Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1984, Síða 2
2
__________________________________________________________________DVi'ÞRlSJl/DÁÖÚR rt.'JOÍjf Í984Í ■
DV kannar stöðuna í ávana- og f íknief namálum:
Neysla á ávanabindandi
lyfjum minnkaði um 66%
Neysla á sterkum ávanabindandi
lyfjum á Islandi dróst saman um 66% á
tímabilinu 1976 til 1982. Þetta má finna
með því að reikna út ávísaö magn
eftirritunarskyldra lyfja á 1000 íbúa á
dag á þessu tímabili. Miðaö við
venjulegan lækningaskammt af lyfjum
fengu því tíu einstaklingar af hverjum
1000 ávísaö þessum lyfjum daglega
árið 1976 en þrír árið 1982.
Ef litið er á sölu allra geðlyfja á
Norðurlöndum frá árinu 1976, þ.e. ekki
aðeins eftirritunarskyldra, kemur í
ljós að hún hefur minnkað hér á landi
um 36%. Á sama tima jókst hún í
Danmörku um 20,7%, í Noregi um 6,8%
og í Finnlandi um 1,4%, en minnkaði í
Svíþjóð um 3,1%. Islenskir læknar
ávísa því mun minna af þessum lyfjum
en starfsbræður þeirra á hinum
Norðurlöndunum.
Ráðstafanir til að draga úr
notkun
Könnun, sem gerð var á ly fseðlum og
lyfjasölu á árunum 1971 til 1976, leiddi í
ljós að hér á landi var selt tiltölulega
mikið magn svefnlyfja, róandi lyfja og
örvandi lyf ja. Voru til dæmis seldir um
100 dagskammtar af róandi lyfjum og
svefnlyfjum á íbúa á dag árið 1972 og
var Island þá orðið annað í rööinni
meöal Norðurlanda, næst á eftir
Danmörku. Heilbrigðisyfirvöld hér
geröu því ráöstafanir til að draga úr
notkun þessara lyfja í lækningaskyni,
meöal annars með því aö bæta og auka
eftirlit með eftirritunarskyldum
lyfjum.
Eftirlit með lyfjaávísunum lækna er
í höndum landlæknisembættisins en
Lyfjaeftirlit ríkisins annast fram-
kvæmd þess. Til þessa hafa
aðgerðimar aðallega beinst að ávísun-
um á vanabindandi lyf utan sjúkrahús-
anna. Frá árinu 1976 hefur læknum til
dæmis verið sent tölvuskráð yfirlit yfir
ávisanir þeirra á eftirritunarskyld lyf.
Tölvuskráningin er talin eiga stóran
þátt í þvi aö sala á ávanabindandi
stereo/útvarp
meö kassettutæki
tegund 7128 E.
SUMARTILB0Ð Þú greiöir 2.900,-
restin á 6 mánuöum VAXTALAUST
• 10 stööva minni • sjálfvirk leitun • stereo/mono •
metal spólurofi • „loudness” rofi • stig-styrkstillir
• tölvuklukka • „ballance kontrol” • „synthesizer
tuner” • „auto reverse” (sjálfvirk spilun fram og til baka)
• hátalarar fylgja • VERÐIÐ ER AÐEINS 13.400,-
Nú geta allir fengið sér Alpine í bilinn
,»( VttU«
SKIPHOLTI 7 • SÍMAR 20080 8t 26800
Avisað magn í dagsskömmtum á 1000 fbúa á dag 1976 1982 Minnkun
1. Sterk svefnlyf Barbiturot 2. Sterkörvandilyf 4,46 1,06 76,2%
Amfetamin og skyld lyf 3,45 1,02 70,4%
Mirapront 3. Sterk róandi lyf 1,57 0,59 62,1%
Meprobamatum 4. Stcrk verkjalyf 0,98 0,25 74,5%
Morf in, pethedin o.fl. 1,16 1,04 10,0%
10,1 3,4 66,0%
Á þessari töflu má sjá þmr breytingar sem orðið hafa á ávísuðu magni eftir-
ritunarskyldra iyfja á ísiandi á árunum 1976 til 1982. Um magn benzodiazep-
in iyfja er minna vitað en til þeirra teljast vaiium, mógadon, díazepam og
fieiri iyf. Landiæknisembættið hefur ekki fengið fjármagn til að kanna
neyslu þessara iyfja en á árunum 1976 tii 1980 minnkaði sala á þeim um
60%.
lyfjum minnkaði hér á landi á tíma-
bilinu 1976 til 1982.
DV leitaði eftir áliti Olafs Olafssonar
landlæknis á þeim samdrætti sem
orðið hefur á notkun ávanabindandi
lyfja.
Er notkun ávanalyfja með
öllu óæskileg?
„Mikil umræða hefur fariö fram um
vímuefnanotkun að undanförnu,”
sagði Olafur. ,Jnn í þessa umræðu
hefur oft verið blandað notkun ávana-
lyf ja og gjarnan sett samasem-merki á
milli vímuefna og ávanalyfjanotkunar.
Því er gjarnan haldið fram að mark-
miðið sé að auka aðhaldsaðgerðir gegn
notkun ávanalyfja í svipuöum dúr og
vímuefna. Ég er ekki viss um að auka
eigi aðhaldsaðgerðirnar öllu meira en
orðið er.”
Olafur sagöi að samfara mikilli
lækkun á ávísuðu magni geð- og róandi
lyfja á Islandi á árunum 1976 til 1980
hefði sala áfengis aukist um 15%. „Við
skulum minnast þess aö einungis 30%
til 40% þeirra sem leita meðferðar
vegna áfengissýki ná fullum bata.
Hinum verður að hjálpa að Ufa og þeir
veröa að fá lyf. Enginn vafi leikur á að
áfengismisnotkun er alvarlegasta
vímuefnavandamáUð sem Islendingar
eiga við að stríða. Lyfjavandamálið er
aðeins brot af vandanum,” sagði
Olafur.
Ávanalyf nauðsynleg til
lækninga
„Þá ber að hafa í huga að mörg
ávanalyf hafa áhrifamikinn lækninga-
mátt og eru vægast sagt lífs-
nauðsynleg,” sagði Olafur. „Aðhalds-
aðgerða er vissulega þörf en fara
verðurmeðgátu íþeimefnum.
Sterk verkjalyf eru til dæmis notuð
til að Una verki sjúkUnga eftir skurö-
aðgerðir. Erfiöum aðgerðum hefur
fjölgað mjög á síðari árum.
Vegna bættrar lyfjameöferöar lifa
krabbameinssjúklingar nú lengur og
þurfa því meira á sterkum lyfjum að
halda en áöur.
Notkun róandi lyfja er mun algeng-
ari meðal eldra fólks en þeirra sem
yngri eru. Gömlu fólki fer fjölgandi og
þar af leiðandi eykst þörfin fyrir
róandi lyf. Margfalt fleiri
geðsjúklingar fá nú meðferð utan
sjúkrahúsa en áður og þeir þurfa oft
róandi lyf. Þá þurfa margir sem
haldnir eru líkamlegum sjúkdómum
að fá róandi lyf h já læknum. ’ ’
Smygl gæti aukist
Olafur velti því að lokum fyrir sér
hvort rétt væri að draga frekar úr
ávísunum lækna á amfetamín.
„Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar jókst smygl á amfeta-
mínefnum til landsins samfara mikilli
fækkun amfetaminávísana hjá
læknum. Alþekkt er aö samfara
hörðum aðgeröum hollenskra heU-
brigðisyfirvalda gegn amfetamín-
ávísun jókst mjög amfetamínsmygl
þar í landi. Afleiðingin var sú aö dregið
var úr takmörkunum á útgáfu amfeta-
míns. Eins og áður segir er aðhaldsað-
gerða vissulega þörf en fara verður
meö gát í þeim e&ium,” sagði Olafur
Olafsson landlæknir.
Hér sést flug-
vélln TF-FOX,
sem maga-
lenti við Húsa-
feU á sunnu-
dag. Orsök ó-
happsins var
sú að hjól vél-
arinnar fóru
ekki niður fyr-
ir lendtngu.
Engan sakaði
um borð.
DV-mynd:
Þórunn
Reykdai
Fiskmatið:
Jóhann á forstjóra-
launum í eitt ár enn
— hefur þegar verið í launuðu f ríi í eitt ár
Jóhann Guðmundsson, fyrrverandi
forstöðumaöur Framleiðslueftirlits
sjávarafurða, mun fá laun frá ríkinu í
eitt ár nú er staða hans hef ur verið lögð
formlega niöur. Samkvæmt lögum um
Framleiðslueftirlitið var starfsemi
þess endurskipulögð og nafni þess
breytt í Fiskmat ríkisins. I þessari
endurskipulagningu felst m.a. að staða
forstjóra gamla Framleiðslueftirlits-
inserlögðniður.
Jóhann Guðmundsson fékk árs leyfi
frá störfum í fyrrasumar á meðan
unnið var að endurskipulagningunni og
þeir Einar Jóhannesson og Jónas
Bjarnason voru settir til eins árs. I síð-
ustu viku var staða forstjóra hins nýja
Ríkismats sjávarafurða veitt og fékk
Einar Jóhannesson stöðuna en annar
umsækjandi um hana var Jóhann Guð-
mundsson.
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri
í sjávarútvegsráðuneytinu, sagði í
samtali við DV að samkvæmt lögum
um réttindi og skyldur rikisstarfs-
manna ættu þejr sem hefðu starfað í 15
ár rétt á 12 mánaða biölaunum ef staða
þeirra yrði lögð niður. Svo er um Jó-
hann Guðmundsson og verður hann
nú á launum hjá ríkinu annað áriö i röð
án þess að vinna.
Skipulagning Fiskmatsins er að því
leyti frábrugðin því sem var hjá Fram-
leiðslueftirlitinu að völdum forstjóra
hefur veriö dreift. Við hlið og yfir for-
stjóra situr fiskmatsráð og auk þess
hefur hann sér til ráðuneytis tvo for-
stöðumenn deilda sem ekki var áður.
Nokkrar aðrar stöður úr gamla Fram-
leiðslueftirlitinu hafa verið lagðar
niður, m.a. stöðuryfirfiskmatsmanna.
Jónas Bjamason, sem settur var í
stööu Forstjóra Framleiðslueftirlits-
ins, ásamt Einari Jóhannessyni
hverfur til ánnarra starfa um næstu
mánaöamót. „Það var ekki verið að
leita að sannleikanum þarna eins og
kom fram í glímunni í vor. Þetta er
þannig vaxið að maður má þakka
sínum sæla aö sleppa með mannorðiö
sæmilega óskert frá þessu,” sagði
Jónas Bjarnason um reynslu sína í
starfinu. Jónas tekur á ný við starfi rit-
stjóra Handbókar fiskvinnslunnar er
hann lætur af störfum um næstu
mánaðamót.
ás