Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1984, Qupperneq 4
4
a
TILLÖGUR NEFNDAR UM OPINBERA STEFNU í ÁFENGISMÁLUM:
ÁFENGISÚTSÖLUM OG VÍNVEITINGA-
STÖDUM EKKIFJÖLGAÐ - HELMINGS-
HÆKKUN Á STERKUM DRYKKJUM
Nefnd um mörkun opinberrar stefnu
í áfengismálum var stofnuö fyrir
tveimur árum. Eiga 19 manns sæti í
nefndinni. Eins og komið hefur fram
eru þaö fuiltrúar stjómmálaflokkanna,
ráöuneytanna, landlæknis og fleiri
samtaka er um þessi mál fjalla. For-
maður nefndarinnar er Páll Sigurðs-
son, ráöuneytisstjóri í heilbrigðis- og
tryggingaráöuneytinu.
Fyrir allnokkru sendi nefndin frá sér
samhljóöa lokatillögur byggðar á
framlögöum gögnum og umræöum í
nefndinni. I upphafi var henni faliö aö
gera tillögurnar meö tilliti til þriggja
atriða: I fyrsta lagi hvemig haga skuli
undirbúningi, dreifingu og sölu
áfengis. I ööm lagi hvernig haga skuli
áfengisvörnum, upplýsingastarfsemi,
rannsóknum og fræðslustarfsemi um
áfengi. 1 þriðja lagi hvernig haga skuli
meöferö áfengissjúkra og rekstri
meöferðarstofnana.
Þótt enn sé nokkuö liðið frá því
nefndin sendi frá sér tillögurnar hefur
ríkisstjórnin engin viöbrögð sýnt,
nema f jármálaráöuneytið, eins og sagt
hefur verið frá hér í blaðinu. Fyrir rúm-
um þremur vikum ítrekaöi nefndin að
stjómin léti í sér heyra vegna tillagn-
anna. Enn hefur ekkert gerst. Á meðan
era tillögurnar trúnaöarmáL DV hefur
hins vegar tekist aö afla sér þeirra og
hér era þær. -KÞ
1. Torveldað verði aðgengi að
áfengi með eftirtöldum ráðum:
a) Áfengisútsölum og vínveitinga-
stööum veröi ekki f jölgað.
b) Sett veröi hnitmiðuð ákvæði um
framkvæmd skoðanakannana
um opnun (nái a-liöur fram, má
fella niður „opnun”) og lokun
áfengisútsala þannig að þær
skuli auglýstar meö minnst eins
mánaöar fyrirvara.
c) Standi til að opna nýja áfengisút-
sölu í Reykjavík eöa á öörum
stöðum þar sem áfengisútsala er
þegar leyfö, skal meiri hluti kjós-
enda vera því samþykkur.
d) Skoðanakannanir, sbr. b- og c-
lið, fari eingöngu fram um leið og
sveitarstjórnarkosningar.
e) Endurskoðaður veröi opnunar-
tími áfengisútsala með styttingu
fyrir augum og tilliti til hátíðis-
daga (t.d. aðfangadag og
gamlársdag).
f) Undir engum kringumstæöum
verði heimilað aö veita sterkt vín
á vínveitingastööum fyrir kl. 18.
g) Á vegum hins opinbera (ríkis,
sveitarfélaga og opinberra stofn-
ana) verði einvörðungu veitt létt
vín.
h) Innflutningur á bjór verði
stöðvaður og bjórsaia á Kefla-
víkurflugvelli verði aflögð.
2. Stórhert viðuriög gegn óiöglegri
áfengissölu.
a) Þyngri refsiákvæði en nú eru
gegn leynivínsölu.
b) Strangari ákvæði verði sett um
sölu til ófullveðja fólks en um
leynivínsölu.
3. Verðlagning áf engis:
a) Hækkun útsöluverðs til samræm-
is við verðlagsþróun fimm síð-
ustu ára og síðan fylgi verð á
áfengi launahækkunum, auk
þess sem sterkir drykkir verði
hækkaðir helmingi meira á
næstu tveimur árum.
b) Hækkun á verði á vínveitinga-
stöðum um 20%. Ágóði húsanna
hækki ekki.
c) Ofan á útsöluverð alls áfengis
verði bætt 2% er renni til heilsu-
gæslu- og forvarnarstarfs eftir
nánari tillögum nefndarinnar.
d) Sérstakur áfengisskattur verði
settur á vínveitingahús til þess
að draga úr neyslu sterkari
drykkja. Skattur þessi skal vera
10% á útsöluverð sterks áfengis,
þ.e.a.s. 21% og yfir að vínanda-
magni, og skal hann renna til
þjáifunar starfsmanna heilsu-
gæslunnar til að sinna lögboðinni
heilsuvernd á þessu sviöi, sbr.
nánar 19. gr. laga nr. 59/1983 um
heilbrigðisþjónustu.
4. Bannaöur verði innflutningur á
efnum og tækjum sem bersýni-
lega eru ætluð til öl- og vin-
gerðar.
5. Umboðsmannakerfið.
Kerfið verði lagt niður og unnið
að umboösöflun fyrir ríkið
þannig að umboðslaun rynnu í
dansleiki samkvæmt nánari
gæsluvistarsjóð óskert.
Verði ofangreindu ekki viðkomið
er eftirfarandi lagt til:
a) Sérstakt skráningargjald á
áfengistegundir.
b) Árlegt leyfisgjald af umboðs-
leyfi.
c) 20% umboðslauna renni í gæslu-
vistarsjóð.
6. Fræðslustarfsemi.
a) Ráðinn sérstakur fræöslufulltrúi
í menntamálaráðuneytið til þess
að skipuleggja og fylgja eftir
fræðslustarfi í skólum, þ. á m.
við þjálfun kennara til að geta
sinnt þeirri lögboðnu fræðslu.
Skal hann starfa í nánu sam-
bandi við Áfengisvarnaráð.
b) Komið verði á mjög aukinni
fræðslu fyrir ökunema og þá,
sem hyggjast endurheimta öku-
skírteini sín.
7.
a) Verð á óáfengum drykkjum á
veitingastöðum verði lækkaö,
þannig aö það fari ekki fram úr
100% á innkaupsverð.
b) Vinveitingaleyfi verði háð því, að
handhafar þess haldi áfengis-
lausa dansleiki samkvæmt nán-
arireglum.
8. Viðurlög við ölvunarakstri verði
stórhert.
a) Við fyrsta brot komi ökuleyfis-
svipting í eitt ár, varðhald a.m.k.
í tvo daga og sekt. Málum verði
skipað þannig að ekki verði hægt
að breyta varðhaldi í sekt með
sérstakri náðun forseta Islands.
Hyggist hinn seki afla sér öku-
leyfis að nýju, beri honum
skilyrðislaust að ganga í öku-
skóla, þar sem áfengisfræðsla
verði aukin.
b) Við ítrekuð brot komi til varð-
hald og ævilöng ökuleyfissvipt-.
ing. Skal hinum seka heimiit að
sækja um ökuleyfi eftir 3 ár eftir
þátttöku í áfengisfræðslu á veg-
um heilsugæslunnar eöa annarra
geti hann sýnt fram á, með
vitnisburði tveggja valinkunnra
manna, að hann hafi þá ekki
neytt áfengis í 2 ár.
9. Reglur um tollfrjálsan inn-
flutning.
a) Innflutningur afniuninn.
b) Teknar verði til endurskoðunar
þær reglur er gilda um tollfrjáls-
an innflutning áfengis hjá
farmönnum og flugliöum, þannig
að ekki verði litið á þessi mál
sem kjaramál, eins og almennt
ergert.
10. Setja skal upp viðvörunarskilti í
áfengisverslunum og á vín-
veitingahúsum þar sem minnst
erá:
1. Lög um ölvunarakstur og hversu
lengi vínandi er í blóöinu sé hans
neytt.
2. Viðurlög við útvegun áfengis til
ófullveöja.
11. Framfylgt verði banni gegn
áfengisauglýsingum af dóms-
málaráðuneytinu.
Auk þess leggur nefndin til að
kannaður verði hugur
landsmanna til áfengisbanns,
eöa takmörkunar á heimild til
innflutnings og sölu sterks
áfengis.
í dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
Pétur þríhross vakinn til lífs
Alþýðusambandið hefur gefið út þá
dagskipan að í næstu kjarasamning-
um eigi hvert verkalýðsfélag að
semja fyrir sig. Samflot er úr sög-
unni. Bjargl sér hver sem betur
getur segir Alþýðusambandsforyst-
an og sér fram á náðuga daga. Ekk-
ert þref fyrir Ásmund og kompaní í
karphúsinu og allt látið lönd og leið.
Ef að líkum lætur verður handa-
gangur í öskjunni. Nú fara einstök
verkalýðsfélög í stórfiskaleik, setja
fram kröfur og berja í borðið hvert í
sinu lagi. Eitt félag heimtar 20%
launahækkun, annað 30% og auðvit-
að verður hver og einn verkalýðs-
foringl að bíta í skjaldarrendur og
sanna að hann sé meiri töffari en hin-
ir. Ailir verða að sýna fram á, að þeir
hafi meira upp úr krafsinu en hinir,
allir verða að yfirbjóða hina því eng-
inn vill sitja uppi með þá skömm að
semja um lakari kjör en önnur
verkalýðsfélög.
Það verður aldeilis fjör á
markaðnum áður en yfir lýkur.
Einhver kann að halda því fram að
loksins hafi markaðshyggjan haldið
innreið sína í kaupgjaldsbaráttunni.
Þannig eigi þetta að vera. Nú hafi
hver stétt, hver starfshópur, mögu-
leika til að bjóða vinnuframlag sitt í
samræmi við framboð og eftirspurn.
Vinnuveitendur eiga nú ekki annarra
kosta völ en að meta hæfni og dugnað
og mikilvægi starfsmannsins og
borga honum eftir þvi. Engar déskot-
ans tilvísanlr í ASt-samninga, efna-
hagsaðgerðir eða lágmarkstaxta. Nú
verða menn að gjöra svo vel að eiga
um það við hvern og einn starfsmann
hvað hann á að fá í kaup vegna þess
að hver og einn starfsmaður er orð-
inn að sjálfstæðu verkalýðsfélagi
með samningsrétt.
Þetta verður auðvitað aukin fyrir-
höfn fyrir vinnuveitendur en þetta er
það sem þeir vilja. Frelsi. Frelsi til
samninga, frelsi til viðskipta.
Markaðurinn ræður. Og auðvitað er
þetta ails ekki svo slæmt fyrir vinnu-
veitendur og þeir láta í veðri vaka.
Nú verður hægt að taka launþegana
á beinið, setja þeim stólinn fyrfr
dyrnar og semja við þá um svo og
svo mikið kaup gegn þeim kostum
sem vinnuveitandanum þóknasí. Nú
kemur Alþýðusambandinu hreint
ekki lengur við þegar launþegi
semur um vinnu, kaup og kjör gegn
því að afsala sér hinum eða þessum
réttindunum. Vinnuveitandinn býður
hærra kaup gegn afsali á orlofi, gegn
fyrirvaralausri uppsögn, gegn 60
tíma vinnuviku. Vökulög, eftirvinnu-
taxtar, orlofsréttindi og hvað þetta
heltlr nú ailt saman, sem verkalýðs-
hreyfingin hefur verið að semja um á
umiiðnum áratugum, fýkur út i
veður og vind vegna þess að hver
launþegl er kominn með sjálfstæðan
samningsrétt sem ASÍ vill ekki hafa
afskipti af. Atvinnurekendur geta
hlegið upp í opið geðið á Alþýðusam-
bandsf ory stunni ef hún ætlar að gera
athugasemdir við einstaka kjara-
samninga af því að hún hefur sjálf
ekki beðið um slík afskipti.
Dagar Péturs þríhross hafa verið
endurvaktir. Og það af verkalýðs-
forystunni sjáifri. Það fer jafnvel að
verða spurning um það hvort ástæða
sé til þess að viðhalda Alþýðusam-
bandinu öllur lengur? Er ekki eins
gott að leggja niður samband sem af-
salar sér af fúsum og frjálsum vilja
ölium afskiptum af málum sem
verkalýðsbaráttan gengur út á? Eða
hvað ætlar ASt-skrifstofan að gera í
framtíðinni? Safna frímerkjum?
Með þvi að innleiða anarkí og
markaðshyggju í kjarabaráttuna
hefur Alþýðusambandið gefist upp á
að vera til. Jarðarförin verður
auglýst síöar.
Dagfari.