Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Qupperneq 18
18r> r Mmmmmmmmm Kennarar óskast Grunnskóli Raufarhafnar auglýsir lausar kennarastöður. Æskilegar kennslugreinar: Byrjendakennsla, stuðnings- kennsla og handmennt, auk almennrar bekkjarkennslu. Upplýsingar gefur Jón Magnússon skólastjóri í símum 96- 51164 og 96-51131. Staðurinn þinn Smiðjuvegi Opið í kvöld, föstudag, frá kl. 22-03. Aðgangseyrir kr. 250,- Aldurstakmark '67. Allir keyrðir heim: Rúta 1. Breiðholt - Árbær - Mosfellssveit. Rúta 2. Kópavogur - Garðabær - Hafnarfjörður. Rúta 3. Um Reykjavík - Seltjarnarnes. Nafnskírteini - snyrtilegur klæðnaður. PS. BREAKAÐASTI STAÐURINN I BÆNUM. Fréttatilkynning GÚÐAR FRÉTTIR FYRIR BÍLEIGENDUR Fátt er jafnergilegt fyrir bíleigendur, sem leggja mikla vinnu í að bóna og halda við ytra útliti bílsins, og þaö að sjá árangur vinnu sinnar skolast af bílnum í 2—3 þvottum. En nú virðist séð fyrir endann á þessum raunum því hafinn er innflutningur til landsins á nýju bóni sem hlotið hefur meiri- háttar viðurkenningar erlendis og koma þar við sögu risar eins og General Motors og Ford Motor Company. Árið 1983 hóf bandaríska fyrirtækið Glossit Manufacturing Company útflutning á þessu bóni sem teljast verður algjör tækninýjung. Þetta bón, sem er eina bónið sinnar tegundar í heiminum í dag, er selt undir nafninu ULTRA GLOSS. Það sem gerir ULTRA GLOSS svo frábrugðið er að það inni- heldur engin þau efni sem annars er að finna í hefðbundnum bóntegundum, svo sem harpeis, vax, plast eða polymer efni. Grunnefnið í ULTRA GLOSS er glerkristallar, auk bindiefna og herðis. Þegar bónað er með ULTRA GLOSS myndast þunnt glerungs- lag á yfirboröi lakksins sem bæði styrkir það og kemur í veg fyrir að óhreinindi nái að bíta sig föst við lakkið. Varnarskelin er það góð að sé bónið borið á ál eða silfur fellur ekki á málm- inn. Með öðrum orðum, veðrun (oxydering) á sér ekki stað. Framieiðendur benda auk þess á að ULTRA GLOSS endist langt umfram hefðbundnar bóntegundir. Þetta þarf engum aö koma á óvart, því ef borin er saman ending á vax- eða plast- húð annars vegar og glerhúð hins vegar er nokkuð ljóst hvaða efni endist lengst. En ULTRA GLOSS hefur fleiri kosti því eins og kunnugt er dregur gler úr virkni útfjólublárra geisla en þeir eru höfuðor- sök þess að lakk á bílum upplitast. Nýjungar í bílamálum vekja alltaf athygli en þær sem viö- koma útliti bílsins eru tvímælalaust þær sem veita eigendun- um mesta ánægju. ULTRA GLOSS er fáanlegt á bensínafgreiðslum ESSO. Auglýsing. Selfoss fagnar leikfélaginu Hér á Selfossi er sannkölluð gróðratíð, sól og hiti en síðan bregst þaðekkiaö skúr komi síðdegis. Nú liggur vel á Selfyssingum og eru þeir montnir yfir Leikfélagi Sel- foss sem kom hingað í gær eftir vel- heppnaða leikför til Dundalk á Ir- landi. Tekið var á móti leikhópnum á Ölfusárbrú. Voru þaö bæjarbúar með bæjarstjórn í broddi fylkingar. Regína/Selfossi. Hamrahlíðarkórinn: Vann verðlaun íÞýskalandi Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgeröar Ingólfsdóttur vann fyrstu verðlaun í söngkeppni sem efnt var til í Þýskalandi fyrir skömmu. Keppnin var haldin á vegum út- varpsins í Köln og fór þannig fram aö kórar sendu inn segulbandsupptökur sem dómnefnd, skipuö sjö tónlistar- mönnum, hlýddi á. Verðlaun og við-, urkenningar voru veitt í sjö flokkum og sigraði Harmahlíðarkórinn í ungl- ingaflokki. Hannes Jónsson, sendiherra Is- lands í Bonn, og kona hans voru viö- stödd beina útsendingu þar sem úr- slitin voru kunngerð. Blandaði kammerkórinn frá Frankfurt var valinn besti kór keppninnar. EA Ekki af mannavöldum þegar togarinn Maí fór á bryggjuna í Hafnarfirði „Það var skyndileg bilun á stjórn- búnaöinum og við náðum ekki aö setja neyöarstoppiö á í tæka tíð,” sagði skipstjórinn á togaranum Maí, Gestur Sigurösson. Eins og sagt var frá hér í blaöinu sigldi togarinn á bryggjuna í Hafnar- firði á dögunum. „Þetta var alls ekki: nein handvömm af mannavöldum. Við höfum oröið varir við einhverja bilun þarna öðru hverju. Þaö hefur verið athugað, þegar við höfum veriö í landi en aldrei fundist neitt. Sem betur fer varð lítið tjón, sem veriö er að vinna að núna,” sagði Gestur. Togarinn Maí fór út skömmu fyrir miðnætti i gærkvöld. -KÞ Verið er að leggja síðustu hönd á smíði sviðsins í Þjórsárdal. DV-mynd: Kristján. Útihátíð i Þjórsárdal Frá Kristjáni Einarssyni, fréttaritara DV á Selfossi. Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) stendur fyrir útihátíð nk. hvíta- sunnuhelgi, 8,—10. júní, í Þjórsárdal í Árnessýslu. Samkomunni hefur veriö gefið nafnið „DALALlF”. Undirbún- ingur er í fullum gangi og hefur verið smíðaður 200 m2 danspallur og 60 m2 leiksvið en þar munu hljómsveitirnar Mánar, Lótus og Pardus boxa nótur föstudags-, laugardags- og sunnudags- kvöld. Aö sögn Guömundar Kr. Jónssonar mótsstjóra, verður á sunnudag sérstök hátíðardagskrá. Þar mun m.a. Árni Johnsen alþm. koma fram, einnig verður breakdanssýning og break- keppni og hljómleikar. Guðmundur sagöi að 80 manna starfsliö yröi á svæöinu meðan mótið stendur yfir til að sjá um gæslu og einnig sölu á veit- ingum. I þeim hópi er læknir og hjúkr- unarkona sem verða til taks ef eitt- hvert óhapp verður. Samkoman hefst á föstudag og verður svæðið opnað kl. 14. Nýverið afhentu Landssamtök hjartasjúklinga Landspitalanum að gjöf hjartasónartæki, afar fullkomið að allri gerð. Myndin er tekin er Þórður Harðarson yfirlæknir veitti gjöfinni viðtöku úr hendi Ingólfs Viktors- sonar, formanns Landssamtaka hjartasjúk/inga. FÖSTUDAGSKVÖLD í JI5 HÚSINUI í JI5 HÚSINU OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 8 í KVÖLD VEITINGASTOFA 2. HÆÐ. MÁLVERKASÝNING: ELLEN BIRGIS. JL GRILLIÐ: Réttir dagsins í dag og laugardag: JL-PORTIÐ: GRÍSASNITSEL OG SÚPA KR. 175, KJUKLINGAPOTTRETTUR OG SUPA KR. 140, GRÆNMETISMARKAÐUR. ALLAR GRILLVÖRUR - KASSAVERÐÁGOSDRYKKJUM. OPIÐÁ MORGUN, LAUGARDAG, KL. 9-16. Munið okkar hagstæðu greiðslu- skilmála /A A A A A A % k Lj □l.Dií H3’EH'L-IHIO m ci c; c~ u - u Liil il;l ■ffi U Hli n UIU U M U U11H ■ 11 Ih Jón Loftsson hf. ________________ Hringbraut 121 Sími 10600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.