Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Page 9
DV. LAUGARDAGUR14. JULl 1984. 9 ÓTRÚLEGA SÖNN ELENI EFTIR NICHOLAS GAGE Nicholas Gage, höfundur Eleni, starfar sem rannsóknarblaöamaöur hjá The New York Times. Hann er griskur að ætt og uppruna en flutti til fööur síns í Massachusettes í Banda- ríkjunum þegar hann var strákur. Ástæöan var sú aö skæruliðar í borgarastyrjöldinni grísku höföu tekiö móöur hans af lífiá undanhaldi sínu. Gage gekk lengi meö þaö í höföinu aö grennslast fyrir um dauöa móður sinnar, hverjir morðingjar hennar voru, hvemig hann bar aö o.fl. I þessu skyni fékk hann sér frí frá rannsóknar- blaöamennskunni til að rannsaka sög- una sem hann vildi vita mest um. Bókin Eleni er afurö þessarar rann- sóknar. Gage byrjar á aö segja frá að- ferðum þeim sem hann beitti í upphafi rannsóknar sinnar en svo tekur sagan viö. Magnþrungin saga um grimmd skæruliðanna, hina ótrúlegu mann- eskju sem móöir hans, Eleni, var en hún dó svo börnin hennar f jögur mættu lifa. Sagan sem slík er ótrúleg, næstum of ótrúleg til aö vera sönn, og hún heldur manni við efnið. Gage er enginn snill- ingur sem rithöfundur, en hann er hreinskilinn í afstööu sinni til þessara löngu liðnu atburöa, atburða sem höfðu svo mikil áhrif á líf hans. Þaö getur ekki verið auðvelt að skrifa svona bók um lif og þá sérstak- lega dauöa svo nákomins ættingja en eins og fyrr segir þá er Gage nógu hreinskilinn, bæði til aö segja frá öllu sem gerðist, pyndingum og öðru slíku, og líka nógu hreinskilinn til að ást hans á móöur hans skín i gegn og heist út alla söguna. Þaö er óhætt aö mæla meö þessari sögu. SigA bxiv’rdifníz j tówSiiarfl* Uíífutví'-íat* ttifíUidí.TWf saájtwtrfíi**'* ijkwis** .itfíliwii't.ir.u if iiwí&m: ‘íitx' m íbösí MANNSKEPNA RAFFÍN- OG ERAÐUR MÁLSTAÐUR REYFARI THE LITTLE DRUMMER GIRL THE NAME OF THE ROSE EFTIR JOHN LE CARRÉ Þaö fyrsta sem manni dettur í hug þegar njósnasögur John le Carré eru nefndar, er George Smiley, eöa Alec Guinness, sem Smiley, í bestu fram- haldsþáttum sem sjónvarpiö hefur sýnt um árabil. En nú hefur le Carré lagt Smiley til hliöar aö sinni, (minn- ugur þess, að þegar Conan Doyle drap Sherlock Holmes, varö hann aö reisa hetjuna frá dauðum vegna áskorana tryggra aödáenda). The Little Drummer Girl er þó enn sem áöur njósnasaga, enda hefur le Carré aöeins einu sinni vikiö frá þeirri bókmenntategund og þá meö hörmu- legum afleiöingum. Þar leikur aöal- hlutverkið Charlie, ung ensk leikkona, sem ísraelska leyniþjónustan fær til þess aö veröa beitan í gildru, sem egnd er fyrir palestinskan hryöjuverka- mann. Eins og ævinlega rekur le Carré söguþráöinn mjög nákvæmlega og hægt, með þeim afleiöingum aö lesand- inn verður að hafa sig allan við til þess að geta sér til um það, hvað sé eigin- lega á seyði. En aö lokum kemur í ljós, eins og svo oft hjá le Carré, aö söguper- sónurnar eru allar, jafnt Smileyamir sem aðrir, leikbrúður sem litlu eöa engu ráða um eigin örlög. Le Carré f jallar oftar en ekki í bók- um sinum um trúmennsku og svik, um það hvernig mannskepnan verður mannleg eða ómannleg í tryggö sinni eöa svikum viö málstað. Leikkonan Charlie er agn í gildru, en líka fórnar- lamb, því aö hún veröur ástfangin af ísraelskum leymiþjónustumanni, eins og til var ætlast. Hún vinnur síðan til- trúnaö palestínskra hryðjuverka- manna, en um leið og hún kynnist þeim og málstað þeirra, verður það henni ómögulegt aö líta á þá sem óvini. Þeg- ar síðan leiðtogi hryöjuverkamanna er drepinn fyrir augum hennar, fær hún taugaáfall. Hryðjuverkamaðurinn hefur veriö drepinn og samtök hans gerð óvirk, eftir aö þau höföu sprengt nokkra Gyð- inga í loft upp. En aö lokum er það til lítils því að í bókariok er israelski her- inn aö halda inn í Líbanon. Charlie finnur elskhuga sinn úr ísraelsku leyni- þjónustunni en hennar vandi er fjarri því leystur. Og mennirnir, sem skipu- lögðu aðgerðimar gegn hryöjuverka- manninum, snúa sér að Líbanonstríö- inu og standa enn frammi fyrir vanda- málum tsraelskrikis og Palestínu- araba, óleystum. Ö.bg EFTIR UMBERTO ECO Þessi raffíneraöi reyfari er eftir Umberto Eco sem samkvæmt upplýs- ingum á saurblaði er heimsfrægur sér- fræðingur í merkingarfræöi, heim- spekingur, fagurfræöingur og hefur stúderað James Joyce. Bókin ber þess einnig glögg merki aö fjölmenntaöur maður hefur um vélaö. Efniö er morögáta sem er sett á sviö í ítölsku benediktínusarklaustri á fjórt- ándu öld. Sagan gerist á sjö dögum. Sögumaöur sem heitir Adso er ung- ur, þýskur munkur af benediktínusar- reglu. Hann er fylgisveinn hins enska William de Baskerville, fransísku- munks sem er afburöaglöggur. Þeir koma í klaustrið sem er sögusvið verksins. Þar hefur einn munkur ný- lega fundist látinn og þeim á eftir að fjölga. Bókin fjaUar um lausn gátunnar á bak viö dauöa munkanna og þar beitir William de Baskerville f rábærri greind sinni. Eins og menn munu vafalaust vera búnir að veita athygli þá minnir nafniö Adso á Watson og nafniö Baskerville minnir einnig á eina frægustu morö- gátu Sherlock Holmes, Baskerville- hundinn. Samband þeirra félaga er einnig áþekkt sambandi Watsons og Holmes. Adso er skrásetjarinn, gjarn- an hrifinn af undraverðri greind félaga síns, og á stöku sinnum sjálfur góða leiki. William de Baskerville glímir viö stórgáfaöan andstæðing alla bókina og hefur sigur aö lokum. Bókin er full af heimspekilegum rök- ræöum og vafalaust skemmtináma þeim sem vel eru að sér í miðalda- fræðum. Nöfn þeirra félaga eru heldur ekki hin einu sem vísa á önnur fræg nöfn. I bókinni má finna næman húmor og hún er einnig hin ágætasta afþrey- ing þeim sem sækist eftir spennu. Og þrátt fy rir aö hún gerist meðal munka í klaustri koma kynferöismál ögn viö sögu ef einhver jum finnst þaö kostur. SGV ENGINN VENJULEGUR BÍLL CHRISTINE EFTIR STEPHEN KING Stephen King er í dag einhver mest lesni rithöfundur sem skrifar enskt mál. Bækur hans sem oftast f jalla um yfimáttúrleg fyrirbæri teljast til reyf- ara en eru meö þeim vandaöri þrátt fyrir ótrúleg viðfangsefni. Stephen King er mjög afkastamikill og hafa aö- dáendur hans varla lokiö síöustu bók- inni þegar önnur er komin á markað- inn og er hann tíður gestur á metsölu- bókalistum um allan heim. Christine mun vera næstnýjust bóka hans og eins og áöur fjallar hann um málefni sem er ofar skilningi flestra. Stephen King hefur oft áöur f jallaö um fók meö hina ótrúlegustu hæfileika en í Christine er þaö ekki mannfólkið sem kemur á óvart heldur er þaö Plymouth Fury 1958 módel sem lætur ekki aö stjórn svo vægt sé til oröa tekið. Sagan fjallar um tvo vini og skólafé- laga, Arnie og Denis, sem í fyrstu sam- lagast öörum jafnöldrum. En þegar Arnie einn dagmn rekst á gamlan „kagga” til sölu verður hann ekki viö- mælandi fyrr en hann er búinn aö kaupa hann. Fljótlega fer að koma í ljós aö svo virðist sem bíllinn hafi valiö Amie en ekki öfugt. Arnie sem hugsar ekkert um annaö en Plymouthinn sinn breyt- ist smátt og smátt úr gæðablóöinu, sem vinur hans Dennis þekkti, í óheflaðan og oröljótan mann og þykist Dennis sjá samlikingu meö vini sinum og fyrri eiganda bílsins, sem margir höföu óttast, en hann lést stuttu eftir að billinn var seldur. Plymouthinn sem Amie skýrir Christine er fljótur aö breytast í hina glæsilegustu kerru og fer aö taka upp á því að gera ýmislegt sem venjulegir bílar komast ekki upp meö, og um leiö hverfa ýmsir af sjónarsviðinu sem hafði farið aö gruna aö ekki væri allt meö felldu viö þessa glæsilegu drossíu.. Þrátt fýrir aö hugmyndin aö Christine hljóti að vera fáránleg og fá- um dytti í hug aö gera langa skáldsögu um bíl sem haldinn er illum anda, þá veröur aö viöurkennast að allt smellur þetta eölilega saman hjá Stephen King, eins og oftast áöur, og ætti eng- um aö leiðast viö lestur sögunnar sem á annaö borö hefur gaman af spenn- andi reyfurum og þótt Christine, eins og aörar sögur Stephen King, jaðri viö að geta kallast hryllingssaga er samt einhver glans yfir henni. HK. FULLKOMIN SUMARLEYFIS LESNING THE LITTLE SISTER EFTIR RAYMOND CHANDLER „Svo slétti hún úr seölunum á boröinu, staflaöi þeim og ýtti yfir. Hægt og treglega eins og hún væri aö I drekkja uppáhalds kettlingnum j sínum.” Þaö er Orfamay Quest, litla systirin frá Manhattan, Kansas, sem skilur svo ófús viö peningana sína en viötakandi og sögumaöur er Philip Marlowe, einkaspæjari. Marlowe á eftir aö kynn- ast Quest-fjölskyldunni betur og sjá eftir því. Þaö kemur í ljós að Orfamay myndi ekki víla fyrir sér aö drekkja kettlingum í tugatah. Bróöir hennar, Orrin, hefur tilhneigingu til þess aö reka oddhvassa hluti í bakið á fólki. Svo er önnur systir, sem Orfamay viU ekki tala um, af því hún er svarti sauð- urinn í f jölskyldunni. Þeir DashieU Hammett og Raymond Chandler voru upphafsmenn hörku- tólastílsins í leynilögreglusögum. Hammett skapaöi Sam Spade, kitlandi tvíhentan einkaspæjara, sem nú á dög- um veröur aö skoöast sem „félagslega vanþroskaöur einstaklingur”. Chandler skapaöi Philip Marlowe, sem er ekki minna hörkutól en Spade, en mælskari og íhugulli. Mariowe lýsir gerspiUtum og vonlausum heimi smá- glæpamanna, eiturlyfjaneytenda og alkóhóUsta, nöturlega og knappt. Síðan hafa reyfarahöfundar skapaö mörg hörkutól, en yfirleitt gert þau svo hörö að þau má nota tU aö rispa demanta og slíkir einkaspæjarar verða fljótt leiöi- gjarnir. Sem sumarleyfislesning er Chandler fuUkominn. Gráhvítur skriffinnur í Reykjavík, sem fengið hefur sumarbú- staö á leigu í eina viku, ætti að hafa með sér bókina um Litlu systur og lesa hana sitjandi í sólstól úti á veröndinni. Lýsingamar á veðurfari í Kalifomíu eru slíkar aö þær duga til að halda á manni hita, jafnvel utandyra á islensku sumri. Og svo má aUtaf setja upp sólgleraugu og láta sig dreyma. Chandler gaf ungum höfundum þaö ráö aö væru þeir i vafa um hvaö ætti aö gerast næst, væri gott aö láta ókunnug- an mann koma inn meö byssu í hend- inni. Hver veit hvaö kann að gerast í sumarbústaöahverfum úti á landi? Obg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.