Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1984, Qupperneq 27
DV. ÞRIÐJUDAGUR 17..JUU 1984.
27
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Sumir borJa bara hýðið.
Sælkeri
Eitt sinn sótti íslendinga
heim heimsfrægur sælkeri og
vínsmakkari sem getið hafði
sér gott orð víða um lönd
vegna sérstæðrar þekkingar
sinnar og smekks. Var hann
fenginn til að halda fólki
veislu þar sem hann sjálfur
valdi það sem fram var borið
og þótti ýmsum réttirnir
skrýtnir bæði hvað varðaði
útlit og bragð. Að veisiu lok-
inni spurði einn gestanna sæl-
kerann hvort hann borðaði
banana eins og venjulegt fólk
og ekkl stóð á svarinu hjá
þeim heimsfræga: — Já, en
aðeins hýðlðí
0.0.0.0.0
Nú þegar styttlst í ólympiu-
ieikana i Los Angeles fara
menn að rifja upp skemmti-
sögur frá Moskvu þar sem
ieikarnir voru haldnir síðast.
Ein er á þá leið að Bresnjeff,
þáverandi valdamaður í
Rússlandi, hafi ætlað að
halda ræðu af einhverju
ólympiutilefnl. Urðu menn
hissa er hann hóf mál sitt þvi
ekkert heyrðist nema:
0,0,0,0,0!
Ástæðan var sú að ræðan
var skrifuð á bréfsefnl
ólympíunefndarinnar en þar í
haus eru sem kunnugt er
fimm hringir.
Bridge í
Gufudal
t skólahaldsskýrslu sem
Fræðsluskrifstofa Vest-
fjarðaumdæmis hefur sent
frá sér er m.a. fjallað um
skóiahald i Gufudalshreppi.
Þar voru nemendur aðeins 4
og skólastjóri einn. Þá segir:
„Vegna aðstöðuleysis og
fæðar nemenda var félagslif
fábrotlð i skólanum og spila-
kvöld hvert fimmtudags-
kvöld... ”
Þeir hafa rétt náð einni
rúbertu í bridge.
Hrökkbrauð
A kaffistofu hér í bæ voru
trúmál til umræðu eins og
gengur og nokkrar eldri kon-
ur bneyksluðust á þeim prest-
um sem ekki vildu þiggja
hvaða brauð (prestaköll)
sem er. GeUur þá við í einni:
„Eru það ekki hálfgerð
hrökkbrauð.”
Úr Firðinum
Hvernig má þekkja Hafn-
firðinga sem vinna á oUubor-
pöUum í Norðursjó?
—Þeir henda alltaf brauði í
sjóinn þegar þyrlurnar
nálgast.
En hvernig er hægt að sjá
að þyrluflugmennirnir séu
líka úr Hafnarfirði?
— Þegar þyrlurnar stinga
sér eftlr brauðinu.
Tebolli
Atvinnuleysi getur átt sér
margar orsaklr eins og
kunnugt er. AUa vega fékk
ung stúlka, sem tekið hafði að
sér að kenna breskum sendi-
ráðsmönnum ísiensku, að
kynnast því svo um munaði
og sannaðist þar hið forna
enska spakmæU að margt er
erfiðara en drekka teboUa.
Unga stúlkan var ekki búin
að kenna einum starfsmann-
anna nema í örfá skipti þegar
hringt var til hennar og henni
tjáð að ekki yrði meira úr
kennslunni þar sem Bretinn
hefði fengið hjartaáfaU og
verið sendur express tU sins
heima. Aftur á móti væri ann-
ar Breti sem hægt væri að
byrja kennslu strax. Stúlk-
an hélt áfram en aUt fór á
sömu leið. Það var hringt og
henni sagt að nýi nemandinn
hefði líka fengið fyrir hjartað
og væri á bak og burt.
Síðan hefur stúikan ekki
sóst eftir islenskukennslu i
sendlráðum.
Umsjón: Eiríkur Jónsson.
SJAJ A-A/Ðt TECUhJö
Un SJ'ALFA Siq*
Haröur árekstur varð á mótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar á sunnudag er þar skullu saman
tveir fólksbílar en annar þeirra hafnaöi uppi á umferðareyju við áreksturinn. Slys á fóiki voru ekki alvar-
leg. DV-mynd S.
Athugasemd
Það er rangt að Þjóðviljinn hafi
neitað að birta grein Guðmundar
Einarssonar. Þegar blaöinu barst
greinin hafði hann birt tvær samhljóða
greinar í Morgunblaöinu og DV fáum
dögum áður og fannst Þjóðviljanum
því ekki rétt að birta sömu greinina í
þriöja sinn. Fyrir viku var Guðmundi
gefinn kostur á því að birta greinina á
ný þar sem þá væri liðinn mánuður frá
_þvíaðhinar greinarnar höfðubirst og
óskaði hann þá eftir því að fá handritið
sent svo hann gæti skoðað það betur og
gert á því einhverjar breytingar.
Þjóðviljinn var því reiðubúinn að birta
greinina og hafði gert ráð fyrir því að
fá hana frá Guðmundi Einarsyni
innantíðar.
Ólafur Ragnar Grimsson.
YID GETUH
LETTMRSPORIN
OG AUDVELDAD t>ÉR FYRIRHÖFN
• Afsöl og sölutilkynningar bifreiða
• Húsaleigusamningar (löggiltir)
• Tekið á móti skriflegum tilboðum
Við viijum vekja athygli á að þú getur látið okkur sjá
um að svara fyrir þig símanum. Við tökum á móti
upplýsingum og þú getur siðanfarið yfir þær í góðu tómi
virka daga kl. 9—22
OPIÐ: laugardaga 9—14
sunnudaga kl. 18—22
Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og
þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9—17.
SÍMINN ER 27022.
ATHUGIÐ
Ef smáauglýsing á að birtast í helgarblaði
þarf hún að hafa borist fyrir kl. 17föstudaga.
SMÁAUGLÝSINGADEILD,
ÞVERHOLT111, SÍMI 27022.