Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1984, Side 30
30
DV. MIÐVIKUDAGUR29. ÁGUST1984.
Sígiirbjöm sópaöi
til sín verðlaunum
—á Fáksvellinum um helgina
Síöasta hestamót á Islandi áriö
1984 fór fram á Fáksvellinum í Víðidal
á laugardaginn síðastliðinn. Þar var
um aö ræða Revlonmótið, opið hesta-
v. 0- íþróttamót. I unglingaflokki var keppt
í tölti, fjórum gangtegundum, fimm
gangtegundum, gæðingaskeiöi og 250
metra skeiði. Segja má að Sigurbjörn
Bárðarson hafi sópað til sín verð-
laununum því hann sigraði í töltkeppn-
inni, fjórum gangtegundum og fimm
gangtegundum en var í öðru sæti í
gæðingaskeiði og 250 metra skeiði.
Fullorðnir
Keppnisfyrirkomulag á Revlon-
mótinu var þannig í undanúrslitum
að tveir keppendur voru á brautinni í
einu. Það er til fyrirmyndar á móti
sem slíku er keppendur eru fjölmargir.
Sigurbjörn Bárðarson sigraöi þrefalt. I
töltkeppninni sigraöi hann á Gára. Jón
Gísli Þorkelsson var annar á Stíganda
en Orri Snorrason þriðji á Kóral. I
fjórum gangtegundum sigraði Sigur-
björn einnig á Gára. Gísli Þorkelsson
var annar á Stíganda en Eiríkur
Guömundsson þriðji á Eldi. I fimm
gangtegundum sigraöi Sigurbjörn á
Neista. Siguröur Marínusson var
annar á Skálpa en Erling Sigurðsson
þriðji á gamla brýninu Frama. Reynir
Aðalsteinsson sigraöi í gæðinga-
skeiðinu á Spóa. Sigurbjörn Báröarson
var annar á Leisti en Haraldur Sigur-
geirsson þriðji á Jóni Hauk.
Aðstæöur til skeiðs voru mjög
Sigurbjörn Bárðarson á Gára
(DV myndE.J)
Unglingakeppni
Islandsmeistararnir í unglinga-
flokki, Sólveig Ásgeirsdóttir og Hjörný
Snorradóttir stóðu sig vel á Revlon-
mótinu. Keppt var í einum flokki. Sól-
veig sigraöi tvöfalt á Neista en Hjörný
■*"» var í öðru sæti í fjórum gangtegundum
og þriðja í töltinu á Kasmír. Helgi
Eiríksson var annar í töltinu og þriðji í
fjórum gangtegundum á Loftfara.
Ekki er hægt að skilja svo við umsögn
um unglingakeppnina án þess að minn-
ast á það hve unglingar eru oft látnir
mæta afgangi í skipulagningu. Þeir
þurfa alltaf aö byrja fyrst á morgnana.
Á þessu móti keyrði þó um þverbak er
úrslit í tölti og fjórum gangtegundum
fóru fram. Fjórir af fimm unglingum
voru í úrslitum í báöum greinum og
fóru úrslit í báðum gangtegundum
fram strax á eftir úrslitum í tölt-
keppni. Hestar og knapar fengu tæpar
f imm mínútur til að hvíla sig.
Sigurvegarar í fjórum gangtegundum unglinga. T.v. Sólveig Ásgeirsdóttir, Hjörný Snorradóttir, Helgi Eiríksson,
Siguröur Teitsson og Gunnar Engilbertsson.
góðar. Völlurinn harður og örlítill með-
vindur. Hildingur kom á óvart. Eiríkur
Guðmundsson sat hann og náði besta
tíma sumarsins 22,0 sek. Þó var
hesturinn keppnislaus mestan hluta
leiðarinnar. Leistur var í öðru sæti, á
22,3, knapi Sigurbjöm Báröarson.
Villingur var í þriðja sæti á 22,4 sek en
knapi var Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Hörður G. Albertsson á alla þessa þrjá
veringa. Auk þess náöi Spói og Reynir
Aðalsteinsson tímanum 22,4 sek.
Því miður tók mótshald alltof
langan tíma. Byrjaði til dæmis ekki
fyrr en þremur korterum of seint og
eftir því sem á daginn leið urðu tafir
tíðari og meiri. Til þess að áhorfendur
nenni að mæta á hestamót verða þau
aö vera þrautskipulögö og tímaáætlan-
ir að standast. Knapar voru alltaf til
meö hesta sína þannig aö ekki er hægt
að kenna þeim um tafir. E. J.
(DV-myndirE. J.)
Séra Sveinbjöm gefur Magnús og Elínu saman.
Miðnæturbrúðkaup
og Hrunadans
Boðsgestum í fimm ára búskapar-
afmæli Magnúsar Grímssonar og
Elínar Þórðardóttur á Jaðri í Hrauna-
mannahreppi kom þaö á óvart að
prestur staðarins, séra Sveinbjörn
Sveinbjarnarson, mætti á staðinn í full-
um skrúöa. Skýring fékkst þó fljótlega.
Magnús og Elín höfðu nefnilega fyrir-
hugaö giftingu sem átti að koma á
óvart. Öllum sveitungum, svo og
ættingjum og vinum, var boðið í fimm
ára búskaparafmæli en giftingunni var
haldið leyndri.
Fyrstu gestirnir komu um klukkan
21.00 á föstudagskvöldiö 24. ágúst
síðastliðinn og stööugt bættist við
gestafjöldann. Dansað var í nýlegri
vélageymslu sem þau höfðu reist en
Garðar Olgeirsson í Hellisholtum og
Bragi Björnsson úr Hafnarfirði spiluðu
undir á harmóníkur. Upp úr miðnætti
fór athöfnin fram. Séra Sveinbjörn gaf
Magnús og Elínu saman í heilagt
hjónaband. Eftir heillaóskir og ræður
hinum nýgiftu til handa var tekið til viö
dansinn og stóð samkoman fram undir
morgunn.
Þrátt fyrir heyskap mættu þarna
rúmlega tvö hundruö manns. Margir
Hrunamenn voru aö klára heyskap um
kvöldið og nóttina en brugðu sér upp að
Jaðri er öllu var lokið. Þarna fóru því
fram töðugjöld margra bænda úr
Hrunamannahreppi. Enda voru gestir
að ræða það sín á milli að slíka sam-
komu þyrfti að halda á hverju ári. -ej.
Magnús opnar kampavínsflösku.
Brúðardansinn.