Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Side 17
DV. FÖS5TUÐAGUR 8. JtJNM984;’ ,VQ
17
/ bakgarði verður hægt að fá sér mat og drykk við borð sem þar á að koma
fyrir. Tii að skemmta fólki á meðan verður á stundum boðið upp á hijóm-
sveitarieik, leikrit eða einhvern annan listviðburð. Þeir Örn Ingi og Sverrir
Hermannsson voru önnum kafnir við að smíða palla og ekki fúskað við það
verk frekar en aðra smiði á þessum stað.
kaffi til kl. 18. Á kvöldin veröa borð
dúkuð og boðinn matur. Þá verður
hægt að kaupa léttvín með.
„Miðað verður við að hálfblankir
einstaklingar geti komið í Laxdals-
hús,” sagði Öm Ingi um verðlag á
matnum. Réttir verða af einfaldri gerð
og áhersla lögð á sjávarrétti. I eld-
húsinu munu standa Öm Ingi sjálfur
og Guölaugur Arason sem er þekktari
sem rithöfundur en kokkur. Á laugar-
dagskvöldum verður ýmsum
matreiðslumeisturum boðiö að koma
og leika matarlistir sínar.
Fullkomin þjónusta verður á borð og
eru starfsmenn alls um 10 talsins og
standa stuttar vaktir. Inni í húsinu
þurfa þeir að þjóna fólki í fjórum litl-
um sölum eða herbergjum þar sem
komast fyrir um 50 manns. Eftir
nokkra mánuði má svo eiga von á mik-
illi breytingu þegar búið verður að inn-
rétta loftið í Laxdalshúsi. Þar verður
auöveldlega hægt að koma fyrir
boröum fyrir 60—70 manns og mögu-
leikaropnast jafnframttilörlítiðfínni
matsölu.
Laxdalshús stendur á fallegum staö,
nærri Höpnersbryggjunni, rétt við
tjömina sem myndaðist ‘þegar
Drottningarbrautin varð til. Þama er
kjörin aðstaöa til hollrar útivera og
hefur kvisast að frá Laxdalshúsi verði
gerð út ýmis tæki til líkamsstyrkingar
bæði á tjörninni og kringum hana.
Opnunarhátíöin, Iaugardaginn 9.
júni, á að verða herleg og standa allan
daginn meö góðri blöndu af list og
magaglaðningi. Ef sólin verður i
essinu sínu má þó alltaf kæla sig niður
og borða Laxdalsís með húsfriðunar-
sósu.
/ annarri stofunni, sem snýr fram að
götunni, var Guðrún LHja Jónsdótt-
ir að hreinsa og þvo gluggana.
Kynslóðirnar leggja sitt fram hver
af annarri tH að Laxdalshús haldi
æskublómanum. Afi hennar
Guðrúnar Lilju á þó stærstan hlut
að máli þar, sjálfur Sverrir smiður.
Viðarliturinn fær að halda sér inni i
húsinu og það þarf ekki annað en
slípa gólfin og lakka. Ingólfur
Bragason er þarna að slipa gólf i
vesturhlutanum.
Allt handbragð á viðgerð hússins ber snilli meistarans, Sverris, fagurt vitni,
ekki sist hurðin þar sem er aðalinngangurinn i Laxdalshús.
ÚTGERÐARMENN
UPPGERÐIR GÁMAR FYRIR KÆLI-
OG FRYSTIVÖRUR
FRYSTI-OG KÆLIGÁMAR hf SKÚLAGÖTU 63RVK. S.25880
Tilvalið sem geymsla fyrir bala.
(Rúmar 82 bjóð.)
Við höfum frystigámana, geymslugám-
ana og flutningagámana.
Hafið samband og ræðum þessar
spurningar, það getur borgað sig.
Er hægt að tvöfalda verðmæti þess tak-
markaða afía sem að landi kemur með
nýjum framleiðsluaðferðum?
Og hvað ef hægt væri að framkvæma
slíka verðmætaaukningu á ótrúlega hag-
kvæman hátt?
Hafið þið athugað. möguleikana með
gámafrystíngu?
ATHUGIÐ!
Bastkörfur undir óhreina tauið,
arinviðinn í búðstaðnum, ieikföng-
in og margt fleira.
Hjá okkur eruð þið alltaf velkomin.
Sendum í póstkröfu.
GJAFAHÚSIÐ
/ sumarbústaðinn, á veröndina, í
garðinn, við arininn, á svalirnar:
sígildir, ódýrir tágastólar.
Þeir sóma sér vel alls staðar.
Eigum mikið úrval af basthillum,
tilvaldar á baðið, undir kryddið eða
hvað sem er.
Fallegir stólar í eldhúsið, við skrif-
borð eða við barinn.
Hægt að hækka og lækka stólinn.
Gott verð.
E
IUROCARD.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 SÍM118525
og LAUGAVEG111, Smiöjustígsmegin