Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Page 3
DV. FÖSTUDAGUR 2. NÖVEMBER1984.
3
Þórður Óskarsson hf. á Akranesi hætt rekstri:
„Búið að rýja okk
ur inn að skinni”
„Viö eruin hættir og opnum ekki
aftur, það eru hreinar línur. Það er
búið að rýja okkur inn að skinni,”
sagði Þórður Öskarsson, fram-
kvæmdastjóri frystihússins Þóröur
Oskarsson hf., í samtali við DV en
togarinn Oskar Magnússon, sem fer
undir hamarinn í næstu viku, lagöi
m.a. upp afla í frystihúsinu. Þórður
er jafnframt stjórnarformaður í Ut-
gerðarfélagi Vesturlands sem gerði
út Oskar Magnússon.
Að sögn Þórðar var togarinn einn
hinna fyrstu sem gengis- og verð-
tryggð lón voru sett ó en hann er
byggður hér innanlands.
„Skipið var í byggingu ó gömlu
kjörunum er hin komu til og við
sögðum strax að þau væru vonlaust
dæmi. Þvi var ekki sinnt og þó
neituðum við í fyrstu að skrifa undir
kaupsamninginn en þó var okkur
sagt að annaðhvort gerðum við það
eða misstum skipið,” sagði Þórður.
Þetta var fyrir tæpum 7 órum.
Erfitt reyndist að fó uppgefið hve
Skuttogarinn Óskar Magnússon.
—segir
fram-
kvæmda-
stjórínn
miklar skuldir eru hvílandi ó Öskari
Magnússyni nú en eftir því sem DV
kemst næst munu þær nema um 130
milljónum kr. — (húftryggingar-
verðmæti skipsins er 97,5 millj.) en
tekiö skal fram að togarinn er alls
ekki meöal þeirra skuldseigustu, ó
sumum togurum hvíla allt að tæp-
lega 200 milljónir kr.
Að sögn Þórðar óttu þeir í raun
ekki annarra kosta völ en taka skipið
því lítill sem enginn afli hefur verið i
Faxaflóa undanfarin ór og því hafa
vertíðarbótar fró Akranesi dottið út
einnaföðrum.
Fyrirtækið Þórður Oskarsson hf.
hefur starfað undanfarin 25 ár og
þegar mest var unnu hjá því um 100
manns en ó síöustu árum hafa þetta
veriö á milli 80 og 100 manns ef
skipin eru meðtalin.
Þórður sagði aö Fiskveiðasjóöur
hefði gefið þeim ákveðna línu um
hugsanlegt framhald ó útgerð togar-
ans en Þórður sagði slíkt myndi duga
í mánuð og þá væri ailt endanlega
búið.
-FRI
Efnahagslegt
verkfall í
Laxdalshúsi
Laxdalshús á Akureyri hefur verið
lokaö síðan um miöjan september.
„Það er efnahagslegt verkfall,” sagði
örn Ingi myndlistarmaöur sem hefur
húsið á leigu og stóð þar fyrir veitinga-
sölu og menningarsköpun í sumar.
örn sagði að bráðlega yrði rætt um
framtíðarmál Laxdalshúss við bæjar-
yfirvöld. Aöstaða væri ekki full-
nægjandi fyrir rekstur veitingahúss,
auk þess gilti veitingaleyfið aðeins til
áramóta. Miðað við þann stofnkostnaö
Uppgjör
korthafa
Islenskir frímúrarar í egypskri landamærastöð:
sem hefði þurft að leggja út í væri
vonlaust að reka Laxdalshús með því
aö miða aðeins viö þrjó sumarmánuöi.
Þó hefði aðsókn verið mjög mikil í
sumar, 10 þúsund manns komið en stór
hluti aðeins til aö skoða húsið.
Þó hefur verið auglýst að Laxdals-
hús sé aöeins opið ef pantað er fyrir
hópa. öm Ingi sagði að tilrauninni með
rekstur veitinga- og menningarstaðar í
Laxdalshúsi væri ekki lokið. „Eg er
ákveðinn í að gera það skynsamleg-
astaímálinu.”
JBH/Akureyri.
Hin nýja þyria Landhelgisgæslunnar, er kom til landsins fyrir skömmu, hefur nú
veriö máluð ílitum og með táknum gæslunnar og þyrluflugmenn þegar farnir að æfa
sig. DV-myndS.
Uppi hafa verið vangaveltur um
hvernig uppgjöri greiðslukortaeigenda
verði háttað nú um þessi mánaðamót
vegna röskunar á póstsamgöngum
vegna verkfalla. Hjá Kreditkortum sf.
fengust þær upplýsingar að verið væri
að senda út gíróseðla. Venjulega er
síðasti gjalddagi 5. hvers mánaðar en
nú verður gefinn frestur til 6. nóvem-
ber. Allir korthafar geta fengiö
upplýsingar í bækistöðvum fyrirtækis-
ins um úttektir sínar. Ef þeir hafa ekki
fengið gíróseðil fyrir þann 6. eiga þeir
að greiða beint til viðkomandi banka
eða Kreditkorta sf.
Hjá Visa Island er síðasti gjalddagi í
dag 2. þessa mánaðar og verður
honum ekki breytt. Korthaf ar þar geta
fengið upplýsingar um hversu mikið
þeir hafa tekið út á kortin í sínum
viöskiptabanka. Undanfarna daga
hafa birst auglýsingar þess efnis í dag-
blöðum.
Þnr í stofufangelsi,
hinir snæddu kalkúna
„Viö erum hér í ágætu yfirlæti og
dásamlegu veðri í Luxor en dollar-
ana erum við ekki búin að fá aftur,”
sagði Zophanías Pétursson, fyrrum
deildarstjóri í Tryggingastofnun
ríkisins og fararstjóri hópsins sem
lenti í klónum á egypskum landa-
mæravörðum og sagt var frá í DV í
gær.
„Við erum hér á eigin vegum, 34
manna hópur, mest frímúrarar,”
sagði Zophanias, „og vorum á leið
frá Kairó til Tel Aviv er þetta
leiðindaatvik varð. Egypsku landa-
mæraverðimir stöðvuðu okkur og
vildu að þrír okkar gerðu grein fyrir
dollurum sem þeir höfðu í fórum
sínum og varð úr mikið stapp.
Endaöi það með því að þremenning-
unum var haldið eftir í nokkurs
konar stofufangelsi í alllangan tíma
en á meðan fengum við hin að halda
áfram yfir til Israel. Þar biöum við
félaga okkar á glæsilegum veitinga-
stað þar sem við nutum dýrlegra
veitinga Israelsmanna sem vildu allt
fyrir okkur gera þegar þeir fréttu af
útistöðum okkar við Egyptana,”
sagði Zophanías.
Frímúrarnir gæddu sér á kalkún-
um og nautatungu á meðan þeir biðu
félaga sinna og eftir að hafa skoðað
Tel Aviv ákvað hópurinn að fljúga til
Kairó og komast þannig hjá óæski-
legum endurfundum í egypsku
landamærastöðinni. Þar sitja landa-
mæraverðirnir aftur á móti enn á
dollurum Islendinganna en að sögn
Zophaníasar beitir islenska utan-
ríkisþjónustan sér nú af alefli í mál-
inu.
-EIR.
APH