Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Qupperneq 6
SLETTA Strákurinn vatt sér inn á Hlemm eftir aö hafa athugað gaumgæfilega áætlun yfir leiö 2 sem hann ætlaði aö taka. Inni á Hlemmi tékkaöi hann fyrst á klukkunni, þrettán mínútna bið, þaö gæri verið verra. Á helmingi tímans mætti gæla við eina Camel-sígarettu. Er hann velti fyrir sér hinum mínútun- um tók hann eftir tveimur mönnum er sátu á bekk með bakið að lögreglustöðinni. Báðir voru greiniiega röngum megin við fertugt, ja annar þeirra leit aðeins út fyrir að vera það sem í raun er hið sama. Það sem vakti athygli stráks- ins á þeim var að um leiö og hann þuklaöi eftir eldspýtum renndi kvenmaður sér fram- hjá þeim og annar þeirra hróp- aði, með handarsveiflu: „Nei, út með Hábæ.” Hún féll vel að þeirri setningu. Á aldur við þá, klædd því sem h'klega kallaðist hvít galladrakt vegna skorts á betra orði, meö appelsínugulan lit á vörunum, í stíl við skóna, og ekki það sem maður mundi kalla smáfríð. Myndarlegt nef næstum kæfði önnur kenni- merki andlits hennar. Hún setti það upp og arkaði út úr skýlinu. Settist á bekkinn fyrir utan, fjærst þeim félögum. Sá eldri þeirra fylgdist grannt með henni. „Líklega er hún að koma af fylliríi.” „Heldurðu það?” sagði sá yngri er hafði þennan rauðleita lit á andlitinu sem aldrei er settur í samhengi við sólbruna, Clint Eastwood hárgreiðslu, gallajakka og buxur auk hins óhjákvæmilega tveggja tommu Lee-eða Wrangler-beltis. „Já, ég er viss um það.” Þeir setjast báðir fram í sætum sínum ogstyðja hönd undir kinn. Clint lítur snöggt upp, réttir vísifingurinn upp í loftiö og tilkynnir: „Ég held ég reyni að meika díl.” Guð, hugsar strákurinn, hver ætli semji handritið fyrir hann? Clint rýkur svo út og svífur á konuna úr Hábæ. Strákurinn finnur eldspýturnar og kveikir í sígarettunni. Eftir um mínútu hefur Clint tekist aö koma filtertúttu f yrir í appelsinugula litnum og kveikt í henni. Strákurinn fylgist með og hugsar sem svo, nokkuð gott, ef hún þarf ekki að bíða lengur en kortér eftir vagni sínum eru góðir möguleikar á kaffi og með því á eftir. Hins vegar hefði verið skemmtilegra að hlusta á þá tvo. Sá sem eftir sit- ur, gráhæröur, sama klipping, en flauelsbuxur og brúnn Hag- kaupsjakki, er greinilega að velta því sama fyrir sér. Clint kemur svo snögglega inn aftur og sest niöur. Þá stendur Gráhærður upp og star- ir út um anddyrið. Þar rétt fyrir utan stendur kvenmaður, fædd ekki löngu eftir alda- mótagleðskapinn, með tvo plastpoka í annarri hendinni, í gráköflóttri kápu og með pott- lok sem örugglega kallast frúarlegt. Allt í einu stendur Clint einnig upp og báðir góna þeir í átt að kvenmanninum sem hverfur á bak við vegg. Strákurinn sér ekki hvað þeir horfa á þar sem veggurinn skyggirá. ,JIvar eru helvítin núna þegar maöur þarf á þeim að halda?” segir Clint og þeir beina augum sínum að lög- reglustööinni. „Sennilega að spila eða tefla. Við erum þó skattborgarar og borgum undir rassana á þeim.” „Jæja,” segir hinn, ,,ég ætla aðreyna.” „Nei, Árni, það þýðir ekki,” segir Clint en Gráhærður er rokinn út. Eg gæti sagt hið sama, hugsar strákurinn, sem gefur Gráhærðum sömu möguieika á að ná í plastpokana tvo og hann gefur Albert á að afplána fangelsisdóminn sem þeir smelltu á hann Brátt tekur strákurinn eftir því að þær fáu hræður sem bíða eftir vögnunum fyrir utan þetta þungbúna kvöld eru farnar að horfa á eitthvað á bak viö vegg- inn. Tvær unglingsstúlkur koma stórstígar úr vesturhluta skýlisins og fara út á stéttina. Strákurinn hugsar með sjálfum sér að varla nenni hann að fara einnig út að horfa á eitthvert klúrt atriði, fjandinn, hvernig opnunarlínu ætli hann hafi? Loks verður forvitnin letinni yfirsterkari, sérstaklega er hann kemur auga á svartan búning með hvítum kolli. Leið 2 rennir einmittupp aðskýlinu í sömu andrá. Er strákurinn gengur úr skýlinu og í átt aö vagninum sér hann tvo lögreglumenn og skýlisvörðinn stumra yfir sjúskaðri útgáfu af Clint, sama hárgreiðsla, sömu föt en án beltisins. Sá húkir á bekk, föst- um við vegginn, með ljótt sár á gagnauganu. Sárið er kúlulaga, raunar eins og að risastór byssukúla hafi plægt upp á hon- um gagnaugað. Blóðið vætlar úr sárinu, niður kinn hans og drýpur af hökunni utanverðri niður á brúna velkta skyrtu hans þar sem rauður biettur fer stækkandi. Stöku sinnum kipp- ist höfuð mannsins til. Clint og Gráhærður ganga fljótlega inn aftur en skýlis- vörðurinn bendir lögreglu- mönnunum eitthvað í átt að Skúlagötunni. Strákurinn nem- ur ekki orðaskil. Tvo aðra lög- reglumenn drífur að. Einn þeirra brosir, í vandræðum með hvaða svipbrigði hann eigi að sýna þeim tug áhorfenda sem slegið hefur hálfhring um bekkinn. Orðið „sumarafleys- ingar” skín úr brosinu. Senni- lega er hann í einhver jum raun- greinum í háskólanum á vet- uma. Enginn snertir á þeim slasaða. „Hvað í fjandanum kemur mér þetta við, eöa fólkinu? I hugum flestra sem ekki voru viðstaddir er þetta aðeins ein- dálkur í DV daginn eftir,” hugsar strákurinn um leið og hann spýtir Camel-stubbnum á milli fingra sér út á götuna og gengur upp í vagninn. -FRI.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.