Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Qupperneq 44
FRETTASKOTIÐ
687858
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 1984.
Annar ökumannanna slasaðist það
mikið að flytja þurfti hann flugleiðis
á Borgarspítalann í Reykjavík.
DV-mynd: S.
Alvarlegt umferðarslys
á Möðrudalsöræfum:
Áttaá
slysadeild
Alvarlegt umferðarslys varð á
föstudag á Möðrudalsöræfum, skammt
frá Grimsstöðum á Fjöllum. Átta voru
fluttir á s júkrahús, þar af einn í f lugvél
á Borgarspítalann í Reykjavík.
Það var klukkan 16.42 að lögregl-
unni á Húsavík barst tilkynning um
slysið. Höfðu tveir bílar rekist saman,
báöir á allmikilli ferð. Sex farþegar
voru í bílunum, auk ökumanna. Var
annar ökumannanna fluttur í flugvél á
Borgarspítalann í Reykjavík, fjórir,
hjón meö tvö böm, voru fluttir á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri og þrír á
sjúkrahúsiö á Húsavík. Munu allir
vera vei á batavegi. Þrír af fjórum
sem sátu í framsætum bifreiðanna
voru með bílbelti og er taliö að það hafi
bjargað því sem bjargað varð. Eru bíl-
arnir handónýtir eftir.
LUKKUDAGAR
4. ágúst
33703
FERÐAÚTVARPFRÁ
í FÁLKANUM AÐ VERÐMÆTI
KR. 12.000.-
5. ágúst
40761
SKÍÐI FRÁ FÁLKANUM
AÐ VERDMÆTI
KR. 10.000.-
6. ágúst
18359
FLUGVÉLAMÓDEL
FRÁ I.H. AÐ VERÐMÆTI
KR. 650.-
7. ágúst
35702
LEIKFANGAVIRKI
FRÁ I.H. AÐ VERÐMÆTI
KR. 1000.-
Stórþjófnaður í Lyf jabúðinni Iðunni:
Stálu lyfjum fyrir
tugi þúsunda króna
Brotist var inn i Lyfjabúðina Iö-
unni aðfaranótt mánudags og stoliö
þaðan lyfjum og unnin skemmdar-
verk fyrir tugi þúsunda króna að
sögn rannsóknarlögreglunnar. Tveir
menn hafa verið handteknir vegna
þessa máls.
Það var snemma í gærmorgun aö
lögreglan stöðvaöi bíl vegna gruns
um að ökumaður væri undir áhrifum
áfengis. Reyndust þrír unglingar í
bílnum og í fórum þeirra fannst
mikið magn af lyfjum, allt ómerkt.
Voru unglingarnir færöir til yfir-
heyrslu og á meðan verið var að
kanna það mál, var tilkynnt um inn-
brot í Lyf jabúðina Iðunni.
Þegar þangaö var komið höfðu
mikil skemmdarverk verið unnin
þar og stolið miklu af lyf jum, einkum
valíum og öðrum róandi og verkja-
deyfandi lyfjum. Reyndust lyfin í
fórum unglinganna vera úr Iðunni.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar
er ekki vitað nákvæmlega hve miklu
magni af lyf jum hefur verið stolið úr
Iðunni, en ljóst er þó aö það er mikið.
Síðdegis i gær voru svo tveir menn í
haldi vegna þessa máls. Munu það
vera tveir af þeim þremur, sem voru
í bílnum, er áður er nefndur. Hófust
yfirheyrslur yfir þeim í gærkvöldi,
og skyldi þeim fram haldið í dag.
-KÞ
Á ofsahraða frá Kefla-
vík til Reykjavíkur:
Eltingarleik-
ur lögreglu
við ungan
Keflvíking
Ofsalegur eltingarleikur lögreglu
og ungs ökumanns úr Keflavík átti
sér stað aöfaranótt mánudags. Hófst
eltingarleikurinn í Keflavík, eftir að
ungi maöurinn sinnti ekki stöðvunar-
merki lögreglu, og lauk við Kringlu-
mýrarbraut í Reykjavík. Til allrar
mildi slasaöist enginn en nokkrir
bílar skemmdust eitthvað.
Tildrög þessa voru þau að um miö-
nætti á sunnudag var lögreglan í
Keflavík með radarmælingar á
Reykjanesbraut. Kom ungi maður-
inn þar að á mikilli ferð. Sinnti hann
ekki merki lögreglunnar um að
stöðva bifreið sína. Ok hann á ofsa-
hraða sem leið lá eftir Reykjanes-
braut, eða Keflavíkurvegi, með
Keflavíkurlögregluna á hælunum.
Ok hann í gegnum Hafnarf jörð og fór
þar utan í tvo bíla og síðan áfram í
gegnum Kópavog. Hafði þá bæði
Hafnarfjarðar- og Kópavogslögregl-
anslegistíförina.
Var nú Reykjavíkurlögreglunni
gert viðvart og var komið upp um-
ferðarhindrunum með lögreglubilum
á Kringlumýrarbraut. Þar endaði
för unga mannsins. -KÞ.
Þeir voru ófáir, lögreglumennirnir, sem komnir
voru á hælana á Keflvíkingnum þegar för hans
var stöðvuð við Kringiumýrarbraut i Reykjavik.
Á innfelldu myndinni sóst hvar bíll Keflvíkings-
ins hefur verið stöðvaður, umkringdur lög-
reglubílum. DV-myndir S.
i
i
i
i
í
i
i
i
i
i
i
i
Vinningshafar hringi í síma 20068
Franski sendiherrann í umferðaróhappi:
Boltarnir losnuðu
hjá boltamanninum
í
Franski sendiherrann á Islandi,
Louis Legendre, og frú lentu í um-
ferðaróhappi við bæinn Grímsstaði í
Franski sendiherrann, Louis Le-
gendre, á hvítri skyrtu, krýpur
við bU sinn, lengst til vinstri. Þegar
þessi mynd ver tekin var búið að'
rótta bUinn við og vor verið að
kanna skemmdirnar.
DV-mynd JBH.
Mývatnssveit síðdegis á sunnudag.
Þau sakaði litt en bíllinn skemmdist
talsvert.
Málsatvik voru þau að annað
afturhjól bílsins losnaði af bílnum
með þeim afleiðingum að bíllinn fór
út af veginum og valt út í síki við
vegarkantinn. Orsök þessa eru
ókunn en talið er að boltamir á felgu
hjólsins hafi losnað, enda sendiherr-
annfrægurboltamaöur. -KÞ.