Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Side 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST1984. Mikill fjöidi var saman kominn i brekkunni á iaugardaginn enda sól og blíða. í baksýn sjást hústjöld Eyja- skeggja og tjörnin góða sem freistaði margra hátiðargesta. DV-myndir: SJ. Þjóðhátíðin í Eyjum: „STÆRSTA ÞJÓÐHÁTÍÐ SEM ÞÓR HEFUR HALDIД —■ segir Þór Vilhjálmsson Þórari Gestir þjóðhátíöarinnar í Eyjum fengu svo sannarlega gott sýnishom af veðurtilbrigðum nú um helgina, þar var þoka, sólskin og hellidemba. Há- tíðin fór þó vel fram þrátt fyrir að sól- skinið væri í minna lagi. Dalurinn var fagurlega skreyttur, brúin á sínum stað svo og hin sérkennilegu hústjöld Eyjamanna. Alls munu hafa verið ná- lægt sex þúsund manns í dalnum þegar mest var og töluvert meira var af aökomutjöldum nú en í fyrra. Dagskrá þjóðhátíöarinnar var með nokkuö heföbundnu sniði, dansað var á tveim pöllum öll kvöldin fram eftir morgni. Kveikt var í bálkestinum á Fjósakletti á föstudagskvöldið og það var að sjálfsögðu Sigurður Reimars- son brennukóngur sem sá um það. Þoka var yfir Eyjunum en rigningar- laust. A laugardagsmorgun létti svo til og sólin skein fram eftir degi. Það var nóg við að vera fyrir gesti hátíðarinnar því á stóra pallinum var f jölbreytt dag- skrá fram að kvöldmat. Þar komu meðal annars fram Hálft í hvoru, Bjartmar Guðlaugsson, HLH-flokkur- inn, Hljómsveit Stefáns P. og Brúöu- bíllinn. Eftir kvöldmat var kvöldvaka meö fjölbreyttri dagskrá, eitt vinsælasta atriðið er brekkusöngurinn og tóku menn hraustlega undir, ekki síst þegar þjóðhátíðarlagið, Ástin bjarta eftir Ása í Bæ, var kyrjað. Flug- eldasýning var á miðnætti og fóru margar hrifningarstunur um áhorf- endaskarann þegar flugeldarnir lýstu upp dalinn. Það var eins og veðurguöimir hefðu vaknað upp af værum blundi við sýninguna og ákveöið að hella hraustlega úr fötum sínum yfir þjóöhátíðargesti. Þeir létu það þó ekki aftra sér frá því að dansa fram eftir morgni og fóru menn bara í regn- gallann góöa sem aldrei má gleyma þegar f arið er á útisamkomur. A sunnudaginn var dumbungur yfir Eyjunum þó svo að fólkið í dalnum væri enn hið hressasta. Eftir hádegið var skemmtun á stóra pallinum auk þess sem tívolúð, mini golf og fleira var í gangi. Að vanda var svo varöeldur og brekkusöngur umkvöldið áður en lokadansleikur þjóöhátíöar- innarhófst. Þór Vilhjálmsson, formaður þjóðhá- tíðamefndar, lét ekki sitt eftir liggja við að halda svæðinu hreinu en við það naut hann aðstoðar Þórara sem sáu um þjóöhátíðina aö þessu sinni. Hann var í óðaönn að sópa þegar við ónáðuðum hann á sunnudag og spurðum hvernig honum fyndist haía tekist til. „Þetta er líklega stærsta þjóðhátíð sem Þór hefur haldið og hefur hún farið vel og áfallalaust fram. Mikil og góö gæsla hefur verið á svæðinu og vom þeir gestir sem vom vanbúnir fluttir inn í bæ þegar mest rigning var í nótt, hátt á þriðja hundr- að manns. Vil ég þakka gestum þjóöhátíðar fýrir komuna og starfs- fólki fyrir vel unnin störf,” sagði Þór og skundaði á brott með kústinn. Eins og fyrr sagði stóð þjóðhátíö Eyjaskeggja fram á aðfaranótt mánudags og er ekki vitað um nein meiriháttaróhöppþar. -SJ. Klakabandið nefnir þessir hópur sig en klæðnaður hans vakti athygli vegna skrautlegrar litasamsetningar, en gallarnir voru bleikir og grænir. Eina markmið þessa hóps mun vera að halda hópinn og skemmta sér saman. Þegar sólin birtist á laugardag voru menn ekki lengi að rífa sig úr að ofan að minnsta kosti en sú sæla stóð stutt þvi um kvöldið og nóttina gerði steyplregn. Ási i Bæ lót sig ekki vanta á þjóðhátið frekar en fyrri daginn en hann samdi þjóðhátiðarlagið að þessu sinni sem heitir Ástin bjarta. í dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari Steingrímur í kúrekaleik Eins og flestum mun nú kunnugt fór Steingrímur Hermannsson vestur um haf um það leyti sem demókratar héldu flokksþing sitt í Los Angeles. Denni vildi heilsa upp á Framsóknarflokkinn sinn vestra, eins og gefur að skilja, og minna á að hann væri formaður Framsóknar- flokksins en ekki Mondale. En íslenski forsætisráðherrann lét ekki þar við sitja. Hann átti önnur erindi í L.A. Strax og ólympíuieikamir vom settir í borginni kom í ljós, að Denni var enn á staðnum og meira að segja í sjálfri heiöursstúkunni. Mátti heldur ekki minna vera aö formanni ameríska Framsóknarflokksins yrði sýndur viðeigandi heiður þegar sjálfir ólympíulelkarnir em settir. Síðan þetta gerðist hafa borist fréttir frá L.A. jöfnum höndum af íþrótta- fólkinu og Steingrími og má ekki á milli sjá hverjir em meir í sviðsljós- inu. Skiimerkilega hefur verið tíundaö hvaða leiki og keppni Steingrímur sækir, hvaða veislu honum er boðið til á milli þess sem ráðherrann tjáir sig um útgerðarvandann og launa- kröfur BSRB og vaxtafrelsið og við- skiptahallann. Fer að vera spuraing hvort ekki sé hægt að fjarstýra islensku rikisstjóminni frá L.A. í framtiðinni, sérstaklega þegar for- sætisráðherra landsins er óneit- anlega mun meira i sviðsljósinu vestra heldur en hér uppi á skerinu. Atbeini Steingrims vestra í ólympíuþorpinu hefur leitt til þess, áð ýmsir em farnir að halda að Steingrímur sé einu af íslensku þátt- takendunum og spyrja hvaða lág- marki Steingrímur hafi náð i þvi skyni. Því er hins vegar til að svara að lágmarksgeta Steingríms er víð- kunn og óþarfi að hafa hana i flimt- ingum. Lágmörkin sem Steingrimur hefur sett sér um ævina bafa að minnsta kosti dugað honum til að verða forsætisráðherra og geri aðrir betur miðað við þær lágmarkskröfur sem þjóðin gerir til Denna. Þær era ekki miklar, og þess vegna skilur maður vel að ráðherrann standl í þeirri meiningu að hann hafi unnið sér rétt til þátttöku í ólympiuleikum. Nú fyrir heigina mætti Steingrimur í grísaveislu með fyrir- mönnum vestra með kúrekahatt á höfði. Tók hann sig vel út og ekki síður en JR í öllu sinu Dallasveldi. Nýlega var haldin kántríhátíð á Skagaströnd, hinni islensku Dallas, undir forystu Hallbjarnar kántri- söngvara, og þar báru þátttakendur kúrekahatta. Þetta hefur Steingrímur frétt vestur um haf, og kúreki eins og Denni, sem veit að fylgi Framsóknarflokksins er ekki minna norður í Dallas heldur en í hinu villta vestri, getur ekki verið þekktur fyrir annað en að fara að for- dæmi Hallbjarnar. Hann getur ekki látið óbreyttan kántrísöngvara slá sér við þegar um það er að ræða að vera krýndur kántríkóngur frá tslandi. Og með allri virðingu fyrir Halibirni, á Steingrímur það inni hjá þjóðinni að hljóta þá útnefningu að vera mestur kántrikónga af núlifandl mönnum. Ekki síst eftir að Johnny Wayne and- aðist. Hins vegar kemur vel til greina fyrir Hallbjöra að bjóða til annarrar kántríhátíðar og hafa þar ráðherr- ann til sýnis með hattinn. Þegar að er gáð em þeir alls ekki svo ósvipaö- ir, Hallbjörn, Denni og JR. En Denni hefur það fram yfir hina að hann er löggiltur kúasmali í Framsókn. Við getum alténd huggað okkur við það, tslendingar, þótt íþróttafólkinu gangi misjafnlega, að viö eigum for- sætisráöherra sem hefur slegið í gegn í L.A. Réttur maður á réttum stað. Húrra fyrir Dennamcð hattinn! Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.