Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Side 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGUST1984.' 5 NISSAN STANZA 1800 GL DAUFLEGT A LAUGUM Þessir strákar keyptu sér pakkann góða sem dugði skammt og sátu þeir því á Reykjavíkurflugvelli og vönduðu pakkasölumönnum ekki kveðjurnar. „Við komumst aldrei að iandganginum, hvað þá um borð, þetta var aigjör della allt sam- an." DV-mynd: S.J. Ferðafólk í vandræðum: Herjólfur yfirfullur — margir, sem höfðu keyptfartil Eyja, komust hvergi „Veöriö skapaði vandamálið,” sagöi Engilbert Gíslason, forstjóri Feröa- skrifstofu Vestmannaeyja, þegar hann var inntur eftir því hvers vegna gestir á þjóðhátíðina, sem þegar höföu keypt sér miða, voru skildir eftir á bryggjunni í Þorlákshöfn á föstudag. Ferðaskrifstofan hafði útbúið sérstak- an pakka sem í fólst ferð til Þorláks- hafnar með Herjólfi og inn á þjóðhátíð- ina. Mikið öngþveiti myndaðist við land- gang Herjólfs og virtist lítil sem engin stjóm vera á því að þeir sem áttu miða gengju fyrir. Þegar báturinn fór full- hlaðinn frá bryggjunni var fólkinu vísað á Flugleiðir þar sem útlit var fyrir að flogið yrði til Eyja um kvöldið. Svo fór þó ekki, þar sem mikil þoka var í Eyjum, árangurslausar tilraunir voru gerðar. Hátt á fjórða hundrað manns voru á flugvellinum í Reykjavík um kvöldið, margir komu frá Þorlákshöfn en aörir áttu pantað f lug. Mikil óánægja var meðal þeirra sem höfðu keypt sér pakka með löngum fyrirvara en voru svo skildir eftir. Að sögn Engilberts hafði hann ekki ná- kvæma tölu yfir hversu margir heföu keypt sér pakkann þeirra og vildi hann ítreka að ef flugið hefði ekki brugðist þá hefði þessi staða ekki komið upp. ________________________SJ „Bíðum eftir svörum” „Viö bíðum eftir svörum við þessum orðsendingum og þangað til get ég ekk- ert sagt um frekari aðgeröir,” sagöi Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra, aöspuröur um hver yrðu næstu skref íslenskra stjórnvalda vegna loönu- veiöa Dana á Jan Mayen svæðinu. „Af augljósum ástæöum vil ég ekk- ert segja um viðbrögö Norömanna vegna tilkynningar okkar um að veiöi- magn Dana verði dregið frá þeirra kvóta. Það verður að koma í ljós,” sagðiGeir. ás Laugahátíð var daufleg þrátt fyrir veðurblíðu í Reykjadalnum. Á henni voru varla fleiri en 700 til 1000 gestir, mest unglingar á aldrinum 12 til 15 ára. ölvun var nokkuð áberandi, sér- staklega á föstudagskvöld. Helst lifnaði yfir liðinu á fjölskylduhátíö Sumargleðinnar á sunnudag. Iþrótta- húsið fylltist þá og stemmning var mjög góð. Sumargleðin gerði víðreist norðanlands um helgina, var í Sjallanum á föstudagskvöld, Skjól- brekku í Mývatnssveit á laugardags- kvöld, Laugum og Skúlagaröi í Kelduhverfi á sunnudag og aftur í Sjallanum í gærkvöldi. Mikill fjöldi fólks dvaldi í Vagla- skógi um helgina, líklega á þriðja þúsund manns, mest fjölskyldufólk, sem slappaöi af, naut blíðunnar og grillaöi við tjöldin. Á Melgerðismelum í Eyjafirði voru flugáhugamenn með fjölskyldu- samkomu eða , ,fly inn” eins og það var kallað. Þar var fjöldi fólks og flugvéla víðs vegar af landinu. Talið er að í Asbyrgi og Hljóða- klettum hafi verið um fimmtán hundr- uð manns. Þar fór allt hið besta fram, eins og annars staöar þar sem fólk safnaöist saman á Norðurlandi. -JBH Akureyri/-KÞ. Laugahátíðin var I daufara lagi. Þar voru samankomin milli 700 og lOOO manns, flest unglingar á aldrinum 12 tH 15 ára. Á stærri myndinni skemmtir Sumargleðin gestum i íþróttahúsinu. Á innfeiidu myndinni eru unglingarað leik. DV-myndir JBH FYRIR ÞÁ SEM GERA KRÖFUR - MISKUNNARLAUSAR KRÖFUR Nissan Stanza er bíll þeirra sem gera ekki bara kröfur um fegurð, þægindi og endingu eins og flestir láta sér nægja, heldur gera líka miskunnarlausar kröfur um mikinn kraft, óaðfinnanlegan frágang og síðast en ekki síst að bíllinn hafi þetta alveg sérstaka sem ekki er hægt að skýra og aðeins örfáir bílar í heiminum hafa. Einn þeirra er Nissan Stanza, framhjó/adrifinn, 5 gíra, með geipiskemm tilegri 1800 cc vél. BíH sem veitir þér miklu meira en bara að komast frá einum stað til annars. VERÐ KR. 397.000,- ,FJÖLBREVTNIN MEST OG KJÚRIN BEST bíta uppinýja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.