Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1984, Blaðsíða 4
4
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGUST1984.
Svante Janson er séní. Superséní.
Hann tók stúdentspróf aöeins 9 ára,
14 ára var hann kominn með há-
skólapróf í stærðfræði. Eftir þaö
hefur hann bætt tveimur doktorstitl-
um ísafnið, báðum ístæröfræöi.
Hann er sænskur, 29 ára, frá borg-
inni Uppsölum. Árangur hans hefur
aö vonum vakið mikla athygli í Sví-
þjóö. Sænskur blaðamaður tók til
dæmis við hann viðtal nýlega og þá
barst seinni doktorsritgeröin hans í
tal.
Er viötaliö birtist túlkaði blaða-
maðurinn efni ritgeröarinnar svo að
hún væri eiginlega um það að hrækja
mörgum sinnum á stein. Lesendur
rákuuppstóraugu.
Að hrækja á stein?
,,Eg held svei mér þá aö fólk hafi
haldiö í fyrstu að ég hafi ekki gert -
annað í tvö ár en hrækja á stein,”
sagði Svante Janson hlæjandi er viö
röbbuöum saman í Breiðholtinu
skömmu fyrir hádegi í gær.
Hann hefur dvaliö hér á Islandi síð-
ustu tvær vikurnar ásamt unnustu
sinni, Julie White. Megintilgangur-
inn með ferðinni var aö sækja stærö-
fræöiþingið sem lauk í síðustu viku.
Ferðin hefur þó einnig veriö
skémmtiferð, notuð til að skoða land-
ið örlítið.
Talið berst aö því hvenær stærð-
fræðigáfurnar hafi komiö í ljós.
,,Þær uppgötvuðust er ég byrjaði 7
ára í skóla' Ég var þá búinn aö lesa
mér nokkuð til í stærðfræöibókum
móður minnar sem hún notaði á sín-
um tíma í menntaskóla.
Þetta varð til þess að ég fór ekki
þessa heföbundnu skólagöngu eins
og jafnaldrar mínir. Pabbi, sem er
menntaskólakennari í ensku og
sænsku, var mér innan handar við að
sækja tíma í menntaskóla”.
Stúdentspróf 9 ára
„Þau fög sem ég lærði þar voru
efnafræði, stærðfræöi, eðlisfræöi,
náttúrufræði og sænska. Og þetta eru
þær greinar sem ég tók stúdentspróf
í. Ég tók próf í efnafræðinni fyrst, 9
ára, en síðan í hinum fögunum, 10
ára.”
— Hvað sögðu skólasystkini þín í
menntaskóianum er þú birtist
skyndilega í tímum?
„Þau sögðu ekkert, ekki við mig að
minnsta kosti. En þau uröu hissa á
þessuöllusaman.”
Á næsta ári hófst skólanámið,
Svante var þá 11 ára.” Fyrsta vetur-
inn var það meö þeim hætti að ég
sendi bréf í háskólann. Þetta var því
bréfaskólanám. En veturinn eftir, er
ég var 12 ára, hóf ég reglubundiö
nám í háskólanumí Uppsala.”
Meö ákaflega skemmtilegum hætti
segir hann okkur frá því hvers vegna
hann valdi stærðfræði í háskólanum
en ekki efnafræði, eölisfræöi og hin
fögin er hann haföi tekið stúdents-
próf í.
Gat ekki gert verkiegar
tilraunir vegna smæðar
„Eg átti eiginlega ekki annarra
kosta völ. Það var útilokað fyrir mig
að gera verklegar tilraunir þar sem
ég var þaö lítill að ég náði tæpast upp
ítækin.”
Þessari skýringu fylgdi bros. Það
er reyndar áberandi fyrir manninn
hve hann er léttur í lund og þægileg-
uríölluviðmóti.
Við spuröum hvort það heföi haft
áhrif á kunnirigja hans er hann að-
eins 9 ára var byrjaöur aö taka
stúdentspróf á meöan þeir lásu sitt
barnaskólaefni. Hvort hann heföi
einangrast frá ieikfélögumsínum?
j,Nei, sem betur. fer ekki. Við
strákamir lékum okkur saman eins
og gengur og gerist með böm á þess-
um aldri. Viö pössuðum okkur bara á
því að tala lítið um stærðfræði. ”
Lærði 5 ára að lesa
— En hvenær skyldi kappinn hafa
lærtaðlesa?
„Ég held ég hafi veriö um 5 ára er
ég byrjaði að lesa. Það er ekkert
Svante Janson, 29 ára, ásamt unnustu sinni Julie White, 24 ára, i Breiðholtinu í síðustu viku. „Við strákarnir lékum
okkur saman eins og gengur og gerist með börn á þessum aidri. Við pössuðum okkur bara á því að tala lítið um
stærðfræði.” DV-mynd: Bjamleifur.
Svante Janson er séní
— tók stúdentspróf 9 ára, háskólapróf 14 ára
og hefur skrifað tvær doktorsritgerðir í stærðfræði
-
Litlu, hvítu sjálfsmorðssveitirnar:
KINDUR Á STUÐURUM
Frétt DV í gær um háar bætur er
falla bændum í skaut þegar kindur
þeirra lenda í umferðarslysum vakti
aö vonum mikla athygli og þá einkum
vegna þeirrar staðreyndar að bændur
fá miklu meira fyrir fé sitt ef ekið er á
það á þjóðvegum heldur en í slátur-
húsum. Sem dæmi má nefna að vetur-
gömul kind, sem ekið er á, færir bónd-
anum 2.400 krónur í aöra hönd og verð-
launahrútur, sem verður fyrir bíl,
kostar hvorki meira né minna 5.500
krónur. Verölagningin er ákveðin ein-
hliða af Framleiðsluráði landbúnaðar-
ins og að sögn Gunnars Guðbjarts-
sonar er miðað við fallþunga dilka,
afurðaverð og svo bætist við álag
vegna þess að lifandi skepnur eru verð-
meiri en dilkar á krók.
Til allrar hamingju hefur þó dregið
verulega úr umferðarslysum þar sem
kindur eiga í hlut á undanförnum árum
og munar þar mest um hvað girðingar
við þjóðvegi hafa lengst og þést. Einn
starfsmaður Framleiösluráðs lét svo
um mælt í samtali við DV aö aukinn
ökuhraði bifreiöa úti á landsbyggðinni
væri þess valdandi að kindur, sem ekið
væri á, klesstust á stuðarana líkt og
flugur og væru fyrr en varði komnar í
aðra sýslu. Væri þá fátt annað eftir en
hornin.
Ökumenn úti á landsbyggöinni eru
nú mjög á varðbergi gagnvart þessum
verðmiklu kindum, svo ekki sé minnst
á verðlaunahrúta, og nefna sauðfé sín
á milli litlu, hvítu sjálfsmorðs-
sveitirnar.
-EIR.
I dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
Verkamannakjöt til sölu
Þeir eru farnir að selja verka-
mannakjöt á Selfossi. Kaupfélagið á
staðnum auglýsir að það hafi verka-
mannasteik á boðstólum.
Þessi tíöindi vekja þá spurningu
hjá neytandanum hvort kjötið sé af
verkamönnum eða fyrir verkamenn.
Það skiptir auðvitað máli. Ekki aö
kjötið þurfi að vera verra hvort held-
ur er. Neytendur vilja hins vegar
ekki vera að leggja sér til munns
matvæli sem ætluð eru öðrum, eða
þá hitt að yfirleitt þykir almenningi
betra að vita hvað hann ieggur sér til
munns, þegar sérhæft og fágætt kjöt
er komið á markaðinn.
Verkamannakjöt þarf ekki að
vera verra en lambakjöt eða nauta-
kjöt. ísiendingar éta jafnvel hrossa-
kjöt með góðri lyst og raunar er það
aimannarómur að neysluvenjur
landsmanna séu óðum að breytast til
batnaðar. Fjölbreytni, nýjabrum
hvers konar, sérhannaðir réttir njóta
vaxandi vinsælda.
Verkamannakjöt er það nýjasta.
Nauðsynlegt er engu að síður aö fá
upplýst hvort verkamennirnir, sem
notaðir eru til undaneldis, eru sunn-
lenskir eða norðlenskir. Einnig hvort
þeir séu stríðaidir eða horaðir. Og
hvar af skepnunni er kjötið skorið?
Eru þetta lundir, rifjasteik eða lær-
vöðvar? Verkamenn eru misjafnlega
af guði gerðir. Holdanaut hafa veriö
höfð til ræktunar í Hrísey, og hér eru
rekin svinabú og kjúklingarækt af
kunnáttu. En enginn hefur heyrt get-
ið um hoidarækt á verkamönnum og
þess vegna verður að gera þá kröfu
að kaupfélagið á Selfossi upplýsi
neytendur um þau bú, þar sem
verkamenn eru aldir til manneldis.
Kaupmenn þurfa sömuleiðis aö geta
keypt verkamenn beint frá bændum
og búmönnum, þegar þessi nýja vara
kemur á markaðinn. Eða eru verka-
mennirnir kannski seldir á fæti?
Dagfari heföi haldið að kaupmenn
og viðskiptajöfrar væru ákjósanlegir
til manneldis. Eða þá ráðherrar.
Þeir eru yfirleitt vel aldir. En
kannske er ekki nóg framboð af slíku
fólki. En amalegt væri það ekki, að
auglýsa ráðherrakjöt á matseðHnum
í þeirri hörðu samkeppni sem ríkir á
matsölu- og veitingastöðum.
Ef skilja ber auglýsinguna frá
kaupfélaginu á Selfossi á þann veg
að verkamenn séu leiddir til slátrun-
ar hefur Verkamannasamband ís-
lands fengið nýtt og veigameira hlut-
verk, og fer maður þá að átta sig á hjá Guðmundi jaka. Auðvitað hljóta
þeirri kröfuhörku sem fram kemur mennimir að geta gert þá sjálfsögðu
kröfu að þeir séu vel haldnir í mat og
launum þegar stéttin er auglýst sem
nýjasti matarrétturinn hjá kaupfé-
lögum landsbyggðarinnar.
Svo er vitaskuld hinn möguleikinn
einnig fyrir hendi aö kjötið sé auglýst
sem verkamannakjöt vegna þess að
verkamönnum einum sé ætlaö að
borða það. Þaö er ekki minni ný-
lunda. íslendingar hafa ekki farið í
mannamun eða stéttaskiptingu þeg-
ar þeir grípa til matar síns. Ef kaup-
félagið á Selfossi ætlar að taka upp
þann sið að bjóða verkamönnum upp
á sérmáltíðir, og embættismönnum,
iðnaðarmönnum eða verslunarfólki
upp á annan kost, þá er það eflaust
runnið undan rifjum þeirrar land-
búnaðarstefnu sem ríkir hér um
þessar mundir. Sú stefna gerir nefni-
lega ráð fyrir, að íslendingar éti ým-
ist gott kjöt eða vont kjöt, góðar kart-
öflur eða vondar, góð egg eða slæm.
Nú hafa þeir ákveðið að verkamenn
éti þetta kjöt en háskólaborgarar
hitt. Þess vegna er verkamannakjöt
auglýst. Viðskiptavinir kaupfélags-
ins eru hér með beðnir um að hafa
persónuskilriki með sér, næst þegar
þeir kaupa i matinn.
Dagfari,