verulegir ókostir aö verksmiðjan væri ekki hlutafélag. Og raunar var hann þeirrar skoöunar aö öll ríkisfyrirtæki ættu aö vera hlutafélög. Ein af ástæðunum var sú aö forstjóri og stjórnir fyrirtækjanna hafa ekki möguleika á því að kynna störf sín — þaö fara aldrei fram nein formleg reikningsskil. Þaö er enginn mættur utan stjómarinnar til þess að gera athugasemdir, — hvort heldur er til þess aö koma hlutum í betra horf eöa þakka þaö sem vel er gert. Og þaö er mikill sannleikur í þessu. Á aöalfundi Eg man eftir því aö einu sinni fór ég með Eiríki Ketilssyni stórkaup- manni og Haraldi Jóhannssyni hag- fræöingi á aðalfund Þömngavinnsl- unnar h/f. Ríkissjóður á yfir 90% hlutaf jár og vitanlega skiptu athugasemdir fund- armanna litlu þegar fariö var aö greiða atkvæði. En á þessum aöal- fundi vom bændurnir í sveitinni mættir og þeir gerðu sínar athuga- semdir — stjómin varö aö svara þeim og framkvæmdastjórinn — og Eiríkur flutti ræöu á annan klukku- tuna um fjármál verksmiðjunnar. Þeirri ræðu varö framkvæmdastjór- inn að svara. Þarna komst gagnrýni aö — þaö var hægt aö krefjast upplýsinga — það var ekki hægt að Kjallarinn HARALDURBLÖNDAL LÖGFRÆÐINGUR segja einfaldlega: Eg vil ekki tjá mig um þetta eins og bankastjórar ríkisbankanna gera þegar Eyjólfur spyr. Eyjólfur er hins vegar í þeirri góöu stööu að hann getur flutt tillögur til breytinga á bankalögunum. Og ég vil skora á hann aö flytja þegar á næsta þingi fmmvarp til breytinga á lögun- um um Landsbankann, Búnaðar- bankann og Otvegsbankann þar sem lagt er til aö bankarnir veröi gerðir aöhlutafélögum. Ríkissjóður getur eftir sem áöur átt allt hlutaféö en þaö er hægt til aö byrja meö að fela alþingismönnum að fara meö atkvæðin á aöalfundum, hver þingmaöur færi meö eitt at- kvæði á aðalfundinum. Þá getur Eyjólfur mætt á fundina eins og Eirikur forðum á Reykhólum og lesið bankastjórunum pistilinn og krafist upplýsinga. Eyjólfur kann aö hugsa til þess aö verið sé aö endurskoða bankalög- gjöfina. Eg vil hins vegar benda hon- um á að 1927 vom fyrir misskilning felld úr gildi lög um réttaráhrif þing- lýsinga. Nýtt f mmvarp var til endur- skoðunar í hálfa öld áöur en lög voru sett aö nýju um þetta þarfa mál, (Hæstiréttur haföi aö vísu dæmt aö fara skyldi eftir gömlu lögunum, enda ekki annað hægt!). Og ef bíöa á endalaust eftir endurskoöun banka- laga þá er hætt við að Eyjólfur verði orðinn þreyttur á stjórnmálum og farinn aö hélga sig málflutningi aö nýju. Haraldur Blöndal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.