Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Qupperneq 21
.wei mm, s auoAauTaö'?.va ’ "DV* FÖSTUETÆGUR'8T JCNI-19M: wóttir íþróttir Iþróttir íþróttir íþróttir „Áttum að skora fleiri mörk” — sagði Sverrir Einarsson, fyrirliði Fram, eftir leikinn gegn Þór „Þaö var lélegt hjá okkur að bleypa þeim inn í leiklnn í síðari hálfleik. Við áttum að skora fleiri mörk og verðum að nýta f ærin bet- ur. Ég er nokkuð ánægður með vörnina sem fer batnandi með bverjum leik. Þetta var mik- iU baráttuleikur og sigur okkar var sann- gjarn,” sagði Sverrir Einarsson, fyrlrliði Fram, eftir leiklnn gegn Þór. „Markið lá i loftinu" „Þetta var ósanngjarn sigur hjá Fram. En það er alltaf sama sagan, okkur tekst ekki að skora mörk. Við fengum til þess mörg tækifæri i þessum lelk. Við sóttum stift á þá á siðustu mínútunum og markið iá í loftinu,” sagði Arn- ar Guðlaugsson, liðstjóri Þórs. „Nóg að gera" „Þetta var ekki auðveldur leikur. Það var nóg aö gera og leikmenn börðust af mikilli grimmd. Ég get ekkert sagt til um hvernig leikurinn var eða hvort sigur Fram var sann- gjarn eða ekki því ég hreinlega tók ekki eftir því,” sagði dómarinn, Þorvarður Björnsson. „Grátlegt" „Það er einfaldlega grátlegt að tapa leik eftir leik á þennan hátt. Við fengum urmul af tækifærum og áttum skillð að sigra. Þá bætti það ekki úr skák að dómarinn sleppti augijósri vítaspyrnu á Fram í síðari hálfleik þegar einn varnarmaöur Fram stöðvaði fyrirgjöf frá mér með hendinni,” sagði Hálldór Áskelsson,Þór. -SK. Bjuggust við nauðlendingu Svo sem venja er komu leikmenn 1. deildar- liðs Þórs fljúgandi með leiguflugvél til Reykja víkur eða því sem næst i gær. Það var ekki látið breiðast út manna á með- al i flugvélinni er hún nálgaöist höfuðborgina að ekki var hægt að lenda í Reykjavik vegna þoku og brá flugmaöurinn á það ráð að lcnda á flugvellinum á Sandskeiöi skammt fyrir ofan Reykjavik. Margir leikmenn urðu furðu lostn- ir og héldu sumir að verið væri að undirbúa nauðlendmgu. Svo var þó ekki og allt fór vel að lokum. -SK. Jafnt hjá ÍA og Breiðabliki Afar þýðingarmikill leikur fór fram í 1. deild Islandsmótsins í kvennaknattspyrnu í gærkvöldi. Áttust þar við tvö bestu liöin að flestra mati, ÍA og Breiðablik, og lauk leiknum meö markalausu jafntefli. Leikurinn var bæði spennandi og vel lcikinn. Þá léku einnig KR og Víkingur og sigruðu KR-stúlkurnar 2—0. Ama Steinsen skoraði fyrra markiö fyrir KR en síðara markið var sjálfsmark Víkingsstúlkna. -SK. Páll týndur? Þorsteinn Ólafsson, þjálfari Þórs frá Akur- eyri, stóð í marki Akureyrarliðsins í gærkvöldi gegn Fram. Páll Guðlaugsson hefur fram að þessu varið markmaður Þórsara og eru skoð- anir manna skiptar um frammistöðu hans i leikjum liðsins í sumar. Þegar ákvörðunin um markvarðaskiptin vora tekin likaði Páli ekki gangur mála og hvarf á braut og þegar DV leitaði upplýsinga um hvers vegna hann væri ekki á varamanna- bekknum fengust þau svör ein að hann væri týndur. Hefði ekkert látið heyra frá sér og héldu sumir norðanmanna að hann væri jafn- velhættur. -SK. Gísliístað Grétars Ar hvert velja knattspyraudómarar „lið” sitt fyrir hvert keppnistimabil og svo var auð- vltað einnig nú. Ails dæma fimmtán dómarar í 1. deild en eitt sæti hefur verið autt frá því að vertíöin hófst í vor vegna óvissu um hvort Grétar Noröfjörð myndi dæma í sumar. Nú hefur borist endanlegt svar frá Grétari og hef- ur Gísli Guðmundsson verið valinn í hans stað. Gísli dæmir fyrir Val. -SK. 'Wlf1 Guðmundur Steinsson skorar hér sigurmark Fram í leiknum gegn Þór í gærkvöldi. Þorsteinn Ólafsson kemur engum vöraum við í markinu. DV-mynd Brynjar Gauti Sveinsson. Skeyt- iðkom ekki ■ „Ég er mjög svekktur yfir Iþessu. Ég er orðinn löglegur með | * Fram en það hefur ekki enn borist . | skeyti frá vestur-þýska knatt-1 _ spyrausambandinu, þess efnis að ■ | ég sé laus aUra mála í Þýska- I Ilandi,” sagði Hafþór Sveinjónsson I en margir áttu von á því að sjá • Ihann í Frambúningnum í gær- I kvöldi gegn Þér. _ I „Ég skil ekki þennan seinagang. | * En ég verð að gjöra svo vel að bíða ■ | rólegur. Skeytið hlýtur að koma á I Ihverri stundu,” sagði Hafþór. I -SK.I VILL FÁ STAPLE- TON TIL BARCELONA Terry Venables hefurgert Man. Utd. tilboð „Ég er reiöubúinn tU að greiða eina og hálfa mflljón sterlingspunda fyrir Frank Stapleton,” sagði Terry Ven- ables, hinn nýi framkvæmdastjóri Barcelona á Spáni, nýlega og hefur hug á því að fylgja þvi máU eftir þar sem litlar líkur eru á að hann næU i Ian Rush, markaskorarann mikla hjá Liverpool. Venables verður ekki í vandræðum með peninga. Barcelona er eitt ríkasta knattspyraufélag heims og á líka von á stórpeningum, þegar Diego Maradona, argentinski leik- maðurinn frægi, verður seldur tU ítalíu — sennUega NapoU. Maradona er æstur í að komast f rá Barcelona. Talsvert miklar líkur eru á því að Frank Stapleton vilji komast tU Barcelona. Vinur hans í írska landsUð- inu og æskufélagi, Liam Brady, hefur gert það gott á ItaUu og unnið sér inn stórar fúlgur þar. Stapleton hefur hug á að f eta í fótspor hans. Stapleton er líka engan veginn ánægður hjá Man. Utd. — eöa réttara sagt með framkvæmdastjórann þar, Ron Atkinson. Þeir lentu nýlega í miklum deilum þegar Stapleton ákvað aö fara í keppnisferð með írska lands- Uðinu, þar sem m.a. var keppt í Tokíó, í stað þess að fara með United í keppnisferð tU Ástralíu. Atkinson ætlaði að reyna að hindra Stapleton en tókst ekki, þar sem í samningi hans við Man. Utd. er ákvæði um að hann geti tekið þátt í öllum landsleikjum Irlands — vináttu-landsleikir ekki undanskiid- ir. Það eru því verulegar líkur á því að Frank hverfi frá Old Trafford eins og enski landsUösmaöurinn Ray Wilkins. Hann var seldur tU AC Milanó fyrir eina og hálfa nulljón sterUngspunda. Terry Venables hefur ekki aðeins hug á því að fá góða leikmenn til Barcelona, hann hefur einnig náð í aðstoðarmann smn hjá QPR, AUan Harris. Þeir hafa verið meira og mrnna saman í 20 ár, allt frá því þeir léku saman meö Chelsea. Harris var aðstoðarstjóri Venables hjá QPR og eigandi QPR, miUjónamæringurUin Gregory samþykkti að Harris færi til Barcelona, þegar Venables fór fram á það. Talsverðar líkur eru nú á að Alan MuUery, enski landsUösmaöurUin hjá Fulham og Tottenham á árum áður, verði næsti stjóri QPR. -hsim. NORSKIKRINGLUKASTAR- INN EKKI í LYFJAPRÓFIÐ Éinn kunnasti frjálsíþróttamaður Noregs, kringlukastarinn Knud Hjeltn- es, sem nú er í Bandarikjunum, hvarf skyndilega þegar læknanefnd lyfja- nefndar norska iþróttasambandsins Knud Hjeltnes — norski kringlukastar- inn f rægi. var i Bandaríkjunum á dögunum til að taka lyf japróf af norskum keppendum þar. Hjeltnes fannst ekki hveraig sem læknarnir leituðu eða gerðu fyrir- spurnir um hann. Þess má geta að fyrir nokkram árum var Knud Hjeltnes dæmdur i langt keppnisbann fyrir lyf janotkun. Eftir aö læknanefndin var komin til Noregs aftur tókst blaðamönnum í Noregi að ná sambandi við Hjeltnes og hann var spurður hvort hann hefði verið að forðast læknana. Hann svaraði. „Síður en svo. Ég fékk skila- boð um að mæta á flugvelli, sem var einnar og hálfrar klukkustundar flug frá heimili mínu í Provo í Utah. Það var stuttur fyrirvari og ég hafði þá ákveöið ferð til Texas. Haföi sótt um starf þar.” Ekkert varð af því að Knud Hjeltnes tæki starfið — við líkamsræktarstöð. Hann mun hins vegar halda áfram námi við Bringham Young háskólann í Utah. Verður þar eitt ár til viðbótar og lýkur þá námi í íþróttafræðum. Hann mun síðar hafa náð samkomulagi við lyf janefnd norska íþróttasambandsins að ganga undir lyf japróf í San Diego — er þó á leið heim, þar sem hann mun taka þátt í landskeppni Noregs og Sví- þjóðar eftir nokkra daga. -hsím. Skytturnar skor- uðu 2 sjálfsmörk | Þrír leikir fóru fram í gærkvöldi í EI 4. deild Islandsmótsins í knattspyrau og urðu úrslit þeirra sem hér segir: D-riðill: Skytturnar (Siglufirði) - IReynirÁO—4. E-riðiIl: Árroðinn—Vorboðtan 1—1 Æskan (Svalbarðseyri) — Vaskur I 2—4. i Skytturaar voru ekki á skotskón- I um í gærkvöldi nema þá helst við cig- I ið mark. Tvö marka Reynis voru 1 sjálfsmörk Siglufjarðarliðsins. -SK. ■ Ottó Guðmundsson. OTTÓ Ottó Guömundsson, fyrirliði KR- inga í knattspyrnu, er rifbeinsbrotinn og verður frá æfingum og keppni um nokkurt skeið. Mikil meiðsli herja nú á KR-inga og í samtali við DV í gær- kvöldi sagði Hólmbert Friöjónsson þjálfari að erfitt væri orðið að stilla upp liði. Auk Ottós hafa þeir Sæbjörn Guðmundsson, Omar Ingvason og Elías Guðmundsson allir tognað. -SK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.