Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Síða 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGUST1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
SAKHAROV HÆTTUR
í HUNGURVERKFALLI?
Vinir sovéska andófsmannsins
Andrei Sakharov sögöu í gær aö hann
væri hættur í hungurverkfalli en
honum væri haldið á sjúkrahúsi gegn
viljasínum.
Vinir Sakharovs, sem ekki voru
nefndir á nafn, segjast hafa fengið
stutta orösendingu frá eiginkonu
andófsmannsins, Yelenu Bonner, þar
sem hún skýrir frá þessu. Sögöu vin-
Shimon Peres, formaður Verka-
mannaflokksins í ísrael, kveöst
vera bjartsýnn á aö sér takist að
mynda þjóöstjórn. Hann hefur 42
daga til aö mynda starfhæfa ríkis-
stjórn.
irnir jafnframt aö samkvæmt orðsend-
ingunni væri Sakharov viö góða heilsu.
Sakharov hóf hungurverkfall sitt 2.
maí síðastliðinn til aö mótmæla því aö
konu hans væri ekki heimilað aö leita
sér lækninga á Vesturlöndum.
Ekki var hægt að ráöa af orðsend-
ingu Bonners hvort matur heföi verið
neyddur ofan í Sakharov en fréttir um
slíkthafa borist.
»---------------)
Vinir sovéska andófsmannsins
Andrei Sakharov segjast hafa fengiö
skeyti frá konu hans þar sem skýrt
sé frá því aö hann sé hættur í
hungurverkfalli og við góða heilsu.
Slógu hring
um Akropolis
Friöarsinnar mynduöu keöju í kring-
um Akropolishæö í Aþenu meö því aö
dreifa sér í hring í kringum hæöina og
haldastíhendur.
Ráöstefnu 14 evrópskra samtaka,
sem berjast gegn kjarnorkuvopnum,
lauk í Aþenu um helgina. Hún var
haldin til að minnast 39 ára afmælis
kjarnorkusprengingar Bandaríkja-
manna á borgina Hiroshima í Japan.
I ályktun ráöstefnunnar segir að
samtökin muni gera allt til þess að
„eyða ógnuninni um gereyðingu mann-
kyns í kjarnorkustyrjöld”. Þaö voru
gestgjafamir, grísku friöarsamtökin
sem styöja sósíalista, sem sömdu
ályktunina, en þátttakendur voru bæöi
frá Austur-og Vestur-Evrópu.
Ágreiningur kom upp á síðasta degi
ráöstefnunnar um hvort bjóöa skyldi
samtökum sem fylgja Sovétmönnum
að málum til framhaldsráöstefnu í
Aþenu í desember næstkomandi.
Dönsku og belgísku fulltrúarnir fóru
fyrir þeim sem andmæltu því aö sovét-
sinnuöum samtökum yröi boöiö til ráö-
stefnu enda teldist hún ekki hlutlaus ef
svo væri aö málum staöiö. Málamiðl-
unartillaga Grikkja náöi fram aö
ganga en samkvæmt henni er hverju
landi í sjálfsvald sett hvaöa samtök
mæta til leiks í desember.
Peres biartsýnn
Sbimon Peres, formaöur Verka-
mannaflokksins í Israel, sagöi í gær aö
hann væri hóflega bjartsýnn á aö sér
tækist aö mynda þjóöstjórn í landinu
meö þátttöku Likudbandalagsins.
Forseti Ísraels, Chaim Herz, hefur
gefið Peres umboö til aö mynda ríkis-
stjórn og fær hann 42 daga til verksins.
Peres lét þessi ummæli falla eftir aö
hafa átt fund meö Yitzhak Shamir, for-
sætisráöherra og formanni Likud-
bandalagsins. Peres og Shamir neit-
uðu aö skýra nánar frá viðræðunum.
Hvorugur þeirra er talinn vilja eiga
sökina á því að upp úr þjóöstjórnar-
viðræðum slitni því skoöanakannanir
Rauðahafið:
LOGÐU IRANIR
TUNDURDUFUN?
benda til aö yfirgnæfandi meirihluti
kjósenda sé fylgjandi slíkri stjórn.
Hugsanlegt er talið aö Peres og
Shamir skiptist á um aö gegna for-
sætisráöherraembætti ef samningar
takastmeð þeim.
Möguleikar Peres á myndun
stjórnar eru taldir hafa aukist í gær
þegar Yosef Burg, leiðtogi Þjóölega
trúarflokksins, lýsti því yfir aö hann
heföi áhuga á þátttöku í þjóöstjórn.
Flokkurinn fékk fjóra þingmenn
kjöma í kosningunum í síöasta
mánuöi.
120 fulltrúar eiga sæti á ísraelska
þinginu og fékk Verkamannaflokkur-
inn 44 þingmenn kjörna en Likud-
bandalagiö 41 þingmann.
Andófsmenn í Júgóslavíu
Egypskir tundurduflaslæöarar voru
viö leit á Rauöahafinu í gær eftir að
stjórnvöld í Egyptalandi höföu ráöfært
sig viö stjórnir Bandaríkjanna, Bret-
lands og Frakklands. Aö minnsta kosti
12 skip hafa oröiö fyrir tjóni af völdum
tundurdufla á einum mánuöi á Rauða-
hafinu og Suezskurðinum.
Varnarmálaráöherra Egyptalands,
Abdel-Halim Abu-Ghazala, sagöi í
gær aö ekki væri vitaö meö vissu
hverjir heföu lagt duflin en tvö ríki
væru þó sterklega grunuö. Hann neit-
aði aö gefa upp hvaöa ríki þetta væru.
Hins vegar sagöi Ghazala að ekki væri
ólíklegt aö tundurduflin stæöu í sam-
bandi viö stríö Irans og Iraks og gaf
þar meö í skyn að Iranir væru aö refsa
Egyptum og fleiri arabaríkjum fyrir
stuðning viö Iraka.
Bandaríkjamenn sendu um helgina
15 sprengjusérfræöinga til aö aðstoða
Egypta viö leitina aö tundurduflunum.
Til greina hefur komiö aö Bandaríkja-
menn sendi þyrlur til Egyptalands, og
eru þær sérstaklega útbúnar til leitar
aö tundurduflum.
Sex menn voru ákæröir í Belgrad í
gær fyrir samsæri sem miðaði aö því
aö bylta kommúnistastjórn Júgó-
slavíu, aö sögn fréttastofu þess opin-
bera. — Eiga þeir yfir höföi sér frá
fimm til fimmtán ára fangelsi, en ekki
hefur veriö ákveöiö hvenær málflutn-
ingurfer fram.
Er þeim gefiö aö sök aö hafa staðið
að myndun samtaka og aö hafa staöiö
fyrir fundarhöldum, þar sem þeir
veittust aö stjórnskipulagi landsins í
eyru annarra.
I apríl í vor réöst lögreglan inn á
fund, sem 28 menntamenn höföu sótt, í
íbúö einni í Belgrad, en þar flutti
andófsmaöurinn Milovan Djilas fyrir-
lestur. Allir mennirnir voru fluttir á
lögreglustöðina, en látnir lausir aftur.
Sex þeirra voru síöan handteknir aftur
23. maí.
Þrír þessara manna fóru í hungur-
verkfall og linntu ekki fyrr en þeir voru
enn látnir lausir (3. júlí).
Sjöundi maðurinn, félagsfræöingur
að nafni Vojislav Seselj (29 ára), var
meöal þeirra 28, sem upphaflega voru
handteknir á fundinum, en hann var, í
síðasta mánuöi, dæmdur í Sarajevo í 8
ára fangelsi fyrir gagnbyltingarstarf-
semi.
Leikarinn Riehard Burton lést á
sjúkrahúsi í Sviss á sunnudag, 58 ára
aö aldri.
Richard Burton var einn þekktasti
kvikmynda- og leiksviðsleikari
heims um áratuga skeið.
Burton hét réttu nafni Richard
RICHARD BURTON LÁTINN
Richard Burton á sviði sem Arthur
konungur í „Camelot”.
Jenkins og fæddist í litlu þorpi,
Pontrhydfen, í Wales áriö 1925. Hann
var næstyngstur 13 systkina, sonur
kolanámumanns. Ungur aö árum
komst hann í kynni við leiklist fyrir
milligöngu kennara síns Philips
Burtons og tók síöar upp eftirnafn
hans til heiðurs honum. Burton tók
háskólapróf frá Oxford og eftir her-
þjónustu hóf hann leikferil sinn.
Hann náöi skjótt árangri á leiksviði,
einkum fyrir túlkun sína á Shakes-
pearehlutverkum. Heimsfrægur
varö hann sem kvikmyndaleikari í
Hollywoodmyndinni ,,My cousin
Rachel” þar sem hann lék á móti
Olivia de Havilland áriö 1952. Af ótal
frábærum myndum sem hann hefur
leikiö í má nefna Equus, Look back
in anger, Who’s afraid of Virginia
Woolf?, The desert rats, Cleopatra,
The robe. Svo og aðalhlutverk í sjón-
varpsþáttum um Winston Churchill
og Richard Wagner.
Burton átti þó leiksviðsframa
sínum aö litlu leyti aö þakka heims-
frægö sína. Ofsafengiö líferni hans,
drykkja, dufl og ástir varö honum
ekki síöur til f rægöar.
Viö töku myndarinnar Kleópötru
kynntist hann leikkonunni Elísabetu
Taylor og varö ástarsamband þeirra
uppáhaldsumræöuefni slúöurkerl-
inga um áratuga skeið. Hann skildi
við fyrstu eiginkonu sína til að ganga
aö eiga Taylor áriö 1964. Burton og
Taylor skildu árið 1974 en giftust á ný
ári síðar en þaö hjónaband fór sömu
leiö og þaö f yrra eftir árið.
Burton kvæntist Sally Hunt, fyrr-
um eiginkonu heimsmeistara í kapp-
akstri, eftir síðari skilnaðinn viö
Taylor en þaö hjónaband varði
skamma stund.
I fyrra kvæntist hann eftirlifandi
konu sinni, Sally Hay.
Framlagi Burtons til leiklistar-
innar verður ef til vill best lýst með
oröum sir Laurence Olivier sem
hann mælti viö Burton ungan: „Gerðu
upp hug þinn, Richard, hvort þú vilt
aö nafn þitt verði á hvers manns
vörum eöa hvort þú vilt veröa
stórkostlegur leikari.” Segja má aö
Burton hafi valið fyrri kostinn en
engu að síður nægir frammistaða
hans, er best lætur, honum til aö veröa
talinn meö bestu kvikmyndaleikur-
umallratíma.
Stórmeistarar leiklistarinnar
hörmuöu dauöa Burtons um helgina.
Má þar nefna John Gielgud og
Laurence Olivier sem kváöu þar
góðan mann hafa farið sem enn átti
eftir aö láta kveöa aö sér.
Elizabeth Taylor, fyrrum
eiginkona Burtons, var harmi slegin
yfir fráfalli leikarans og foröast
fréttamenn.
Richard Burton hefur síðustu viku
leikiö í kvikmynd sem gerö er eftir
sögu George Orwell, 1984, og leikur
hann aöalhlutverkiö í þeirri mynd á
móti John Hurt.
Ástir Burton og Elizabeth Taylor uröu þeim ekki síður til frægðar en frammi-
staðan á hvíta tjaldinu.