Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1984, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1984, Síða 7
DV. MIÐVKUDAGUR 29. ÁGUST1984. 7 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Söluskattur af bókum: BETRISTARFSSKILYRÐI - AUKIN SKATTPÍNING Þaö er ekki alltaf öllum til óbland- innar gleði þegar hiö opinbera stækkar viö sig og bætir aöstööu sína til muna. Dæmi um þetta er Póststofan í Reykja- vík. Nýlega flutti hún í glæsileg húsa- kynni í Armúlanum. Starfsskilyröi starfsmannanna stórbötnuöu og nú gafst þeim tækifæri til aö sinna öllum eða flestum verkefnum sem þeim hef- ur verið uppálagt aö sinna fram aö þessu. Eitt af því sem tekiö var upp var aö láta almenning borga söluskatt af bókum sem hann fær gjarnan send- arerlendis frá. Lög segja aö allar bækur sem kosta 250 krónur eða meira séu söluskatts- skyldar. Þaö þýöir aö borga verður 25,85 prósent af þeim bókum sem falla undir þennan lagabókstaf. Lög um þetta voru reyndar sett 1978 og var þá miðað viö 25000 krónur sem uröu aö sjálfsögðu 250 krónur þegar krónunni var breytt. En frá þeim tíma hefur veröbólgan riðið hér húsum og laus- lega áætlaö ætti raungildi upphæðar- innar f rá 1978 aö vera 1500 krónur. Þarf ekki að borga skatt úti á landi? Menn hafa velt því fyrir sér hvort fólk úti á landi njóti enn góðs af mikl- um þrengslum á pósthúsum og sleppi við aö greiöa söluskattinn. Samkvæmt áreiðanlegum upplýsing- um frá viöeigandi yfirvöldum þurfa þeir sem búa úti á landi einnig að greiöa söluskatt. Ástæöa fyrir því er sú aö allur póstur sem berst til landsins fer í gegnum Reykjavík. Og á landinu er aöeins ein tollpóststofa og hún er í tæpum 60 krónum og aö auki verður hann aö borga í strætó 60 krónur. Hann haföi reyndar tekið skiptimiða en hann var útrunninn þegar Bókmundur fékk bókina sína í hendur. Þaö var vegna þess aö hann þurfti aö bíöa óratíma áöur en hann fékk bókina í hendur. Við leituðum til forráöamanna í póstinum og hjá tollinum og spurðumst fyrir hvers vegna þessi seinagangur væri í kerfinu. Það er skemmst frá því aö segja að fátt varö um svör og benti hver á annan. Enda er ekki óeölilegt aö um seinagang sé að ræöa þegar smá- sendingar sem bækur þurfa aö fara um hendur tveggja opinberra stofnana áöur en þær eru afhentar, og það gerist á meöan viðtakandi bíöur spenntur eftir aö fá aö lesa þær. „Ef menn vilja halda uppi þessari skattheimtu tel ég aö það veröi aö vera einföld og fljótleg afgreiösla,” segir Árni Kolbeinsson í fjármálaráðuneytinu. Er skattheimtan réttlát? Þaö er ljóst aö ekki eru allir sáttir við þaö aö þurfa aö greiða þennan söluskatt og sérstaklega eftir að þessi viðmiöunartala hefur minnkað svo mikið sem raun ber vitni. 1 viötölum viö opinbera aöila kom fram aö þegar pantaöar eru bækur frá útlandinu eru þær oft sendar hingaö án þess aö greiddur hafi veriö söluskattur erlendis. Þaö er því vandasamt að seg ja til um þaö hvort þaö sé réttlátt aö sá sem fær bók senda meö þessum hætti sleppi viö aö borga söluskatt á meöan allir þeir sem kaupa bækur í verslunum innanlands veröi aö borga söluskatt. Bækur sem metnar eru aö andvirði 250 krónur og meira eru söluskattskyldar og þykir mörgum það vera óréttláit og óeðlileg viðmiöunarupphæð. Reykjavík, nánar tiltekiö í Ármúlan- um. Þar eru starfandi tollverðir sem taka aö sér aö tollmeta allan póst sem síöar á eftir aö fara út á land. Pósthús- in úti á landi taka síðan viö þessum pósti tilbúnum til afgreiðslu, þar sem nákvæmlega er greint frá því hvort greiða eigi skatt eöa ekki. Seinagangur í kerfinu En hverfum aftur til Reykjavíkur og setjum okkur í spor Bókmundar sem býr í Breiðholtinu og fær tilkynningu um það aö hann eigi bókarsendingu, sem hann geti sótt á Póststofuna í Ár- múlanum. Bókmundur, sem á engan bíl, fer meö almenningsfarartæki til aö sækja bókina. Það kemur í ljós aö verö- mæti bókarinnar er 250 krónur. Hann veröur að borga söluskatt sem nemur Árni Kolbeinsson sagöi aö það væri einna helst hægt að tala um óréttláta skattlagningu þegar um vinagjafir væri aö ræöa og sem keyptar hafa ver- iö á fullu verði í verslunum erlendis. Árni sagði einnig aö þaö mætti alltaf velta vöngum yfir því hvort þaö borg- aöi sig fyrir ríkið aö innheimta þennan skatt. Þaö kostar aö sjálfsögöu pen- inga fyrir ríkiö að standa í þessari inn- heimtu og hugsanlegt aö þaö borgi sig ekki. Hann sagöi aö viðmiðunarupp- hæöin frá 1978 heföi sjálfsagt veriö ákveöin meö þaö í huga aö draga ein- hver mörk í þessari skattheimtu. Hagstofugjald Þá má einnig geta þess aö þær bækur sem berast hingaö án þess aö þeim fylgi upplýsingar um verö eru verð- lagðar af tollyfirvöldum út frá svoköll- uöu Hagstofuveröi en það er ákveðið er þaö 255 krónur fyrir eitt kíló. Þaö söluskatt af 310 krónum, sem er áætlað viömiöunai'verð sem hægt er aö fá upp- þýöir aö ef Bókmundur fær bók sem andvirði bókarinnar. gefið hjá Hagstofunni. Nú sem stendur vegur tvö kíló veröur harrn aö greiöa • RR/APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.