Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1984, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1984, Qupperneq 11
DVÍMÍÐÍftti'AStÍKÍ^ JtJLÍ 19k:' 11 nr LANDIÐ OKKAR A þessu vorí og sumri gengst Ferðamálaráð Islands fyrir áróðurs- herferð til bættrar umgengni um landið undir kjörorðunum: Verndum landið — Vöndum umgengni — Völdum ekki spjöilum. Það á að vera okkur öllum ljúf skylda að framfylgja þessum regl- um, stuðla að vemdun hinnar ó- spilltu náttúru. Oft er sagt aö Island sé á mörkum hins byggilega heims. Að nokkm leyti kann þetta að vera rétt. Island er þó sannarlega laust við margt það er hrjáir suölægari lönd sem þó eru langt innan endimarka hins byggilega heims samkvæmt fyrr- greindri skilgreiningu. Ekki era hér þurrkar og stórfióð eöa landlægar drepsóttir. A Islandi er gnægð frjósamrar gróðurmoldar, heppilegt loftslag til grasræktar og góð skilyrði til ylræktar. Umhverfis landið era einhver gjöfulustu fiskimið sem þekkjast. Þeir sem ekki átta sig á þessum staðreyndum eru slegnir mikilli blindu. Á hitt er svo að líta að vegna legu landsins er víða að finna viðkvæma staði sem tæpast þola óhefta umferð. Búseta okkar leggur okkur þær skyldur á herðar að vinna með nátt- úrunni s jálf rí að varðveislu landsins. Þetta á að vera okkur eiginlegt, hluti af lífsskoðun okkar. Við þurfum að hafa frjálsan aðgangsrétt að víðátt- um landsins og kunna að lifa „með landinu” en ekki á því. Náttúruvernd ber að stunda án boða og banna. Þaö má ekki með valdboði fæla fólk frá samvistum viö landið og náttúru þess. Manninum er eiginleg alhliða hreyfing, holl áreynsla, útivist og ferðalög. Á fögrum vetrardegi er unaðslegt aö spenna á sig skíöin, halda til heiða og teyga hið heilnæma fjallaloft. Ovíða verður notið betri hressingar en í slíkum ferðum. Hið sama á einnig við um fjallaferðir sumarsins. Islendingar eiga auðæfi fólgin i ’ öræfavíðáttunni. Otvíræðir eru kostir þess að búa i landi sem fjarri er örtröð þéttbýlustu svæða jarð- arinnar, landi sem á gnægð af fersku lindarvatni, hveravatni og hreinu ómenguðu andrúmslofti. Alls þessa verðum við að gæta. Tileinka okkur rétta umgengni um þessa dýrmætu fjársjóði landsins okkar. Breyttir lifnaðarhættir Islendingar sem fæddir era á fyrstu áratugum þessarar aldar muna tímana tvenna hvað alla verk- lega tilhögun varðar. Hvort sem er úti eða inni, á landi eða sjó. Þá vora fyrstu bílarnir og bátavélarnar að sanna tilverurétt sinn í landinu. Einnig dráttarvélarnar og önnur viðiika tæki. öll verkmenning var sett í deiglu og er þar raunar enn. Gömlum atvinnuháttum, sem frá ómunatíð höfðu verið einráðir og sjálfsagðir, var ýtt til hliðar. Verk- menning, sem fyrst og fremst byggð- ist á þreki mannsins og lifandi hjálparhellum hans, er horfin. Nú rflcir vélaöld með tækjum sínum og tólum. Þessari byltingu fylgdi aihliða umrót i byggð og bæ. Litlu sjávar- þorpin, sem kúrðu í velgrónum tún- um, tóku ótrúlega miklum um- skiptum til hins verra. I stað gróinna túna komu illa gerðar moldargötur sem oftast fylgdi óþrífnaður, ryk í þurrkum og aur í rigningum. Fyrst nú, að nær heilli öld liðinni, má sjá fyrir endann á þessu ófremdará- standi. Svipaða sögu má segja í ööra þýðingarmiklu umhverfismáli, sorp- eyðingunni. Þegar rafmagniö og heita vatnið leysti opna eldinn af hólmi við upphitun húsa og matar- gerö skapaðist vandamál. Þá féll til mikið af úrgangi sem áður hvarf í eldinn og kom þar að góðu gagni. Brugðið var á það ráð aö koma sorpi fyrir á afviknum stöðum með mis- góðum árangrí. Víða urðu spjöll af fjúkandi úrgangi. Sorp var losað i s jó en sú aðferð reyndist mjög illa Nú eru allvíða komnar sérstakar stöðvar sem eyða sorpi en þetta vandamál er ekki fuilleyst til fram- búðar. I sveitum landsins, með vegum og umhverfis bæi má víöa líta brak og beyglað dót. Mig granar að við kunnum ekki að ganga frá úrgangi. Orsökin gæti verið sú aö áður sá eldurinn um verkið að mestu leyti. Hann eyddi öllu sem brunnið gat. Og hins vegar ARNLJÓTUR SIGURJÓNSSON, RAFVIRKJAMEISTARI, ________HÚSAVÍK.________ var allt sorp og afgangar snöggtum minna. Við hreinlega áttum lítið sem eyða þurfti. A þessum staðreyndum þurfum við að átta okkur og ráðast tafarlaust gegn óþrifnaðinum. Hvert og eitt okkar, heima í götunni eða á bæjarhlaðinu og alls staðar þar sem við ferðumst. Ef allir leggjast á eitt veröur verkiö létt. Ekki að bíöa þess að aðrir geri það fyrir okkur, gerum það sjálf. Með stöðugum áróðri mun- um við ná árangrí. Við erum á réttri leið og megum ekki láta staðar numið. Látum sóðana ekki i friði. Breytum almenningsálitinu, það er okkar sterkasta vopn. Verðum þá fyrst ánægð er viö getum ferðast kringum land, hvort sem er á sjó eða þjóðvegi eða farið um fjöll, án þess aö á leiö okkar sé nokkuð sem stingur í auga. Gerum það að okkar metnaðarmáli. Lokaorð Dr. Helgi Pjeturss segir svo í einu rita sinna: „Það skiptir mjög í tvö horn um framtið Islands, hvort þjóð- in ber gæfu til aö átta sig á hlutverki sínu eða ekki. Ef illa fer, mun íslenska þjóðin verða liöin undir lok fyrir næstu aldamót. En fögur verður framtíð Islands ef oss auðn- ast að haga oss svo, að hin æðri öfl nái aö koma sér við hér. Því að þá mun af islenskri farsæld lýsa um alla jörð, öllu mannkyni tii gagns og gleði.” Menn kann aö greina á um skoðanir og verk dr. Helga Péturss. En má ekki að nokkra leyti heimfæra þessa kenningu til náttúra Islands, því ástandi sem nú má sjá fyrir. Ef illa tekst að vernda óspillta náttúru landsins mun illa fara. I framtíðinni kann Isiand að hafa meira gildi sem griöastaður jafnvægis og friðar í náttúrunni en sem mikilvægur hlekkur í varnarkeðju þjóðabanda- laga. Löndum sem búa við jafnvægi i lífríki sínu fækkar óðum. Framtíð alls lífs á jörðinni er undir því komin að takast megi að sporna viö þessari öfugþróun og beina til betri vegar. Hverju barni þarf að leiðbeina og vekja með því virðingu fyrir öllu lífi, smáu og stóru. Smæsta gróðurkió og lítill mosatoddi á heiðum uppi er lif- andi náttúra sem umgangast þarf með fullri aögát. Víða á Islandi ber fyrir augu illa umgengin svæði er gætu verið sem ósnortin ef viðhöfð væri eðlileg varfæmi. Þetta verður þjóðin aðskilja og tileinka sér. Sveigja þarf hugsun okkar og athafnir frá auöhyggju til mannhyggju, frá rányrkju til ræktunar, frá ófriði til sátta og friðar. Friðar sem kemur til liðs við sjálfa náttúrana og gerir Island, landiö okkar, að best umgengna og fegursta landinu. Arnljótur Sigurjónsson. Það skiptir máli hvemig við tölum Allir kannast við það að nota mis- munandi orð um sama hlutinn til að sýna óhkar skoðanir á þeirri per- sónu, hugtaki, eiginleika eða hlut sem fjailað er um. Séum við t.d. póli- tískir andstæðingar Olafs Ragnars köllum við hann „gasprara” eða „kjaftaskúm” en eftir að við göngum í flokkinn hans nefnum við hann heldur „mælskumann”. Máiið skapar skoðanir Þaö skiptir ákafiega miklu máli hvernig við högum máli okkar. Með ákveðnu orðalagi getum við komið inn hjá þeim sem við töium við eða skrifum fyrir „réttri” skoðun, þ.e.a.s. okkar skoðun. En mál okkar sjálfra hittir einnig fleira fyrir en það sem við tölum eða skrifum um. Það skapar einnig ákveðna mynd af okkur sjálfum. Þeir sem þekkja okkur vel vita hvað á bak við orð okkar býr þótt orðavalið sé ekki allt- af hið vandaðasta. Aðrir taka orðin eins og þau era sögð. Talirðu t.d. um „íhaldsdrumb” við sjálfstæðismann dæmir hann þig þegar i stað sem komma og hættir að taka mark á þér. Notirðu sama orð í spjalli við al- þýðubandalagsmann tekur hann þér opnum huga og lítur á þig sem sam- herja. Hópamállýskur Að þessu sögðu má líta á það sem eðlilegan hlut að vissar málvenjur verði til innan ákveðinna hópa, póli- tískra, trúarlegra, menningarlegra, atvinnulegra, menntunarlegra o.s.frv. Einstök orð fá vissa merk- ingu sem þau hafa ekki utan hópsins. Þannig verða til eins konar „hópa- mállýskur”. Sumt af þessu fær sam- heitið „slangur”, einkum ef það er notað af ákveðnum aldurshópi. Sem dæmi um svona hópamállýsku-orð mætti nefna það ágæta íslenska karl- mannsnafn „Guðmundur”. Innan á- kveðins hóps má s já þróun í þá átt að það sé aö fá aukamerkinguna „karl af 68-kynslóðinni, áhrifagjarn og stefnulaus með afbrigðum, veikur fyrir konum og laus í rásinni”. Þetta er lýsing á aðalpersónunni í nýlegu leikriti Stúdentaleikhússins, „Láttu ekki deigan síga, Guðmundur”, eftir Hlín Agnarsdóttur og Eddu Björg- vinsdóttur, — enda er nafnið og aukamerkingin þaðan runnin. Engin ástæða er til að amast við slíkum málvenjum eða tískufyrir- bærum í máli svo framarlega sem þau eru ekki flött út með ofnotkun. Það gerir tungumálið aðeins skemmtilegra og blæbrigðaríkara aö hugmyndir og viðfangsefni dagsins fái að eiga þar greiða leið. Menn, menn, menn, menn ... Undanfarin ár hefur það verið mikil árátta hjá þingmönnum (og hefur síðan smitaö út frá sér til annarra sem vilja láta telja sig fyrir- menn) aö taia ópersónulega. Þá á ég við að þeir segja ekki. ,,Ég álít... ”, heldur „Menn álíta ...” Eg hef grun um aö þetta eigi að gefa málf ari viökomandi stórmenna virðulegri blæ og sjálfsagt er mikið til í því, sé það notað í sæmilegu hófi. En það er það’ því miöur ekki. Nú er það kannski skiljanlegt að þessir virðu- legu menn vilji vera viröulegir. En til þess eru ýmis önnur ráð, t.d. að vekja virðingu annarra með verkum sinum. Það er einnig skiljanlegt að það henti stjórnmálamönnum vel að tala ópersónulega um sjálfa sig. Með því taka þeir minni ábyrgð á orðum sínum, varpa ábyrgðinni á einhverja „menn”. Mjög hentugt. En það eru líka til aðrar aðferðir'til þess, svo sem að segja hlutina í þolmynd: „Þaðer álitið ...”, eða leyfa sér dálít- ið meiri f jölbreytni í ópersónuleikan- um, — segja t.d. „Fólk álítur ...”, ,,Sumir álíta ...”, ,,Margir álíta ...” eða „Ýmsir álíta...”. En það er annað í þessu sambandi sem fer dálítið illa fyrir brjóstiö á mér. Það er þegar þetta orð „menn” er notað ópersónulega um þá sem talað er við, rétt eins og þeir séu ekki einstaklingar heldur einhver óper- sónuleg hjörð. Eg var á fundi um daginn. Formaður félagsins flutti þar langa tölu yfir okkur. Skoðunum sjálfs sín lýsti hann ávallt með „Menn telja ...” o.s.frv. En félags- menn sina ávarpaöi hann einnig meö þessum sama hætti: „Menn geta ekki bara sett fram kröfur” og „Vilja mennæða út í verkföll? ” Þetta finnst mér ósmekklegt, auk þess sem GUÐMUNDUR SÆMUNDSSON VERKAMAÐUR málið verður ákaflega þokukennt þegar aldrei er hægt að treysta þvi hvort eitt orð merkir í rauninni „ég”, „við”, „þú”, „þið” eða Jólk almennt”. I tilefni af forustugrein DV12. þ.m. vill stjóm Sambands eggjafram- leiðenda koma á framfæri eftirfar- andi: 1. Hið nýja viðbótar-kjarnfóður- g jald veröur ekki sótt í vasa neyt- enda, eins og haldið er fram í leið- aranum, heldur verður þaö endurgreitt til framleiöenda og mun því engin áhrif hafa á eggja- verð. 2. Framlag kjamfóðursjóös til dreifingarstöðvar Sambands eggjaframleiðenda tryggir neyt- endum bætta þjónustu og aukin gæði eggjanna á sama verði. Að öðrum kosti rynni þetta gjald til greiöslu á rekstrarhalla ríkis- sjóðs eins og dæmin sanna. 3. I forystugreininni kom fram að Eni konur ekki til, eöa hvað? Á þessum fundi, sem ég var að segja frá, var meirihluti fundar- manna konur. Einmitt þess vegna fannst mér málfar formannsins (sem auðvitað er karl) ennþá an- kannanlegra. Eg býst við að oröalag formannsins hafi ekki beinlinis fallið í góðan jarðveg hjá konunum á fund- inum. Ýmsar aðrar málvenjur gera því skóna aö konur séu eiginlega ekki til, eða skipti a.m.k. litlu máli. Þegar þessi sami formaður sagöi i skýrslu sinni: „Viö erum nú búnir aö reisa fyrsta áfanga nýja hússins”, lét hann eins og meirihlutinn í félaginu, konurnar, væru ekki til. Hefði hann verið spurður hvað hann ætti við býst ég við að hann hefði hugsað sig um góöa stund, rifjaö upp þau orð sem gátu passað inn i, brosað síöan sigri hrósandi og sagt: „Eg átti auðvitað við það að við félagsmennirnir værum búnir að því. ” Sömu viöbrögö hefðu vafalaust orðið ef ráðherra nokkur hefði verið spurður að því hvað hann meinti með ætlunin væri að þröngva „óþæg- ari” eggjabændum inn i dreifing- arstöðina. Sannleikur málsins er ! að félagiö er opið öllum eggja- framleiðendum. En þeir eru frjálsir að því hvort þeir eru innan vébanda þess eða ekki á sama hátt og hið nýstofnaða Félag aUfuglabænda boðar. 4. I niðurlagi forystugreinarinnar skýtur ritstjóri DV klaufalega yfir markið þegar hann lætur að því Uggja að dreifingarstöð Sam- bands eggjaframleiðenda í Kópa- vogi verði einokunarfyrirtæki, þrátt fyrir að blað hans hafi þrem dögum áöur birt frétt á baksíðu blaösins um að verið sé að reisa 3 slíkar stöðvar í landinu. En ein- mitt þaö sannar betur en aUt setningunni. „Við eram ekki búnir að ákveða að reisa álver viö Eyjaf jörð, en við eram staðráönir í því að stefna að því.” Nema hvað hann hefði sennilega lent í enn meiri vand- ræöum en formaðurinn að finna hentugt og í staöinn, svona eftir á. „Islendingar”? „Sjálfstæðismenn”? „Ráðherrarnir”? Breytt málfar — breytt viðhorf Það eru til þúsundir dæma um svona málfar þar sem speglast það gamla áUt aö konur þurfi ekki aö telja með þegar rædd eru opinber málefni, framkvæmdir og ýmislegt stúss utan heimiUsveggja. Eg er ekki að segja að aUir sem sUkt oröalag nota séu andstæðingar kvenfrelsis. Oftar er þetta gamaU vani. En sé eitthvað á bak við jafnréttistal flestra karla (konur tala ekki svona) ættu þeir að gera gangskör að því að losa sig við þessar leifar sinnar eigin karlrembu. Annars taka þeir þátt i því með málfari sínu að viðhalda úr- eltum viðhorfum k venfyrh-Utningar. Guðmundur Sæmundsson. annað það sem stjórn S.E. hefur aUtaf sagt að á þeirra vegum sé ekki verið að stofha til einokunar- fyrirtækis. DV-ritstjórmn hlýtur því að vera að vara neytendur við eggjum frá einhverju öðru fyrir- tæki en dreifingarstöð S.E. þegar hann notar leiöara blaðsins til að auglýsa egg einhverra tiltekinna framleiðenda. Stjórnin bejnir því tíl neytenda að Iáta DV-rit- stjórann ekki blekkja sig nú frek- ar en endranær því í eggjamálum hefur hann skotið hvað gróflegast yfir markið og er þá mikið sagt. Stjórn Sambands eggjaframleiðenda. Athugasemd ritst jéra: Höfundur umrædds leiðara stend- urviöaUtefnihans. Athugasemd frá stjórn Sambands eggjaframleiðenda

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.