Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1984, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1984, Page 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR 17.JUU1984. Sviðsljósið 15 Sviðsljósið Af heyhleðsluvagninum rúllar heyið að blásara sem blæs því upp i súrheysturninn. DV-myndir: GVA. Þetta er bara vélaakstur — segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, um heyskapinn þar á bæ „Hér er enginn maður þreyttur eftir tíu tíma hirðingu. Þetta er bara véla- akstur hjá okkur,” sagði Olafur Egg- ertsson, bóndi aö Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, er DV-menn heimsóttu hann í heyskapnum fyrir nokkru. Félagsbúið Þorvaldseyri er trúlega eitt vélvæddasta býli landsins. 1 heyskapnum gerir mannshöndin nán- ast ekkert annað en að stjórna vélum. Heykvíslin er þar lítið hreyfð. Bændurnir á Þorvaldseyri hafa mikla trú á votheysverkun og verka um helminginn þannig. „Við teljum það ótvíræðan kost að verka í vothey. Hér notum við enga bagga,” sagði Olafur. „I Noregi í fyrra sá ég menn hiröa í vothey í 25 stiga hita. 1 Noregi eru menn að drepast úr þurrki en samt heyja þeir um 80 prósent í vothey. Á Islandi eru ekki nema 10—11 prósent sem fara í vothey,” sagði Olafur. „Án votheysverkunar væri útilokað að búa svo stóru búi. Það væri ekki séns að ná inn 15-20 þúsund böggum án votheys. Ekki nema meö gífurlegum mannafla og tækjum. Héma erum við fjórir og höfum engar áhyggjur,” sagði Olafur. Þríbýli er að Þorvaldseyri og þar eru ellefu menn heimilisfastir, þar af þrenn hjón. Nautgripir eru alls um 140. Mjólkandi kýr eru milli 60 og 70 talsins. Ærnar eru 200 talsins. Húsakostur er mikill og glæsilegur. Fjósið er nýtískulegt og meira en eitt þúsund fermetrar að flatarmáli. Á bænum er 300 fermetra vélageymsla, tvö íbúðarhús með þremur íbúðum og þrír súrheysturnar. Ræktað land er um 80 hektarar. Á Þorvaldseyri er ræktað bygg. Það er einungis notað í fóðurblöndu fyrir skepnur en þó hefur brauð einstaka sinnum verið bakað úr því. „Fóðurblandan sem við gefum kúnum er 96 prósent íslenskt hráefni. Þar af er byggið okkar 40 prósent,” sagði Olafur. -KMU. Ólafur Eggertsson bóndi. Þau skötuhjú Dolly Parton og Sylvester Stallone þykja hafa staðið sig með slíkum ágætum í myndinni „Rhinestone”, að þau hafa verið beðin um að gera afsteypu af fingrum sínum og tám í steypuna við Hollywood Boulevard... MALSHATTUR DAGSINS Þú þekktir ekki \ I hann Þórð í Krók. Tvíburar eina ferðina enn Á myndinni má sjá hana Mariu Moreira sem búsett er i Rio de Janeiro i Brasiiiu. Maria þessi var 18 barna móðir áður en hún eignaðist þessa tvo stæitu drengi. Hvað er svo merkiiegt við tuttugu barna móður suður í Brastöu? ÖU bömin, sem hún hefur eignast. eru tviburar, þ.e. tíu tvburar. Það hlýturað teljast heimsmet i tviburaeign. Feitur og pattaralegur á ferð með dóttur sinni, Jamie Lee Curtís. Hitt og þetta umTonyCurtis Hinn atvinnulitli leikari Tony Curtis er nú orðinn 59 ára. Á þessum löngu árum hefur hann staðið í ýmsu. Hann hefur þrívegis gengið í hjónaband, eignast sex böm, leikið í 109 bíómyndum og átt í fleiri ástar- ævintýrum en Barbara Cartland næði að skrifa um þó hún næði 150 ára aldri. Fyrir skömmu var hann staðinn að verki við það fyrirlitlega athæfi að ljúga því að blaðamönnum að hann hefði gift sig í fjórða sinn. Þetta reyndist lygaþvæla frá upphafi til enda og kenndu menn hóflausu piparsveinslífi leikarans um þetta raus. Eins og allir vita þá hefur hann kastað hinni 21 árs gömlu Andriu Savio á dyr, hirt af henni allar gjafir sem hann gaf henni og meinar henni einhverra hluta vegna aögang að fötunum hennar. Sagnaritarar sem fært hafa þessa raunasögu í letur staðhæfa að meðan hann gekk með grasið í skónum á eftir Andreu hafi hann verið að dandalast með fimm öðrum konum. Ein þeirra var Soraya Khasoggi, fyrrverandi eiginkona vopnasalans góðkunna, Ádnan Khasoggi. Þrátt fyrir það að Curtis legði sig allan fram i síðasta hjónabandi sinu þá var það ekki nóg og heimtaði konan skilnaö 1981. Curtis sagöi aö hann hefði gert sitt besta og það væri allt of mikið gert úr þeim atvikum þegar hann henti henni niður stiga, otaöi að henni dýrmætum gripum úr byssusafni sinu og hótaöi henni nokkrum sinnum lífláti. Þegar skilnaðurinn var genginn í gegn sagði leikarinn að hann gæti bara ekki lifað án kvenna. I hugljúfu viðtali, sem tekið var við hann fyrir skömmu, sagði hann um kvennamál sín: „Veistu hvað,” sagði Curtis og strauk sér um kjammann. „Það eina sem ég hef þráð allt mitt líf er konufótur til að halda utan um.” 1943: Tony 1980: Kominn Curtis, 18 ára i á fullt skrið hernum. niður á við. 1950: I upphafi 1981: Trúða- ieikaraferiis- búninga- >ns. tímabilið.- 1966: Gljá- greiddur töffari sem gerir það gott. 1983: Vel varð- veittur i vinanda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.